Dagblaðið - 30.10.1978, Side 20
20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1978
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Everton vann Liverpool
í fyrsta sinn í sjö ár
—Fyrsti tapleikur Liverpool í 1. deild ognúer aöeins tveggja stiga munur á Liverpool-liðunum
Það var beinlinis sprenging á laug-
ardag á Goodison Park, leikvelii
Everton I Liverpool, eftir sigur
Everton á erkifjendunum Liverpool.
Fögnuður áhangenda Everton var
slikur að það var eins og félagið hefði
unnið ensku bikarkeppnina,
Evrópubikarinn og heimsbikarinn I
einni og sömu tilrauninni. Vissulega
var ástæða til fagnaðar — fyrsti sigur
Everton á Liverpool i sjö ár var
staðreynd, eða frá árinu 1971. Og
sigurinn var verðskuldaður, 1—0.
Fyrsti tapleikur Liverpool i 1. deildinni
ensku á keppnistimabilinu og nú er
aðeins tveggja . stiga munur á
Liverpooliiðunum i efstu sætum deild-
arinnar. Everton hefur enn ekki tapað
leik. Hefur 19 stig. Liverpool 21 stig.
Fyrri hálfleikurinn í leik Liverpool-
jötnanna var slakur. Gífurleg tauga-
spenna — lítil knattspyrna — og 24
aukaspyrnur dæmdar. Liverpool var
með sama lið og undanfarnar vikur en
hjá Everton vantaði fyrirliðann Mike
Lyons. Í hans stað lék Roger Kenyon,
fyrrum fyrirliði liðsins. Fyrsti leikur
hans með aðalliðinu í sjö mánuði.
Everton var betra liðið lengi vel og það
kom á óvart hve Ray Clemence
virkaði óöruggur í marki Liverpool.
En það kom ekki að sök. Ekkert mark
skorað í hálfleiknum og undir lok hans
voru leikmenn Liverpool famir að
sýna sitt rétta andlit.
Í síðari hálfleiknum var leikurinn
mun betri — einkum eftir að Andy
King hafði skorað á 59. min. eftir
fyrirgjöf Dave Thomas. Leikmenn
Liverpool drógu sig þá út úr skel sinni.
Fóru að sækja og á 64. mín. kom
David Johnson knettinum í mark
Everton. Dómarinn benti á miðjuna.
En linuvörðurinn hafði veifað talsvert
áður og Johnson dæmdur rangstæður.
Spennan var mikil og á 70. mín. virtist
sem Dave Thomas ætlaði að
gulltryggja sigur Everton. Lék inn í
vitateiginn — á Clemence og fleiri og
sendi knöttinn að opnu markinu. En á
siðustu stundu tókst Alan Hansen að
bjarga á marklinu. Knötturinn gekk
markanna á milli lokakafla leiksins en
George Wood öryggið sjálft i marki
Everton. Litil hætta skapaðist við
mark hans — og eftir því, sem leið á
leikinn hækkaði söngut fylgjenda
Everton. Þeir greindu að sigurinn var í
höfn — og þegar Partridge dóma i
flautaði leikslok brauzt fögnuðurir lit
Langþráður sigur var i höfn. GorJun
Lee, stjóri Everton, stökk á fætur og
faðmaði og kyssti alla leikmenn sína.
Faðmlög alls staðar og tár í augum.
Liðin voru þannig skipuð. Everton.
Wood, Todd, Kenyon, Wright, Pejic,
King, Nulty, Dobson, fyrirliði,
Latchford, Walsh, Thomas. Liverpool.
Clemence. Neal, Thompson, Hansen,
Alan Kennedy, Souness, Ray
Kennedy, Case (McDermott 71. mín).,
Dalglish, Johnson og Heighway.
Áhorfendur 53.131.
Litum á úrslitin áður en lengra er
haldið.
l.deild
Bristol City-Arsenal I—3
Chelsea-Norwich 3—3
Coventry-Birmingham 2—1
Everton-Liverpool
lpswich-QPR
Leeds-Derby County
Man. City-WBA
Southampton-Nottm. For.
Tottenham-Bolton
Wolves-Man. Utd.
Föstudag.
