Dagblaðið - 27.10.1978, Blaðsíða 24
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1978.
Grænt skal það vera
Nýja Spilverksplatan er komin út, græn að lit
Nýjasta hljómplata Spilverks þjóð-
anna, ísland, er komin í verzlanir,
fagurgræn að lit. Hún mun vera fyrsta
íslenzka platan, sem gerð er í öðrum lit
en svörtum. Erlendis hefur litadýrðin
sifellt færzt í aukana upp á síðkastið
og eru nú gefnar út plötur í öllum
regnbogans litum.
Island er fimmta hljómplata
Spilverksins. Engin íslenzk hljómsveit
Jazzvakning — Dexter Gordon
Tapiö 200þúsund
„Eftir að allir reikningar höfóu
verið upp gerðir — þar á meðal
skattarnir — kom i Ijós að við
höfum tapað tæpum tvö hundruð
þúsund krónum á hljómleikum
Dexters Gordon og hans manna.
Þá peninga áttum við í sjóði, svo að
nú skuldum við engum neitt,”
sagði Pétur Grétarsson formaður
Jazzvakningar, er hann ræddi við
DB á þriðjudag.
I Dagblaðinu daginn áður, á
mánudag, var haft eftir Jónatan
Garðarssyni hjá Jazzvakningu að
tapið á hljómlcikunum yrði 3—500
þúsund. Pétur kvað það hafa verið
óþarfá svartsýni að áætla tapið svo
hátt. „Hins vegar er það rétt hjá
Jónatani, að það er með öllu
óþolandi að við skulum þurfa að
greiða mun meiri skatta en riki og
bær af hljómleikum,” sagöi Pétur.
Hann sagði að siður en svo væri
hætt við að halda hljómleika með
tríóí Duke Jordan hér á landi um
mánaöamótin nóvember/desember.
„Það er ekki búið að ákveöa
dagsetninguna ennþá,” sagði
Pétur. „Tríóið kemur hér við á leið
sinni vestur um haf. Það hefur
verið á hljómleikaferð í Evrópu að
undanförnu og fellst á að halda hér
eina hljómleika í heimferðinni. Við
ætlum ekki að taka Háskólabíó á
leigu undir þá hljómleika, heldur
halda þá á einhverjum minni stað,
svo sem Hótel Sögu eða Loft-
leiðum.” -ÁT-
„Dettið í lukkupottinn"
Hversu mikið vitið þið
um Bay City Rollers?
Á poppsíðunni í gær var tilkynnt að
samstarf hefði tekizt með Dagblaðinu
og hljómplötudeild Fálkans um að
efna til spurningaleiks fyrir lesendur á
þriggja vikna fresti. Leikur þessi
nefnist „Dettið I lukkupottinn”! í
lukkupottinum eru að þessu sinni tíu
eintök af nýjustu breiðskífu Bay City
Rollers, Strangers in The Wind, og tíu
eintök af nýjustu litlu plötunni. Á
henni eru lögin All Of The World Is
Falling In Love og If You Were My
Woman. Bæði eru þau á nýju stóru
plötunni og bæði eru þau eftir þá
félaga Eric Faulkner og Stuart Wood.
Til að hafa möguleika á að eignast
eina af þessum plötum verður þú, les-
andi góður, að svara spurningunum
tíu hér að neðan rétt. Lausnirnar
eiga síðan að sendast Dagblaðinu,
Síðumúla 12, 105 Reykjavík og merkj-
ast sérstaklega „Dettið I lukkupott-
inn”.
Hér koma spurningarnar tíu:
1. Hvað heitir fyrsta lagið sem varð vinsælt með Bay City Rollers hér á
landi?
2. Hvaða lag kom Bay City Rollers i fyrsta skipti i fyrsta sæti banda-
riskra vinsældalista?
3. Hvað heitir söngvari Bay City Rollers?
4. Hversu margar breiðskrfur (LP-plötur) hafa Bay City Rollers sent frá
sór?
