Dagblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978. Jólatrésmarkaðinum SkeHtmni 11 Næg bílastœði. Sími 39770. Jólaskraut, jólagreinar Greinar áleiði Stormkerti • Það bezta er aðeins nógu gottfyrir frig ^Faguriega skreyttar greinar á leiði Þjónusta — öllum trjám pakkað í nœlonnet Verið ekki úti í kuldanum. Komið í bjartan 500ferm sal og veljið jólatréfrá Jólatrésmarkaðinum Skerfunni' 11 norðurendi. Opið til kl. 10 alla daga vikunnar Dömur athugiö! Gerið jólainnkaupin í tíma. Slopparnir frá Ceres, | sem sýndir voru á ísl. | kaupstefnunni, eru |L 'komnir, einnigbarna- ;Mj! náttfötin. Einlitu velour- slopparnir og t fóðurpilsin nýkomin. Túlípaninn Ingólfsstræti 6. LEIGUBILSTJORARIHUGA EIGIÐ TRYGGINGAFÉLAG — látum ekki bjóða okkur lengur að vera hafðir að f éþúfu fyrir tryggingafélögin, segir formaður sambands leigubflstjóra „Leigubílstjórar hafa verið hreint féþúfufyrirtæki fyrir tryggingafélögin. Við látum ekki bjóða okkur þetta lengur og því er í gangi undirbúningur stofnunar tryggingafélags leigu- bílstjóra,” sagði Úlfur Markússon, for- maður sambands leigubilstjóra í samtali við fréttamann DB. Ekki hefur endanlega verið ákveðið að hefjast handa við raunverulega stofnun tryggingafélagsins, en Úlfur sagði að ef tryggingafélögin kæmu ekki til móts við leigubilstjóra fyrir áramót, yrðu ermarnar brettar upp. „Við munum reyna að fá fleiri hagsmunaaðila á okkar sviöi til þess að taka þátt i málinu ef tryggingafélögin sýna ekki sanngirni,” sagði Úlfur. Málið snýst um það, að leigu- bilstjórar telja sig greiða allt of há iðgjöld af tryggingum leigubíla sinna. „Við borgum hærri iðgjöld en aðrir borgarar, þrátt fyrir það aö við völdum fæstu tjónunum,” sagði Úlfur. „Við erum með merkar skýrslur frá Umferðarráði um árekstra og önnur umferðaróhöpp. Þetta er allt flokkað mjög nákvæmlega niður og sýnir augljóslega að við erum með allægstu .tjónavöldum. Við erum meir að segja lægri en sendibílar, sem margir eru i einkarekstri og hækka iðgjöld hinna. Tryggingafélögin hafa lokaðaugunum fyrir þvi.” irSíéÍ Leigubilstjórastéttinn gerist herskárri eftir að kvenfólk hefur bætzt f þeirra hóp. Nokkuð hefur þó rofað til í málunum undanfarið og vildu t.d. Samvinnutryggingar lækka iðgjald leigubilstjóra um 5% en þáverandi tryggingaráðherra veitti ekki tilskilið samþykki sitt, að sögn Úlfs Magnús- sonar. „Nú ætla Samvinnutryggingar og ég held Sjóvá líka að endurgreiða tjónalausum leigubílstjórum 15% af kaskótryggingu og skyldutryggingarið- gjöldum,” sagði Úlfur. Hann sagði að til þessa hefðu iðgjöld af tryggingum leigubíla verið á- kveðin eftir eldgömlum tjóna- skýrslum. „Það kom bezt í ljós þegar við báðum tryggingafélögin um skýrslur til að styðja iðgjöldin rökum, þá voru þær margra ára gamlar, þó iðgjöldin séu ákveðin árlega. Seinna, komu Samvinnutryggingar með nýjar skýrslur, sem styðja okkar mál,” sagði Úlfur. Hann bætti við að 80—90% leigubílstjóra væru í hæsta bónus- flokki og næsthæsta. „1 skýrslum Umferðarráðs, sem ég gat um áðan, kom fram að í 90% þeirra umferðar- óhappa sem við höfum átt aðild að á undanförnum árum, vorum við — leigubílstjórar — í rétti,” sagði Úlfur Markússon. -ÓV. Láttu þig listina skipta Hjá okkur getur þú valið póstkort, veggspjöld eða bréfsefni, allt prýtt myndum eftir heimskunna listamenn, Carl Larson, Roif Lidberg, Spang Olsen og marga aðra. EYMUNDSSON Austurstræti 18 Sími 13135 BHabrautir Margar stærðir og gerðir af bílabraut- um. Alls konar aukahlutir fáanlegir. Ennfremur rennibrautir Jrá Matchbox, 4 gerðir. Radíóstýrðir bílar. Verð kr. 13.300., Póstsendum samdægurs LEIKFANGAVER Klapparstíg 40. - Sími 12631. Vé/ritari Vanan vélritara vantar til setningar á innskriftarborð. Prentsmiðjan Oddi H/F, Bræflraborgarstíg 7. mmiABW er smáauglýsingajblaðið

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.