Dagblaðið - 07.11.1978, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978.
ÍVilja upplagseftir-
lit fjölmiðla
Auglýsingastofur hafa stofnað með
sér samtök sem þeir kalla SÍA‘— Sam-
band íslenzkra auglýsingastofa. Er
Ólafur Stephensen frá Argus forseti
sambandsins, en aðrir i stjórn eru
Halldór Guðmundsson hjá Auglýs-
ingastofunni hf. og Gunnar Gunnars-
son hjá Auglýsingaþjónustunni.
Aðilar að sambandinu geta auglýs-
ingastofur orðið ef þær fullnægja
ýmsum ákvaéðum, s.s. að þær séu fjár-
hagslega óháðar viðskiptavinum sín-
um. Tilgangur félagsins er að auka
hæfni auglýsingastofa, kynna þær al-
menningi og hinu opinbera ásamt því
að fá fólk til að viðurkenna starf aug-
lýsingastofa. Eitt af því sem SÍA ætlar
að beita sér fyrir er að komið verði á
hlutlausu og nákvæmu upplagseftirliti
allra fjölmiðla. - DS
Eskifjörður:
Mikil sfldarsöltun
Mikil sildarsöltun var á síldarplön-
unum þremur á Eskifirði um síðustu
helgi. Sæljónið og Vöttur komu á
mánudag með 380 tunnur til síldar-
plans Friðþjófs. Saltað var í 6000
tunnur hjá Sæbergi. Bæði hjá Frið-
þjófi og Sæbergi hefur bæði verið
rúnnsaltað og sildin einnig hausskorin
og slægö. Hausskorna sildin fer aðal-
lega á Sviþjóðar- og Rússlandsmarkað,
en sú rúnnsaltaða á Póllandsmarkað.
Sæljónið varð fyrir áfalli í síðustu
viku. Kastað var i þremur vindstigum
og fékkst full nót af síld. Þá gerði af-
takaveður og gereyðilagðist nótin.
Útgerðin átti gamla nót sem gerð var
upp í litla Rússlandi (Neskaupstað).
Ekki fékkst uppgefið hjá Auðbjörgu
hvað saltað hefur verið þar. Það er
eins og það sé alltaf leynd yfir því hvað
Auðbjörg saltar, mikið eða litið.
- Regtna / JH
Atvinna
Viljum ráða ungan, laghentan mann til af-
greiðslu- og lagerstarfa. Þarf að hafa bíl til um-
ráða. Eiginhandarumsóknir, er greini mennt-
un og fyrri störf, sendist auglýsingadeild Dag-
blaðsins fyrir 15. nóv. nk. merkt „Bygginga-
markaðurinn”.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
fi/M
!®
BYGGINGA
MARKAÐURINN
Verzlanahöllinni / Grettisgötu
BILAPARTASALAN
Höfum úrval notaðra varahluta íýmsar
tegundirbifreiöa, tildæmis:
ToyotaCrown Fíat 128
Volvo Amazon Chevrolet Bel Air
Rambler American Saab 96.
Fíat 125
Einnig hcfum vid úrval af kerruefni,
til dæmis undir vélsleöa.
Sendum um alltland.
BÍLAPARTASALAN
Höföatúni 10 — Sími 11397
COKS3 <SViJSOKO
Glæsiþotan á Reykjavikurflugvelli i gær.
Bandaríska landhelgisgæzlan:
DOLLARAGRÍN
YFIRMENNINA
Það vaktl nokkra athygli á Reykja- bandarísku strandgæzlunnar. A slíkum
víkurflugvelli í gær er glæsileg smáþota farkostum ferðast yfirleitt ekki nema
af gerðinni Gruman Gulfstream renndi frægustu kvikmyndaleikarar og for-
sér þar inn til lendingar undir rherkjum stjórar risafyrirtækja. Ekki mun þó
UNDIR
strandgæzlan nota glæsigripinn til að
rekast í fiskibátum, heldur er þotan
notuð til að skjóta yfirmönnum bæjar-
leiðir. Bandariskur hershöfðingi er með
þotunni núna, sem mun halda áfram
héðan upp úr hádeginu.
- G.S.
