Dagblaðið - 30.10.1978, Blaðsíða 33

Dagblaðið - 30.10.1978, Blaðsíða 33
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1978 33 SID VICIOUS OG NÁNCY SPUNGEN — Þau kvnntust í London, bæði vandræðabörn frá æsku. Hún var forfallinn heróínisti og dró hinn tiltölulega lítt spillta John Ritchie (Vicious) niður með sér. Til að mynda þurfti hún aö byrja á að kenna honum allt um kynlíf er þau tóku upp búskap. Fasteignir 3 Suðurnesjum honum og liðsmönnum hljómsveitar- innar. — Svo vel að skömmu síðar var hann orðinn framkvæmdastjóri hennar. Hann fór með hljómsveitinni yfir til New York og kom þaðan heim uppfullur af hugmyndum um að koma sér upp ræflarokkhljómsveit heima i gamla Englandi. Beinast lá við að virkja atvinnulausu strákana sem héngu daginn út og inn við verzlun hans. Hann valdi fjóra sem virtust hafa mesta hæfileika til að geta leikið á hljóðfæri og kallaði þá Sex Pistols. Söngvarinn kom frá Austur- London, strákur að nafni John Lydon. Hann er nú þekktur undir nafninu Johnny Rotten. Tónlist Sex Pistols var ekkert nýtt — hún líktist mest þvi sem gekk bezt i byrjun sjöunda áratugsins. Það var ytra útlitið sem var bylting. Þeir voru stutt- klipptir, í ræfilslegum tötrum með nælur í ncfi og fótum. Framkoman einkenndist af ofbeldishneigð og blótsyrðum með viðeigandi skyrpi. Þetta féll í kramið. Fjöldihljómsveitaspratt upp sem reyndu í einu og öllu að líkjast Sex Pistols. Og ekki má gleyma þeim þúsundum unglinga sem tóku að ganga i görmum og öngla sig saman í öryggisnælum. Bylgja þessi, sem á íslenzku hefur verið nefnd nýbylgja, er nú sem óðast að líða undir lok. Mikill vill meira — plötusamningur næstur á dagskrá Malcolm McLaren hafði náð þeim áfanga að skapa nýja tízku. En hann vildi gera meira. Sex Pistols áttu að syngja inn á plötu. McLaren var kunnug sú staðreynd að hljómplötufyrirtækin eru sífellt að leita að nýjum kröftum sem gætu komið af stað hugarfarsbreytingu á borð við þá er Beatles og Rolling Stones komu fram i dagsljósið. Fyrsti samningurinn við Sex Pistols var undir- ritaður í október 1976 — fimm mánuðum eftir stofnunina. Það var fyrirtækið EMI sem freistaðist til að gefa plötur hljómsveitinnar út. Samþykkt var að hljómsveitin fengi í sinn hlut 40.000 sterlingspund fyrirfram fyrir tveggja ára samning. Þessi upphæð var smáræði fyrir EMI. Aðeins ein lítil plata, sem hlyti góða sölu um allan heim, — myndi skila þessum pundum í kassann aftur. Fyrsta platan, Anarchy In The UK, kom út mánuði síðar. Fjórum dögum eftir útkomu plöt- unnar komu Sex Pistols fram i sjón- varpsþætti Thames sjónvarpsstöðvar- innar. Þar lét hljómsveitin gamminn geisa og jós óþverranum yftr þjóðina. Daginn eftir seldist Anarchy In The UK í 1800 eintökum og stjórnandi þáttarins var rekinn. Ágreiningurvar innan stjórnar EMI um hvort Sex Pistols væru æskilegir listamenn til að láta bendla sig við. Niðurstaðan varð sú að hljómsveitinni voru greidd sterlingspundin 40.000 og samningnum rift. Næsta fyrirtæki til að gera samning við Sex Pistols var A and M, sem meðal annars er í eigu Herb Albert trompett- leikara. Samningurinn var undirritaður fyrir framan Buckinghamhöll, þar sem Johnny Rotten spýtti vodka á blaða- menn jafnt sem forstjóra A and M. Innan viku var þeim samningi rift og McLaren og Sex Pistols fengu í sinn hlut 25.000 sterlingspund. Þriðja fyrirtækið, sem var til í að taka Sex