Dagblaðið - 30.10.1978, Síða 32
32 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1978
SID VICIOUS. — Hann er aðalpersónan i dauða Nancy Spungen sem fannst látin i hótelherbergi á Manhattan. Sid hefur verið ákærður um morðið á stúlkunni. Verði hann fundinn sekur á hann von á allt
að 25 ára fangelsi. Myndin er úr kvikmyndinni The Great Rock ’n’ Roll Swindle.
Ræflarokkiö á tímamótum___________
HBMURSEX PISTOLS ER
ORÐINN AÐ RAUNVERULEIKA
Það hefur tæpast farið fram hjá
neinum, sem á annað borð les blöð, að
Sid Vicious, fyrrum bassaleikari hljóm-
sveitarinnar Sex Pistols, hefur verið
ákærður fyrir morð. Hann var
handtekinn fyrr í mánuðinum í New
York eftir að vinkona hans, Nancy
Spungen, hafði fundizt látin í hótelher-
bergi þeirra. Þegar að frumrannsókn
lokinni var Sid Vicious handtekinn og
ákærður fyrir morð af annarri gráðu.
Siðar var hann látinn laus gegn 25
þúsund sterlingspunda tryggingu. —
Virgin plötufyrirtækið greiddi trygging-
una.
En sorgarsögunni lýkur ekki þar.
Síðasta mánudag reyndi Sid Vicious að
fremja sjálfsmorð. Hann skar sig í
hendurnar með rakvélarblöðum og brot-
inni Ijósaperu meðan hann æpti að hann
vildi komast til Nancy sinnar. Síðan, er
ekkert bólaði á dauðanum, hugðist hann
fleygja sér niður af áttundu hæö
hótelsins, sem hann býr nú í ásamt
móður sinni. Sálfræðingur bassa-
leikarans stöðvaði hann í því hann var
að fleygja sér fram af.
Hann var síðar fluttur í sjúkrahús og
reyndist ekki vera illa særður. öruggara
þótti þó að halda honum þar fyrir
öryggis sakir og sömuleiðis til að kanna
geðheilsu hans frekar.
Vinur Sids Vicious, sem heimsótti
hann á sjúkrahúsið, sagði eftir á að
popparinn væri nú fyrst að átta sig á að
kærastan hans kæmi ekki aftur.
Sömuleiðis er hann illa farinn þar eð
hann þarf að taka skammt af lyfinu
methadone daglega. Það er notað til að
venja heróínsjúklinga af nautninni.
Þunglyndi fylgir þeim inntökum og eru
þær taldar helzta orsök sjálfsmorðstil-
raunar Vicious.
Nancy - spillt
vandræðabarn
Það var Nancy Spungen sem kom Sid
Vicious í kynni við heróín. Hún var
komin af efnuðu fólki í Philadelphia en
hafði ávallt verið vandræðabarn. Hún
yfirgaf heimili sitt og fluttist til New
York þar sem hún tók að stunda alls
kyns ólifnað með tilheyrandi lyfjaneyzlu
Allt líf hennar snerist í kringum hljóm-
sveitir, sér í lagi þær sem kenndu sig við
punk eða ræflarokk. í þá daga var
hljómsveitin New York Dolls þeirra
fremst. Um það leyti sem Nancy
Spungen var henni áhangandi eyddi
hún um 100 dollurum á dag í heróín.
Um síðir lagði Nancy leið sína til
Englands. Þar komst hún i kynni við
Sid Vicious og tókust með þeim ástir
góðar. Félagar Sids í hljómsveitinni Sex
Pistols voru þegar frá leið litt hrifnir af
kunningsskap þeirra. Eitt sinn er hljóm-
sveitin var á ferðalagi um England stóðu
þeir meira að segja fyrir hálfgildings
mannráni. Þeir fluttu hana»nauðuga til
Heathrow flugvallar og afhentu henni
þar farmiða aðra leiðina til Bandaríkj-
anna. Stúlkan æpti hins vegar svo mikið,
er átti að flytja hana um borð í flugvél,
að hætta varð við ránið. — Samband
hennarogSids Vicious varði því allt til
12. þessa mánaðar, er hann kom að
henni örendri á salerni hótelherbergis
þeirra með veiðihníf í maganum.
Vicious neitar
Vicious neitar statt og stöðugt að eiga
nokkra aðild að dauða stúlkunnar.
Hann segir hana hafa verið að leika sér
með hnífinn er hann sofnaði eða öllu
heldur lognaðist út af um kvöldið. Siðan
vissi hann ekki meir — að eigin sögn —
fyrr en morguninn eftir er hann vaknaði
og rakti blóðslóð inn á salernið.
Hótelið, sem þau skötuhjúin bjuggu á,
nefnist Chelsa Hotel og er á Manhattan.
Þar höfðu þau haft aðsetur frá 23. ágúst.
1 byrjun þessa mánaðar urðu þau að
skipta um herbergi þar sem Sid Vicious
kveikti í því fyrra. Hann gekk til hvílu
með sígarettu með þeim afleiðingum að
rúmið skíðlogaði og eldurinn læsti sig í
veggina. Sid og Nancy sluppu ómeidd.
Chelsa Hotel er í 94 ára gamalli
byggingu. Gestirnir þar eru flestir ærið
vafasamir. Svo að notuð séu orð
Malcolms McLaren, framkvæmdastjóra
Sex Pistols, er það uppfullt af eiturlyfja-
sjúklingum, hórum og okurkörlum.
Áður fyrr var hótelið þekkt að góðu einu
og þá gistu þar listamenn á borð við
Söru Bernhardt og Dylan Thomas.
Framkvæmda-
stjórinn „bjó
til" Sex Pistols
Saga hljómsveitarinnar Sex Pistols
hefur margoft verið rakin í blöðum og
oft á tíðum verið sveipuð hálfgerðum
dýrðarljóma. Upphafsmaðurinn að
Pistólunum var Malcolm McLaren, sem
áður er minnzt á, eigandi fataverzlunar-
innar Sex á Kings Road. Er bandaríska
hljómsveitin New York Dolls var eitt
sinn í heimsókn í London rakst hún inn í
verzlun McLarens. Vel fór á með
JOHNNY ROTTEN — Undir lokin veittist honum orðið erfitt að leika það
hlutverk sem honum var ætlað — ræfilinn sem spýtti á allt og alla. Hann deilir nú
hart við frainkvæmdastjórann sinn, Malcolm McLaren, um peninga og segist
búast við áralöngum málaferlum.