Dagblaðið - 17.11.1978, Page 10
10
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1978.
MSBIAÐIÐ
fijálst, aháð dágblað
Útgaffandfc Dagbiaflifl hf
Framkvdtndasljóri: Sveinn R. EyjóHsson. RKstjóri: Jónas Kristjánsson.
Fréttestjóri: Jón Birgir Pétursson. RitstjómarfuNtrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjómar J6-
hannes ReykdaJ. iþióttir Hallur Simonarson. Aöstoðarfréttastjórar Atfi Steinarsson og Ómar Valdi-
marsson. Menningarmál: AÖabteinn Ingóffsson. Handrit Ásgrimur Pálsson.
Biaöamenn: Anna Bjamason, Ásgoir Tómasson, Bragi Sigurösson, Dóra Stefónsdóttir, ENn Atoerts
dóttir, Gissur Sigurðsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jónas Haraidsson,
Ólafur Geársson, Ólafur Jónsson. Hönnun: Guöjón H. Pálsson.
Ljósmyncfir Ari Kristinsson, Ámi Páil Jóhannsson, Bjamleifur Bjamleifsson, Höröur Vilhjálmsson,
Ragnar Th. Sigurösson, Sveinn Þormóðsson. -*
Skrífstofustjóri: Óiafur Eyjótfsson. Gjaldkeri: Práinn Þorieifsson. Sökistjóri: Ingvar Sveinsson. Drerfing-
arstjóri: Már E.M. Haiidórsson.
Ritstjóm Stöumúia 12. Afgreiösla, áskriftadeild, augiýsingar og qkrifstofur Þvorhohi 11.
Áöalsimi blaösins er 27022 (10 Ifnur). Áskrift 2400 kr. á mánuði inqanlands. I lai^asölu 120 kr. eintakið.
Setning og umbrot Dagblaðiö hf. Siðumúla 12. Mynda- og plötugerö: Hflmir hf. Siðumúia 12. Prentun:
Árvakur hf. Skeifunni 10.
Fómir, til hvers?
Allir vita, að enn ein holskeflan vofir
yfir efnahag þjóðarinnar, verði ekki
gerðar róttækar ráðstafanir á næstu vik-
um. Nú stefnir í kauphækkun, sem sam-
kvæmt samningum ætti að verða fjórtán
prósent, og síðan hallarekstur útflutn-
ingsatvinnuvega og mikla gengisfellingu. Að óbreyttu
kæmi þá hver kollsteypan af annarri.
Hið kaldhæðnislega er, að vinstri stjórnin, sem að
meirihluta er skipuð mönnum, sem börðust hart gegn
kaupránslögum fyrri ríkisstjórnar, er enn á kafi í sama
feninu og fyrri stjórn. Vinstri stjórnin hefur ekki hafið
nauðsynlegan uppskurð á efnahagslífinu. Þvert á móti
lætur hún reka á reiðanum og er sundruð í öllum aðal-
málum. Fyrir þær sakir horfir hún enn á skammtíma-
lausnir, sem byggjast helzt á nýju kaupráni.
„Efnahagslífið þolir ekki þessa gusu,” sagði einn for-
ystumaður verkalýðshreyfingarinnar, alþýðubandalags-
maður, í viðtali við Dagblaðið í gær og átti við kaup-
hækkanirnar. Verkalýðsforingjar Alþýðubandalags og
Alþýðuflokks eru nú reiðubúnir að gefa eitthvað eftir af
kauphækkunum, ef þeir þykjast geta treyst því, að ríkis-
stjórnin stefni að raunverulegum uppskurði og lækningu
verðbólgumeinsins. Afstaða þeirra er önnur en var til
stjórnar Geirs Hallgrímssonar, af því að þeir binda ein-
hverjar vonir við aðgerðir núverandi stjórnar í framtíð-
inni.
Kauprán er kauprán, hvort sem hægri eða vinstri
stjórn gengst fyrir þvi. Ríkisstjórn á ekki að ganga á
gerða kjarasamninga. Krefjast verður, að ríkisstjórn,
hver sem hún er, hafi annað til lausnar efnahagsvanda
að leggja en skammtímalausnir, sem byggjast á niður-
skurði launa.
Það er rétt hjá fjármálaráðherra, að í raun og veru
ríkir neyðarástand í efnahagsmálum. Niðurskurður
kauphækkana í desember er engin lausn á efnahagsvand-
anum. Verkalýðshreyfingin verður á hinn bóginn að
íhuga, hvort núverandi ríkisstjórn getur lagt fram ítar-
legar áætlanir um endurreisn efnahagslífsins, sem verði
grundvöllur bættra lífskjara og styrkari kaupmáttar.
