Dagblaðið - 28.12.1978, Blaðsíða 13
12
DAGBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1978
DAGBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1978
13
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
r — Félagar úr Stjörnunni settu
íslandsmet í maraþonknattspymu
sá nýtt íslandsmet dagsins Ijós i dagsins Ijós og þaó voru þreyttir
vnknattspyrnu. Félagar úr Stjörnumenn er héldu heim á leió,
jnni I Garðabæ settu íslandsmet I svefnþurfi.
mknattspyrnu. Þeir léku frá kl.
'iöjudag kl. 01.01 á miðvikudags- „Ég held aö enginn okkar geri þetta
. Þá haföi nýtt íslandsmet litió aftur. Við jöfnum okkur á þessu, en
^^ þetta varorðiðgifurlegaerfitt í restina,”
■RVfllí | sagði Jóhannes Sveinbjörnsson, for-
H ' mj maður knatlspyrnudeildar Stjörnunnar,
_ eftír að íslandsmetið hafði vcriðsctt.
Markmið maraþonknattspyrnunnar
var fjáröflun og það tókst. Stjarnan fékk
liðlega milljón í sinn hlut.
Þreyttir félagar en þeir geta verið ánægöir. Nýtt tslandsmet leit dagsins Ijós. DB-
mynd Bjarnleifur.
Nú á að stilla saman
strengi Víkinganna
— Sex Víkingar í íslenzka landsliðinu er mætir Bandaríkjamönnum í kvöld
Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari islenzka
landsliðsins, ætlar greinilega að rcyna að stilla
i saman strengi Vikinganna gegn Bandaríkja-
mönnum í Laugardalshöll I kvöld. Hann hefur
valið sex Víkinga i islenzka landsliðið. Það er
greinilegt hvað landsliðsþjálfarinn ungi ætlar
1 sér, Vlkingar hafa æft stift leikkerfi undir
stjórn hins pólska þjálfara sins, og sjálfsagt er
1 aö reyna að nýta samæfingu Vikinganna.
Jóhann Ingi valdi Erlend Hermannsson,
hinn snjalla og ört vaxandi hornamann Vik-
ings, gegn Bandarikjamönnum í kvöld. Er-
lendur hefur verið í stöðugri framför í vetur,
vaxið með hverjum leik og því kemur ekki á
óvart að hann skuli valinn. En islenzka liðið er
mætir Bandarikjamönnum er skipað:
Markverðir:
Ólafur Bencdiktsson, Val
Jens Einarsson, ÍR
Aðrir leikmenn eru:
Árni Indriðason, Víking, fyrirliði
Páll Björgvinsson, Víking
Sigurður Gunnarsson, Viking
Ólafur Jónsson, Viking
ViggóSigurðsson, Viking
Erlendur Hermannsson, Viking
Ólafur H. Jónsson, Dankersen
Axel Axelsson, Dankersen
Stefán Gunnarsson, Val
Þorbjörn Guðmundsson, Val
Íslenzka landsliðið hefur að undanförnu æft
vel saman undir stjórn Jóhanns Inga, og þó
auðvitað sé enn of snemmt að dæma. Þá
verður fróðlegt að sjá hvernig íslenzka liðinu
tekst upp í kvöld. Þeir Axel Axelsson og
Ólafur H. Jónsson frá Dankersen leika og stór
hlutverk ef að likum lætur. Þaðsem þóskiptir
mestu, er að allir íslenzku leikmennirnir koma
óþreyttir til leiks — ekki eins og í viðureignun
um við Dani er leikmenn komu víðs vegar að
úr Evrópu á elleftu stundu, enda útkoman í
samræmi við það. íslenzka landsliðið er sterkt
á pappirnum, og ætti að ná vel saman. Vík
ingur og Valur hafa í vetur sannað okkur. svo
ekki verður um villzt, að þau standa liðum frá
Þeir verða i sviðsljósinu I kvöld. Sigurður Gunnarsson gnæfir yfir vörn Vais i viðureign liðanna í|
íslandsmótinu og Árni fyrirliði Indriðason fylgist með en þeir Þorbjörn Guðmundsson, Stefán ]
Gunnarsson og Steindór Gunnarsson eru til varnar.
Norðurlöndum fyllilega á sporði og vel það.
Víkingur i átta liða úrslitum Evrópukeppni
bikarhafa — eitt liða af Norðurlöndum.
Það vekur athygli að Bjarni Guðmundsson
er ekki i islenzka liðinu í kvöld en hann er
veikur og því frá. Ein af lexíunum, sem mátti
læra af viðureignum Islands og Dana var hve
leikmenn eins og Ólafur Einarsson eru mikil
vægir hverju liði. Þegar leikkerfin ganga ekki
upp hefur Ólafur Einarsson verið félagi sínu
hvaðdrýgstur i vetur. Viðureign íslendingaog
|Bandarikjamanna hefst í Höllinni kl. 20.30.
KEEGAN - KNATTSPYRNU-
MADUR EVRÓPU1979
„Stórkostlegt, stórkostlegt. Kevin Keegan á
þennan hciður skilinn. Hann hefur stórkost-
lega hæfilcika og það sem ekki er siðra, viljann
til að bæta sig,” sagði Bill Shankiy, fyrrum
framkvæmdastjóri Livcrpool 1 viötali við BBC
er hann frétti að Kevin Kcegan hefði verið
kosinn knattspyrnumaöur Evrópu 1978.
Kevin Keegan, litli Englendingurinn hjá v
þýzka liðinu Hamburger SV, var á þriðjudag
kosinn knattspyrnumaður Evrópu 1978. Þetta
var vinsælt val, fagnað víðs vegar um Evrópu.
