Dagblaðið - 14.12.1978, Page 26

Dagblaðið - 14.12.1978, Page 26
42 MONT BLANC er toppuruin Vissulega eru Mont Blanc pennar eilítið dýrari en aðrir pennar, en þeir eru líka í sérflokki um gæði og feg- urð. íu\t uAcin \ i Ponnaviðgerðinni, Ingólfsstræti Skákhúsinu, Laugavegi 46 Bókabúð Helgafells, Laugavegi 100 Bókabúð Keflavikur Bókabúð Jónasar, Akureyri Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjald- dagi söluskatts fyrir nóvembermánuð er 15. desember. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið 8. des. 1978 Pappírsskurðar- hnífur Til sölu er „Ideal” pappírsskuröarhnífur, rafknúinn, skurðarbreidd 65 cm. Upp- lýsingar í síma 22133. mm Breyttur opnunartlmi OPID KL. 9-9 Amerísku stytturnar trá lee Borten nýkomnar »■1 bllatto.61 a.M.k. é kvéMia lilOMLWIXIIH HAFNARSTRÆTI Simi 12717 Reykingavamir á vinnustööum Samstarfsnefnd um reykinga- varnir óskar að komast í sam- band við áhugamenn um reyk- ingavarnir á vinnustöðum vegna undirbúnings undir reyk- lausan dag 23. janúar. Þeir er áhuga hafa eru beðnir að setja sig í samband við skrif- stofu samtakanna í Lágmúla 9, SÍmÍ 82531. Samstarfsnefnd um reykingavarnir DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978. Mávamir f Ijúga inn f Ijóðið — Jóhann Hjálmarsson: LÍFIÐ ER SKÁLDLEGT. Iðunn, Reykjavík 1978.64 bls. I þessari bók, hinni fjórðu á fimm árum, heldur Jóhann Hjálmarsson fram þeim Ijóðstíl sem hann hefur iðk- að jafnt og þétt: Opinn, Ijós, einfaldur, á mörkum Ijóðs og prósa. Þessu hefur svo oft verið lýst að varla þarf að taka enn til vegna þessarar bókar, sem er einkar snoturt kver, innst sem yzt. En um Ijóðin er það að segja i upphafi að þau koma lesendum Jóhanns ekki á óvart. Hann hefur náð býsna örugg- um tökum á þessum tjáningarhætti. Að visu eru bækur Jóhanns frá síð- ustu árum ekki allar með sama móti. Tvær svo prósaiskar að þær flokkast raunar varla með ljóðum án fyrirvara: Myndin af langafa og Frá Umsvölum. Þar á móti eru Athvarf I himingeimn- um og Dagbók borgaralegs skálds Ijóðrænni verk — og í þann flokk fell- ur nýja bókin, Lífið er skáldlegt. Hversdagslíf og list 1 nafni bókarinnar felst vitaskuld sú stefnuyfirlýsing að veita hversdagslíf- inu þegnrétt í skáldskap, sækja efnivið til hinnar nánustu reynslu og um- hverfis. Þetta er gott og gilt, en hitt liggur i augum uppi að „lifið" er hvorki skáldlegt né óskáldiegt; allt veltur á skáldsauganum sem sér það, eyranu sem nemur. Hér rís óhjá- kvæmilega sú krafa að skáldið bregði óvæntu Ijósi á viðfangsefni sitt, skipi „lifinu” í nýtt samhengi í skáldskap sínum. Þar er líkingamál Ijóðsins áhrifadrýgsta tækið. Að þessu víkur Jóhann I inngangsljóði bókarinnar af skemmtilegri gamansemi sem skopger- ir stílbrögð Ijóðskáldsins: fullum öskubakka má líkja viðeldfjall áður en það gýs, óopnuð bók á borði er dalalæða, kaffibollinn hellir eða hylur, ritvélin varphólmi, orðin öræfasteinar. Til eru fossar sem enginn heyrir til, en keppa þó við ryksugur. .. Ljóðlist sem sækir efni sitt svo krókalaust i hversdagslífið sem Ijóð Jó- hanns gera er alltaf i hættu að koðna niður i hversdagsprósa. Víst verður texti Jóhannsstundum grámóskulegur en það stafar fremur af þvi að aðferð hans hrekkur