Dagblaðið - 14.12.1978, Qupperneq 14

Dagblaðið - 14.12.1978, Qupperneq 14
14 frfálst, úhád dagblaá Útgefandc Dagblaðið hf. Framkvaemdastjórí: Sveinn R. Eyjóifsaon. Ritstjóri: Jónas Kristjénsson. Fróttasljón: Jón Birgir Pétursson. Rhstjómarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjómar Jó- hannes ReyfcdaL íþróttir: Hallur Símonarson. Aöstoðarfréttastjórar. Atii Steinarsson og ómar Valdi- l Menningarmál: Aðalsteinn Ingótfsson. Handrit; Ásgrimur Pálsson. : Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stefánsdóttir, Elin Afcerts- dóttir, Gtssur Sigurösson, Gunnlaugur A. Jónsson, Hallur Hallsson, Helgi Pétursson, Jónas Haraldsson, Ólafur Gearsson, Ólafur Jónsson. Hönnun: Guðjón H. Pálsson. Ljósmyndin Ari Kristinsson, Ámi Páll Jóhannsson, Bjamleifur Bjamleifsson, Hörður Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurösson, Svoinn Þormóðsson. Skrifstofustjórí: Ólafur EyjóHsson. Gjaidkeri: Þráinn Þorieifsson. Sökistjóri: Ingvar Sveinsson. Dreifing- arstjórí: Már E.M. Halldórsson. Ritstjóm Siöumúla 12. Afgreiðsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þvorholti 11. Aðabimi bleðsins er 27022 (10 linur). Áskrif t 2500 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið. Setning og umbrot Dagblaðið hf. SUSumúla 12. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf. Siðumúia 12. Prentun: Árvakur hf. SkeHunni 10. Spáð íkönnun Eins til tveggja prósentustiga fylgis- rýrnun stjórnmálaflokks í stjórnarað- stöðu er tæpast nokkurt tiltökumál. Ríkisstjórnin þarf .út af fyrir sig ekki að hafa miklar áhyggjur, þótt skoðanakönn- un Dagblaðsins sýni 0,9 stiga fylgisrýrn- un Alþýðuflokksins, 1,3 stiga fylgisrýrnun Framsóknar- flokksins og 1,8 stiga fylgisrýrnun Alþýðubandalagsins. Alþýðuflokkurinn og Alþýðubandalagið mega að því leyti vel við una, að báðir ílokkarnir unnu á í síðustu kosningum, einkum Alþýðuflokkurinn. Nýtt fylgi er gjarna ótryggt, ekki sízt þegar flokkar eru í erfiðu stjórn- arsamstarfi á erfiðum tímum. Við slíkar aðstæður er ekki umtalsvert, þótt hvor flokkur um sig tapi einum þing- manni, svo sem skoðanakönnun gerir ráð fyrir, að yrði í kosningum, ef þær yrðu haldnar nú. Útlitið er svartara hjá Framsóknarflokknum, þótt fylgistap hans sé ekki meira en hinna stjórnarflokkanna. Sumir þingmenn hans standa tæpt. Ef þeir falla, eiga þeir ekki von í uppbótarsætum, af því að Framsóknarflokk- urinn hefur flokka fæst atkvæði á bak við hvern þing- mann. Alvarlegast er, að flokkurinn hefur ekki efni á að tapa næst þremur þingmönnum eftir að hafa tapað fimm síðast. Ef kosningar verða í vetur og Framsóknarflokkurinn tapar þremur þingmönnum, svo sem könnunin bendir til, er hann búinn að missa átta af þeim sautján þing- mönnum, sem hann hafði fyrir aðeins hálfu fimmta ári. Þvílíkt hrun væri einsdæmi í stjórnmálasögu síðustu ára- tuga. Erfitt er að finna skýringar á því, að Framsóknar- flokkurinn skuli halda áfram að tapa eftir herfilega út- reið í síðustu kosningum. Hugsanlegt er, að mikið sé um hægri menn í röðum kjósenda flokksins og að þeim líki illa stjórnarforusta Framsóknarflokksins í hækkun gjalda og útþenslu ríkisbáknsins. Ólafur Jóhannesson var búinn að hrekja hina vinstri sinnuðu Möðruvellinga úr flokknum og nú ergir hann hægri mennina án þess að ná Möðruvellingunum til baka. Annað atriði í skoðanakönnuninni, sem erfitt er að skilja, er, að fylgi Samtakanna, 3,3 prósentustig, virðist hafa gufað upp án þess að koma fram í einum vinstri flokkanna. Sennilegasta skýringin er sú, að þessir kjós- endur hallist nú að Alþýðuflokknum, en hann hafi á móti misst hægri kjósendur til Sjálfstæðisflokksins vegna meintra svika flokksins við kosningayfirlýsingar sínar. Sé þetta rétt, felst í því töluverður sigur