5. Hvað heitir sú nýjasta af þeim?
6. Hverjir em aðal lagasmiðirnir i Bay City Rollers?
7. Hvað heitir sá fyrrverandi liðsmaður hljómsveitarinnar sem varð að
hætta fyrir aldurs sakir?
8. Hve gamall var hann þá?
9. Hver tók stöðu hans f hljómsveitinni?
10. Hvað heita núverandi liðsmenn Bay City Rollers?
Berist fleiri en tuttugu réttar úr-
lausnir verður dregið úr þeim. Nöfn
hinna tuttugu heppnu verða birt á
fyrstu poppsíðu Dagblaðsins eftir að
skilafresti lýkur, en það er á föstudag-
inn í næstu viku.
SÆTAÁKLÆÐI
Efni: flauel, perlon,
velúr. pluss, ullog
poty-acryl.
piUðð.
Valshamar,
Lækjargötu 20, Hafnarfirði.
Simi 51511.
Já, NÝJU mjóu hœlarnir eru komnir og
fá \ tilbúnir undir skóna yðar.
! / \ Verið viðbúin húlkunni, gúmmígadda-
I 1 -j § hœlplöturnar fyrirliggjandi.
s V Víkkum kuldaskóna um legginn á mjög skömmum tíma.
Fjölg-
unar-
von hjá
Robert
Plant
Eiginkona Roberts Plant söngvara
Led Zeppelin á von á barni í desember.
Þau hjónin misstu fimm ára gamlan
son, Karac, i fyrra. Led Zeppelin var
þá á hljómleikaferð um Bandarikin.
Henni var þegar í stað aflýst og síðan
hefur hljómsveitin ekki komið saman
á sviði.
Plant er nú þrítugur að aldri. Hann
boðaði til blaðamannafundar í tilefni
af fæðingunni tilvonandi og kvaðst
fullur tilhlökkunar að geta hampað
nýju barni. — Karac sonur hans lézt
skyndilega úr virus sem kénnsl hafa
ekki verið borin á ennþá. Fjórtán
mánuðir eru liðnir síðan sá atburður
átti sérstað.
„Við óttuðumst að Maureen kona
mín gæti ekki eignazt fleiri börn,”
sagði Robert Plant á blaðamanna-
fundinum. Ástæða þess ótta var sú
að hún slasaðist illa í umferðarslysi
fyrir þremur árum. Þau hjónin voru
þá í sumarleyfi i Grikklandi, er ekið
var á þau. Plant sjálfur er hressilega
öróttureftir þaðslys.
Þessi slysaalda fjölskyldunnar hefur
sett mark sitt á Robert Plant siðustu
mánuðina. Á blaðamannafundinum
þar sem hann tilkynnti um óléttu konu,
sinnar var hann hins vegar kátur og
hress. „Það er mér mikið gleðiefni,”
sagði hann, „að geta nú loksins sagt
ykkur góðar fréttir, svona til tilbreyt-
ingar.
OrDAILY EXPRESS.
hefur sent frá sér jafnmargar plötur
með frumsömdu efni. Hins vegar
hafa örfáar hljómsveitir gert fleiri LP
plötur og á Ríó þar væntanlega metið.
Á fundi, sem haldinn var í tilefni af
útgáfu íslands, tilkynnti Steinar Berg,
útgefandi Spilverksins, að ákveðið
hefði verið að endurútgefa þrjár af
fyrri Spilverksplötunum. Einungis
platan CD-nærlífi kemur ekki út aftur.
Skýringuna á því kvað Steinar Berg
vera þá að hún ætti í framtíðinni að
verða nokkurs konar safnaraplata.
Hún hafi verið gerð einungis til að
varðveita þann anda, sem ríkti á
tónleikum Spilverks þjóðanna,
nokkurs konar endir á einum
kapítulanum í ferli hópsins. — Steinar
sagði að er CD-nærllfi var gerð hafi
Spilverkið verið farið að velta fyrir sér
gjörólíkum hlutum þeim er það sinnti
í upphafi og kvað það styrkja enn
frekar þá ákvörðun að halda plötunni
dáfitið sér í útgáfunni.
