Dagblaðið - 14.12.1978, Side 4
4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978.
Jólm koma:
„Englakrem” á jóSatertuna
„Þelta er svo gott að maður heyrir
englana syngja," sagói kona nokkur
eitt sinn er verið var að búa til marzi-
pan-krem í „tilraunaeldhúsi” DB og
hún fékk að smakka. Þetta er alveg
satt. Krem þetta, sem tilvalið er á
hátíðatertuna, er hreinasta lostæti, —
enda er verðið lika i nokkru samræmi
við gæðin. 1 kremið fer:
4 blöð matarlim
1/2 litri rjómi
vanilla úr einni stöng
1—2 msk. sykur (má vera meira)
4 eggjarauður
ca 100— 150 g marzipan
1 dl rjómi
Rjóminn er hitaður. Rauðurnar eru
þeyttar mjög vel með sykrinum og
látnar saman við rjómann. Kremið er
soðið svolitla stund, potturinn tekinn
af og marzipaninu hrært saman við.
Loks er matarlímið látið í (látið matar-
límið i bleyti í kalt vatn áður en það er
látið út í kremið). Kremið er kælt.
BAKAÐ MEÐ
DAGBLAÐINU
Áður en það er notað er það hrært upp
og einum dl af þeyttum rjóma bætt út
Hráefnið í þetta „englasrem” kostar
hvorki meira né minna en rúmlega
1200 kr„ en það er enginn svikinn af
bvi- - A.Bj.
Mikið er lagt upp úr að umbúðirnar séu sem allra smekklegastar. Náið er fylgzt
með því að snyrtivörurnar frá Guerlain séu ekki komnar fram yBr siðasta söludag
sem á þa*r er stimplaður, en krem er viðkvæm vara sem getur þránað við langa
geymslu DB-mynd Bjarnleifur.
———
Fólk seinna í gang en oft áður
Guerlain-snyrtivör-
urnar merktar með
síðasta söludegi
A undanförnum árum hafa sífellt
verið gerðar meiri kröfur til merkingar
vöru sem á boðstólum er. Hér á landi
eru til lög og reglugerðir sem segja til
um að merkja skuli allar matvörur
með innihaldi og auk þess að merkja
síðasta leyfilegan söludag á allar við
kvæmar vörur. — Á þetta þó aðeins
við um neyzluvörur.
Nú eru komnar hér á markaðinn
snyrtivörur sem merktar eru með síð-
asta söludag. bað eru snyrtivörur frá
franska fyrirtækinu Guerlain í Paris.
Er nú nýlega farið að flytja snyrti-
vörutegund þessa hingað til lands, en á
undanförnum árum hafa aðeins feng-
izt ilmvötn frá fyrirtækinu hérá landi.
Hafa þau fengizt hjá verzluninni Hjá
Báru á Hverfisgötu. Snyrtivörurnar
fást hins vegar í snyrtivöruverzluninni
Clöru i Bankastræti.
„Erlendis er algengt að ákveðin
snyrtivörumerki séu aðeins seld í ein-
stöku verzlunum. Guerlain selur t.d.
aðeins vörur sínar i fjórum verzlunum
i París, — eru það verzlanir sem fyrir-
tækið rekur sjálft," sagði Guðrún
Ingólfsdóttir snyrtisérfræðingur, eig
andi Clöru i samtali við Neytendasið-
una. — „Frk. Fredholm, sænskur
einkaumboðsmaður Guerlain fyrir-
tækisins fyrir Norðurlönd, hefur eftir-
lit með því að snyrtivörurnar séu ekki
seldar eftir siðasta söludag. Frk. Fred-
holm heimsækir alla söluaðila að
minnsta kosti einu sinni á ári til þess
að ganga úr skugga um að enginn sé
með of gamlar vörur á boðstólum,"
sagði Guðrún.
Guerlainfyrirtækið hefur verið
starfrækt í 150 ár og hefur jafnan haft
á boðstólum snyrtivörur og ilmvötn,
sem fyrir löngu hafa unnið sér sérstakt
nafn i tízkuheiminum.