Alþýðuflokks- ins á Framsóknarflokknum og Alþýðubandalaginu. Síð- astnefndi flokkurinn hefur lengi talið sig eiga brott- hlaupna Samtakamenn. Og Framsóknarflokkurinn hefur töluvert biðlað til þeirra, meðal annars með því að gera Magnús Torfa að blaðafulltrúa sínum og ríkisstjórn- arinnar. Samkvæmt skoðanakönnuninni virðist þessi viðleitni ekki hafa borið árangur. Skoðanakönnunin bendir til, að stjórnarsamstarfið haldi áfram, þótt á móti blási í fjárlögum. Alþýðubanda- laginu hefur enn ekki tekizt að grafa undan Alþýðu- flokknum og vill sennilega leita betra færis síðar í stjórn- arsamstarfinu. Framsóknarflokkurinn þarf líka á að halda stjórnarsamstarfinu til að vinna tíma til að bæta sér fylgisrýrnun siðustu mánaða. Og Alþýðuflokkurinn sér, að hann getur áfram leikið stjórnarandstöðu í stjórn- inni án þess að fylgið hrynji af honum. Allir flokkarnir þrír hafa ástæður til að halda áfram samstarfi, þótt erfitt sé á köflum. DAGBLADID. FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978. Tekst að stöðva fjöldamorðin á Kínahafinu? - * —nokkur hundruð víetnamskra flótta- manna drukkna þar íhverri viku vegna aðgerðaleysis Eigum við að ímynda okkur að ein risatx)ta yrði eldsneytislaus og hrapaði í hafið á hverri viku? Afleiðingarnar yrðu að sjálfsögðu þær að allir um borð i vélinni færust. Við skulum lika ímynda okkur að ástæðan fyrir því að þotan lenti ekki I tæka tíð væri sú að allir flugvellir hefðu verið lokaðir henni vegna þess að farþegar hefðu ekki verið með fullnægjandi vegabréfs- áritanir. Slíkir atburðir mundu vekja gífur- lega og almenna reiði um allan heim. Nægilegt væri að þetta gerðist einu sinni til að jafnvel harðsviruðustu embættismenn mundu láta sig og sjá til þess að atburðir sem þessir endur- tækju sigekki. Um þessar mundir mun staðreyndin vera sú að i hverri viku drukknar fjöldi flóttamanna frá Víetnam í Kínahaf- inu. Sá fjöldi er mjög nálægt þvi að samsvara fjölda farþega i fullhlaðinni risaþotu. En hriplekt bátsflak, fullt af nafnlausu fólki, virðist ekki ná eyrum eins margra og fullhlaðin risaþota. ERLEND MÁLEFNI GwynneDyer Auk þess verður þetta í öruggri fjar- lægð og lítið heyrist af neyðarópum fólksins, þegar það hverfur í öldur hafsins. Auk þess eru þetta aðeins flóttamenn frá Víetnam. í september siðastliðnum komu um átta þúsund manns á alls konar bátum til Malasiu frá Vietnam. Mánuðinn þar á eftir var talan komin upp í tólf þúsund og enn meiri varð fjöldinn i nóvember síðastliðnum. Þrír fjórðu þeirra flóttamanna, sem koma til Malasíu frá Víetnam, eru úr kínverska minnihlutahópnum sem þar hefur dvalið lengi. Þar af leiðandi eru þrír fjórðu þeirra sem drukkna einhvers staðar á leiðinni yfir hafið einnig af kinverskum stofni. Ástæðan fyrir því að Thailand, Indónesía og Malasía eru treg til að veita hinu sjóhrakta fólki viðtöku er einföld og margþekkt úr sögu flótta- manna um allan heim. Ríkisstjómir þessara landa óttast að sitja uppi með flóttafólkið til frambúðar. Þess vegna hefur það komið fyrir hvað eftir annað að fleytum þess hefur verið visað aftur t ■ ' Bjór og borgarar Mistúlkun á 1 síðustu viku var boðað til borgara- fundar af félagi ungra jafnaðarmanna þar sem rætt var bjórmálið, þ.e. hvort leyfa eigi bruggun og sölu áfengs öls í landinu. Fundurinn var öllum opinn, og þar sem þetta umræðuefni hefur þróazt i það að verða eitt sígildasta deilumál landsmanna létu margir freistast til þess að mæta á fundinn, þ.