Aston Villa-Middlesbro
2. deild
Blackburn-Wrexham
Brighton-West Ham
C. Palace-Fulham
Leicester-Bristol Rov.
Millwall-Charlton
Newcastle-Cardiff
Notts. Co.-Cambridge
Oldham-Sunderland
Orient-Luton
Preston-Burnley
Stoke-Sheff. Utd.
3. deild
Bury-Hull City
Carlisle-Swindon
Chester-Brentford
Mansfield-Colchester
Oxford-Gillingham
Plymouth-Blackpool
Rotherham-Shrewsbury
Sheff. Wed.-Walsall
Swansea-Peterbro
Watford-Exeter
Föstudag.
Southend-Lincoln
Tranmere-Chesterfield
4. deild
Bradford-Huddersfield
Darlington-Port Vale
Grimsby-Hereford
Halifax-Bournesmouth
Hartlepool-Rochdale
Newport-Barnsley
Reading-Stockport
Wigan-Northampton
Wimbledon-Doncaster
York-Scunthorpe
Föstudag.
Crewe-Aldershot
1—1
4- 0
1-1
0-2
5- 1
1 — 1
3-3
2-0
3-2
1—0
I —I
Meistarar Nottingham Forest hafa
ekki tapað leik frekar en Everton.
Léku sinn 38. leik i röð án taps — en
voru heppnir að sleppa með stig frá
Southampton á laugardag. Fyrri hálf-
leikurinn var nokkuð jafn og Gary
Birtles þá tvívegis nærri að skora fyrir
Forest. 1 síðari hálfleiknum var eitt lið
á vellinum. Dýrlingarnir sóttu og
sóttu. Mark Forest slapp furðanlega
auk þess, sem Peter Shilton sýndi alla
sína hæfni í marki Forest. Fyrirliði
Forest, McGovern, meiddist í leiknum
og varð að yfirgefa völlinn.
Man. City og WBA gerðu jafntefli
2—2 i skemmtilegum leik á Maine
Road í Manchester. Enski landsliðs-
miðvörðurinn sterki, Dave Watson,
lék ekki með City, en Tommy Booth i
hans stað. Mike Channon náði forustu
fyrir heimaliðið á 19. min. en Cyrille
Regis jafnaði fimm mín. síðar. Lou
Cantello tók aukaspyrnu og
knötturinn lenti i þverslá marks Man.
City. Hrökk út aftur og svertinginn
eldsnöggi var fyrstur að honum og
skoraði. Á 44. mín. náði Asa Hartford
aftur forustu fyrir Man. City en Brian
Robson tókst að jafna eftir 48 mín.
Dave Thomas, útherjinn snjalli hjá Everton, lék enska landsliðsbakvörðinn Phil
Neal hjá Liverpool grátt á laugardag. Hann var alltaf skrefinu á undan eins og
myndin sýnir og furðulegt, að þessi snjalli leikmaður skuli ekki vera fastamaður i
enska landsliðinu. Hefur aðeins leikið átta landsleiki.
leik. Dómarinn lét liðin leika fjórar
mín. framyfir venjulegan leiktima. í
síðari hálfleiknum tókst þessum sókn-
djörfu liðum ekki að skora — og jafn-
teflið var sanngjarnt.
Sama er ekki hægt að segja um
sigur Man. Utd. i Wolverhampton og
Úlfarnir léku þar betur en staða þeirra
á töflunni gaf til kynna. Framan af var
Man. Utd. þó mun betra liðið. Jimmy
Greenhoff skoraði tvivegis á 20. og 28.
mín. en Ken Hibbitminnkaði muninn
í 1—2. Á lokaminútu fyrri hálfleiks
skoraði Brian Greenhoff, sem nú lék
með að nýju eftir meiðsli, þriðja mark
United. Í síðari hálfleiknum sleppti
dómarinn augljósri vitaspyrnu á Man.
Utd., þegar Stewart Houston felldi Bill
Rafferty innan vítateigs — og enn
verra skeði rétt á eftir, þegar Joe
Jordan skoraði fjórða mark Man. Utd.
Kolrangstæður — einum tíu metrum
fyrir innan vörn Úlfanna, en
línuvörðurinn gerði enga athugasemd.