Pistols á samning, var Virgin Records. Fyrirframgreiðsla þess fyrir- tækis var 45 þúsund sterlingspund. Samningurinn við það fyrirtæki varir enn þó að Sex Pistols séu tæpast til sem hljómsveit lengur. Nú var Sid Vicious tekinn að verða áberandi í hljómsveitinni. Rétt nafn piltsins er John Ritchie og hann var búinn að vera vinur Johnny Rotten um nokkurt skeið. Það var McLaren sem breytti nafni hans. Staðreyndin að hann kunni lítt að leika á bassa virtist ekki skipta máli. Hann var haldinn ofbeldis- hneigð sem féll vel að þeirri ímynd sem Malcolm McLaren lagði áherzlu á að Sex Pistols ættu að sýna. Innst inni er Sid Vicious veikgeðja ungur maður. Fjölskylda hans var út um hvippinn og hvappinn og heimilið i molum. Hann var þvi auðleiddur inn á eiturlyfjabrautina þegar Nancy Spungen birtist í freistara líki. rfVið prófuðum flestar tegundir" „Við prófuðum flestar tegundir af eiturlyfjum sem buðust,” segir Johnny Rotten. „Við notuðum kókaín mikið, reyktum hass og átum örvandi og deyf- andi lyf til skiptis. Sid gekk lengst okkar með því að ánetjast heróíni og það var eingöngu að áeggjan Nancy sem hann byrjaði að nota það. Ástæðan fyrir því að ég vildi ekki fá Sid i nýju hljómsveitina mína, Public Image, var sú að ég get ekki treyst eitur- lyfjasjúklingi eins og honum. I öðru lagi kann hann ekki að leika á bassa.” Eftir að enski hljómplötumarkaður- inn var tryggður hóf Malcolm McLaren að leita lengra. Þann 10. október i fyrra var undirritaður útgáfusamningur við Warner Brothers. Talsverður ágreiningur var meðal ráðamanna Warner Bros, hvort gera ætti samning við hljómsveitina, en þeir höfðu betur sem töldu að fyrirtækið ætti að blanda sér meir en orðið var í rokkmarkaðinn. Hljómsveitin fékk umtalsverða upphæð við gerð samningsins þar eð talið var að önnur útgáfufyrirtæki væru óðfús að gera samning við hljómsveitina. Warner Brothers snöruðu þegar í stað út 80.000 dollurum til að gefa út fyrstu breiðskífu Sex Pistols. Sú nefndist Never Mind The Bollocks. Sömuleiðis annaðist fyrirtækið undirbúning hljómleikaferðar Sex Pistols um Bandaríkin. Hún var nokkrum erfiðleikum háð, aðallega þar eð lengi stóð í stappi að koma liðsmönn- um Sex Pistols til Bandaríkjanna. Þarlendir voru lítt hrifnir af að fá piltana i heimsókn þar sem sakaskrár þeirra voru ærið litrikar. Johnny sagði upp Loks hófst þó ferðin og hún vakti gífurlega athygli. Alls kyns yfirlýsingar Johnny Rotten komu róti á bandarísk blöð sem voru nær undantekningarlaust sammála í dómum sínum um getu hljómsveitarinnar og framkomu liðs- manna hennar. Kórónan á ferðina kom loks í janúar á þessu ári er Johnny Rotten sagði upp fyrirvaralaust. Þegar þarna var komið sögu var spennan innan hljómsveitarinnar orðin gífurleg. Eiturlyfjaneyzla Sids og Nancy Spungen fór mjög í taugarnar á Rotten. Einnig veittist honum orðið erfitt að leika hlutverk hins rotna karakters sem honum hafði verið gert að túlka. Loks þegar Malcolm McLaren heimtaði að hljómsveitin færi til Brasilíu til að spila inn á plötu með lestarræningjanum Ronald Biggs setti Rotten hnefann í borðið og sagði nei. Síðan þetta gerðist hefur stanzlaust rifrildi verið um fjármál milli Rotten og McLaren. Sá siðarnefndi vinnur að gerð heimildarmyndar um Sex Pistols. Sú ber nafnið Sex Pistols The Great Rock ’n’ Roll Swindle. Hún á að vera tilbúin til sýninga i janúar næstkomandi. Síðasti kapítulinn í myndinni er einmitt að gerast þessa dagana, harmleikurinn um Sid Vicious og ímynduðu veröldina hans sem skyndilega varð að veruleika. Keflavík Jja nem. ibuo I tvíbýli, 100 ferm fallegur garður, neyzlu- og hitaveitulagnir endur- nýjaðar og nýtt gler, Verð 11 — 11 1/2 millj., útborgun 6 — 6 1/2 millj. 