Dagblaðið - 17.11.1978, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1978.
Liza Mindli, leik- og söngkonan fræga, var I Kaupmannahöfn i fyrradag og vakti
koma hennar að sjálfsögðu mikla athygli. Hún skemmti i konsertsalnum i Tivoli
þá um kvöldið. Á blaðamannafundi i Kaupmannahöfn sagði hún allar sögur um
trúlofun þeirra leikarans John Travolta tóman uppspuna, aftur á móti dansaði
maðurinn með afbrigðum vel.
-------------------NÝJUNGIn
TÖKUM AÐ OKKUR AÐ VÍKKA
LEGGI (KÁLFA) Á UPPHÁUM
SKÓM OG STÍGVÉLUM.
EINNIG RISTAR. PÓSTSENDUM.
Skóvinnustofa Hafþórs
Garðastræti 13a sfmi 27403
NÝJU mjóu hœlarnireru komnir og
tilbúnir undir skóna yðar.
Verið viðbúin hálkunni, gúmmigpdda-
| hœlplöturnarfyririiggjandu
Víkkum kuldaskóna um legginn á mjög
skömmum tíma.
STYRKUR
TIL HÁSKÓLANÁMS í SVÍÞJÓÐ
Sænsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram í löndum sem
aðild eiga að Evrópuráðinu tíu styrki til háskólanáms í Svíþjóð há-
skólaárið 1979—80. — Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver þessara
styrkja muni koma í hlut Íslendinga. — Styrkir þessir eru eingöngu
ætlaðir til framhaldsnáms við háskóla. Styrkfjárhæðin er 1.950,
sænskar krónur á mánuði í níu mánuði en til greina kemur i einstaka
tilvikum að styrkur verði veittur til allt að þriggja ára.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi áður en styrktimabil
hefst.
Umsóknir um styrki þessa skulu sendar til:
Svenska Institutet, P.O. Box 7434
S — 103 91 Stockholm, Sverige
fyrir 28. febrúar 1979.
Menntamálaráöuneytið.
Útsala
Vegna flutnings verksmiöjunnar seljum
við eldri lager á mjög hagstœðu verði.
Opið til kl. 10 í kvöld og til kl. 12 á há-
degi laugardag.
/VA AC A 5 I N
Tunguhálsi 9, Árbæjarhverfi.
Sími 86140.
Kúba:
Erkjamorka
komin á Kúbu?
— Bandaríkin hef ja aftur eftirlitsf lug yf ir eyjuna
Bandaríkin hafa hafið aftur eftirlits-
,flug yfir Kúbu með SR-71 þotum, að
því er tilkynnt var í Washington í gær-
kvöldi. Er þetta að sögn gert til að
kanna hvort MlG-23 þotur, sem
Kúbumönnum voru nýlega afhentar
frá Sovétrikjunum geti borió kjam-
orkuvopn.
Ef svo reynist ris sú spurning hvort
Sovétrikin hafi brotið samkomulagið
frá því 1962. Það fjallaði um allan
brottflutning kjamorkuvopna frá
Kúbu. Var það eftir miklar deilur og
tilraunir Sovétríkjanna til að flytja
þangað eldflaugar en Bandarikin
höfðu áður sett hafnbann á eyjuna. Er
jafnvel talið að sjaldan hafi legið nær
styrjöld milli Sovétríkjanna og Banda-
ríkjanna en þá.
MIG-23 þoturnar voru fluttar til
Kúbu siðastliðið sumar en Kúbumenn
eru nýlega byrjaðir að setja þær sam-
an.
Ródesía:
Frestað að kjósa
um svört vö/d
Tilkynnt hefur verið í Ródesiu að
kosningum um hvort veita eigi svörtum
íbúunt landsins fullt pólitískt frelsi hafi
verið frestað þar til 20. apríl á næsta ári.
Segir i tilkynningunni aðekki hal'i verið
unnt að koma á slíkum kosningum fyrir
lok þessa árs eins og ráðgert hafi verið.
Fkki hafi verið nægur timi til að skipu-
leggja þær.
Haft er eftir Muzorewa biskupi, ein-
um þriggja svartra ráðherra i bráða-
birgðastjóm lans Smith forsætisráð-
herra Ródesíu, að svartir yrðu fyrir
miklum vonbrigðum vegna jjessarar
frestunar en hann bjóst ekki við veruleg-
um vandræðunt vegna hennar.
Leiðtogar svartra þjóðernissinna. sem
berjast gegn stjórn lans Smith úr útlegð í
nágrannaríkjum Ródesiu, hafa ekki
fallizt á þessar kosningar. Vesturveldin
hafa heldur ekki talið þetta vera réttu
leiðina til að koma á völdum svartra í
landinu.
Danir hafa ákveðið að banna alla þorskveiði skipa sinna I Eystrasalti frá og með 18. nóvember. Þetta er auðvitað alvarlegt mál
I heild sinni en bannið er sett á til fiskverndar. Danir sjá auk þess fram á að þeir fái ekki nýjan þorsk til að borða á nýársdag
en slikt er þar þjóðarsiður.
London:
Ungfrú 4 rgentína
vard Mks Worid
Ungfrú Argentina, Silvana Suarez,
var kjörinn Miss World i London i
gærkvöldi. Að venju brast fegurðar-
drottningin í grát er úrslitin voru
tilkynnt. Ungfrúin er nemandi í
heimalandi sínu og er brúneygð og
brúnhærð. Sagðist hún ekki hafa átt
von á þvi aö vinna í keppninni enda
voru veðmál í London henni mjög
óhagstæð 25 gegn I. Hin nýkjörna
Miss World stundar nám i húsa-
gerðarlist og að sögn talar hún fjögur
tungumál.
Önnur i röðinni varð ungfrú
Svíþjóð, hin tuttugu og eins árs gamla
Ossie Margareta Carlsson. 1 þriðja
sæti var ungfrú Ástralía Denis
Coward. í fjórða sæti kom stúlkan frá
Mexico og í fimmta sæti var sú
spánska.
Litið var um mótmælaaðgerðir
samhliða keppninni, en fulltrúum
Suður-Afriku var ekki heimiluð þátt-
taka. Er það talið hafa komið í veg
fyrir mótmælaaðgerðir gegn kynþátta-
misrétti. Kvenréttindakonur létu
heldur ekki á sér bera en þær hafa likt
fegurðarsamkeppnum, sem jafngildi
nautgripamarkaða.
Ungfrú Suarez er 1,70 cm á hæð,
önnur mál eru 92—61—92 cm.
Verðlaun hennar eru jafngildi þriggja
og hálfrar milljóna íslenzkra króna.
Næsta ár mun hún ferðast um
heiminn á vegum stjómenda
keppninnar en ætlar eftir mætti að
reyna að skoða söfn þar sem hún fer
um.