Dagblaðið - 30.10.1978, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 30.10.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30.OKTÓBER 1978 7 Greiddu hvor öðrum falska ef niskaupareikninga: Rafveitustjórar á Suðumesjum ákærðir fyrir fjárdrátt Rafveitustjórarnir í Grindavik og Njarövík hafa verið ákærðir fyrir fjár- drátt, brot i opinberu starfi og hlut- deild i brotum hvors annars. Hefur málið verið þingfest fyrir sakadómi Keflavíkur. Rafveitustjórarnir eru Helgi H. Hjartarson í Grindavík og Jóhann Lindal Jóhannsson í Njarðvík. Þeir eru sakaðir um að hafa sammælzt um að búa til falska efniskaupareikninga, þannig að hvor um sig bjó til reikning a rafveitu hins sveitarfélagsins og greiddu siðan hvor öðrum. Geröist þetta á árinu 1976 og náði yfir mestan hluta þess árs. Helgi H. Hjartarson, rafveitustjóri í Grindavík, er sakaður um að hafa þannig dregið sér 260.337 krónur og Jóhann Lindal Jóhannsson í Njarðvik 599.487 krónur. Helgi er einnig sakaður um að hafa dregið sér andvirði þriggja ljóslugta, samtals kr. 65.000. Jóhann Líndal hefur verið endur- ráðinn rafveitustjóri i Njarðvík og Helgi Hjartarson hefur til skamms tíma gegnt starfi rafvcitustjóra í Grindavik. Þar er um það bil að taka viðnýrmaður. Dómari í málinu er Sigurður Hallur Stefánsson, héraðsdómari í Keflavik. ÓV. Anna Moffo ásamt undirleikara sínum Martin Smith og Frank Ponzi eftir fyrri íónleika hennar hér sl. fimmtudag. DB- mynd Aðalsteinn Ingólfsson skrifar um tónleika Önnu Moffo: SÖNGUR OG LEIKUR Einu sinni hélt ég — og held reynar enn, að annar hver Íslendingur vilji vera myndlistarmaður. Nú sýnist mér, sem afgangurinn vilji vera söngvari. Helmingur landsmanna syngur í kórum, aðrir troða upp á einsöngsskemmtunum — viða um land, eða þá syngja heima hjá sér við öll möguleg og ómöguleg tækifæri. Söngvararnir fá sínar stór- stjörnur engu siður en myndlistarmenn, — hér er Dali ásamt með Souzay og Önnu Moffo, með stuttu millibili. Kannski væri hægt að kúpla þessum stjörnum saman við tækifæri og búa til mikið „Gesamtkunstverk”. Og ekki vantar auglýsingastarfsemina þegar stjörnurnar birtast, — þær eru allar hreint og beint frábærar og það versta er að allt lofið gerir vesæla gagnrýnendur hrædda. Nýjar gerðir af unglingaskrifborðum 60x125 cm Kr. 54.500.- 70x130 cm Kr. 35.500.- 60x125 cm Kr. 75.900 Hringbraut 121 Sími 10600 Sljörnur eru fólk Hvernig getur Hreinn G. Rýnan, blaðasnápur á fslandi rakkað niður það sem New York Times, Herald Tribune og Izvestija segja vera undur- samlegt? En stjörnur eru fólk og tekst misjafnlega vel upp og er misjafnlega vel fyrir kallað. Hverja tónleika verður að vega og meta þótt ekki megi gleyma verðmætum stjarnanna og þvi sem þær hafa gert best. Undirritaður, sem er leikmaður i söng og grammófónleikari, hljóp í skarð og sótti tónleika önnu Moffo i Háskóla- bíói í gær. íslendingar virðast bæði sér- fræðingar í að koma of seint og hósta á viðkvæmustu stöðum og sökum hins fyrrnefnda hófust tónleikarnir ekki alveg á minútunni. Svo sigldi Anna Moffo inn, glæsileg kona og „díva” fram i fingurgóma. Kvefhljóð Fyrsta lagið var „Tu lo sai”, þú veist, eftir litt þekktan Itala frá 18. öld, Torelli, og var það sungiö af mýkt og lipurð. Sama má segja um lögin úr hinni „frönsku” óperu Donizettis, „La Fille du Régi ment," en þó var eins og ekki væri allt með felldu á efri skalanum, kvefhljóð kannski, eða upphitunarvandamál. Lögin eftir Richard Strauss leysti Anna Moffo af hendi af áreynslulausu öryggi, en aftur á móti bar nokkuö á stífni og áreynslu í ariunum úr hinni lítt þekktu óperu Verdis, „Stiffelio”, sem að mér vitandi hefur aldrei verið sett upp, en inniheldur aftur á móti einstaka afbragðs-ariu. Undirleikarinn, hinn snarborulegi og brosmildi Martin Smith, vaktaöi hvern tón söngkonunnar eins og fjöregg. Ég er ekki frá þvi að meira öryggis hafi gætt í seinni helming tónleikanna. Anna Moffo virðist hafa sérstaka tilfinningu fyrir hrynjandi i spænskri tónlist og fylgir henni eftir (eins og öðru) með eðlilegum og heillandi leikrænum tilburðum. Dillandi léttir Uppáhaldsverk min af þessum tónleikum voru samt söngvararnir frá Auvergne, — dillandi léttir, fullir af flúri og gleði og þar fór La Moffo á kostum. Áheyrendur margir gerðu sér far um að hósta undir. Er ekki hægt að ætlast til þess að fólk búi sig undir tónleika með þvi að drekka hóstasaft? Síðasti hluti tónleikanna var helgaður tveimur óperum, „Adriana Lecouvreur” eftir hinn lítt þekkta Spánverja, Francesco Cilea og „Stúlkurinni úr Villta vestrinu" eftir Puccini. Túlkun önnu Moffo á hinu fyrra var hrifandi, en aftur hrikti ofur- lítið í stoðum síðari ariunnar, tónar, voru ekki hreinir og aftur bar á áreynslu. Sjálf er þessi ópera elskuleg- asta bull, en inniheldur nokkrar góðar ariur. Meiri fylling Menn fögnuðu ákaft i lokin og söngkonan kvaddi okkur með tveim aukalögum, úr „La Bohéme” og siðan hefur hún líklegast verið drifin inn í bíl til að ná flugi heim kl. 5.30. Þetta var upplifun sem ekki gleymist! — en ég var um stund að velta fyrir mér harkalegri gagnrýni nokkurra söngvara íslenskra á fyrri tónleika „dlvunnar”, fór svo heim og setti á upptöku hennar af „La Traviata” sem er nokkura ára gömul. Var það misheyrn min, eða var meiri fylling og lipurð í rödd hennar, áður fyrr? Ég er ckki frá því, en ég er bara leikmaður og grammófónleikari. -A.I. tommu meö fjarstýrinqu Æm\J aðeins kr. 467 þús. Til afgreiðslu STRAX. Erum að fá sendingu af 22 tommu — takmarkað magn — verð ca kr. 395.000.- Snertírásaskiptírtg — spennuskynjari — in-iine myndlampi — katt kerfi 2 — möguleiki fyrir p/ötu — og myndsegu/band — Aðeins 6 einingar í stað 14 sem eru í öðrum tækjum sem auðve/dar aiia þjónustu — stór hátaiari sem gefur skýrt hijóð RANK—MERKIÐ ER HEIMSÞEKKT GÆÐAVARA SJÖNVARP og RADÍÓ, Vitastíg 3. Sími 2574t>.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.