Dagblaðið - 17.11.1978, Page 4
■HAFAClassic'
Sænsku HAFA verksmiðjurnar sérhæfa sig eingöngu i smíði
baðinnréttinga og bjóða þess vegna eingöngu 1. flokks framleiðslu.
Hvergi fjölbreyttara úrval.
Kynnið yður verð og gæði HAFA baöskápanna.
Yfir 40 mismunandi einingar úr ASKI—TEKKI— og hvitlakkaðar til
afgreiðslu samdægurs.
VALD POULSEN HF.
SUÐURLANDSBRAUT10
SÍMI38520-31142
Utsölustaðir
Mftlníngarþjónustan Akranesi
Atlabúðin Akureyri
Bústoð Keílavik
Valberg ólafsfirði
Húsgagnav. Patreksfjarðar
Brinnes Vestmannaeyjum
JLhúsið Reykjavik
og flest kaupfélög um land allt.
Laus staða
Staða umdæmistæknifræðings fyrir Vestur-
land og Vestfirði, með aðsetur í Borgarnesi, er
laus til umsóknar, frá og með 1. febrúar nk.
Laun samkvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist forstjóra Fasteignamats
ríkisins Suðurlandsbraut 14, Reykjavík fyrir
10. des. nk.
Reykjavík 15.11 1978.
Fasteignamat ríkisins.
BILAPARTASALAN
Höfum úrval notadra varahluía íýmsar
tegundir bifreióa, tildæmis:
i Toyota Crown Fíat 128
Volvo Amazon Chevrolet Bel Air
Rambler American Saab 96.
Fíat 125
Einnig höfum vid úrval af kerruefni,
til dæmis undir vélsleda.
Sendum um alltland.
LAPARTASALAN
öatúni 10 — Simi 11397
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1978.
Sfld og aftur síld
Undanfarið hafa margir komið að
máli við Neytendasiðuna og beðið um
síldaruppskriftir. Við höfum reynt að
birta slíkar uppskriftir eftir beztu getu.
Hér koma tvær uppskriftir af síld úr
nýju Matreiðslubókinni eftir Sigrúnu
Davíðsdóttur. Við höfum góðfúslegt
leyfi höfundar til að birta uppskriftir
og annað úr bók þessari.
Þar segir m.a. í kaflanum Sild:
„Flestir sem kynnzt hafa síld eru
sammála um að hún sé herramanns-
matur, hvort heldur ný eða söltuð.
Þegar kemur fram á haustið er farið að
slá upp síldarkútana og matreiða salt-
síldina frá sumrinu. íslenzk saltsíld
þykir einh/er hin bezta sem til er og
þar erum við heppin. Síld er ekki mjög
algeng á borðum hér, en engin ástæða
er til að hika við að fá sér sííd og leggja
í lög, því að þannig fáið þið ódýran,
drjúgan og einkar Ijúffengan mat.
Soðin, ný síld
Ef þið náið í glænýja síld, skulið þið
ekki tvinóna við að matreiða hana í
hvelli, t.d. samkvæmt eftirfarandi upp-
skrift:
4 síldar
3dlvatn
1/2 dl edik
1 laukur
2 lárviðarlauf
1 tsk. salt
nýmalaður pipar.
1. Setjið ofninn á 200°
2. Flakið sildarnar og stráið piparn-
um á flökin. Leggið flökin saman tvö
og tvö með laukhringjum á milli. Ef
ykkur finnst nauðsyn á, getið þið fest
þau saman með tannstönglum eða
öðrum pinnum. Setjið síldina í djúpt
smurt fat, pönnu eða bakka sem þolir
að verasetturiofn.
3. Sjóðið vatnið á'samt edikinu, af-
ganginum af lauknum, lárviðarlaufi
og salti í 10—15 min. og hellið siðan
yfirsíldina.
4. Setjið síldina í ofninn og sjóðið hana
í 8—10 mín. Gætið þess að hún of-
soðni ekki, því að þá verður hún mun
síðri. Berið fram með soðnum kartöfl-
um og bræddu smjöri.”
1 „Matreiðslubókinni” er einnig
uppskrift af saltsíld í edikslegi. Segir að
eftirfarandi uppskrift sé sænsk, enda
Svíar mikil síldarþjóð og þykir sild
ómissandi á hátíða- og jólaborð i Sví-
þjóð.
„Edikið er bezt að blanda úr
ókryddaðri edikssýru eða nota venju-
legt borðedik. Síldin er bezt þegar hún
hefur fengið að standa í leginum í 1 —
2 sólarhringa. Gott er að bera hana
fram með rúgbrauði eða sýrðum
rjóma og eplurn eða soðnunt kartöfl-
uni.
þær. Látið það ekkert á ykkur fá þótt
flökin verði ekki öll jafnfalleg í fyrstu.
Það kemur með æfingunni.
2. Leggið nú flökin í dauft, kalt te-
vatn í 1/2—1 sólarhring til afvötnun-
ar.
3. Sjóðið saman vatnið, edikið og
sykurinn og látið kólna.
4. Blandið kryddinu saman og gróf-
steytið það. Skerið nú flökin í bita og
laukinn í þunnar sneiðar. Raðið flök-
unum i skál eða annað heppilegt ilát
ög dreifið laukhringjunum og krydd-
inu jafnt inn á milli þeirra. Hellið köld-
um leginum yfir að síðustu og látið í
kæliskáp.”
Verð á réttunum
Soðin ný sild: í kringum 435 kr. eða
rúmlega 100 kr. á mann, því uppskrift-
inerhandafjórum.
Saltsíldarflök kosta 550 kr. kg (í Sæ-
björgu) og má sennilega reikna með að
5 saltsíldar jafngildi um það bil 1/2 kg
af saltsíld, eða unt 275 kr. Edikið,
sykurinn og kryddið getum við áætlað
að kosti í kringum 50 kr„ þannig að
þessi uppskrift getur farið upp í 325 kr.
- A.Bj.
5 saltsildar
3 laukar
3 dl edik
2dl vatn
lOOgsykur
4 lárviðarlauf
1 msk. heil piparkorn
I tsk. heil sinnepskorn.
1. Flakið síldarnar og roðflettið
r----------1
Uppskrift
dagsins
^ 4
Sfldarverðið í
fiskbúðunum:
Alls
staðar
valin
sfld
Lesandi hringdi og sagðist ekki hafa
getað fundið jafn ódýra síld og við
sögðum frá að fengist í fiskverzlunum
höfuðborgarinnar. Við höfðum okkar
verð frá fisksalanum í fiskbúðinni á
Víðimel, en þar kostar kg I heilli, nýrri
síld 350 kr. Þar kosta flökin 700 kr. kg.
i fiskbúð Hafliða kostar ný, heil sild
400 kr„ en hins vegar er hún flökuð ef
viðskiptavinurinn vill fyrir sama verð.
1 fiskbúðinni Starmýri 2 kostar síldin
einnig 400 kr. kg og þar er hún einnig
flökuð fritt fyrir viðskiptavinina.
Svipuð síld er alls staðar á boðstólum,
er hún valin og fara um 3—4 stk. i kg.
Þessi síld er yfir 33 cm á lengd.
A.Bj.
neytenda
V
Síldin er kölluð silfur hafsins. Notfærið ykkur að geta fengið ferska og vel valda
síld í verzlunum. Sums staðar er hún fiökuð fyrir ykkur á meðan beðið er eftir
henni.
-