Dagblaðið - 30.10.1978, Qupperneq 17
HART BARIZT UM BOI.TANN. Ingi Stefánsson nær aö slá boltann frá körfunni en i hendur ÍR-ings. Frá vinstri á mynd-
inni er Bjami Gunnar. Dirk Dunbar i baksýn, Erlendur Markússon, Jón Jörundsson, Poul Stewart, Ingi Stefánsson og milli
fóta hans sér i Jón Héðinsson.
DB-mynd Hörður.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1978
ÖRUGGUR SIGUR MEISTARA
KR GEGN ÞÓR Á AKUREYRI
— í urvalsdeildinni í körffu, 82-
KR sigraði Þór næsta auðveldlega i
iþróttaskemmunni á Akureyri í úrvals-
deildinni í körfu í gær, 82—54.
Leikurinn var næsta fáum áhorfendum
litil skemmtun á Akureyri — hvorugt lið
náði sér nokkurn tima á strik, spcnna i
lágmarki — til þess voru yfirburðir
íslandsmeistara KR of miklir, ef undan
er skilinn fyrri hluti fyrri hálfleiks.
KR-ingar byrjuðu mjög vel á Akur-
eyri, komust i 8—0 en Þórsarar börðust
vel, náðu að jafna 15—15 og komast
síðan yfir 17—15 en það var lika i eina
skiptið i leiknum að Þór var yfir. Jafn
leikur framan af, 22—25, en þá skildi
með liðunum. KR-ingar náðu 13 stiga
forustu fyrir hlé, 37—24.
Yfirburðir KR voru algjörir i síðari
hálfleik. án þess þó að KR næði sér á
strik. Lokatölur urðu þvi 82—54 og
greinilegt að framundan er erfiður vetur
hjá Þór. Fall i 1. deild sýnist næsta óhjá-
íþróttir
kvæmilegt. Breiddin í liðinu er allt of
lítil, mikið lagt á herðar Mark Christian
sen, Bandaríkjamannsins, og í gær bar
næsta litið á honum, náði sér aldrei á
strik. „Gamli maðurinn í liði KR, Einar
54ígær
Bollason, var beztur KR inga. skoraði
25. stig — hitti mjög vel. John Hudson
skoraði 19 stig. Jón Sigurðsson 10,
óvenju slakur. Kolbeinn Pálsson skoraði
11 stig. Gunnar Jóakimsson 6, Kristinn
S'tefánsson 5 og þeir Birgir Guðbjörns-
son. Eirikur Jóhannsson og Björn Björg-
vinsson skoruðu 2 stig hvcr.
Mark Christiansen var stigahæstur
Þórsara, með 18 stig. en Birgir Rafnsson
var mjög sterkur. skoraði 13 stig. Jón
Indriðason skoraði 10 stig. Þröstur Guö
johnsen 6 og Sigurgeir Haraldsson 3
stig.
Þeir Hörður Ti',r -ms og Kristbjörn
Albertsson dæmd . my'u v>1
- St.A.
Ekkert stig
ÍS fyrstu 9
mínútur s.h.
—og þar lagði ÍR grunn að sigri
í úrvalsdeildinni íkörfunni, 78-75
Á níu fyrstu mínútum siðari hálflciks
gerðun stúdentar enga körfu. And-
stæðingar þeirra í gær i leiknum í úr-
valsdeildinni gerðu aftur á móti tuttugu
stig á sama tíma. Þegar þrettán mínútur
voru liðnar af siðari hálfleik var staðan
70 gegn 54 fyrir ÍR og sannast sagna
höfðu stúdentar þá ekki náð að sýna
Öruggur sigur
meistara
Fram
íslandsmeistarar kvenna, Fram, unnu
auðvcldan sigur á Breiðablik i 1. deild
kvenna á laugardag, 11—3. Breiðablik
skoraði aðeins tvö mörk i fýrri hálfleik
gegn sjö mörkum Fram. Og uppskera
Breiðabliks í siðari hálfleik var enn
rýrari — aðeins eitt mark, og því
öruggur sigur Fram, 11—3. Fram tirðist
nú hafa yfirburðalið i 1. deild, án þess þó
að vera sterkara en siðustu ár nema
siður sé. Markhæst Framara var
Jenný með 5 mörk.
Haukarunnu
á Akureyri
Haukar sigruðu Þór 13—9 i 1. deild
kvenna á Akureyri um helgina. Þór
komst í I—0 en síðan ekki söguna mcir
— sex mörk Hauka fylgdu i kjölfariðog
þau skópu sigur Hauka. Annars virkuðu
liðin jöfn á velinum, en Haukar nýttu
sin færi betur. Halldóra Mathíesen
skoraði mest fyrir Hauka, 4, en Soffía
Hreinsdóttir mest fyrir Þór — 3 mörk.
- St.A.
neitt sem réttlætti veru þeirra í úrvals-
deildinni. Er þá átt við siðari hálfieik. I
fyrri hluta leiksins brá fyrir góðum
köflum í leik þeirra. Bjarni Gunnar átti
þá góða spretti, aftur á móti var hann al-
veg hcillum horfinn í síðari hálfleik og
svo virtist sem lok hefði verið dregið
fyrir körfu ÍR-inga þegar Bjarni var í
skotfæri.
