Dagblaðið - 30.10.1978, Side 25
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1978
25
Olivia og
diskóeigandinn
Stúdíó 54 i New York er afar vinsæll
staður fyrir fólk sem vill komast í
fréttirnar. Endalaust skrifa heimsblöðin
um gesti þessa fræga staðar. En þess má
geta fyrir þá, sem ekki vita hvað Stúdió
54 er, að það er diskótek og telst til betri
staða í allri New York borg. Nú fyrir
skömmu sást hin fræga „Grease” stjama
Olivia Newton John á þessum vinsæla
skemmtistað og að sjálfsögðu dansaði
hún eins og diskódísir eiga að gera.
Newton John var með dreng einn með
sér sem heitir Lee Kramer og er hann
sagður vera núverandi kærasti hennar.
Ekki er annað að sjá á mvndinni en
stúlkan sé ánægð með lil'ið. alla vega
brosir hún út að eyrum. I ee K ruiuer er
diskótekeigandi í Las Vegas og er það
diskótek víst ekki síðra en Stúdió 54.
SUSAN
BLAKELY
VAR
AÐUR
FYRIR-
SÆTA
Öll munum við eftir leikkonunni
Susan Blakely, en hún lék eiginkonu
Rudys í myndaflokknum Gæfa eða
gjörvileiki. Þar lék hún drykkjusjúka
eiginkonu sem lézt í fyrri hluta mynda-
flokksins. í þáttunum hét hún Julie
Prescott og var móðir Billys.
En Susan Blakely er nú orðin ein af
tekjuhærri leikkonum i Hollywood og er
eftirsótt i kvikmyndir þar. Ein nýjasta
mynd hennar nefnist „Lonely Lady”og
er það sögð mjög góðmynd. Myndin er
gerð eftir samnefndri bók eftir milljóna-
mæringinn Harold Robbins.
Þegar Robbins vissi að Susan tæki
hlutverkið í myndinni gaf hann henni
dýrmætt hálsmen, svo ánægður var
hann með að fá hana i myndina. Áður
fyrr var Susan eftirsótt sýningarstúlka
og upp úr því starfi fékk hún sitt fyrsta
hlutverk í kvikmynd.
Susan Blakely fær nú mjög miklar
fjárhæðir fyrir leik sinn en ekki segist
hún vilja segja hvað það sé mikið. Hún
segir aðeins að peningarnir skipti sig
engu enda sé það bara skatturinn sem
þurfi að vita um það. Susan er dóttir
bandarisks liðsforingja og hefur búið
úti um viða veröld. Hún fæddist í
Frankfurt i Þýzkalandi. Hún hefur
gengið í skóla í Þýzkalandi, Kóreu,
Hawaii, Washington, El Paso, New
York og Beverly Hills.
Það getur auðvitað verið tauga-
strekkjandi að vera alltaf að skipta um
stað en þó er það nú þroskandi líka,
maður er alltaf að kynnast einhverju
nýju. Susan er mjög hrifin af börnum og
segist bíða eftir því tækifæri að fá hlut-
verk i mynd fyrir börn. Maður getur gert
ýmislegt bara ef maður hefur viljann,
sagðiSusan að lokum.
Hér er Susan með milljónaranum Harold Robbins. Hann gaf hcnni dýrindis
hálsmen þegar hann vissi að hún fékk hlutverk i mynd eftir hann.
MARKAÐURINN
GRETTISGÖTU 12-18
Sýningarsvæði úti sem inni.
sími 25252
Ford Fairmont, árg. ’78,
grásanseraður, sjálfsk., aflstýri, afl-
bremsur, tausæti. Glæsilegur bill.
Verð 4.7 m.
Mercurv Monarch Chia árg. ’75.
Brúnsanscraður, 8 cyl., sjálfsk. (i
gólfi), 4ra dyra, allstýri o.fl. Fkinn
AÐEINS 40 þ. km. Sem nýr hill. Verð
3,7 millj. Skipti.
sanserað-
ur, ekinn aðeins 32 þ. km, 8 cyl„
beinsk., veltigrind, styrktur. Verð 5.4
millj. Skipti möguleg á ódýrari fólks-
bfl.
Toyota Mark II ’7I. Blásanseraður,
ekinn 97 þ.km. (uppt. vél). Snyrtilegur
bíll. Verð 1250 þús.
Skoda Amigo ’77. Drapplitaður, ckinn
18 þ. km, snjód., útvarp. Verö 1350
þús.
Chevrolet Suburban 1974. II farþcga.
8 cyl., beinskiptur. Ný dekk, gott
lakk, teppalagður. Toppbill. Verð 5,5
millj.
Austin Mini '11. Grænn, ekinn 17 þ.
km. Verð kr. 1700 þús.
Fiat 132 ’74. Blár, ekinn 70 þ. km, út-
varp. Fallegur blll. Verð 1500 þús.
Lancer Celesta '11. Rauður, ekinn
aðeins 5 þ. km. Sérstaklega fallegur
bíll. Verð 3.3 millj.
Saab 99 GL. '11. Drapplitaður, ekinn
26 þ. km. Bfllinn er sem nýr. Vcrð 4.3
millj.
jgylltflÖÍAfMJ
Subaru 1978 rauður ekinn 26 þús. km.
Verðkr.3,9millj.
Willys Wagoneer 1974, 8 cyl., sjálf-
skiptur með/öllu, útvarp. Verð 3,4
millj.
Citroén GS ’74. Grár, sanseraður, ek-
inn 68 þ. km. Fallegur bill. Verð 1500
þús.
þ. km, útvarp, snjód. + sumard.
Fallegur bill. Verð 3.650 þús., skipti
möguleg á fallegum Bronco.