4ra herb. íbúð í steinsteyptu tvibýlishúsi, nýjar hita- og neyzluvatnslagnir ásamt nýju verksmiðjugleri. Verð 11-11,5 miilj., útborgun 6,5 millj. 4ra herb. íbúð, 125 ferm, ásamt 40 ferm bílskúr, á góðum stað, nýtt gler og nýlegar neyzluvatnslagnir. Verð 14,5-15 millj., útborgun 8 millj. 4ra herb. íbúð í tvíbýli, efri hæð, hitaleiðslur endur- nýjaðar. Verð 8 1/2 millj., útborgun 4 1/2 millj. Raðhús í toppstandi, 140 ferm, ásamt 30 ferm bilskúr. Vcrð 18 millj., útborgun 11-11,5 millj. 3ja herb. íbúð á góðum staö, bilskúrsréttur. Verð 10,5-10,8 miilj., útborgun 6-6,5 millj. 3 herb. íbúð í fjölbýlishúsi á tveim hæðum, 90 ferm, ásamt 45 ferm bilskúr. Góður staður, hitaveita. Verð 11—11,5 millj., útborgun 6 milljónir. 3 herb. íbúð í fjölbýlishúsi, 80 fcrm. Verð 8 millj., útborgun 4,5 millj. Sandgerði 2ja herb. íbúð í góðu ástandi verð 6—6 1/2 millj., útborgun 3—3 1/2 millj. Nýtt einbýlishús með stórum bilskúr, 56 fernt, cr ekki alvcg fullklárað. Verð 17 1/2—18 1/2 millj. útborgun 9 millj. 3ja herb. íbúð í tvíbýli, 25 ferm bilskúr. Verð 6,5 millj., útborgun 3-3,5 millj. 3 herb. íbúð í góðu ástandi í tvibýli. Verð 10,5— II millj., útborgun 6 millj. 100 fermíbúð í tvíbýli, 30 ferm bilskúr. Verð 8-8,5 millj., útborgun 4 millj. 110fermíbúð í fjölhýlishúsi, bílskúrsréttur. Verð 10-10,5 millj., útborgun 5,5-6 millj. Einbýlishús á tveimur hæðum, 3X88 ferm, bíl- skúrsréttur. Verð 20 millj., útborgun 10 millj. Ytri-Njarðvík 3ja herb. íbúð á efri hæð í steinsteyptu tvíbýlishúsi, 85 ferm. Verð 6,8—7 millj., útborgun, samkomulag. 4ra herb. íbúð, 120 ferm, á góðum stað. Verð 9 1/2 — 10 millj., útborgun 4 1/2 — 5 millj. 3ja herb. íbúð í smiðum, 85 ferm, cinangruð að innan ásamt milliveggjasteini og sandi, fullklárað að utan. Verð 8 1/2 millj. Sökkull að raðhúsi, tandaðar tcikningar. Verð 4 1/2 millj. 3ja herb. íbúð í þríbýli, öll nýstandsett. Verð 10 milljónir, útborgun 5—5,5 milljónir. 100 fermíbúð i fjölbýlishúsi, bilskúrsréttur, hita- veita. Verð 12-12,5 millj., útborgun 7 millj. 125 ferm einbýlishús, 42 ferm bilskúr. Vcrð 16—17 millj. Innri-Njarðvík 1272’ferm nýtt einbýlishús, bílskúrsréttur. Verð 14 millj., út- horgun 8 millj. 80 ferm íbúð i tvíbýlishúsi. Verð 7,5 millj. Fokhelt einbýlishús þarf ekki að pússa aö utan. Verð 8 millj. Eldra einbýlishús 140 fcrm með 80 fer. bílskúr, góð eign á góðum stað. Verð 16 millj., úborgun 8 niillj. Fyrirtæki — stofnanir: Htifum til sölu verzlunarhúsnœði á aóóum stuð og iðnaðar- húsnwði af ýmsum Kcrðum, frú ISOferml 750ferm. Opið 6 tlaf;a vikunnar frá kl. 1—6. Myndir af tillum fasteipnum á skrifstofunni. Htifum fjársterka kaupendur að einhýlishúsum og raðhúsum. EIGNAMIÐLUN SUÐURNESJA HAFNARGÖTU 57 - KEFLAVÍK - SÍMI 3868 Hannes Ragnarsson. Sími 92-3383. OG ÞÁ VORU EFTIR TVEIR. — Þrátt fyrir að Johnny Rotten hætti 1 hljóm- sveitinni var samt gerð plata með lestarræningjanum Ronald Biggs. öðrum megin á plötunni söng Biggs lagið The Biggest Blow en hinum megin var My Way sem Sid Vicious söng.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.