Dagblaðið - 14.12.1978, Síða 32

Dagblaðið - 14.12.1978, Síða 32
Niðurgreiðslurnar: Smjörkflóið kostar í raun 3037 krónur — nærri helmingur dilkakjötverðsins greiddur „undir borðið” Neytendur borga í sumum tilvikum meira „undir borðið” i niðurgreiðslum en þeir rétta kaupmanninum yfir borð- ið, þegar þeir kaupa landbúnaöaraf- urðir. Niðurgreiðslumar voru auknar með desemberráðstöfunum ríkis- stjórnarinnar. Þetta eru orðnir stórir póstar á flestum vörunum, sem neyt- endur greiða i skattinum sinum. bannig kostar nú kílóið af dilkakjöti 1. flokks I heílúm skrokkum 832 krón- ur. Niðurgreiðslurnar nema nærri jafnhárri upphæð, 774 krónum. Eins og i öðrum tilvikum fara niðurgreiðsl- urnar i að borga milliliðakostnað og mikill hluti kemur til bóndans. t þessu tilviki fær bóndinn til dæmis um 1153 krónur fyrir kílóiðaf dilkakjötinu. Enn merkilegra er dæmið um smjör- ið. Kíló af smjöri kostar 1150 krónur i búð. Niðurgreiðslurnar nema hærri upphæð eða 1887 krónum á kilóið. Þá er kartöfludæmið merkilegt. Búðarverðið er um 104 krónur kílóið en niðurgreiðslurnar 135 krónur fyrir hvert kíló. t rauninni eru neytendur að borga 1606 krónur fyrir hvert kíló dilkakjöts í heilum skrokkum, 3037 krónur fyrir smjörkílóið og 239 krónur fyrir kiló af kartöflum ogsvo framvegis. Mjólkurlítrinn kostar i búð 135 krónur og niðurgreiðslan er 111 krónur, þannig að litrinn kostar i raun 246 krónur. Kiló af ungnautakjöti kostar í búð 1062 krónur, og niðurgreiðslan er 518 krónur eða samtals 1580 krónur. 45% ostur kostar 1839 krónur kíló- ið, brytjaður, og niðurgreiðslan er 272 krónur, samtals 2111 krónur. 30% ostur kostar i búð 1602 krónur, brytj- aður, og niðurgreiðslan nemur 135 krónum, samtals 1737 krónur. -HH Srfálst, nháð dagblað FIMMTUDAGUR 14. DES. 1978, Þorláksmessu ber upp álaugardag: Verður opið í ríkinu? 60% hækkun á áfengi á rúmum 11 mánuðum 1500 manns mót- mæla raforkuverði — Rangæingar afhenda ráðherra mótmælin ídag Hátt i 1500 manns í Rangárvalla- sýslu hafa undirritað mótmælaskjal gegn of háu rafmagnsverði Rafmagns-, veitna ríkisins á veitusvæðinu. Hefur undirskriftalistunum verið safnað saman og verða þeir í dag afhentir samgönguráðherra og þingmönnum Suðurlandsá Alþingi. Með undirskriftasöfnuninni, sem nokkrir nienn á Hvolsvelli hafa staðið fyrir, vilja ibúar sýslunnar vekja at- hygli á því mikla misrétti, sem þeir telja sig beitta með háu rafmagnsverði Rarik. Með undirskriftalistunum í dag fylgja greinargerðir og rökstuðningur málflutnings undirskriftamanna. Sýslunefnd Rangæinga samþykkti á fundi sínum nýlega harðorð mótmæli gegn rafmagnsverðinu og þeim mis- mun, sem á þvi er eftir byggðarlögum. ÓV. Þrír smábrunar —* íkveikja f einu tilfelli? Slökkviliðið var þrívegis kvatt ú( í legar. Þá hafði verið kveikt í krakka gær en i öllum tilfellum var um smá- skúr við Sólheima, og loks kl. 22.03 vægilegan bruna að ræða. Á sjötta var slökkvilið kvatt að Bragagötu timanum í gær kom uppeldur i bílskúr 25A. en'þar var eldur í skúrbyggingu