Dagblaðið - 17.11.1978, Blaðsíða 24
Flugslysið á Colombo-f lugvelli:
DAGFMNUR KOM FRÉTT
UM SLYSB TIL EVRÓPU
þegar símasamband við Sri Lanka var útilokað
Þaö var Dagfinnur Stefánsson, flug-
stjóri, sem kom fréttum af flugslysinu
á Sri Lanka til Evrópu. Margir hafa
furöað sig á þeim seinagangi sem var á
fréttum af siysinu. Flugleiðum bárust
fréttir af því fjórum tímum eftir að
það varð og fréttastofur tóku ekki að
senda fréttir af þvi út um heim fyrr en
um 7 klst. eftir slysið.
Dagfinnur var á flugvellinum i
Colombo er slysið varð skammt frá
enda brautarinnar. Átti Dagfinnur að
taka viö vélinni og fljúga henni til
Surbayu. Simasambandslaust var frá
Sri Lanka vegna veðursins. En Dag-
finnur dó ekki ráðalaus. Hann fékk
aðstoð í flugvél sem stóð á flug-
vellinum og tókst að komast i
radíósamband við flugvöll I Sviss og
koma fréttunum áfram til Luxemborg
og islands.
Fréttamenn DB í Luxemborg, sem
er miðstöð Flugleiða i Evrópu, segja
að flugstjóri vélarinnar sem fórst hafi
áður en slysið varð kvartað yfir erfið-
leikum við stjórn vélarinnar vegna
óveðursins sem geisaði. Hann mun
hafa nefnt niðurstreymið og var að
reyna að ná vélinni upp á við er stél
hennar rakst í tré og vélin missti
jafnvægið.
Reyndir flugmenn segja að iðulega
hafi það komið fyrir á flugvellinum i
Colombo aö upp hafi verið gefnar
rangar hæðarmælingar og stefna sem
gefin hafi verið inn til aðflugs hafi
reynzt of lág. Á það má lika benda að
BBC skýrði frá þvi i fréttum að flug-
eftirlitsmenn hafi nýlega verið búnir
að kvarta yfir aðstæðum á vellinum í
Colombo.
Fjórir af fimm Íslendingum sem
lifðu slysið af eru I sjúkrahúsi. Af þeim
er Oddný Björgólfsdóttir mest slösuð
og er hún enn talin í lífshættu að sögn
þeirra í Luxemborg. Haraldur flug-
stjóri er skaddaður á baki og getur vart
hreyft sig, en mun þó ekki vera
lamaður. Um liðan hinna var ekki
vitað.
Lik þeirra sem fórust verða flutt
heimleiðis i dag og fara um ótal flug-
hafnir áður en endastað er náð.
Tilboði Cargolux um leigu á farþega-
þotu til flutninganna mun hafa verið
hafnað. Sú farþegavél Cargolux
stendur nú ónotuð á flugvellinum i
Luxemborg.
-ASL
Eldurí
bifreiða-
verkstæði
ínótt
— litlar skemmdir
Eldur kom upp á bifreiðaverkstæðinu
við Miklatorg í nótt. Slökkviliðinu var
tilkynnt um eldinn um kl. 0.55 og gekk
greiðlega að slökkva eldinn, sem var ekki
mikill að sögn slökkviliðsins. Hafði
tekizt að ráða niðurlögum eldsins um
kl. 1.30 og urðu skemmdir ekki miklar. 1
þessu sama húsi er einnig húsgagna-
vinnustofa og urðu einhverjar skemmdir
þar af völdum reyks. Eldsupptök eru
ókunn.
-GAJ-
1»
Eins og sjá má á myndinni eru reykingar
bannaðar á verkstæðinu en það hefur þó
ekki nægt til að koma 1 veg fyrir að eldur
kæmi upp þarna. F.ldsupptök eru ókunn.
-DB-mynd Sveinn Þorm.
HfiCisr
SVARTAMARKAÐSBRENNIVIN
JT" 1/1/AQ — starfsmannasamtök um að hætta vínkaupum
LFW IVIVMIl hjá einkasölu ríkisins
Áfengissala hefur minnkað talsvert
eftir siðustu hækkun á þeirri vöru hjá
einkasölu ríkisins. Ein flaska af
brennivini kostaði eftir þá hækkun kr.
6.200 i Rikinu.
Á svörtum markaði á borgarsvæðinu
fór hún þá upp i kr. 12.000. Varð þannig
á svörtum markaði hlutfallslega örlitlu
meiri hækkun en hjá einkasölunni.
Nú hefur brenniviniö aftur lækkað
nokkuð á svarta markaðnum en mis-
munandi mikið og þykir flestum sopinn
dýr. Þykir þetta ótviræð bending um að
eftirspurn eftir brennivini hafi minnkað-
almennt og svartamarkaðssalar hegðað
sér eftir þvi. Engin lögmál um framboð
og eftirspurn hafa áhrif á einkasölu
rikisins. DB hefur frétt af samtökum
starfsmanna á einstaka vinnustað um að
fresta öllum áfengiskaupum um sinn,
vegna verðlagsins.