ekki til en hinu að honum fatist tökin. Ljóð hans eru i rauninni luktur heimur, lognvær og sjálfum sér nægur. Og líftaug þeirra er næmlegur hugblær sem fylgir ljóðinu þótt ekki sé alltaf gott að skilgreina hann. Tökum þetta Ijóð að upphafi fyrsta kafla, Snemma: V ............... Þetta ætlar að verða fallegur morgunn. Birtan flæðir inn. Húnerúrbláu. Himinninn er djúpblár með hvítu ívafi sólar sem boðar komu sina. Inniogútierkyrrð — skamma stund. Jóhann Hjálmarsson. Heimur barnsins Jóhann hefur oft tekið mið af börn- um, orðum þeirra og afstöðu i Ijóðum sinum á síðustu árum. Það liggur auð- vitað mjög nærri þeim hversdagsheimi sem hann vill draga upp. Barnaljóðin auka á þokka bókarinnar (dæmi: Leik- skólinn, Tinni og hákarlavatnið; það síðarnefnda hefur raunar víðtæka skir- skotun). En I „barnaljóðunum” notar skáldið stundum einfaldar setningar sem skreppa út úr krökkum. Börnin eru að vísu full af skáldskap — en sá skáldskapur er ómeðvitaður. Er hann listaverk fremur en tréð áður en máluð er mynd af þvi? — Hvað sem því liður koma barnatextar Jóhanns vel fyrir I samhengi Ijóða hans. Stytztur er þessi sem ber yfirskriftina: Haustmorgunn I Vesturbænum.skáldið fimm ára. Hann hljóðar svo: Sérðu hvað trén eru tómleg. Og annað Ijóð af líku tagi: Fimm ára stelpa horfir út i garðinn á regnmorgni I október: Laufin eru úti i rigningu. Það er ekkert gott á þau. Þau eru næstum því farin að gráta. Frásagnarljóð héðan og handan 1 þessari bók er einnig að finna frá- sagnarljóð áþekk þeim sem Jóhann hefur áður ort:‘ í Hulduhólum, Lik- kistusmiðurinn. Svo eru bein prósa- Ijóð: Einn (um Einar Benediktsson) og Ferð. Ljóðið um Einar er raunar fremur hugleiðing. I þvi er engin póesía nema að Ijóðmyndir Einars hafi orðiö fuglar með mikið vænghaf. — Hér er eins og Jóhann skorti persónu- lega návist við yrkisefnið og það má einnig sjá í Ijóðum hans frá útlöndum. Þau verða stundum einungis myndir án skírskotunar út fyrir sjálfar sig. En maðurinn verður að vera með í mynd- inni til að hún lifi. Það gerir myndin í Ferd, næmlegur og einfaldur texti. Jóhann hefur náð i ljóðið einhverju af kyrrð gömlu Akureyrar. Hún gæti áreiðanlega orðið honum efni i Ijóða- flokk. Lokaður heimur Víst eru þessi Ijóð Jóhanns Hjálmars- sonar ekki tilþrifamikil. Það einkenni blasir fyrst við augum. En þau eru alveg raunsannur skáldskapur eigi að siður. Einungis eru þau ekki dýna- misk: i máli sinu og myndum hvila þau kyrr, þar fara ekki fram nein átök. Að því leyti eru þau ólík mörgu af því sem kennt er við módernisma i skáldskap. Það viðhorf að búa til luktan heim eins og kyrrlátt málverk — það er fremur i ætt við klassiskan skoðunar- hátt. 1 síðasta Ijóði bókarinnar fljúga mávarnir inn í Ijóðið og breytast i mynd. „Þegar skáldið hefur skrifað: /Stormur, mávur, strönd er Ijóðið full- komnað". — Slíkt Ijóð verður kannski ekki ágengt við lesandann en það fylgir honum eins og viðfelldinn hug- blær. Það hygg ég að eigi við um beztu Ijóð Jóhanns Hjálmarssonar. Bók menntir v Tjáningarfrelsi er ein meginforsenda þess aó frelsi geti viðhaldist í samfélagi ENDURSKINS- MERKi ERU NAUÐSYNLEC FYRIR ALLA UMFERÐARRÁÐ

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.