að Logalandi 24. Þar hafði rúmdýna áfastri við íbúðarhúsið. Tókst fljótlega legið upp við Ijósaperu og kviknað að slökkva eldinn án þess að hann eldur af þeim sökum. Greiðlega gekk breiddist frekar út. Talið var að um að slökkva og skemmdir urðu óveru- ikveikju hefði veriðaðræða. -GAJ Sigfús Halldórsson, það sikáta tónskáld, hefur hér hrugðið sér I gervijólasveins dagsins og við þykjumst vissir um að hann taki það ekki illa uppþótt við ne/hum hann Stúf Sigfús hefur satt að segja ástœðu til þess að brosa, hljómplötuútgáfumar keppast um að gefa út hljómplötur með lögum hans og er ekki vitað annað en þeim sé vel tekið, enda Sigfúsfyrir löngu orðinn „klassískur". DB-mynd RTH ^ ' * [ /Ið setja markið hátt ] Metnaður manna er mismunandi, en þessi skemmtilega mynd Ragnars af Bryndisi i Vinnufatabúðinni i lðnaðar- húsinu gefur þú tilefni til um- hugsunar. Ragnar er tiltölulega fram- bærilegur maður svo ekki höldum við að Bryndis hafi verið að fela sig í buxunum þeim arna, en komumst helzt að þeirri niðurstöðu að hún hafi sett markið hátt og ætli að vaxa út i bux- urnar. Með þvi móti verður hún örugg- iega i fréttum næstu árin og Dagblgðið mun birta mynd af hcnni, þegar tak- markinu cr náð. - HP „Það verður tekin um þetta ákvörðun í næstu viku, en ég vil ekki tjá mig um það, hvort opið verður eða ekki," sagði Jón Kjartansson, forstjóri Áfengisverzl- unarinnar i viðtali við Dagblaðið, en til tals hefur komið, að hafa útsölur Áfengisverzlunarinnar opnar á Þorláks- messu, eins og verið hefur. Hins vegar ber Þorláksmessu upp á laugardag og verður þvi sérstaklega fjallað um málið i dómsmálaráðuneytinu. „Það er rétt, sala á áfengi hefur stór- lega dregizt saman á þessu ári,” sagði Jón Kjartansson ennfremur. „II mánuði þessa árs hefur verið selt áfengi fyrir 6.046.124 milljarða, en á öllu árinu í fyrra var selt áfengi fyrir 4.141.950 milljarða. Þá varð verðhækkun á áfengi síðast í desembermánuði, síðasta mán- uði ársins, 20%, en á þessu ári hafa orðið tvær hækkanir, og verð á áfengi hækkað um 60% i heild á þessum 11 mánuðum." Gárungarnir segja, að með þvi að hafa opið á Þorláksmessu, sem nú ber upp á laugardag, sé verið að reyna að hala inn fé i ríkiskassann og jafnvel fari svo, að Ríkið fari inn á kvöldsölumark aðinn! — Eða jafnvel tilboðsverð og heimsendingar! - HP Alvarlegt slys á Laugavegi: Konu sem sá slysið vantar nú Laust eftir kl. 10 í gærmorgun var lög- reglan kölluð að Laugavegi 178 vegna umferðarslyss sem þar hafði orðið. Er lögreglan kom á staðinn lá kona við strætisvagnabiðstöðina norðan götunn- ar. Konan var flutt á slysadeildina mikið meidd, m.a. mjaðmargrindarbrotin. Kon- an sagðist hafa orðið fyrir vagni nr. 5 á vesturleið en vagnstjórinn á þeim bil kannast ekki við að hafa orðið var við neitt slíkt. Um frekari tildrög slyssins er ekki vitað en slysarannsóknadeild lög- reglunnar telur mjög þýðingarmikið að kona sem varð vitni að slysinu gefi sig fram. -GAJ

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.