Dagblaðið - 30.10.1978, Page 14

Dagblaðið - 30.10.1978, Page 14
14 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30.OKTÓBER 1978 V Tjáningarfrelsi er ein meginforsenda þess aö frelsi geti viðhaldist í samfélagi Lífið er erfitt. Veðrið er leiðinlegt og við sjáum fram á langan, dimman og kaldan vetur. Og allt er svo dýrt. Bæði maturinn og brennivínið. Og húsnæðið. Þess vegna urðum við heidur en ekki hissa þegar við höfðum samband við hjúskaparmiðlara, sem auglýsti hjá okkur. Það kostar þá ekki nema sex þúsund krónur að skrá sig hjá honum i ,von um lífsförunaut. Tvö þúsund krónur í viðbót, ef varanleg kynni takast. — Að fá traustan karlmani) til ásta fyrir átta þúsund krónur, það verða að teljast kostakjör! Og við stóðumst ekki freistinguna að athuga málið betur. Manneskjan þolir ekki einveru Það er Kristján Jósefsson, sá sem áður rak Íslenzka dýrasafnið og frægur varð af viðskiptum sínum við skattyfirvöldin i því sambandi, sem rekur þessa starfsemi í Breiðfirðinga- búð, sími 26628. — Ég byrjaði á þessu fyrir svo sem fjórum árum, mest af því ég þekkti svo mikið af einmana fólki. Og ég hafði séð margar harmsögur, sem áttu rót sína að rekja til þess, að fólkið hafði engan félagsskap. Það er áreiðanlega alveg rétt, sem stendur i biblíunni: „Ekki er gott að maðurinn sé einn.” Manneskj- urnar eru einu sinni þannig, að þær þurfa hver á annarri að hala. Einveran er þeim bæði óhoil og hættuleg. Og ég hef hjálpað upp á marga. — Hverjir leita helzt til þín? — Það er fólk af öllum stéttum. Fleiri karlar en konur. En ég sinni ekki þeim, sem óska eftir skyndikynnum í stuttan tima eða eru með leikaraskap. Þeir sem ég er að vinna fyrir eru aðeins þeir sem vilja kynnast heiðarlegu fólki og eignafólki með traustan félagsskap fyrir augum. Ýmsir giftir menn hafa leitað til mín, en ég hef orðið að segja þeim eins og er, að þeim get ég ekkert hjálpað. Giftar konur koma líka og segja sögu sina ekki slétta: „Maðurinn minn er drykkjumaður. Ég á erfitt með að búa með honum. Geturöu ekki fundið mér nýjan?” En það er ekki hægt. Ég get ekki hjálpað nema þeim, sem ógiftir eru. Fyrst er að út- ffylla skýrslu Þeir sem leita til Kristjá'ns í von um vinning í happdrætti ástaritjnar útfylla - Við töluðum við mannogkonu sem höfðu góða reynslu: T raustur elskhugi eða ástmey fyrir 8000 krónur Hjúskaparmiðlun í Breiðfirðingabúð við Skólavörðustíg Ég hefði ekki valið betur sjálf Þau voru bæði orðin nokkuð fullorðin og sennilega hafa þau margt reynt á lifsleiðinni, en hittust í fyrsta skipti fyrir sex mánuðum fyrir tilstilli hjúskaparmiðlarans Kristjáns Jósefs- sonar og hafa búið saman síðan og eru Ijómandi lukkuleg. —1 tauninni bjóst ég ekki við að vera svona heppin, segir konan. — Kristján kynnti mig nefnilega fyrir öðrum fyrst, en sá maður var ekkert fyrir mig, svo ég sagði við Kristján, að hann skyldi bara sleppa þessu, það þýddi ekki neitt og ég var alveg hætt við allt saman. En nokkru síðar hitti ég Kristján á götu, og þá segir hann við mig: „Ég hef hérna mann, sem ég held að muni alveg passa fyrir þig. Það er hálfgerður hjónasvipur með ykkur. Nú, ég lét tilleiðast að heilsa upp á manninn og síðan höfum við bara alltaf verið saman. Og ég er reglulega ánægð. Ég hefði ekkert valið betur sjálf. Maðurinn tekur í sama streng: „Það er mikill fengur í góðum félaga," segir hann og iðrast greinilega einskis. Við