Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 07.11.1978, Qupperneq 6

Dagblaðið - 07.11.1978, Qupperneq 6
6 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978. Kreisky segir ekki af sér Bruno Kreisky kanslari Austurrikis til1 kynnti í gærkvöldi að hann ætlaði ekki að segja af sér vegna ósigurs stjórnar hans varðandi kjarnorkuver. Leiðtogar Sósíalistaflokksins lýstu yfir fullu trausti á honum á fundi sinum í gær. Angóla bíður innrásar frá Suður- Afríku Angólabúar eru viðbúnir innrás frá Suður-Afríku og her landsins hefur verið falið að vera við öllu búinn að sögn brezka útvarpsins í morgun. Fréttin er höfð eftir fréttastofu Angola. Þar var fullyrt að innrás frá Suður- Afríku væri yfirvofandi á hverri stundu. Bandaríkin: Demókratar líklegir til sigurs i kosningunum CAIft GKTBI I - virðast hafa stolið uppáhalds wWlfl Ul II I Uug barátfumáli repúblikana — skattalækkun og lækkun verðbólgunnar Skoðanakannanir gera ráð fyrir að Demókrataflokkurinn bandaríski muni að mestu halda fylgi sinu í kosningum sem haldnar verða þar í landi í dag. Er þetta talinn árangur mikillar herferðar flokksins undir for- ustu Carters forseta þar sem reynt hefur verið að sætta almenning við hækkandi skatta og verðbólgu. í skýrslu sem barst frá Louis Harris könnunarfyrirtækinu í morgun segir að svo virðist sem demókrötum hafi tekizt að snúa taflinu sér í hag og mik- ill meirihluti kjósenda muni styðja frambjóðendur þeirra, eins og áður. Bandaríkjamenn kjósa í dag um þrjátíu og fimm sæti í öldungadeild þingsins í Washington, um alla 435 fulltrúana í fulltrúadeildinni og um þrjátíu og sex fylkisstjóra. Fyrir nokkrum vikum sýndu niður- stöður skoðanakannana að kjósendur væru óánægðir með frammistöðu stjórnar Carters og ætluðu að styðja frambjóðendur repúblikana í meira mæli en áður. Átti sá árangur að byggjast á baráttu flokksins og fram- bjóðenda hans fyrir lægri sköttum og minnkandi verðbólgu. Demókrata- frambjóðendum hefur þó að því er virðist tekizt að stela þessu stefnumáli meira eða minna af repúblikönum. Demókratar, sem nú þegar sitja í 62 af 100 sætum í öldungadeildinni, 285 sætum í fulltrúadeildinni og ráða 36 af fimmtiu stöðum fylkisstjóra njóta einnig verulega góðs af árangri Carters í Camp David viðræðunum við lsraelsmenn og Egypta. Venjulega er kosningaþátttaka í Bandaríkjunum ekki mikil og af þeim 118 milljónum landsmanna, sem hafa kosningarétt, er aðeins búizt við að þriðjungur muni neyta þessa réttar sins. Áhugaminnstir eru venjulega hinir tekjulágu og ýmsir minnihluta- hópar. Fylgi demókrata hefur yfirleitt verið mikið meðal þeirra ef þeir fást á kjörstað. 1 51 \ 0 innrás frá Suður-Afríku. Á myndinni er Amin með varaforseta sinum fýrrverandi, sem nýlega var fluttur særður til Egypta- lands en þar hefur hann beðið um hæli sem pólitlskur flóttamaður. Ezer Weizman utanríkisráðherra ísraels heldur í dag til Washington til að halda áfram friðarviðræðum þar við fulltrúa Egyptalands. Ljóst er að ísraelska ríkisstjórnin hefur samþykkt að draga allan her sinn af Sínaiskagánum og þykir sú ákvörðun mjög auka líkur fyrir samkomulagi deiluaðila. Munu Egyptar að lokum fá allan Sínaískag- anna aftur samkvæmt þessari ákvörðun ísraelsku stjórnarinnar. Her landsins tók hann í sex daga stríðinu árið 1967. Önnur atriði, sem væntanlega verða rædd á friðarfundunum næstu daga eru framtíð þeirra landsvæða þar sem palestinskir flóttamenn búa eða á vestur- bakka árinnar Jórdan og Gazasvæðinu. Einnig mun sú krafa Egypta um að friðarsamningar rikjanna verði endur- skoðaðir eftir fimm ár, verða rædd svo og hvernig háttað verði samskiptum ríkjanna tveggja i framtiðinni. Bandaríkin: Sum sykursýkisfyf geta valdið hjartaslagi Sjúklingar, sem þjást af sykursýki og taka þess vegna inn ýmis fljótandi lyf eiga fremur á hættu að fá hjarta- áfall eða aðra hjartasjúkdóma en aðrir. Er þetta niðurstaða rannsókna, sem gerðar hafa verið á vegum banda- rískra stjórnvalda. Nokkur gagnrýni hefur komið fram á rannsóknum þessum og hafa nokkrir sérfræðingar dregið niðurstöðurnar í efa. Matvæla- og heilbrigðisstofnun Bandaríkjanna lagði á sinum tima til að varað væri við hugsanlegri hættu af áðurnefndum sykursýkislyfjum með áritunum á umbúðum. Þá var ákveðið að kanna sannleiksgildi rannsókna sérfræðinganna nánar áður en gripið yrði til slíkra áletrana á umbúðir. 1 gær ákvað Matvæla- og heilbrigðisstofnunin að þrátt fyrir að nokkurrar ónákvæmni gætti í áður- nefndri grein um rannsóknina þá væri ekki hægt að skella algjörlega skolla- eyrum við niðurstöðum hennar. Áðurgreind lyf við sykursýki eiga hér eftir aðeins að notasta af þeim sjúklingum í Bandarikjunum sem taka veikina á fullorðinsárum. Weizman utanrikisráðherra hefur lýst því yfir að hann vonist til að takist að koma á endanlegum friðarsamningum en Ijóst er að meirihluti ísraelskra ráð- herra hefur ekki verið ánægður með þau samkomulagsdrög, sem lögð voru fyrir stjórn landsins fyrir nokkru. Þvi má búast við verulega hörðum viðræðum um hvernig samningarnir eigi að vera og engan veginn víst hvenær niðurstaða fæst.________ Ford styrkir rannsóknir á getnaðar- vörnum Ford stofnunin í Bandaríkjunum hefur ákveðið að leggja fram allt að 1,5 milljónum dollara að jafnvirði um það bil fimm hundruð milljarða til rann- sókna á getnaðarvörnum af ýmsu tagi. Meðal annars mun verða varið fé til að kanna fornar aðgerðir Egypta í þessu skyni. Fæðingum fækkaríþriðja heiminum Fjöldi fæðinga i ríkjum þriðja heims- ins hefur minnkað hlutfallslega á undan- förnum árum. Á hinn bóginn hefur einnig tekizt að hækka dánaraldur veru- lega. Kemur þar til bætt heilbrigðisþjón- usta og bætt lífskjör i sumum ríkjanna. Þetta kemur fram í skýrslu frá þeirri stofnun Sameinuðu þjóðanna, sem fer með mannfjöldamál í heiminum. Miðausturlönd: WEIZMAN SNÚINN AFTUR TIL WASHINGTON MEÐ NÝ FYRIRMÆLI

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.