Dagblaðið - 17.11.1978, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1978.
7
Alit starfsháttanefndar:
„Leikmanna-
starf verði ef It
í kirkjunni”
— segir sr. Jónas Gíslason, dósent og vísar á bug
gagnrýni á prestaveldi kirkjunnar
Starfsháttanefnd
„Við gerum okkur vonir um, aö Alþingi taki málin til rækilegrar athugunar og tillögur okkar verði samþykktar,” segir
sr. Jönas Gislason dósent.
DB-mynd Ragnar Th.
„Ég lýsi furðu minni að sjá þetta á
prenti eftir þær umræður sem við höfum
átt og öllum þessum spurningum hefur
verið svarað fyrir löngu," sagði sr. Jónas
Gislason dósent er DB hafði samband
við hann og bað hann m.a. að segja álit
sitt á gagnrýni Hermanns Þoríteins-
sonar kirkjuþingsmanns á prestaveldinu
i kirkjunni og á að álit starfshátta-
nefndar þjóðkirkjunnar hafi ekki verið
kynnt nægilega fyrir leikmönnum og
þeir ekki verið hafðir með i ráðum við
gerð álitsins. En aðalmál kirkjuþings
núna var einmitt að fjalla um álit starfs-
háttanefndar.
Starfsháttanefnd var skipuð á
þjóðhátiðarárinu 1974 af biskupi og eru
í henni fimm prestar þjóðkirkjunnar.
Hún hefur fjallað um flest svið og þætti
kirkjulegs starfs og kirkjulegrar skipunar
í landinu. Sr. Jónas Gíslason er einn
þessara presta og kynnti hann álitið, sern
er bók upp á 135 bls„ fyrir kirkjuþings-
mönnum.
Aukið sjálfstæði
kirkjunnar
DB spurði sr. Jónas hvaða
breytingum álitið gerði ráð fyrir. Hann
sagði að breytingin væri einkurn fólgin í
eftirfarandi.
1. Kirkjan fái aukið sjálfstæði gagnvart
ríkinu og hún fái fullt frjálsræði um á-
kvörðun og skipulag innri mála sinna og
ytri mála einnig, að svo miklu leyti sem
þaðsamrýmist sambandi ríkis og kirkju.
2. Fjárhagslegt sjálfstæði kirkjunnar
verðiaukið.
3. Kirkjan taki upp virkari starfseiningu
til að reyna að efla samstarf og auka
hreyfanleika kirkjulegra embætta.
4. Leikmannastarf verði eflt og leik-
mönnurn gefin aukin aðild að stjórn
kirkjunnar.
Álit starfsháttanefndarinnar var lagt
fram sem átta mál á kirkjuþinginu og
voru fimm þeirra samþykkt samhljóða
með smávægilegum breytingum en
þremur frestað til nánari athugunar
enda ekki fullmótuð frá hendi nefndar-
manna heldur hafði hún óskað eftir
nánari tillögum um þau.
Sr. Jónas sagði að m.a. hefði verið
samþykkt að miða réttindi og skyldur
sóknarfólks við 17 ára aldur og væru
kirkjuþingsmenn þar á undan alþingis-
mönnum. Þá væri það merkt nýmæli að
gert væri ráð fyrir að biskupar yrðu þrír.
Reykjavikurbiskupsdæmi næði yfir
Reykjavík, Kjalarnes, Vesturland og
Vestfirði. Skálholtsbiskupsdæmi næði
yfir Suðurland og Austurland og Hóla-
biskupsdæmi yfir Norðurland. Gert er
ráð fyrir, að Reykjavikurbiskup verði
yfirbiskup, a.m.k. fyrst um sinn. en hinir
verði með ákveðin verk hvor í sinu stifti.
Þátttaka leik-
manna í biskupskjöri
— En hvað um þátttöku leikmanna í
biskupskjöri?
