Dagblaðið - 30.10.1978, Page 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1978
13
ÞAÐ VAR
ÞRENNT
í ÞVÍ
—fyrsti snjórínná
Ekki er ráð nema i tima sé tekið. Lappað
upp á Ijósabúnaðinn fyrir veturinn.
Það er alltaf mikil tilbreyting þegar
fyrsti snjórinn fellur á haustin. þótt
skiptarskoðanir séu um ágæti hans.
Yngstu börnin sem sáu snjó i fyrsta
skipti á laugardaginn urðu ýmist smeyk
eða töldu sig hafa komizt í ómælt magn
rjómaíss. Heldur eldri krakkar fóru að
gera snjókerlingar og stálpaðir krakkar
hófu ofsafengið snjókast.
Fullorðna fólkið ýmist naut þess að
horfa á fegurð snjósins, einkum á grein-
um trjáa, fór að hugsa með tilhlökkun til
skíðaferða eða bölvaði hressilega yfir
sumardekkjunum undir bílnum. Hörður
Ijósmyndari DB fór á stjá í fyrsta
snjónum suðvestanlands i vetur og tók
þessar myndir. -G.S.
Lögreglan á
Hvolsvelli lýsir
ef tir vitnum
Á föstudagskvöldið var bifreið
stolið í Reykjavík og henni síðan velt
rétt austan við Þjórsá. Er bifreiðin
ónýt.
í bilnum munu hafa verið tveir pilt-
ar, 17—19 ára gamlir. Eftir veltuna
voru þeir teknir upp í vörubifreið, sem
flutti þá langleiðina að Hellu á
Rangárvöllum. Siðan sást til piltanna
þar sem þeir veifuðu bilum á vestur-
leið og er álitið að þeir hafi farið á
puttanum til Reykjavíkur.
Lögreglan á Hvolsvelli leitar nú að
þeim ökumanni sem flutti piltana til
Reykjavíkur og óskar að komast í
samband við hann.
Piltamir voru á svipuðum aldri,
17—19 ára, eins og fyrr segir. Annar
var fremur lágvaxinn, ljóshærður og
breiðleitur. Hinn var stærri og með
dökkt hár.
Það mun hafa verið eftir kl. 01.30
aðfaranótt laugardagsins, sem þeir
fengu far til Reykjavíkur. Bifreiðin
sem stolið var í Reykjavik og siðan
velt, var Cortina, appelsínurauð á lit,
með skrásetningarnúmerinu R—
52781.
Þeir sem geta veitt upplýsingar um
málið vinsamlegast hafi samband við
lögregluna á Hvolsvelli í síma 99—
5227.
ÓV.
Þingvallasveit:
Skotið á
bifreið
rjúpnaskyttu
Rjúpnaskytta i Þingvallasveit varð
fyrir því, að skotið var á bíl hennar
meðan hún gekk til rjúpna. Er
maðurinn kom til baka úr rjúpna-
leiðangrinum voru rúðurnar brotnar í
báðum framhurðum bíls hans þar sem
hann stóð undir Ármannsfelli. Var
greinilegt að skotið hafði verið i gegn-
um bilinn þannig að rúðurnar
mölbrotnuðu. Kærði hann atburðinn
til Selfosslögreglunnar um kl. 16.30 á
fimmtudaginn.
Trén „laufguðust” fagurlega eftir að hafa nýlega fellt sumarlaufið.
Snjókerlingasköpun og snjókast urðu að iþróttum dagsins.
Ríkisstjórn-
in varð að
„lúffa”
í gos-
drykkja-
og smjör-
líkisstríð-
inu
Ríkisstjórnin hefur látið undan öl-,
gosdrykkja- og smjörlíkisframleiðendum
um viðbótarhækkun á fram-
leiðsluvörum þeirra. Hefur þar með
verið staðfest samþykkt verðlagsnefndar
frá 18. októbersl.
Hefur þetta i för með sér 25%
hækkun á öli, gosdrykkjum og smjörlíki
og má búast við að þessar vörur vprði til
í verzlununum strax í byrjun vikunnar,
en nokkuð hefur borið á skorti á þeim að
undanförnu.
1 frétt frá rikisstjórninni um málið
segir að sáttatilraunir hennar hafi engan
árangur borðið, iðnrekendur hafi tokað af-
greiðslum verksmiðja sinna og yfir hafi
vofað atvinnuleysi mörg hundruð
manna. Þvi hafi ríkisstjórnin ekki séð
sér annað fært en að staðfesta viðbótar-
hækkunina.
GM-Vetrarþjónusta
CHEVROLET BUICK VAUXHALL OPEL
1. Mótorþvottur
2. Rafgeymasambönd hreinsuð
3. Mæling á rafgeymi og hleðslu
4. Skipt um loftsíu
5. Skipt um platínur
6. Skipt um kerti
7. Viftureim athuguð
8. Kúpling stillt
9. Kælikerfi þrýstiprófað
10. Skipt um bensínsíu í blöndungi
11. Frostþol mælt
12. Mótorstilling
13. Öll Ijós yfirfarin og aðalljós stillt
14. Hemlarreyndir
15. Stýrisbúnaður skoðaður
16. Rúðuþurrkur og sprauta athuguð
Verð: 4 strokka vél kr. 20.549.—
6 strokka vél kr. 22.488.—
8 strokka vél kr. 24.186.—
Gildir 9/10—7/72
Efni, sem innifalið er í verði:
Kerti, platínur, frostvari, bensínsía og loftsía
SAMBANDIÐ VÉLADEILD
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
HÖFÐABAKKA 9. Simar: Verkst.: 85539
-GAJ
•ÓV.