Dagblaðið - 07.11.1978, Síða 11

Dagblaðið - 07.11.1978, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978. 11 Dæmigerðar aðferðir félaga Mafiunnar. Þeir sem eru fyrir verða að víkja og oft á ófagran hátt. Mafiuforingi í Pellaro, sem er smábær á suðurodda Italiu, gegnt Sikiley. Hann er ákærður fyrir tékkafölsun og var spurður við yfirheyrslur af hverju sérstakt sjónvarpskerfi væri tengt við hús hans, þar sem fylgst væri með hverri hreyfingu utan dyra, skotheldar rúður væru í gluggum húss hans, vopnaður Alfa Romeo bíll stæði utan við hús hans og skothelt vesti hefði fundizt utan við hús hans. „Sjónvarpið er aðeins dyrabjalla með mynd,” svaraði Mafiuforinginn. „Bílinn á ég ekki, hann á læknir, sem er vinur minn er leggur bilnum utan við hús mitt og skothelda vestið tilheyrir mér ekki heldur. Frændi minn á það, en hann gleymdi því hér.” Þá sagði Barreca að rúðurnar væru ekki skotheldar, heldur óvenju þykkar. „Hann hvessir stundum hérna” bætti Mafiuforinginn við. Svona voru svör fjölmargra. Svörin sýna það að kapparnir óttast ekki fangelsisdóma, en hefnd Mafiunnar stendur huga þeirra nær. Réttarhöldin eru nú að hefjast, en áður hafa farið fram yfirheyrslur fyrir málflutning. Talið er að réttarhöldin muni standa í vikur eða jafnvel mánuði. 1 síðustu meiri háttar mafíuréttar- höldum, sem fram fóru á Sikiley árið 1976, voru aðeins 15 af 38 ákærðum dæmdir. Meðaldómur nam þá eins árs fangelsi. Fáeinum mánuðum seinna var aðal rannsóknaraðilinn í Mafíumálinu á Sikiley skotinn til bana. Jafnvel þótt réttarhöldin, sem nú eru að hefjast, beri meiri árangur og fleiri hljóti dóma, þá eru það fáir sem trúa þvi að náist til hinna raunverulegu guðfeðra. Þá er einnig trú manna að lítið komi í Ijós sem hægt verði að sanna i fjármála- spillingu og sukki kringum stáliðjuverið. I ofboði er kraf izt endur skoðunar vísitölunnar Heldri menn á húsgangi í stjórn- mála- og atvinnulífi þjóðarinnar stinga vart niður penna svo ekki sé undir- strikað með rauðu — eða svörtu — að flýta þurfi endurskoðun vísitölunnar fyrir 1. des. nk. Það liggur við að sá grunur læðist að lesendum að stúd- entahátíðin 1. des. sé i hættu ef endur- skoðun vísitölu verður ekki flýtt. Hvaða vísitala er það, sem mennirnir vilja endurskoða? Þær eru nefnilega nokkuð margar vísitölurnar i þjóð- félaginu okkar og allar hækkandi. Sennilega er átt við framfærsluvísitöl- una, sem kaupgjaldsvísitalan er tengd við. Auðséð er að skriffræðileg lækkun framfærsluvísitölu breytir ekki fram- færslukostnaði. Vitað er að stjórn- málamenn hafa farið óhreinum hönd- um um kaupgjaldsvísitöluna oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Það er því ekkert undarlegt þó að sá grunur læðist að launþegum að öll þessi ákefð í endurskoðun vísitölu stafi af löngun til að vinna bug á einhverj- um hluta verðbólgunnar með skerðingu kaupgjalds. Eða er einhver önnur visitala, sem átt er við? Er það kannski vísitala innflutningsverzl- unarinnar? E.t.v. er ég á villigötum, það er e.t.v. ætlunin að hefja undirbúning að nýjum búreikningum, er sýni hver Kjallarinn Guðjón B. Baldvinsson neyzla almennings er í dag, og þá von- andi á þeim grundvelli að könnun verði i hverjum landsfjórðungi, svo að ekki þurfi að kýta um hvar er lægsti eða hæsti framfærslukostnaðurinn. Vissulega er það sjálfsagt að undirbúa og hefja slíka könnun, sem hefði átt að vera búið fyrir nokkrum árum. En engum kemur i hug að því verki verði lokið fyrr en í fyrsta lagi 1. des. 1979 og er þá ráðandi mikil bjartsýni. Svo virðist sem þessi háttur á endur- skoðun visitölu bögglist ekki mjög fyrir brjósti þeirra, sumra hverra, sem leituðu atkvæða með það loforð á vörum að bæta kaupmátt launanna. Ég vil ekki andmæla því að vísitalan — mér er næst skapi