Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 30.10.1978, Qupperneq 19

Dagblaðið - 30.10.1978, Qupperneq 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30.OKTÓBER 1978 driðason, nr. 9, reynir að stöðva sendingu Jóns Péturs á Steindór Gunnarsson, nr. 7. DB-mynd Hörður. í uppgjöri urrisanna jöf n 22-221 Laugardalshöll bæði lið gátu eftir atvikum sætt sig við þó auðvitað Valsmenn hljóti að naga sig í handarbökin að hafa glatað niður góðu forskoti. Valsmenn virkuðu sterk- ari í fyrri hálfleik, og framan af síðari hálfleik. En þeir gáfu síðan eftir í vörn- inni, auk þess sem markvarzla Ólafs Benediktssonar var ekki eins góð og áður, var þreyttur. Ólafur hvíldi — ungur nýliði kom inn á, en náði sér ekki á strik. Þorbjörn Guðmundsson átti stórleik í liði Vals, gífurlega sterkur leik- maður, og reynsla þeirra Jóns H. Karls- sonar og Stefáns Gunnarssonar var liðinu drjúg. Valsliðið virkar sterkara í Göppingen vann Göppingen lagaði stöðu sina i Bundes- ligunni i handknattleiknum i Vestur- Þýzkalandi um helgina, þegar liðið sigraði Nettelsted á heimavelli 18—17 i spennandi leik. Dankersen sigraði Rint- heim i Minden með 22—18. Axel Axels- son skoraði fimm mörk I leiknum og Ólafur H. Jónsson þrjú. Hofweier sigraði Grambke 17—13 og heldur forustu sinni I deildinni ásamt meisturum Grosswallstadt, sem vann Hiittenberg 19—16. Björgvin Björgvinsson lék lltið með Grambke — var veikur í siðustu viku. Nánar verður sagt frá leikjunum i sjöundu umferð i handboltapunktum Axels og Ólafs siðar f vikunni. vetur en er liðið hreppti Islandsmeistara- tignina, sterk heild undir stjórn Hilmars Björnssonar. Víkingar voru nálægt sigri — eftir að hafa á tímabili virzt stefna í ósigur. Barátta í liðinu framan af var í lágmarki, og þeir reyndu að taka einn Valsmann úr umferð. Það tókst ekki, og það var ekki fyrr en þeir hættu þvi — um miðjan síðari hálfleik að vörnin þéttist og mark- varzla Kristjáns Sigmundss., var með flensu, batnaði. Páll Björgvinsson átti stórleik í síðari hálfleik og beinlínis bjargaði stigi í höfn fyrir Víkinga, hélt spilinu gangandi og skoraði falleg mörk — eins og honum einum er lagið eftir að hafa leikið á vörnina. Viggö Sigurðs- son var óvenju atkvæðalítill. Greini- legt að hann gat ekki beitt sér vegna nef- brots er hann hlaut I viðureign Vikings og HK. En liðið óx er á leikinn leið, baráttan meiri, ákveðnin meiri og stig bjargaðist í hús — stig er virtist glatað á tímabili. Dómarar voru þeir Gunnlaugur Hjálmarsson og Kristján Örn. Þeir ráku 3 Valsmenn út af — engan Víking. Dæmdu fjögur viti á Víking, 2 á Val. Já, það vakti athygli að enginn leikmanna Vikings var rekinn af velli — greinilegt að skilaboð Bodan Kowalskis þjálfara til leikmanna höfðu haft áhrif. Mörk Vals skoruðu: Þorbjörn Guðmundsson 6 — 1 víti. Jón Karlsson 5, 1 viti, Bjarni Guðmundsson, Jón Pétur Jónsson og Stefán Gunnarsson 3 hver. Gísli Arnar og