Dagblaðið - 14.12.1978, Side 13

Dagblaðið - 14.12.1978, Side 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978. 13 Er „þögli meirihlutinn” farinn r ■ 4) — göngurtilstuðningskeisaranumí ao syna tennurnar: Margar fjöldagöngur hafa farið um götur margra borga i íran siðasta hálfa sólarhringinn. Sú breyting hefur þó orðið á, að þar hafa verið á ferðinni stuðningsmenn keisarans. Þykir þetta tíðindum sæta og breyta nokkuð mynd- inni af ástandinu í íran undanfarnar vikur. Að vísu þykir ekki fara á milli mála að her landsins hefur ýtt undir í þessum efnum, í viðleitni sinni til að sýna fram á að keisarinn og herinn sjálfur njóti einhvers trausts og fylgis meðal ibúa landsins. Samkvæmt fregnum frá Íran í morgun hafa göngur og mótmæli and- stæðinga keisarans fallið í skuggann fyrir aðgerðum stuðningsmanna hans. Aðgerðir þessar þykja bera þess merki að verið sé að reyna að renna stoðum undir þá kenningu Gholamreza Azhari hershöfðingja, sem er forsætisráðherra herforingjastjórnar landsins, að hinn þögli meirihluti íbúa landsins styðji keis- arann. Hélt hershöfðinginn þessu fram á blaðamannafundi í fyrri viku. Fylgismenn keisarans gengu um götur Isfahan, næststærstu borgar Teheran, i gær, vopnaðir kylfum. Reyndu þeir að fá alla viðstadda og þá sem á leið þeirra urðu til að hrópa hrifn- ingarorð um keisarann. Hermenn, sem á götum borgarinnar voru. skutu úr byss- um sínum uppí loftið. Talið er mögulegt að þessar aðgerðir til að sýna fram á vinsældir keisarans séu liður í tilraunum til að koma aftur á borgarlegri stjórn í landinu. Kunnugir segja að viðræður milli deiluaðila standi stöðugt yfir, þrátt fyrir fullyrðingar beggja aðsliku hafi verið hætt. Andstxðingar ísraels og Begins í Noregi hlekkjuðu sig við girðingu i mótmælaskyni gegn þvl að forsætisráðherrann hlyti friðarverðlaun Nóbels. Klxddu þeir sig I búning palistinskra skæruliða, sprautuðu yfir sig blóði og lokuðu aðkomuleiðum að Akershushöll, þar sem verðlaunaafhcndingin fór fram. Portúgal: Sósíalistar gáfu stjóm Pintos líf sátu hjá við tilraun kommúnista til að fella ef nahagsáætlun hennar Bústaðabúðin auglýsir Tiljólanna Norðlenzka hangikjötíð óviðjafnanlega er komið aftur. Laufabrauð: Nú er rétti tíminn til að koma saman og skera út laufabrauðið. Jólaölið: Vinsamlega athugið að panta jóladrykkina tímanlega. Mjólkurvörur, nýlenduvörur og kjötvörur í úrvali. Rikisstjórn Carlos Mota Pintos for- sætisráðherra Portúgal slapp í gegnum fyrstu verulegu andstöðuna á þingi landsins við atkvæðagreiðslu í gær- kvöldi. Pinto hefur lagt fram nýtt efna- hagsmálafrumvarp, sem kommúnistar hafa lýst sig algjörlega andvíga og segja að muni koma efnahag landsins i enn meiri ógöngur en nú er. Lögðu þeir fram tillögu á þinginu um að hafnað 'yrði stefnuskrá ríkisstjórnar- innar. sem lögð var fram fyrir þrem vik- um. Sú tillaga var felld með 109 at- kvæðum gegn 45. 97 þingmenn greiddu ekki atkvæði og tryggðu þannig stjórn Pintos áframhaldandi setu. Til að ná samþykki hefði tillaga kommúnista þurft að fá meirihluta atkvæða allra þingmanna, en þeir eru 263 að tölu. Sósíalistaflokkur Soares fyrrverandi forsætisráðherra, stærsti þingflokkur- inn, varð til þess að Pinto situr enn i for- sæti rikisstjórnarinnar. Allir þingmenn flokksins sátu hjá viðatkvæðagreiðsluna i gærkvöldi. Sósialdemókratar og miðdemókratar, sem taldir eru til hægri við Sósíalista- flokkinn greiddu stjórn Pinto atkvæði. Fimm óháðir þingmenn og einn mjög vinstri sinnaður studdu tillögu kommún- ista. VIÐ SENDUM HEIM Sparið tima og hringið. YÐUR AÐ KOSTNAÐARLAUSU Bústaðabúðin I Hólmgarði 34 — Sími33100.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.