Eftir atvikið veifaði hann hins vegar
rangstöðu í næstum hvert skipti, sem
leikmenn Man. Utd. komust fram yfir
miðju!! Steve Daley skoraði annað
mark Úlfanna en fleiri urðu ekki
mörkin í leiknum. Jimmy Nicholl lék
sinn fyrsta leik með Man. Utd. á leik-
timabilinu en langt verður í að enski
landsliðsmiðherjinn Stuart Pearson
geti leikið. Meiðsli hans tóku sig uppá
æfingu nýlega og hann er aftur
kominn á sjúkrahús.
Argentinski heimsmeistarinn Ardiles
virtist alls staðar á vellinum, þegar
Tottenham sigraði Bolton 2—0. Lék
snilldarlega og það fer ekki milli mála,
Þeir skora mest
Markhæstu leikmennirnir í ensku
knattspyrnunni eru nú:
l.deild
11 — Frank Worhtington, Bolton.
10 — Kenny Dalglish, Liverpool, Bob
Latchford, Everton og John Ryan,
Norwich.
8 — Cyrille Regis, WBA.
2. deild.
12 — Bryan „Pop” Robson, West
Ham.
10 — Brian Stein, Luton.
9 — Alex Bruce, Preston.
8 — John Buchanan, Cardiff, Gary
Rowell, Sunderland.
3. deild
16 — Ross Jenkins, Watford.
14 — Ian Edwards, Chester.
12 — Fred Binney, Plymouth, Luther
Blissett, Watford.
4. deild.
13 — Alan Cork, Wimbledon.
11 — Terry Lee, Stockport.
9 — Pat Earlcs, Reading.
að hann er mestur snillingur í enskri
knattspyrnu nú. Colin Lee skoraöi
fyrra mark Tottenham á 22. min. og
Jimmy Pratt það siðara á 50. mín.
Fleiri urðu mörkin ekki þrátt fyrir
mikla yfirburði Lundúnaliðsins.
Annað Lundúnalið, Arsenal, vann
góðan sigur i Bristol. Þeir Liam Brady
og Frank Stapleton skoruðu tvö mörk
fyrir Arsenal áður en David Rodgers
skoraði fyrir Bristol City. í siðari hálf-
leiknum skoraði Brady þriðja mark
Arsenal úr vitaspyrnu.
Tommy Hutchison skoraði tvivegis
fyrir Coventry á 32. min. og 49. min.
gegn Birmingham. Fyrstu mörk hans
á keppnistímabilinu — og
B|rmingham-liðið virðist vera að
„drukkna” i 1. deildinni án Trevor
Francis og Keith Bertchin, sem báðir
eru meiddir. Alan Buckley var keyptur
frá Walsall fyrir 200 þúsund
sterlingspund i siðustu viku en ekki
var þess getið hvort hann hefði leikið.
Á 66. mín. var Gary Pendrey, bak-
vörður Birmingham, rekinn af velli —
öðru sinni á nokkrum vikum. Don
Givens skoraði eina mark
Birmingham á 80. mín.
Leeds vann stórsigur á Derby. Þeir
Flynn, Hart og Hankin skoruðu fyrir
Leeds í fyrri hálfleik — Hawley fjórða
markið. Chelsea var með tveggja
marka forustu gegn Norwich, þegar
15 mín. voru eftir, 3—1. John Ryan
og Martin Peters tókst að jafna með
tveimur mörkum á þriggja mín.
millibili. Swain, Walker og Stanley,
vitaspyrna, skoruðu mörk Chelsea í
leiknum. Peters fyrsta mark Norwich.
Eric Gates skoraði fyrsta mark
Ipswich á 49. mín. og Paul Mariner
kom Ipswich í 2—0 áður en Gerry
Francis skoraði eina mark QPR. Á
föstudag kom mjög á óvart, að
Middlesbrough sigraði Aston Villa í
Birmingham og það þótt miðherjinn
Billy Ashcroft væri rekinn af velli.
Þeir Burns og Cochrane skoruðu
mörkin í leiknum.
í 2. deild tapaði Crystal Palace sínum
fyrsta leik i derbie-leik Lundúna-
liðanna. Brian Greenaway skoraði
eina mark Fulham á 68. mín. Áhorf-
endur voru 28 þúsund og flestir hurfu
á brott þegar dómarinn flautaði leiks-
lok næstum þremur mín. of fljótt.
