Dagblaðið - 14.12.1978, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978.
Ólöf, Jón og Garðar (á bak við) á heimili þeirra tveggja fyrrtöldu. Plötuumslagið
sem þau halda á er með mynd eftir Jón.
Á hátíðastundy plata með Ólöfu',)Bm'ndRa"nar'
JóniogGarðari
Kirkjulegir
söngvar úr
ýmsum áttum
„Ég skil ekkert í því eftir á að okkur
skyldi detta þetta í hug. Við gerðum
okkur ekki grein fyrir því áður en við
byrjuðum hvað þetta var mikið brjálæði.
Fólk sagði við okkur: „Gefið þið bara út
plötu”. Já bara. „Þetta verða bara tólf
lög sögðum við, enginn vandi”...” sagði
Ólöf Harðardóttir söngkona á fundi með
blaðamönnum i gær. Tilefni fundarins
var plata sem Ólöf og Garðar Cortes
syngja á og Jón Stefánsson leikur undir
á orgel. Þessi þrenning gefur plötuna út
sjálf og ber allt tap sem af henni kann að
verða, en ef gróði verður einhver rennur
hann til húsbyggingarsjóðsSöngskólans.
Með þeim Ólöfu og Garðari syngja
tveir kórar, Kór Langholtskirkju og Kór
Söngskólans. Upptakan fór fram í Há-
teigskirkju og Hljóðrita í nóvember en
byrjað var að vinna að æfingum undir
plötuna í september.
Platan ber nafnið Á hátiðastund og
eru á henni tólf lög sem leikin eru við
kirkjulegar athafnir, s.s. brúðkaup, jarð-
arfarir, jól og páska. Öll lögin nema eitt
eru erlend en öll eru þau vel þekkt hér á
landi.
Dreifing plötunnar fer fram í Söng-
skólanum, símar 21942 og 27366. Hún
kostar 2700 krónur.
DS
MÖMDLUIS®
MEÐ EKTA CALIFORNIU MÖNDLUM
JbRDbRD£RJh ÍS
____MEÐ MULDUM JARÐARBERJUM
P€RU IS®
RONDÖTTUR VANILLAIS MEÐ PERUBRAGÐI
íbúðir á f élagslegum grundvelli:
90% kostnaðar-
verðs íbúða lánað
greiðslubyrðin 20% af dagvinnutaxta
„Miðstjórnin lýsir vonbrigðum sínum
með þá afstöðu meirihluta nefndarinnar
að sniðganga með öllu þýðingarmikil at-
riði úr tillögum og greinargerð Alþýðu-
sambandsins,” segir í ályktun, sem sam-
bandsstjómarfundur ASÍ samþykkti á
fundi 9. þ. mán.
Er hér m.a. átt við þá tillögu ASÍ að
þriðjungur af íbúðaþörf landsmanna
verði byggður á félagslegum grundvelli.
Að tryggt verði að Byggingarsjóður
verkamanna geti staðið við þetta stefnu-
mark með því að rikissjóður fjármagni
að mestum hluta félagslega bygginga-
starfsemi og „að með beinni aðild Al-
þýðusambandsins að stjórn sjóðsins,
verði sambandinu gert kleift að fylgja
fram efndum á þeim fyrirheitum, sem
gefin hafa verið og gæta þannig hags-
muna umbjóðenda sinna” eins og það er
orðað í tillögum og greinargerð ASÍ.
Með þrennum heildarkjarasamning-
um frá 1974 hafa fylgt fyrirheit í formi
yfirlýsinga rikisstjórnarinnar hverju
sinni um að unnið skyldi i samráði við
verkalýðshreyfinguna að lausn vanda-
málsins.
Meðal annars hefur því verið heitið
að ekki minna en 1/3 af árlegri aukn-
ingarþörf íbúðarhúsnæðis skyldi byggð-
ur á svokölluðum félagslegum grund-
velli.
Þá var því treyst að þannig byggðar
íbúðir myndu njóta fjármagnsfyrir-
greiðslu og lánnkjara ekki lakari en
þeirra semtíðkuðustvið byggingar ibúða
á vegum hramkvæmdanefndar bygg-
ingaráætlunarí Reykjavík.
Nefnd sú sem félagsmálaráðherra
skipaði 14. september sl. hefur lokið
störfum. Sambandsstjórnarfundurinn
fagnar því að nefndin í heild hefur orðið
sammála um að ganga til móts við
kröfur ASÍ um veigamiklar breytingar
til bóta á lagaákvæðum sem fjalla um
íbúðabyggingar á áðurnefndum grund-
velli.
- BS
Rigningar og þíðviðri:
Slæmt ástand vega
á Austfjörðum
Ástand vega á Austfjörðum er nú
víða mjög slæmt vegna mikilla rigninga
og þíðviðris að undanförnu. Þannig
hefur vegurinn milli Reyðarfjarðár og
Eskifjarðar skemmzt á Hólmahálsi. Þá
er Austurlandsvegur um Skriðdal ófær
vegna þess hversu mikið hefur hækkað í
Skriðuvatni.
Arnkell Einarsson hjá Vegaeftirliti
ríkisins sagði að vegna mikillar aur-
bleytu hefði orðið að takmarka öxul-
þunga bifreiða við 7 tonn milli Egils-
staða og Eskifjarðar og eins á Austur-
landsvegi um Skriðdal og Breiðdalsheiði.
-GAJ
Teg. 314.
Utir: Blátt og hvítt
Stærðir: 36-41
Verð kr. 4485.-
Teg. 331.
Utír: Blátt og hvftt
Stærðir: 36-41
Verð4485.
Teg. 327
Litir: Svart oghvítt
Stærðir: 36—41.
Verðkr. 4485.-
Teg. 318.
LitínSvart
oghvttt
Stærðir:
36-41.
«j| Verðkr.
iPlat 4485.-
Teg. 341
Litír: BLeikt og IjósbiáH
Stærðir: 36-41.
Verðkr. 4485.-
Ódýrir jólaskór
Skóverzlun
Þórðar Péturssonar
Kirkjustræti v/Austurvöi/. Sími 14181.
Póstsendum.