„Hússtjórn ætlar að
sniðganga okkur”
— Ólaf ur Kvaran sækir um stöðu listráðunauts
„Við vildum fá fund með hússtjórn
Kjarvalsstaða áður en umsóknarfrestur
um stöðu listráðunauts rann út og fá
hann framlengdan því okkar fólk hafði
annars ekki tækifæri til að sækja um
stöðuna. Þegar því var ekki sinnt
kæröum við okkur ekkert um fund
seinna þegar allt var um garð gengið,”
sagði Hjörleifur Sigurðsson formaður
Félags islenzkra myndlistarmanna. Eins
og skýrt var frá i blaðinu á laugardaginn
mættu listamenn ekki á þann fund sem'
hússtjórnin hafði þá boðað til.
„Staða listráðunauts var auglýst I
trássi viö okkur og er greinilegt að við
áttum ekki að fá tækifæri til að sækja
um. Greinilegt er að verið er að reyna að
komast fram hjá okkur á allan hátt,”
sagði Hjörleifur.
DB hefur ekki enn fengið uppgefið
hverjir það voru sem sóttu um stöðu list-
ráðunauts á Kjarvalsstöðum. Ljóst er að
umsóknir eru að minnsta kosti tvær,
önnur frá Ólafi Kvaran listfræðingi og
hin frá Árna L. Jónssyni myndlistar-
manni sem notar listamannsnafnið
Zator. Ólafur hefur þann fyrirvara á
umsókn sinni að áður en hann gæti tekið
til starfa yrði að vera búiö að gera sam-
komulag á milli borgarinnar og lista-
manna um rekstur Kjarvalsstaða.
1 dag á samkvæmt föstum reglum að
leggja fundargerð frá föstudagsfundi
hússtjórnar Kjarvalsstaða fyrir borg-
arráð. Fundargeröin verður ekki opin-
bert plagg fyrr en að þvi loknu. . DS
Kjarvalsstaðir:
Ef ekki verður sam
ið bannar BÍL líka
„Bandalag íslenzkra listamanna lýsir
yfir eindregnum stuðningi við aðgerðir
FÍM og mun beita sér fyrir allsherjar
listbanni allra aðildarfélaga sinna á
Kjarvalsstaði ef samkomulag næst ekki
innan skamms tíma,” segir i ályktun
BlL. Ályktunin var einróma samþykkt
þann 4. nóvember. Aðilar að BÍL eru
myndlistarmenr.. rithöfundar, leikarar,
listdansarar, kvikmyndagerðarmenn,
tónlistarmenn, arkitektar og tónskáld.
Er þvi óhætt aðsegja að ef af banninu
verður leggist öll listræn starfsemi á
Kjarvalsstöðum niður. Ekki er skilgreint
nánar hvað við er átt með hinunt
skamma tíma en að sögn Stefáns Jóns-
sonar arkitekts er fremur hægt að telja
hann í vikum en mánuðum.
1 ályktuninni segir einnig að ef tillag-
an um að í hússtjórn Kjarvalsstaða verði
tveir listamenn með málfrelsi og tillögu-
rétt muni BlL ekki tilnefna mann þar til
setu. Bendir bandalagið á að þó lista-
menn eigi ekkert lengur í Kjarvalsstöð-
um gildi gjörólík lögmál um stjórnun
menningarmála og að ekki sé unnt að
reka menningarstofnun án virkrar og
ábyrgrar þátttöku listamanna í stjórn.
- DS
Vélarhlutum stolið úr bfl
Kl. 1.26 í nótt var lögreglunni til-
kynnt um að piltar væru að stela vélar-
hlutum úr Broncobifreið við Strýtusel.
Þegar lögreglan kom á staðinn voru þeir
á bak og burt, en hjólför I snjónunt
leiddu til þess að eigandi annarrar
Broncobifreiðar var handtekinn grun-
aður um verknaðinn. Höfðu verið teknir
einir tveir hlutar úr vél bifreiðarinnar.
GAJ
Kjallaragrein Jóns Haraldssonar:
Prentvillupúkinn á ferðinni
í kjallaragrein Jóns Haraldssonar
arkitekts á laugardaginn var sköðuðu
þrjár prentvillur eina málsgreinina
verulega. Þar sem talað er um skoðun
í greinni átti að standa sköpun og
sköpunarstörf. Rétt á málsgreinin að
hljóða sVo:
„Að sjálfsögðu þarf nú að vinna úr
þessum gögnum og sjálfstæðir arki-
tektar að taka til höndinni við sköpun
þessara bygginga. Ekki er sanngjarnt
að ætla átta manna hópnum sköp-
unarstörf. Þess getur jú ekki í saman-
lagðri kristni og rúmlega það að hópar
manna hafi frumskapað sjálfstæð
listaverk — hvað þá átta manna hópur
og höfuðlaus að auki.”