A.Bj.
og kaupir lægri jólatré
Nú eru jólin alveg á næsta leiti, ekki
nema 10 dagar þar til hátíðin rennur
upp. Jólabaksturinn er sennilega kom-
*inn langleiðina, í það minnsta smá-
kökubaksturinn. — Þá er eftir að
skreyta húsið hátt og lágt.
íár
Mjög jólalegt er um að litast hjá
blómaverzlunum, þar sem eru á boð-
siólum jólaskreytingar búnar til af fag
mönnum. Einnig er á boðstólum
skreytingarefni, þannig að fólk geti
sjálft spreytt sig á skreytingum. — Til
þess að koma okkur öllum í jólaskap
lögðum við land undir fój og heimsótt:
um skreytingameistara borgarinnar.
Fyrst litum við inn í Alaska í Breið-
holti. Þar ræður ríkjum Aad Gröen-
veg garðyrkjumaður.
„Það er varla hægt að segja að jóla
ösin sé byrjuð enn, fólk er voða seint
að koma sér í gang og virðist ekki hafa
eins mikla peninga og oft áður," sagði
Aad. — „Mikið af jólavörunum er enn
Gott kertaúrval er í Alaska í Breiðholtinu. Þar voru m.a. til kerti sem voru eins og áfengisflöskur. „Viský”-flaskan kostaði
2.990 kr. Einnig voru til pinu-flöskur og kostuðu þær 790 kr.
að leysa vörurnar út,” sagði Aad enn-
fremur.
Það virtist þó ekki neitt vanta upp á
vöruúrvalið í Alaska í Breiðholtinu.
Mikið og gott úrval var af kertum og
alls kyns gjafa- og skrautvörum.
Pessi litlu kerti eru i rauðu plasthulstri
og geta logað i 48 klst. Þau kosta 750
kr.
á „hafnarbakkanum", heildsalarnir
virðast eiga í miklum erfiðleikum með
Mjög mismunandi verð er á kertun-
um eftir þvi hvaðan þau eru. Þarna
voru handgerð kerti, kostaði parið 495
kr., gullkerti á 530 kr. stykkið, vestur-
þýzk kerti i pakka, 10 stk. með 6 klst.
brennslutíma, á 850 kr. 5 vestur-þýzk
kubbakerti kostuðu 870 kr„ með 12
klst. brennslulíma, en samsvarandi
stærð af dönskum Hjertelys kostuðu
820 kr. 4 stk. — Ódýrustu skreyting-
arnar kostuðu 2.200 kr. allt upp i
7.850 kr. Þarna voru túlipanalöguð
kerti á háum prikum til þess að stinga
niður í garðinn á 640 kr. stykkið, úti-
kerti í álformum á 350 kr. Lítil kerti
með 48 klst. brennslutíma i rauðum
hulstrum kostuðu 750 kr. stykkið.
Jólatrésskraut er til i'Alaska i Breið-
holti og kosta stærstu kúlurnar 600 kr.
en 95 kr. þær minnstu. 10% afsláttur
er veittur ef keyptur er heill kassi.
Ekki má gleyma ál-kertahlifunum, 12
stk. í kassa og kosta 185 kr,-
í Breiðholtinu eru til kanadísk jóla-
Fagmannlega skreyttar borðskreytingar kosta frá 2.200 kr. Þessi var mjög stór
og kostaði 7.850 kr. Svona skreytingu er raunar hægt að nota aftur næsta ár, með
því að láta ný kerti og nýtt greni.
DB-myndir Bjarnleifur.
tré, sem þeir flytja inn sjálfir og kosta
þau (eðalgreni, sem ekki fellir nálarn-
ar) 9.800 kr. 120—150 cm, og þau sem
eru 150—200 cm kosta 12.600 kr. Aad
sagðist hafa veitt því eftirtekt að fólk
keypti mun lægri jólatré í ár en áður.
Hann sagði einnig að jólavörurnar
væru um það bil 75% dýrari í ár en í
fyrra.
- A.Bj.