„Jú. Gert er ráð fyrir að fulltrúar
leikmanna taki þátt i biskupskjöri en
benda má á að leikmenn hafa slíkan rétt
bæði í Noregi og Sviþjóð. Varðandi þá
gagnrýni Hermanns Þorsteinssonar að
ekki væri kveðið á um með hverjum
hætti leikmenn kæniu inn í myndina
sagði sr. Jónas: „Við settum ramma-
reglur og ætlumst til að þær séu fylltar
af öðrum, einmitt til þess að menn fari
ekki að deiia um smáatriðin.Við teljum
að ákvarðanirnar eigi ekki að koma að
ofan. Ástæðan til þess að nokkrum
málanna var frestað á þinginu var ein-
mitt sú, að við höfðum ekki alltaf sett
fram fullkomnar tillögur heldur höfðum
við ætlazt til að heimamenn mundu fylla
þar út í.”
Rækilega kynnt-
ar tillögur
— En hvað um það gagnrýni Hermanns
að lillögurnar hafi ekki verið nægilega
kynntar leikmönnum?
„Tillögurnar hafa verið rækilega
kynntar um allt land og yfirleitt fengið
mjög jákvæðar undirtektir. Nefndar-
menn hafa mætt á nær öllum héraðs-
fundum til að ræða innihald tillagnanna.
Það er ekki við okkur að sakast ef
leikmenn hafa ekki kynnt sér þetta. Á
kirkjuþingi 1976 var borin upp tillaga
frá sr. Jóni Einarssyni, mér og
Hermanni Þorsteinssyni um að kosin
yrði nefnd leikmanna til að kynna sér
álitið. Það sýndi að við óskuðum eftir
samstarfi við leikmenn. Nefndin kom
aldrei saman en það er ekki við okkur að
sakast þótt ekkert yrði úr þvi.”
Synodusnefnd
Varðandi það atriði að prestar hefðu
eingöngu skipað starfsháttanefndina
sagði sr. Jónas: „Þetta var synodus-
nefnd, þ.e. nefnd prestastefnunnar. Það
voru prestarnir sem höfðu áhuga á að
koma með endurskoðun á starfsháttum.
Hvaða leikmenn getur kirkjan líka
kallað á til svo tímafreks starfs sem þetta
nefndarstarf var? Ég lit svo á að það
skipti meira máli hvað nefndin leggur til
heldur en hverjir skipi hana."
En nú er kirkjuþing aðeins ráðgefandi
stofnun. Hvaða líkur eru til að Alþingi
fallist á þessar tillögur?
„Við höfum reynt að kynna alþingis-
mönnum þetta álit og hafa þeir allir
fengið eintak af því. Einnig hefur
kirkjuráði verið falið að skipa nefnd til
viðræðna við pólitisku flokkana um
málefni kirkjunnar. Við gerum okkur
vonir um að Alþingi taki málin til
rækilegrar athugunar og að tillögur
okkarverðisamþykktar.” -GAJ-
Tónleikar Gunnars Þórðarsonar verða endurteknir í Háskólabiói 19. nóv. nk. kl. 23.45.
SKEMMTUN FYRIR ALLA
UNNENDUR GÓÐRAR TÓNLISTAR
Vegna gífurlegrar eftirspurnar hefur verið ákveðið að halda aukatónleika með Gunnari
Þórðarsyni og hljómsveit íHáskólabíói 19. nóv. n.k. kl. 23.45.
Á tónleikunum koma fram m.a. hljómsveit undirstjóm: Páls P. Pálssonar, söngvararnir
Björgvin Halldórsson, Helgi Pétursson, Ágúst Atlason, Ellen Kristjánsdóttir og Ragnheiður
Gísladóttir.
Gestur kvöldsins er: Sigfús Halldórsson.
Leikin verða vinsæl lög eftir Gunnar auk þess sem kynnt verða ný lög af væntanlegri
hljómplötu hans.
Miðasala er á eftirtöldum stöðum:
Hljómdeildum Kamabæjar íGlæsibæ, Laugavegi 66 og Austurstræti 22, Verzluninni
Fataval íKeflavík, Skffunni Laugavegi 33 og Hafnarfirði og á morgun f Háskólabíói
Ýmir/Steinar