Dagblaðið - 07.11.1978, Síða 7

Dagblaðið - 07.11.1978, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978. 7 Erlendar fréttir REUJER Bandaríkja- menn í sláttu- leiðangri íEvrópu Bandarískir opinberir starfsmenn héldu í dag til Vestur-Þýzkalands og Sviss til að leita hófanna um lán að jafn- virði 10 milljarða dollara. Er lánið ætlað til að styrkja stöðu dollarans á alþjóða- gjaldeyrismörkuðum. Skráð gengi doll- arans náði 190 jenum á gjaldeyrismark- aðiíTókióimorgun. Iran: Herstjórnin hyggst koma olíuiðnaðin- um aftur í samt lag — her landsins brýtur alla mótspymu gegn keisaranum á bak aftur Búizt er við því að herstjórnin sem tók við völdum i íran í gær muni halda áfram aðgerðum sínum gegn and- stæðingum keisarans. Næstu skrefin yrðu þá að ganga milli bols og höfuðs á þeim aðilum sem stöðvað hafa olíu- iðnað landsins að mestu undanfarnar vikur. Einng er búizt við að reynt verði að hrekja andstæðinga keisarans á brott af götum borga landsins og koma í veg fyrir frekari verkfalls- og mótmælaaðgerðir. Gholamreza Azhari hershöfðingi, sem keisarinn skipaði forsætisráðherra herstjórnarinnar sagði i útvarpsávarpi áð hann vonaðist til þess að geta falið stjórnartaumana í hendur borgaraleg- um aðilum innan skamms. Eftir að herlið hafði ráðizt gegn andstæðingum íranskeisara af mikilli hörku i gær hefur ýmissa mikilvægra staða verið gætt af herliði, sem hefur meðal ann- ars haft sér til aðstoóar skriðdreka. Er talið að tekizt hafi að kveða andstæð- inga keisarans í kútinn þótt ljóst sé að andstæðingar hans njóta mikils fylgis hjá almenningi í landinu. Daglegt líf er þó ekki komið í samt horf i Íran ennþá. Óeirðir undanfarnar vikur hafa komið mjög við efnahags- legt og pólitískt ástand i landinu og mun taka langan tíma þar til það verður eðlilegt. i morgun fréttist af nokkrum minni háttar átökum milli herliðs og andstæðinga keisarans. Ungur bllþjófur 1 Osló fékk heldur óþyrmilega meðferð á dógunum. Hann var staðinn að verki og reiðir vegfarendur tóku sig til og klæddu þjófinn úr hverri spjör og neyddu hann siðan til að lýsa þvi yfir að hann væri bölvaður þjófur. Moskva: BYLTINGARINNAR MINNZT MEÐ HER- SÝNINGU Á RAUÐA TORGINU Eldflaugar af ýmsum gerðum og alls gerðum muni verða í skrúðgöngunni konar vopn munu verða sýnd á Rauða auk alls konar vopna og tíu þúsund her torginu í Moskvu í dag vegna hátiða- manna. halda vegna sextíu og eins árs afmælis Fremstur í flokki ráðamanna, sem bolsévikabyltingarinnar árið 1917. Er í virða munu fyrir sér hersýninguna, þessu efni fylgt áratuga venju þar austur verður Leonid Brésnef forseti Sovétrikj- frá. Þó var vitað að helzta stolt Sovét- anna. Verður hann að venju á þaki graf- ríkjanna, risaskriðdrekinn T-72, verður hýsis. Leníns og auk annarra ráðamanna ekki meðal þeirra vopna sem sýnd verða. verða þar leiðtogi kommúnistaflokks Ekki er búizt við neinum nýjum Vietnam, Le Duan. og forsætisráðherra vopnum að þessu sinni. landsins, Pham Van Dong, en þeir eru í Talið er að hersýningin muni standa í opinberri heimsókn i Sovétríkjunum um tvær klukkustundir en æðsti stjórnandi þessar mundir. hennar er Dmitry Ustinov, hermálaráð- Sjöundi nóvember er helzti hátíðis- herra Sovétrikjanna. Taliðer að um það dagur í Sovétríkjunum og fá margir bil tvö hundruð ökutæki af ýmsum landsmannaalltaðfjögurradagaleyfi. Holland: Þingmaður vann með nasistum Mikið hneykslismál virðist vera að koma upp í Hollandi varðandi einn nú- verandi þingmann. Hann er sakaður um að hafa unnið með þýzkum nasistum siðustu mánuði hernáms þeirra i Hol- landi árið 1945. Skýrsla sem byggð er á rannsókn opinberra aðila, segir að Wim Aantjes, þingmaður og helzti talsmaður Kristilegra demókrata, hafi starfað fyrir nasista annaðhvort sem varðmaður eða almennur starfsmaður í vinnubúðum þeirra. Smurbrauðstofan BJORNINN Njálsgötu 49 — Simi 15105 IUVENA KYNNING INGOLFS . APOTEK Snyrtifrœðingur frá JUVENA leiðbeinir viðskiptavinum okkar IDAG \ s

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.