að setja orðið í gæsalappir — verði endurskoðuð, ég veit vel að það getur ráðið miklu um afkomuhorfur atvinnuveganna hvernig kaupgjald stigur. En mig langar að heyra fleiri nótur slegnar i viðlaginu um hraðvaxandi verðbólgu. Það eru ekki allir sem lifa á vísitölu- tryggðum tekjum með sama hætti og launþegar. Hvaða visitölu á að endur- skoða hjá braskaralýðnum sem fyrr- verandi sjávarútvegsráðherra gat einu sinni um að væri til? Hvaða vísitölu endurskoðun eiga milliliðirnir að lúta? Hvaða endurskoðun á að fram- kvæma á útgerð og frystihúsarekstri til þess að tapreksturinn hverfi úr sög- unni? Á kannski að gefa fólkinu sem vinnur á fiskvinnslustöðvunum tæki- færi til að hafa hönd í bagga með rekstrinum? Væri það ekki eins góð leið og bónuskerfin? Hvenær eiga þjóðbankanir að verða í þjónustu fólksins? Guðjón B. Baldvinssun fulltrúi ff Hús- næðis- ff vandi brask- arans Ég var i mesta meinleysi að glugga í Dagblaðið um daginn þegar mig rak skyndilega i rogastans inni í miðju blaði. Þar stóð sem sé — rökstutt með óhrekjanlegum tölum — að það kost- aði þrjár milljónir tvö hundruð fimmt- iu og þrjú þúsund krónur að reka eina tíkarlega tveggja herbergja íbúð, tiu milljón króna virði, í eitt ár. En samúð min með vesalings fólk- inu, sem situr uppi með svona eign og neyðist jafnvel til að búa í henni lika, stóð ekki lengi. Auðvitað gat þetta ekki verið öll sagan. Þessi upphæð samsvarar nefnilega krónum 270 þúsund á mánuði, sem teljast miöl- ungs dagvinnulaun, þannig að ef þetta væri algengur húsnæðiskostnaður vegna tveggja herbergja íbúðar í blokk, þá liti Reykjavik öðruvisi út en hún gerir í dag. Þá væri hér nefnilega engin byggð önnur en moldarkofar og svo nokkur sæmileg hús í Laugar- ásnum og í nágrannasveitarfélögun- um. Venjulegt fólk hefði ekki efni á að búa i húsum. Dæmið i Dagblaðsgreininni, sem áður var getið, var um mann, sem sló sér 10 milljónir, keypti svona íbúð og Kjallarinn Finnur Birgisson Og nú skulum við skoða hvað gerist I þegar salan er tekin inn i dæmið. Við látum hann selja eftir eitt ár. Miðað er við 40% verðbólgu, og í stað fyrningar [ kemur gildisrýrnun fram við söluna, 5%. Annars eru allar tölur eins og í dagblaðsgrein Skúla Skúlasonar: Gjöld Tekjur Greiddir vestir 2.500.00(1 Fyrirfr. greidd leiga 900.000 Vaxtatekjur v. leigu 112.500 Fasteignagjöld 45.000 Iðgj. af brunatr. 8.000 Viðhaldskostnaður 200.000 * íbúðin seld 13.300.000 Upphaflegt lángreitt 10.000.000 Samtals 12.733.000 14.312.500 Mismunur — gróði 1.559.550 leigði hana fólki, sem liklega hefur verið í vandræðum, því það lét sig hafa það að snara út hárri ársleigunni fyrirfram. Eftir árið sat svo húseigand- inn uppi með sárt ennið og 2,2 milljón- ir í rekstrartap — eða hvað? Nei, auðvitað ekki. Hann er nefni- lega miklu hyggnari en svo. Hann var ekki aö hugsa um leigutekjur þegar hann fór út í það.skrýtna fyrirtæki ótilneyddur að kaupa sér íbúð fyrir eintómt lánsfé, án þess að þurfa á henni að halda fyrir sig og sína. Hann ætlaði sér aldrei annað en að selja hana við næstu hentugleika, vitandi að hún myndi hækka i verði vegna verðbólg- unnar. lbúðareigandinn, sem nú er komið í Ijós að fremur væri réttnefndur íbúða- braskari, hefur þvi grætt 1,56 millj- ónir á þessu vafstri sínu. Þar sem hann lagði ekki fram, skv. dæminu, nema ca 2 milljónir af eigin fé — til þess að borga hluta af vöxtunum — hefur hann ávaxtað fé sitt um 78% á árinu. Það er því óþarfi að vera að vor- kenna honum — hann sér um sig. Vonandi rennur þetta líka upp fyrir Dagblaðsgreinarhöfundinum, sem slysaðist til þess að gerast málsvari braskarans, greinilega sakir hrekk- leysis og misskilnings á fyrirætlunum hans. Finnur Birgisson arkitekt.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.