Dagblaðið - 27.10.1978, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 27.10.1978, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1978. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR FRUMSÝNIR í AUSTURBÆJARBÍÓI: RUMRUSK —áöllumaldri Þetta nýja miönæturleikrit Leikfélagsins fjallar á spozkan hátt um sambúð fjögurra hjóna og hvernig þau bregðast viö óvæntri uppákomu eina nótt. Höfundurinn er brezkui.heitir Alan Ayckbourne, og hefur verið sýndur við grfðarlegan fögnuð siðan, bæði i heima- landi sinu, i Danmörku og víðar. Hann fjallar um vanda sem margir kannast við: hvernig á að varöveita hamingjuna i hjónabandinu án þess að glata öllum spenningi. Hann skrifar um Jón og Gunnu, hjónin á næstu hæð, hvernig þau þrá og geta ekki verið án.hvors annars, en geta samt ekki hætt að láta sig dreyma um ástarsigra bak við næsta horn, þó ekki væri nema til að hressa upp á sjálfs- traustið. TrevorogSusanna: HJÓNAERJURNAR í HÁPUNKTI Allt hefði sjálfsagt gengið með friði og spekt þetta kvöld hefðu ekki Susanna og Tevor verið með. Þessi ágætu hjón eiga við ýmis vandamál að stríða sín á milli og. hafa djúpstæða þörf til aö ræða þau við sálfræðinga, nágranna og vini og yfirleitt alla þá, sem með nokkru móti nenna að hlusta. Og leit þeirra að skilningsríkum áheyrendum vekur mikinn öldugang hjá öllum hinum hjónunum þessa nótt. Því ástríöuhitinn — eða sálfiækjurnar — hjá Trevor og Susönnu láta engan ósnortinn, enda viðureign þeirra allt að því lifshættuleg á stundum. Hér hefur ást bóndans á konu sinni ýtt honum til- finningalega fram á yztu nöf: „Ég var stakasta Ijúfmenni,” æpir hann, „alveg þangað til ég kynntist þér.” (Susanna: Soffia Jakobsdóttir, Trevor: Kjartan Ragnarsson). Kateog Malcolm: ER ÉG MEIRA SEXÝEN SMÍÐATÓLIN? Pari í kvöldsins er haldið hjá hjónun- um Kate og Malcolm. Þau eru oftast beztu vinir. Það er þó eitt sem angrar Kate. Bóndi hennar hefur takmarkalaust yndi af smíðum, sér- staklega að setja saman ýmsa timhur- vöru, sem maður kaupir hálfsmíðaða í pökkum. Því verður ekki neitað, að Kate finnst stundum, að hann eyði óþarflega miklum tíma í „gerðu-það-sjálfur” pakkana sína. Og þegar gestirnir eru farnir, trúir hún honum fyrir því, að hún hafi stolist til að. Kate: „....skoða blöðin, þessi sem þú faldir í sokkaskúffunni.” Malcolm: sver allt af sér: „Það var náungi, vinur niinn, sem vildi endilega gefa mér þau.” En Kate gefst ekki upp: „Ég skoðaði þau. Mér datt í hug — sko — að ég mætti vera svolítið meira æsandi — þin vegna — ég vil alls ekki, að þú fáir leið á mér...” (Kate: Helga Stephensen, Malcolm: Jón Hjartarson). Texti: Ljósmyndir: Inga Huld Hörður Hákonardóttir Vilhjálmsson. NickogJenny Bóndinn fær þursabit Vesalings eiginmaðurinn er veikur og þráir hjúkrun og aðhlynningu, en það er nú eins og það gengur og allir þekkja, að misjafnlega stendur á. Frúin vill ekki missa af partí i hjá ná- grönnunum. Þegar hún snýr heifn liggur hann á gólfinu viðþolslaus af þursabiti. Hún er að hjálpa honum upp í rúmið þegar óþolandi grunsemdir blossa upp í huga hans: Nick: Stattu kjur!!! Jenny: Ó, Nick minn, elskan ... (Jenny: Edda Þórarinsdóttir, Nick: Pétur Einarsson). Leikstjóri Rúmrusks er Guðrún Ásmundsdóttir. ErnestogDelia: i bólinu Ernest og Delia eru foreldrar Trevors. Eftir langt Kjónaband eru þau komin yfir verstu skerin og inn á lygnan sjó. Þau eiga saman góðar ánægjustundir, eins og núna þegar Delia fær Ijómandi hugmynd: „Eigum við að vera ægilegir prakkarar og fá okkur sardínur i rúmið?” Ernest er auðvitað til I það. Þegar til á að taka finnst ekki annað sjómeti I búrinu en kvenloðna I eigin legi. Það er það, sem þau eru að borða um hánótt I mestu huggulegheitum uppi í rúmi, þegar allt I einu er hringt harkalega við dyrnar... (Delia: Guðrún Stephensen, Ernest: Karl Guðmundsson). Brugðið áleik

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.