Steindór Gunnars- son 1 mark hvor. Mörk Víkings: Páll Björgvinsson 6, 1 viti. Viggó Sigurðsson 4, Árni Indriðason og Ólafur Einarsson 3 hvor, Ólafur Jónsson, Erlendur Hermannsson og Sigurður Gunnarsson 2 mörk hver. -H.Halls. Þórir skaut UMFN niður — þegar Valsmenn sigruðu 87-86 í úrvalsdeildinni íNjarðvík Körfuknattleikur, úrvalsdeild, UMFN — Valur,86—87(40—48) Þórir Magnússon var sannarlega maður leiksins, þegar Valsmenn sigruðu Njarðvíkinga syðra á laugardaginn i úr- valsdeildinni með 87 stigum gegn 86, naumara gat það ekki verið. Þórir skoraði 30 stig. Hitti bókstaflega hvaðan sem hann skaut, án þess að Njarðvíking- ar fengu nokkuð að gert. Valsmenn komu mjög ákveðnir til leiks og þeir Dwyer og Kristján Ágústs- son náðu forustunni fyrir Val og síðan tók Þórir við. Valsmenn höfðu um tíma 16 stig yfir i fyrri hálfleik og 18 í þeim seinni, þegar Njarðvikurvörnin var eins og opin vængjahurð og hittnin langt fyrir neðan meðallag. Njarðvíkingar eru þekktari fyrir annað en að leggja árar í bát þótt á móti blási. Mest fyrir atbeina hins snjalla Bandaríkjamanns, Ted Bee, og Stefáns Bjarkasonar, tókst þeim að saxa smám saman á forskot Valsmanna og virtust vera að ná yfirhöndinni í leiknum. Troðfullt hús áhorfenda, sem flestir voru á bandi heimamanna, var eins og kraumandi suðupottur en djarf- legar tilraunir Njarðvíkinga í sendingum mistókust svo að Valsmenn sluppu fyrir horn, með skrekkinn og bæði stigin, 87—86. Dómarar voru þeir Jón Otti og Erlendur Eysteinsson og áttu þeir erfið- an dag. Þórir Magnússon var, eins og áður kom fram, stigahæstur Valsmanna, með 30 stig, Kristján Ágústsson var með 18, Dwyer 15 og þeir Torfi Magnússon, Rikharður Ágústsson og Jóhannes Magnússon, með 8 stig hver. í liði UMFN var Ted Bee með 27 stig, Stefán Bjarkason með 21, Gunnar Þorvarðsson 12, Geir Þorsteinsson 8, Árni Lárusson 2 og Brynjar Sigmundsson 2. - ÁHM LEKU126 KLST. OG 2 MÍNÚTUR! — í maraþonknattspyrnunni í Keflavík Ég ætla á dansæfingu á eftir,” sagði Guðjón Þórhallssnn I A-liði UMFK. Það bar sigur úr býtumi keppni við B-liðið með 788 mörkum gegn 753 eftir að hafa spilað samfleytt I 26 klst. og tvær mínútur i íþróttahúsi barnaskólans í Keflavík um helgina. „Ég gæti alveg bætt við mig sólarhring þess vegna,” bætti hann við, hinn hressasti. Annars voru hinir sex leikmenn sem hófu keppnina á laugardaginn furðu brattir eftir að hafa bætt íslandsmet Vestmannaeyinpa um tvær klukku- stundir. Likast til hefðu piltarnir haldið eitthvað lengur áfram, ef blöðrur hefðu ekki myndazt á tánum og háð þeim mikið. Margt manna fylgdist með mara- þonkeppninni, „en erfiðasta var að halda sér vakandi á milli sex og átta á sunnudagsmoiguninn," sagði Friðrik Ragnarsson, einn þriggja í A-liðinu, — þá voru engir í húsinu nema við og dóm ararnir.” Annars kom einn piltur, Elvar Gottskálksson, með hljómburðartæki á laugardagskvöldið og spilaði tónlist — setti sennilega