Á nýju plötunni eru tíu lög. I fljótu
bragði má segja að tónlistin sé nú
nokkru þyngri en síðast, á plötunni
Sturla. Hljóðfæraskipanin er í aðalat-
riðum sú sama og fyrr. Auk
Spilverksins sjálfs sjá eftirtaldir um
hljóðfæraleik á tslandi:
Magnús Einarsson fyrrum bassa-
leikari Þokkabótar fær titilinn sérlegur
aðstoðarmaður. Við Alfreðsson
blæs í trompett, f nskt horn og
básúnu. Björgvin t -íslason leikur á
gítar og sítar, Halldór Pálsson spilar á
saxófón og flautu og Magnús
Kjartansson á orgel. Þá leikur Lovísa
Fjeldsted á celló.
-ÁT-
ilíi
ii| T| 1 SS
V t
^* lj8á !ii!
8 IIII atí till
§> ! é : § §
*§* : *£» »»*
Frá þvi er myndirnar á umslag ISLANDS voru teknar á Tjörninni. Gerð þess var
I höndum Gylfa Gislasonar myndlistarmanns, en myndirnar tók Leifur Þorsteins-
son. DB-myndir ARI.
Vinsælustu diskóplöturnar
BRIMKLÓ — Lag hljómsveitarinnar Eitt lag enn er annað tveggja islenzkra
á vinsældalista Hótel Borgar. DB-mynd Ragnar Th. Sigurðsson.
Diskótek á Hótel Borg
Jóhannes Páll er
vinsælastur
í Gyllta salnum
Dagblaðið birtir nú i fyrsta skipti Hótels Borgar. Titilllagið af nýjustu
vinsældalista frá Hótel Borg. Þar plötu Brimklóar, Eitt lag enn, er i
hefur verið starfrækt diskótek um fjórða sæti og lagiö Stjáni saxófónn
nokkurra vikna skeið, nánar tiltekið í með Pjetri og úlfunum er númer átta.
Gyllta salnum. Það er fyrirtækið Að sögn Óskars Karlssotiu.J sem
Dísa sem sér um tónlistina á Borginni. sér um rekstur Dísu, eru plötusnúðar
Þaðer nafni páfans, Jóhannes Páll frá fyrirtækinu nú starfandi á þremur
ungi, sem skipar efsta sæti Borgarlist- stöðum í Reykjavík. Fyrst skal fræga
ans. Það lag hefur notið mikilla telja Borgina við Austurvöll. Þá í
vinsælda í sumar hér á landi sem veitingahúsinu i Glæsibæ og loks í
annars staðar. Jóhannes Páll, eða John Templarahöllinni. Þá sagði Óskar að
Paul Young, eins og hann nefnist á Disa væri með eitt ferðadiskótek um
útlenzku, er Ástraliumaður að þessar mundir. Slikt annríki er með
ætterni. Lagið Love Is In The Air er það .diskótek, að það annar engan
hið fyrsta sem hann gerir vinsælt. veginn eftirspurn.
Tvö íslenzk lög eru á vinsældalista -ÁT
HÓTEL BORG
1. LOVE ISIN THE AIR............John Paul Young
2. DANCING IN THE CITY............ Marshall, Hain
3. SUMMER NIGHTS. . . . John Travolta og Olivia Newton-John
4. EITT LAG ENN......................Brimkló
5. KISSYOU ALLOVER................... Exile
6. ONEFORYOU, ONEFORME.............La Bionda
7. BOOGIE OOGIE OOGIE...........A Taste Of Honey
8. STJÁNI SAXÓFÓNN..............Pjetur og úlfarnir
9. MISS YOU.......................Rolling Stones
10. STAYIN' ALIVE ....................BeeGees