á m. sá er þetta ritar. Óhætt er að fullyrða, að þessi borg- arafundur var vel heppnaður, og í raun hefur sá er þetta ritar ekki í ann- an tíma haft eins mikla ánægju — og gagn — af fundarsetu á almennum fundi sem þessum. Borgarafundir sem þessi eru alltof fátíðir hér, miðað við aðra fundi, sem haldnir eru, sem eiga það flestir sammerkt að vera kvart- ana- og kröfugerðafundir og enda venjulega með ályktunargerð einnar eða annarrar tegundar, þar sem skorað er á hið opinbera að leggja meira af mörkum til þess málstaðar eða starf- semi, sem fundirnir fjalla um. Frummælendur á ofannefndum fundi voru þeir Friðrik Sophusson og Vilmundur Gylfason alþingismenn, sem voru málsvarar áfengs öls — og Bragi Níelsson læknir og Vilhjálmur Hjálmarsson alþingismaður og fyrrv. menntamálaráðherra. Þátttaka I umræðum var mjög al- menn, lífleg og málefnaleg og tóku 30 manns auk frummælenda þátt I um- ræðum. Er þetta áreiðanlega met i um- ræðuþátttöku á opnum fundi sem þessum. Fundarstjórn var óvenju góð og þess vel gætt, að menn stöldruðu ekki of lengi við i pontu í einu, eins og oft vill verða með lélegri fundarstjórn. bruggun og sölu Þegar bjórmálið kemur til umræðu í þessu landi, hvort heldur er á Alþingi eða í almennum umræðum, er ávallt vitnað til þeirrar mistúlkunar á þessu máli, sem á rætur sínar að rekja til frumvarpa, sem borin hafa verið upp á Alþingi gegnum árin og hafa yfir- skriftina „Bruggun og sala áfengs öls". Það segir sig auðvitað sjálft, að engin spuming er um það, hvort leyfa eigi bruggun áfengs öls í landinu. Hún er þegar leyfileg. Tvö fyrirtæki á ís- landi hafa leyfi til þess að framleiða áfengt öl, annars vegar til útflutnings, hins vegar til sölu til erlendra sendi- ráða hér á landi. Auk þess hefur verið veitt leyfi óbeint, til þess að almenn- ingur geti bruggað sitt öl sjálfur, að vísu innan ákveðins styrkleika, en opinbert leyndarmál er, að enginn, sem fæst við slíka iðju, gerir það til þess að fá sams konar öl og fáanlegt er á frjálsum markaði. Fátt sýnir betur einstrengingshátt og þvermóðsku þeirra, sem á móti bjórmálinu tala, að þeir láta hjá liða að minnast á þennan þátt málsins, þ.e. að bruggun áfengs öls er þegar fyrir hendi í landinu, og deilan snýst einungis um það, hvort leyfa eigi sölu á því áfenga öli, sem þegar er framleitt. Og löngu eftir að bruggun á áfengu öli var leyfð í landinu hafa frumvörp á Alþingi séð dagsins Ijós með sömu yfirskriftinni, „bruggun og sala". Og öll hnígur umræða um bjórmál á Al- þingi i sömu átt, mistúlkanir á mistúlk- anir ofan, jafnvel meðal þeirra, sem eru meðmæltir þvi, að sala á áfengu öli verði leyfð. Jafnvel þingmenn þeir, sem eru að burðast við að styðja framgang bjór- málsins, hafa gert sig seka um regin- skyssur i málflutningi, annaðhvort vis- vitandi, og ef svo er þá vegna hræðslu á atkvæðatapi, eða vegna vanþekking- ar á málunum, sem vart verður ætlað. Sú staðreynd, að i landinu gilda tvenn lög fyrir borgarana um neyzlu áfengs öls, er gjörsamlega sniðgengin af þingmönnum. Sú hefð, að farmenn, fá að taka með sér, löglega, áfengan bjór til landsins skiptir landsmönnum i tvo hópa, hvað snertir neyzlu þessara fágætu drykkjarfanga. Auðvitað dettur fáum í hug, að af- nema eigi þær reglur sem gilt hafa um þessi friðindi farmanna, heldur væri hitt sjálfsagt að afnema þessa skipt- ingu landsmanna I tvo hópa með því að ieyfa landsmönnum öllum að hafa með sér til landsins áfengt öl, ef þeir svo kjósa, þegar þeir koma erlendis frá, t.d,. i stað annars áfengis. Þessi þáttur málsins hefur ekki verið ræddur hátt í þingsölum, þegar bjór- málið skýtur upp kollinum með ákveðnu mil|ibili, en er ein forsendan í því ófremdarástandi, sem ríkir I áfeng- ismálunum. Smámál - stórmál Eitt af því, sem eftirtektarvert er í málflutningi andstæðinga bjórsins, er það, að þegar málsvarar hans leggja til, að málið verði lagt undir þjóðarat- kvæðagreiðslu, þá umturnast and- stæðingar áfenga ölsins og segja það fráleitt, að „slíkt smámál” verði lagt

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.