met þar líka. Yfir 350 manns skrifuðu á áheitalista og ætla að greiða 100 krónur fyrir hverja klukkustund, svo að tekjurnar verða nálægt milljón með aðgangseyri sem var um 100 þúsund krónur, að þvi er Haukur Hafsteinsson, framkvæmda- stjóri UMFK og keppninnar, tjáði okkur. - emm Staðan íl.deild Úrslit leikja á 2. umferð íslandsmótsins I handknattleik: FH — Fylkir 22—17 Fram — ÍR 18—17 Víkingur— Valur22—22 Staðan i 1. deild er nú: FH Vikingur Valur Haukar Fram HK ÍR Fylkir 2 0 0 2 28- Einn leikur fer fram i kvöld i 1. deild — Haukar mæta nýliðum 1. deildar, HK I Hafnarfirði og hefst leikur liðanna kl. 21. Ólafur Júliusson veifar til áhorfenda i lok maraþonkeppninnar. Aðrir keppend- ur 1 baksýn. DB-mynd emm Heimsmeistarinn Andrianov i Strass- borg. Adrianov meistari Nikolai Andiranov, Sovétríkjunum, varð heimsmeistari í fjölþraut í fimleik um karla á HM i Strassborg í Frakk Ikandi á föstudag. Hann varð ólympiu meistari í fjölþraut í Montreal 1976 Japanski heimsmeistarinn Shigeru Kasa- matsu féll i æfingum á hesti og fékk aðeins 8.9 stig í greininni. Varð aðeins sjöundi samanlagt. Japaninn Eizo Ken- motsu, sem varð heimsmeistari i fjöl- þraut 1970 og þriðji 1974, varð nú í öðru sæti. Úrslit í fjölþrautinni i Strassborg urðu þessi: 1. Andrianov, Sovét, 117.200 2. Kenmotsu, Japan, 116.550 3. Detatin, Sovét, 116.375 4. Gienger, V-Þýzkal. 116.200 5. Kajiyama, Japan, 115.900 6. KurtThomas, USA, 115.725 Leikmenn Öster krýndir meistarar Þetta var eins og bikarstemmning á Wembleyleikvanginum, þegar Öster lék við Djurgaarden í Allsvenskan í gær og leikmönnum Öster var eftir leikinn færð sigurlaun sín sem sænskir meistarar. Það breytti engu þó leikurinn tapaðist — 12 þúsund áhorfendur vorú vel mcð á nótunum,” sagði Teitur Þórðarson, þegar DB ræddi við hann í morgun. Östcr sigraði með miklum yfirburðum í Allsvenskan. Djurggarden sigraði 3—2 og skoraði þrjú fyrstu mörkin I leiknum. Peter Svensson og Per Olaf Bild minnk- uðu muninn fyrir Öster. Eftir lcikinn hlupu leikmenn Öster heiðurshring á vellinum — og í gær- kvöldi var mikil veizla á vcgum félagsins. Önnur í kvöld á vegum borgarstjórnar- innarí Vaxjö. í gær vakti mesta athvgli að Atvida- berg tókst að halda sæti sinu i Allsvensk- an. Vann Vesteras 4—0 á útivelli og við það féll Vesteras ásamt örebro. Grikkir unnu Ungverja 4-3 Grikkland vann stórsigur á Ungverja landi í sjötta riðli Evrópukeppni lands liða i Saloniki i gær. Úrslit 4—1. Áhorf- endur voru 10 þúsund. Galakos skoraði fyrir Grikkland á 60. og 67. mín, Ardizoglou á 71 .min. og Mavros á 89. min. Nokkrum sekúndum fyrir leikslok skoraði Martos eina mark Ungverja. Við sigurinn komust Grikkir í efsta sætið f riðlinum, hafa fjögur stig eins og Finnar en miklu betri markamun l'ngvcrjar eru ncðstir með tvö stig. Sovétrfkin hafa einnig tvö stig en hafa leikið einum leik minna.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.