Dagblaðið - 14.12.1978, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978.
5
Hvaðverðurum
Fjalaköttinn:
„Býst ekki við að borgin
húsið til brottflutnings”
— segir Sigurjón Pétursson forseti
borgarstjórnar
—eigandinn tilbúinn að selja bæði
lóðoghús
Hið sögufræga hús, Fjalakötturinn, Aðalstræti 8.
Menn minnast þess eflaust frá þvi í
sumar að Reykjavíkurborg var gefið
húsið við Aðalstræti 8, sem betur er
þekkt sem Fjalakötturinn. Eigandi húss-
ins, Þorkell Valdimarsson, skilyrti þó
gjafaloforðið og varð að fjarlægja húsið
af lóðinni fyrir 27. desember. Ef borgin
tæki ekki boðinu ætlaði Þorkell að rífa
húsið fyrir áramót, þar sem ný lög taka
gildi um áramótin, sem banna niðurrif
húsa án leyfis.
Þorkell hefur átt vinsamleg viðtöl við
forseta borgarstjómar um að leysa
málið, án þess að til brottflutnings komi.
Hann er reiðubúinn til að veita lengri
frest til brottflutningsins ef gjafatilboð-
inu verður tekið, þó ekki lengri en til 1.
maí. Þá er hann og tilbúinn til viðræðna
við borgaryfirvöld um hugsanlega sölu á
lóð og húsi, en þeim viðræðum verður
að ljúka fyrir 22. desember nk.
Verði það ekki telur Þorkell sig
óbundinn af öllum fyrri yfirlýsingum
varðandi þetta mál og mun grípa til
nauðsynlegra ráðstafana til að „verjast
enn meiri skakkaföllum en borgin hefur
þegar valdið mér og fyrri eigendum, með
afstöðu sinni i skipulagsmálum vestan
Aðalstrætis og hvað snertir álagningu á
eignir þar".
Dagblaðið ræddi við Sigurjón Péturs-
son forseta borgarstjórnar og spurði
hann hvað yrði um Fjalaköttinn. Sigur-
jón sagði að litið hefði verið gert í þessu
máli undanfarið annað en það að hann
hefði átt persónulegar viðræður við eig-
anda hússins. „Það stendur ekkert frek-
ar upp á borgina en Þorkel í þessum við-
ræðum,” sagði Sigurjón. „Ég þori þvi
ekki að segja hvað verður endanlegt i
þessu máli.
Þó býst ég ekki við að Reykjavíkur-
borg kaupi húsið til brottflutnings, en
persónulega er ég fylgjandi varðveizlu
hússins. Ef lausn finnst sem báðir geta
sætt sig við, þá höfum við þessa daga
fram að áramótum til að ganga frá mál-
inu, en ég þori ekki að segja um það
hvort farsæl lausn náist. Staðan verður
þrengri eftir því sem lengra liður." -J H.
Deiliskipulag miöbæjar Akureyrar:
r
Oskað eftir raun-
hæfum tillögum
f rá arkitektunum
„Deiliskipulag hefur vantað vegna
breyttra hátta og þessi vöntun hefur
staðið uppbyggingu á Akureyri fyrir
þrifum," sagði Tryggvi Gíslason for-
maður skipulagsnefndar Akureyrar í
samtali við DB, en i fyrrakvöld var
haldinn borgarafundur á Akureyri þar
sem kynnt var tillögugerð að deili-
skipulagi miðbæjarins. Arkitektarnir
Haraldur V. Haraldsson og Svanur Ei-
riksson hafa i hálft annað ár unnið að
þessu skipulagi.
Aðalskipulag bæjarins er til frá
1975 en svonefnt deiliskipulag er ná-
kvæmara skipulag á einstökum bæjar-
hlutum.
Tryggvi sagði að komnar væru fram
þrjár megintillögur arkitektanna og
verður þeim skilað til skipulagsnefnd-
ar fyrir árslok. í byrjun næsta árs er
ætlunin að skipulagsnefnd afgreiði
málið til bæjarstjórnar, sem siðan
samþykkir eina ákveðna tillögu. Í
þessu verki hefur verið leitazt við að
halda í kosti miðbæjarins eins og hann
er nú, þ.e. að hafa alla verzlun og
þjónustufyrirtæki á litlu svæði. Þá
hefur þess verið óskað að tillögur arki-
tektanna væru jafnframt raunhæfar,
þannig að unnt sé með auðveldum
hætti að framfylgja þeim.
Tryggvi sagði að á þessum fundi
hefðu menn yfirleitt lokið lófsorði á
þessar tillögur. 1 einni tillögunni er
m.a. gert ráð fyrir að „Dockin" verði
varðveitt og að aðalaðkomuleið bæjar
ins til norðurs verði tengd við Glerár-
götu. í annarri tillögunni er gert ráð
fyrir að fylla upp í Dockina og sveigja
aðalaðkomuleiðina niður Strandgötu
og út Hjalteyrargötu, sem er neðst á
Oddeyrinni. Þetta tvennt mun hafa
vakið mest umtal og deilur á fundin-
um, en alls tóku um 40 manns til máls.
Þá er gert ráð fyrir að Hafnarstræti,
Ráðhústorgið og hluti af Skipagötu
verði göngugötur, þó svo að hæg bíla-
umferð verði leyfð þar. Einnig hefur
mikil áherzla verið lögð á að bæta
gönguleiðir að miðbæjarsvæðinu.
-GAJ-
HEILDSALA - SMÁSALA
D i • . i jr
Kaaio
ÁRMÚLA 38 (Selmúla megin) - 105REYKJAVÍK
SÍMAR: 31133 83177 PÓSTHÓLF 1366
•18
r.
GKRA 18
Er jólagjöfin f ár.
/-------------\
CAMBRA
International Ltd
V J
Allt tii hljómflutnings fyrir:
HEIMILID - BÍUNN
OGDISKÓTEKIÐ
SKODID í GLUGGANA.
SENDUM í PÓSTKRÖFU.
Nr.54
TILVAUD TIL GJAFA
Þetta statíf tekur 30 kass-
ettur. Það fer vel f hillu 09
má einnig festa é vegg.
4 litir.
„FRÁBÆRT SPIL"
Sló í gegn um síðustujól, þá fengu fœrrí en vildu. Verö krónur 2.400.-. Ný útgáfa
komin. Þetta gamla og skemmtilega spil er ennþá spilað á mörgum heimilum yfir
jólahátíðina, en með útgáfu spilsins (sem er reyndar frumútgáfa) vitum við að
PÚKK mun eignast mun stœrri hóp aðdáenda.
FRÍMERKJAMIÐSTÖÐIN
Laugavegi 15 (sími 23011)
og Skólavörðustíg 21 A, sími 21170 (heildsölupantanir)