Megi treysta því, ætti að vera sjálfsagt, að launþegar eins
og aðrir leggi nokkuð af mörkum. Þeirra er hagurinn,
þegar til lengdar lætur.
Vinstri stjórnin hefur ekki sýnt, að af henni megi
vænta þess, sem til þarf til lausnar efnahagsvandans.
Hún er illa þríklofin í afstöðu til allra meginmála. Til
lítils yrði fyrir launþega að fórna kaupi, ef ríkisstjórnin
keyrir verðbólguna áfram með hallarekstri og auknum
ríkisumsvifum, hleypir í gegn stórhækkunum á opinberri
þjónustu og landbúnaðarvörum. Slíkur var sá leikur,
sem ríkisstjórn Geirs Hallgrimssonar lék. Launþegar áttu
stöðugt að fórna en aðrir ekki. Samtryggingarkerfið
blómgaðist með aukningu ríkisbáknsins. Gæðingum var
hyglað og stofnað til hallarekstrar og skuldasöfnunar.
Stjórn af því tagi getur enga kröfu gert til launþega.
Reynslan af nýju stjórninni er til þessa slæm. Hún
hefur ekki horfið frá villu fyrirrennara síns í neinu, sem
máli skiptir.
Ríkisstjórnin þarf að kúvenda, eigi að taka hana alvar-
lega.
Þessi mál munu skýrast fljótlega. Hafi rikisstjórnin í
reynd ekkert fram að færa nema skammtímalausnir, sem
byggjast á kaupráni, ber henni að fara frá.
.....
/“ 1 1
Sovéska
ógnunin er
áróðursblekk-
ing úr vestrinu
— segir ítalskur hershöfðingi og fyrrverandi yfirmaður kjarnorkubirgða
Atlantshafsbandalagsins í Evrópu
Eftirfarandi viðtal birtist i tíma-
ritinu New Times fyrir nokkru. Sá sem
við er rætt er ítalskur hershöfðingi,
Nimo Pasti að nafni, sem starfað
hefur í her lands síns undir stjórn
Mussolinis, síðan i breskum
herdeildum á milli 1941 — 1944. Eftir
siðari heimsstyrjöldina varð hann yfir-
maður í italska hernum og fulltrúi
hans hjá Atlantshafsbandalaginu.
Hann var yfirmaður kjamorkubirgða
bandalagsins árið 1966—1968 en er
nú meðlimur öldungadeildar ítalska
þingsins.
Sem öldungardeildarþingmaður
talið þér fyrir afvopnun, en það hafið
þér vafalaust ekki alltaf gcrt?
Ég tel mig vera mjög einkennilega
manngerð, af hershöfðingja að vera. Á
meðan ég starfaði í ítalska hernum og í
NATO hef ég alltaf viljað láta vestur
og austur kynnast betur. Nákvæmar
rannsóknir mínar á hernaðarskjölum
hafa sannfært mig um það, að
vestrænn áróður er algerlaga rangur,
þegar hann gerir sovéska herinn að
árásarher. Þessar rannsóknir hafa fært
mér heim sanninn um það, að her
ykkar er í raun og sannleika aðeins
ætlaður til varnar. Hershöfðingjar,
sem útbreiða af mikilli mælsku sinni
áróður um „sovéska ógnun”, eru að
leika óheiðarlegt tafl.
Meðan ég starfaði hjá NATO
komst ég að þeirri niðurstöðu, að í
Evrópu væri of mikið af
kjarnorkuvopnum, og ég gerði skýrslu,
þar sem ég gerði rökstudda grein fyrir
þessu sjónarmiði mínu og lagði hana
fram. ítalskir samstarfsmenn mínir
brugðust stuðningi við þessa skýrslu
og Bandaríkjamenn hlustuðu ekki
einu sinni á röksemdir mínar. Enda
þótt ég gæti ekki komið þeim á-
setningi mínum í framkvæmd að
fækka kjarnorkusprengjum í Evrópu,
þá varð mér þá það ágengt að hindra
aðra hernaðarsinna í að tvöfalda tölu
þeirra, eins og þeir þó vildu gera.
Talsmenn vígbúnaðar segja, að
vopn séu ekki framleidd til að verða
notuð, heldur aðeins til að hafa meiri
vopn, af þvi að því meiri vopn sem við
höfum, því óliklegra sé að á okkur
verði ráðist.
Þetta eru gerviröksemdir. Við
seljum vopn til þróunarlandanna til að
heyja svæðisbundin stríð, en þessar
svæðisbundnu landamæraerjur geta.
Italski herinn hefur ekki fengið orö fyrir miklka orustuhreysti á síðari árum en
hins vegar kom aðstoð liðsmanna hans sér vel er einangra þurfti stóran hluta
bæjarins Seveso vegna eiturgufa, sem komust frá efnaverksmiðju út i andrúms-
loftið.