-B.S.
UPPSELT
HJÁ GUNNARI
—en þó gert ráð fyrir 1500 þúsund
krónatapi
Vegna mikillar aðsóknar að hljóm-
leikum Gunnars Þórðarsonar á sunnu-
dagskvöldið hefur verið ákveðið að
efna til aukatónleika sama kvöld. —
Alls voru seldir tæplega átta hundruð
miðar á þá fyrri og munu þeir nú allir
vera búnir. Samkvæmt kostnaðaráætl-
un er þá fimmtán hundruð þúsund
króna tapá hljómleikunum.
Gunnar Þórðarson hefur að undan-
förnu æft myrkranna á milli fyrir
þennan tónlistarviðburð. í hljómsveit-
inni sem fram kemur með honum eru
tæplega þrjátíu manns. Þar af voru
átján manns fengnir að láni hjá Sin-
fóníuhljómsveit lslands. Stjórn annast
Páll P. Pálsson hljómsveitarstjóri.
Á hljómleikunum verða flutt lög og
Gunnar Þóróarson á sfingu með félögum úr Sinfóniuhljómsveit íslands. Ágóðinn
af fyrri hljómleikum hans á sunnudagskvöldið verður minus fimmtán hundruð
þúsund krónur. DB-mynd Ragnar Th. Sigurðsson
tónverk eftir Gunnar. Ný tvöföld
plata með lögum hans kemur út á
mánudaginn og verða kynnt nokkur
lögaf henni.
Fyrri hljómleikar Gunnars og
félaga hefjast klukkan átta þrjátiu á
sunnudagskvöldið og hinir siðari
klukkan 23.45.
írjálst, óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 17. NÓV. 1978.
Víða slæm færð
ímorgun:
TafiríÁrbæ
og Breiðholti
i nótt og i morgun gekk á með skaf-
renningi og dimmviðri og lokuðust
nokkrar götur i borginni og vegir um
landið. Samkvæmt upplýsingum sem
DB fékk hjá Vélamiðstöð Reykja-
víkurborgar er að mestu fært um
borgina, þó tafir séu á umferð í Árbæ
og Breiðholli. Einstaka götur i öðrum
hvcrfum eru þó þungfærar.
Vegagerð ríkisins hafði
takmarkaðar upplýsingar fengið í
morgun er haft var samband við hana.
Þá var Hellisheiði fær og Þrengslin
einnig en báðar leiðir seinfarnar. Búið
var að mestu að ryðja vegi í Mosfells-
sveil og Kollafirði og fært var fyrir
Hvalfjörð. Seinfært var í Hafnarfjörð
og illfært suður með sjó.
-DS.
Iðulaus
stórhríð á
Hellisheiði
Iðulaus stórhrið var á Hellisheiði i
morgun og skyggni nánast ekkert. Að
sögn Árbæjarlögreglunnar voru dæmi
þess að bílar væru I 1/2 tima úr
Árbænum að Kambabrún. en undir
venjulegum kringumstæðum er þetta
ekki nenta um hálftima akstur.
-GAJ.
Hús á Sel-
tjarnarnesi
lagt í rúst
— af bandóðum
menntaskólaskrfl
Morgunblaðið segir ffá því í gær að
heimili í nágrenni Reykjavíkur hafi
verið stórskemmt um síðustu hclgi af
óðum krakkalýð.
Segir blaðið að hjónin sem eiga
húsið hafi ekki verið heima og hafði
dóttir þeirra boðið skólafélögum
sinum i „parti". Þeir hafi hins vcgar
þakkað fyrir sig með þvi að leggja
heimilið i rúst. Þetta hafi þeir gert þar
sem þeim þótti heimilið of borgaralegt.
Segir Mbl. að heimilið hafi verið mjög
illa leikið eftir þessa atburði. M.a.
munu unglingarnir hafa borið hús-
gögn i fjöruna og slegizt með lömpum.
Tjón á innanstokksmunum hafi a.m.k.
numið hundruðum þúsunda. Mál
þetta hefur ekki verið kært til lög-
rcgluyfirvalda.
Dagblaðið hafði samband við lög-
regluna á Seltjarnarnesi og kannaðist
hún við að atburðurinn hefði átt sér
stað á Scltjarnarnesi. nánar tiltekið við
Sæbrautina.
Ekki hefði atburðurinn þó verið
kærður til lögreglunnar á Seltjarnar-
nesi. Sagði lögreglan að hér hefði verið
um að ræða nemendur úr Mennta-
skólanum í Reykjavík. -GAJ-
Kaupið^
,5 TÖLVUR
I* OG TÚLVUUR
BANKASTRÆTI8