Dirk Dunbar var venju fremurróleg-
ur i leiknum. Var reyndar i góðri gæzlu
Kolbeins Kristinssonar. Verður það til
dæmis að teljast til tíðinda að Dunbar
gerði aðeins sex stig í fyrri hálfleik.
Hann átti aftur á móti að venju mikið af
góðum sendingum til samherjanna.
Fyrri hálfleik lauk eins og áður sagði
þannig að ÍS var með 48 stig og lR með
42 stig.
ÍR-ingar áttu í ýmsum erfiðleikum i
vörninni, sem þeim tókst að bæta úr i
byrjun síðari hálfleiks og var vörn þeirra
mjög þétt alveg fram yfir miðjan hálf-
leikinn. þegar töluvert los komst á leik
þeirra.
Jón Héðinsson brauzt í gegn þegar ein
og hálf minúta var til leiksloka og þá var
munurinn ekki nema níu stig fyrir ÍR,
76—67. Stewart breytti stöðunni í 78—
67 en Jón var ekki af baki dottinn og
kom muninum aftur niður í niu stig. lR-
ingar missa boltann nær strax aftur og
Bjarni Gunnar og Ingi Stefánsson koma
stigum stúdenta í 71. Enn missa ÍR-
ingar boltann strax aftur og hinn eld-
snöggi Jón Oddsson brunar fram. Brotið
er á honum undir körfu. Hann fær víti
og þrjú skoL Skorar úr tveimur og staðan
orðin 78—73 fyrir lR. Munurinn aðeins
fimm stig. En því miður fyrir stúdenta
aðeins fimmtán sekúndur eftir til leiks-
loka og þó Jón Oddsson eigi lokaorðið
með langskoti beint i körfuna þá er
sigurinn ÍR, 78—75.
ÓG
KR-SIGUR EINNIG í
HANDBOLTANUM
— þegar Þór og KR léku í 2. deild
KR sigraði Þór 20—18 i 2. deild
íslandsmótsins á Akureyri um helgina.
Það sem setti mest mörk á leikinn var
slök dómgæzla þeirra Hjálms Sigurðs-
sonar og Gunnar Steingrímssonar —
ákaflega slakir dómarar og þurfti að
ganga morði næst svo þeir dæmdu.
KR-ingar byrjuðu mjög vel, komust i
8—3 i upphafi og virtust stefna i
öruggan sigur. örn Guðmundsson var
góður í marki KR, en skot Þórs ef til vill
ekki erfið viðureignar.
En Þórsarar náðu sér smám saman á
strik, og leikurinn hélzt í jafnvægi.
Staðan í leikhléi var II—7 KR í vil.
Þórsarar söxuðu á forskot KR í síðari
hálfleik en hinn slæmi kafli i upphafi
reyndist liðinu dýrkeyptur — KR-sigur
20—18. Sigtryggur Guðmundsson
skoraði flest marka Þórs, 6, og Sigurður
Sigurðsson 4, Hjá KR skoraði Björn
Pétursson 8—5 víti. -St.A.
Stjarnan vann KA
Stjarnan sigraði KA 21—17 i 2. deild
íslandsmótsins i Garðabæ á föstudags-
kvöldið. Mikilvægur sigur Stjörnunnar
undir stjórn Viðars Simonarsonar lands-
liðsþjálfara gegn KA Akureyri, en þar
þjálfar nú Birgir Björnsson fyrrum
formaður landsliðsnefndar HSÍ.
Það var fyrst og fremst stórgóð byrjun
Stjörnunnar, er skóp sigur liðsins, komst
i 11—2 og siðan 15—4. En KA náði sér
á strik án þess þó að ógna sigri
Garðbæinga. Þeir Magnús Teitsson og
Gunnar Björnsson voru atkvæðamestir
hjá Stjörnunni en hjá KA bar mest á
Jóni Haukssyni.
Jafntef li FH og Víkings
Víkingur kom á óvart i Hafnarfirði i
1. deild kvenna i handknattleik með því
að ná jafntefli gegn FH — einu af topp-
liðunum í fýrra. Raunar voru Víkings-
stúlkurnar kornungu nær sigri, höfðu 2
mörk yfir i lokin, en FH náði að jafna á
lokamfnútunum, 13—13.
FH hafði yfir i leikhléi, 8—7, en Vlk-
ingsstúlkurnar voru mjög ákveðnar i
síðari hálfleik og komust f 12—10 og
sfðan f 13—11 en FH náði að minnka
muninn i lokin. Markhæst FH-inga var
Kristjana Aradóttir með 6 mörk en Ing-
unn Bernódusdóttir skoraði 4 mörk fyrir
Vfking.
TISTÆKIN
FAIÐ
BÆKLINGA
VERÐ
J.L. HUSIÐ
REYKJAVlK / STYKKISHÓLMI
INGA