Löngu síðar komu leikmenn inn á
völlinn á ný og léku í fimm mínútur.
Það breytti engu um úrslitin.
Stoke komst í efsta sæti með sigri á
Sheff. Utd. O’Callaghan og Crook
skoruðu mörk Stoke en Peter Ander-
son mark United.
Hörkuleikur var i Brighton, þegar
West Ham kom í heimsókn. Pop
Robson náði forustu fyrir Lunúnda-
liðið en Peter Sayer jafnaði á 40. min.
Þremur mín. siðar skoraði Robson
aftur og það reyndist sigurmark West
Ham. Eftir leikinn var allt á hvolfi í
skemmtiborginni á suðurströndinni.
Lögreglan handtók 96 — og ungur
drengur var stunginn með hníf. Bekkir
og stólar voru eyðilagðir á ströndinni
— mat og drykk stolið á veitinga-
stöðum þar. Slagsmál voru fyrir,
meðan á leiknum stóð og eftir hann.
Charlton sigraði í fyrsta skipti i
Millwall frá 1935 í leik þessara
Lundúnaliöa og Ralph Coates, áður
Burnley og Tottenham, skoraði eitt af
mörkum Orient j austurbæ Lundúna-
borgar gegn Luton. Peter Kitchen hin
tvö.
í 3. deild skoraði Bissett sigurmark
Watford, sem er efst með 22 stig.
Shrewsbury hefur sömu stigatölu og
Swansea er í 3ja sæti með 21 stig.
Alan Waddles, tvö, John Toshack og
Jerome Charles skoruðu mörk
Swansea. Gillingham hefur 18 stig,
einnig Chester. Ian Edwards skoraði
öll þrjú mörk Chester á laugardag en i
Evrópuleiknum gegn Möltu sl.
miðvikudag skoraði hann fjögur mörk.
í 4. deild er Wimbledon efst með 24
stig. Reading hefur 22, Barnsley og
Grimsby 20.
Staðan er nú þannig:
l.deild
Liverpool 12 10 1 1 35-5 21
Everton 12 7 5 0 15-5 19
Nott. Ford. 12 5 7 0 15-8 17
WBA 12 6 4 2 27-13 16
Man. City 12 5 5 2 21-14 15
Man. Utd. 12 5 5 2 19-18 15
Arsenal 12 5 4 3 19-13 14
Coventry 12 5 4 3 17—18 14
Tottenham 12 5 4 3 14-20 14
A. Villa 12 4 4 4 14-12 12
Bristol City 12 5 2 5 15-16 12
Leeds 12 4 3 5 24-18 11
Norwich 12 3 5 4 23-23 11
Middlesbro 12 4 2 6 17-17 10
Ipswich 12 4 2 6 13—15 10
QPR 12 3 4 5 10-14 10
Southampton 12 2 5 5 13—17 9
Bolton 12 3 3 6 18—26 5»
Derby 12 3 3 6 12-25 9
Chelsea 12 2 3 7 15—26 7
Wolves 12 3 0 9 10—22 6
Birmingham 12 0 3 9 7-24 3
2. deild
Stoke 12 7 4 1 17-9 18
C. Palace 12 6 5 1 19-9 17
Fulham 12 7 2 3 16-11 16
West Ham 12 6 3 3 24-13 15
Charlton 12 5 4 3 18-12 14
Bristol 12 6 2 4 20-17 14
Bumley 12 5 4 3 18—17 14
Sunderland 12 5 4 3 16—16 14
Newcastle 12 5 4 3 14-14 14
Luton ' 12 5 3 4 29-14 13
Notts. Co. 12 5 3 4 16-22 13
Brighton 12 5 2 5 20-18 12
Wrexham 12 3 6 3 9-8 12
Sheff. Utd. 12 4 3 5 17-18 11
Orient 12 4 2 6 13-14 10
Cambridge 12 2 6 4 8-10 10
Cardiff 12 2 6 4 16-27 10
Leicester 12 2 5 5 9-12 9
Oldham 12 3 3 6 14-20 9
Blackbum 12 2 4 6 13-20 8
Preston 12 1 4 7 17-27 6
Millwall 12 1 3 8 7-23 5