Dagblaðið - 30.10.1978, Qupperneq 5
BIRTIR UPP HJÁ
SÆDÝRASAFNINU
240 milljónir fyrir háhyminga
„Nú hefur birt upp hjá Sædýra-
safninu i Hafnarfirði og trúin á það að
safnið eigi tilverurétt hefur borið
ávöxt,” sagði Hrafnkell Ásgeirsson,
lögmaður stjómar Sædýrasafnsins í
viðtali viðDB.
„Árið 1977 voru 5 háhymingar
seldir fyrirtækinu Sea World. Verðið
var 50 þúsund dollarar fyrir hvert dýr.
Sædýrasafnið hóf tilraunir i há-
hyrningsveiðum á opnu hafi árið
1976, að sögn Hrafnkels. Varð það
með þeim brauðryðjandi í þeirri grein.
Þá hefur Sædýrasafnið fengi leyfi
Sjávarútvegsráðuneytisins til að veiða
10 dýr. Verð þeirra til kaupenda hefur
hækkað og er nú, samkvæmt samning-
um við Sea World og International
Animal Exchange Inc. í Banda-
ríkjunum, 75 þúsund og upp í 81.900
Bandarikjadali fyrir hvert dýr.
Þetta staðfestir það sem fram kom í
frétt DB á laugardag um markaðs-
verð á háhymingum.
Takist að fanga og selja þau dýr,
sem nú hefur verið samið um við ofan-
greind fyrirtæki, verður andvirði
samtals rúmlega 241 milljón króna.
Veiðamar taka 2—3 mánuði.
„Lægra verð en 75 þúsund dollarar
er undir markaðsverði,” sagði
Hrafnkell Ásgeirsson. Hann kvað nú
vera i byggingu tvær hvalalaugar í
Sædýrasafninu. Þær kosta væntanlega
um 100 milljónir króna. Þessi aðstaða
gæti orðið til þess að skjóta traustum
fótum undir rekstur Sædýrasafnsins
að mati Hrafnkels.
„Safnið er sjálfseignarstofnun.
Enginn annar en safnið hagnast á
rekstri þess, ef vel gengur,” sagði
Hrafnkell. Hann sagði, að starfsmaður
sædýrasafnsins Sea World væri til
aðstoðar við veiðar háhyminganna og
að einn starfsmaður Sædýrasafnsins í
Hafnarfirði væri nú hjá Sea World í
San Diego i Kaliforníu til þess að
kynna sér meðhöndlun og þjálfun
dýranna þar.
„Inngangseyririnn einn sér mun
aldrei nægja til þess að kosta
reksturinn, hvað þá uppbyggingu,”
sagði Hrafnkell Ásgeirsson.
„Að frumkvæði Hjálparsveita skáta
í Hafnarfirði var safnið formlega
opnað almenningi 8. maí 1968,” sagði
Hrafnkell. Hann sagði að til þessa
dags hefðu um sex hundruð þúsund
manns skoðað safnið. Hafi það verið
metið að verðleikum af almenningi,
þrátt fyrir erfiðan róður í rekstrinum.
Hafa skipzt á skin og skúrir og oft
verið dökkt í álinn.
„Framkvæmdastjóri safnsins og
stjórn þess hafa haft óbilandi trú á
gildi þess og framtíð, enda þótt þessir
aðilar hafi gengið svo langt að veðsetja
eigin íbúðir i þágu þess, þegar verst
hefur gegnt,” sagði Hrafnkell. Hann
kvað þessar ábyrgðir vera milli 10 og
20 milljónir króna.
Þegar verst hafi árað, hefði viðhald
safnsins ekki verið eins og æskilegt
hefði verið. Það hefði verið forráða-
mönnum safnsins ljóst. Nú væri mikil
von til þess að úr erfiðleikum safnsins
rættist. Hlyti þaðað vera fagnaðarefni
öllum þeim sem að því stæðu og þeim
sem ættu eftir að eiga þar
ánægjustundir.
-ÓV/BS.
Annie Bright — syngur nú 1 Þórscafé.
DB-mynd Hörður Vilhjálmsson.
„Geislandi björt” sagði enska blaðið
„The Stage” um Annie Bright
söngkonu, en hún syngur nú í Þórscafé,
söng i fyrsta sinn á föstudagskvöldið við
góðar undirtektir gesta Þórscafés.Annie
Bright syngur vinsæl lög með Lúdó
sextett og Stefáni.
Annie Bright hefur sungið á
vinsælum stöðum í Bretlandi, auk þess
sem hún hefur oft komið fram í
sjónvarpi og gert mikla lukku. Og það
var greinilegt á föstudagskvöldið í Þórs-
café, er Annie Bright kom fram í fyrsta
sinn á íslandi, að gestir þar kunnu vel að
meta söng hennar og skemmtilega sviðs-
framkomu. Annie Bright mun syngja í
Þórscafé um þriggja vikna skeið.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1978
„Geislandi
björt”
— sagði „The Stage”
um Annie Bright,
sem núsyngurí
Þórscafé
Nú er verið að byggja tvær
hvaialaugar i Sædýrasafninu i Hafnar-
firði. Sú stærri er um 300 fermetrar.
Hin minni verður 12X12 metrar og
verður innangengt á milli þeirra.
Kostnaður er áætlaður um 100
milljónir króna.
LAUGAVEGI 33 ■ SÍM111508 STRANDGÖTU 37 ■ SÍMI 53762
ara
1975
1978
kr. afslátt
af hverri hljómplötu eða kassettu sem verslunin hefur uppá að bjóöa,
í tilefni þriggja ára afmælis fyrirtækisins.
Þetta af mælistilboð gildir út vikuna.