spyrjum hann, hvert sé álit hans á hjúskaparmiðlaranum Kristjáni. — Fyrir mina parta held ég að hann sé nokkuð ábyggilegur. Hann leitar sér upplýsinga, hvort fólkið passar saman. Og ég veit um tvenn hjón, sem hafa kynnzt með hans hjálp. Fyrir sjálfan mig segi ég, að hann þjónustaði mig ágætlega, blessaður. hjá honum skýrslu með helztu upplýsingum um sjálfa sig. Fyrir utan nafn og aldur eru ýmis atriði eins og heilsufar, efnahagur og áhugamál. Þá lætur fólk þess getið hvort það er frá- skitiö eða i ekkjustandi, hversu mörg böm það á, hvort það er reglusamt, og, sé þess óskaö, hvort sakavottorðið er hreint. Sérstakar óskir má nefna, svo og sérstakar kvartanir. Loks er mynd. Fyllstu þagmælsku er heitið,og við fengum ekki að sjá nema bókina, sem skýrslurnar eru geymdar í. — En fólki sem kemur i fullri alvöru og borgar sex þúsund krónur sýni ég fyrst helztu atriði nema nafnið og myndina. Ef því lízt á þetta, fær það að sjá myndina. Og sé þá áhugi enn fyrir hendi hef ég samband við þann sem skýrslan er um. Ef honum eða henni lizt vel á fá þau símanúmerið hvort hjá öðru og hringja sig saman En ég fæ tvö þúsund krónur hjá hvoru gegn kvittun. Stundum lízt þeim ekkert hvort á annað þegar þau hittast og þá fá þau tvö þúsund krónurnar til baka. Eða geyma þær hjá mér upp á framtíðina. Oft er það ekki fyrr en I öðru eða þriðja sambandi, sem rétta parið myndast. — Hvaða aldur leitar mest til þín? — Það er misjafnL Margt er það eldra fólk, sem vill byrja nýtt líf, nýjan kafla í ævinni. Svo eru þó nokkrir bændur, sem leita til mín. Það vantar víða kvenfólkið í sveitirnar, ég held það væri alveg nauðsynlegt að flytja inn þó ekki væri nema svo sem fimm konur á ári til þeirra. Enn hef ég stundum getað hjálpað ungum ófrískum stúlkum sem litla fyrir- greiðslu hafa fengið hjá félagsmála- stofnun bæjarins. Ég hef getað hjálpað þeim að kynnast karlmönnum, sem hafa átt góðar íbúðir. Ekki tjaldað til einnar nætur hvössímáli. Á leiðinni til hennar hafði biðillinn 1 nefnilega farið i Ríkið í staðinn fyrir að fara i þrifabað. -IHH. Það kemur fyrir, að menn geri sér rangar hugmyndir um starfsemi Kristjáns. Eina nótt, þegar hann var að koma heim af átthagamóti, stóð drukkinn maður fyrir utan dyrnar hjá honum og barði ákaft upp á. „Að hverjum ertu að leita?” spurð Kristján. Ég ætla að ræsa hér mann, sem getur látið mig hafa konu til morguns. En ég skal sleppa henni, svo hún geti verið klár til vinnu klukkan átta í fyrramálið.” „Hvernig heldurðu þú getir fengið hana hér?” „Þær sögðu mér það, stúlkurnar í Ingólfskaffi.” Kristján kynnti sig nú og útskýrði fyrir manninum hvernig fyrirtæki sitt væri rekið. Hann baðst þá afsökunar, kvaddi og fór leiðar sinnar, bölvandi frammistöðustúlkunum i Ingólfskaffi. Og stundum verða mistök, þótt meiningin sé góð. Það er nú einu sinni svo, að kynferðislífið snertir viðkvæm- ustu taugar bæði karls og konu. Eitt sinn að hallandi degi kom verka- maður, sem var á skýrslu Kristjáns, og ekki hafði nema ærlegt bónorð í huga, upp í Breiðftrðingabúð. Hann kom beint frá erfiðisvinnu, í vinnu- gallanum. „Hún býst við þér í kvöld,” sagði Kristján. „En þú verður að fara heim og raka þig og skipta um föt.” Maðurinn lofaði öllu fögru. En daginn eftir hringdi konan, sem hann átti að heimsækja, og var heldur -V hREVRLL Simi 8 55 22

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.