Kevin Keegan var á undan Hans Kranki,
Barcelona, og Robbie Rensenbrink, Ander
lecht. í fyrra varð Kevin Kcegan annar i kosn
ingunni um þetta sæmdarheiti, á eftir Danan
um AllanSimonsen.
1 fyrsta sinn i 10 ár var brezkur knatt
spyrnumaður kosinn en George Best. Man
chester United, var þá á hátindi ferils sins, og
var kosinn knattspyrnumaður Evrópu. Siðan
hefur brezk knattspyrna ekki verið svo mjög í
sviðsljósinu en valið á Kevin Keegan undir-
strikar sókn enska landsliðsins. Þar leikur
Keegan lykilhlutverk. Kevin Keegan kostaði
Hamburger SV 500 þúsund pund er félagið
kcypti litla Englendinginn frá Liverpool. i dag
gæti Hamburger fengið svimandi upphæðir
fyrir Keegan, en aðsjálfsögðu vill Hamburger
ekki selja. Keegan hefur í vetur verið maður
inn á bak við velgengni Hamburger í þýzku
Bundeslígunni. Hamburger er nú í öðru sæti,
aðeins stigi á eftir Kaiserslautern. en engu að
síður veðja flestir á að Hamburger SV hreppi
meistaratign. Keegan er nánast allt i öllu hjá
Hamburger, og það sannaði hann áþreifan
lega um helgina er Hamburger sigraði
Armenia Bielefeld, 3-1,1 Hamborg. Þáskoraði
Keegan öll þrjú mörk Hamburger, fyrstu'
þrennu sina i v-þýzkri knattspyrnu. Að visu
hefur Keegan ekki skorað mörg mörk fyrir
Hamburger, þess i stað haldið öllu spili gang-
andi.
Keegan lék 230 leiki fyrir Liverpool og
skoraði 68 mörk. Áreiðanlega beztu kaup. sem
Bill Shankly, framkvæmdastjóri Liverpool,
gerði er hann keypti Keegan, fyrir aðeins 35
þúsund pund frá Scunthorpe. Þar lék Keegan
120 leiki. skoraði 18 mörk. Hann er sjálf
sagður i enska landsliðið. hefur átt snilldar
leiki fyrir England, rétt eins og félag sitt, Harn-
burger SV. Val Keegan er á engan hátt um
deilt, þrátt fyrir að úrslitakeppni HM hafi
farið fram i Argentinu án þess að Keegan og
enska landsliðið lékju þar. Það sannar öðru
fremur hve mikill yfirburðamaður Kevin
Keegan er. Hann hafði ávallt hæfileikann og
það sem skipti meiru, viljann til að ná toppin
um — til þess hefur Kevin Keegan lagt
gifurlega mikið á sig og er á allan hátt ungum
leikmönnum fyrirmynd. að skapgerð og hæfi-
leikum.
Að lokum skulum við láta fylgja lista yfir
þá er hafa hlotið nafnbótina knattspyrnu-
maður ársins, valdir af íþróttafréttamönnum.
en valið fór fyrst fram 1956.
1956 Stanley Matthews, Blackpool
1957 AlfredodiStefano, Real Madrid
1958 Raymond Kopa, Real Madrid
1959 Alfredodi Stefano, Real Madrid
1960 LuisSuarez. Barcelona
1961 OmarSivori. Juventus
1962 Josef Masopust, Dukla Prag
1963 Lev Yashin. DynamoMoskvu
1964 Denis Law, Manchester United
1965 Siva Eusebio. Benfica
1966 Bobby Charlton. Manchester United
1967 Florian A Ibert, Ferenvaros
1968 George Best, Manchester United
1969 Gianni Rivera, AC Milanó
1970 Gerd Muller, Bayern Munchen
1971 JohanCruyff, Ajax
1972 Franz Beckenbauer, Bayern Munchen
1973 Johan Cruyff, Barcelona
1974 JohanCruyff. Barcelona
1975 Oleg Blokhin, Dynamo Kiev
1976 Franz Beckenbauer. Bayern Munchen
1977 Allan Simonsen, Borussia Mönchen
gladbach
1978 Kevin Keegan. HamburgerSV
Renate Neufeld ásakaði a-þýzk yfirvöld
fyrir að þvinga a-þýzkt íþróttafólk til að taka
hormónalyf. Renate Neufeld flúði A-Þýzka-
land 1977 en i yfirlýsingu i gær sakaði hún a-
þýzk íþróttayfirvöld fyrir að þvinga niður i sig (
hormónalyf. Neufeld var i a-þýzka liðinu er
æfði fyrir Olympiuleikana 1980.
í yfirlýsingu sinni, gefinni út í gær, sagði
hún að henni hafi verið fengnar hormóna-
töflur sem höfðu verki í för með sér. Hún
sagði að skömmu eftir að hún hóf að taka
pillurnar þá hafi fætur hennar vaxið, vöðvar
harðnað, svo hún átti i erfiðleikum með gang.
Rödd hennar hafi dýpkað, hárvöxtur á efri
vör hafi hafizt og tíðir orðið óreglulegar. Þeg-
ar þessar verkanir hófust hafi hún neitað að
taka fleiri pillur. Þetta hafi komið henni í
bobba, hún hafi fengið hótanir og ákveðið að
flýja. Neufeld sagðist ekki hafa sagt frá þessu
fyrr þar sem hún óttaðist að ættingjar hennar
yrðu ofsóttir. Nú hafi föður hennar hins vegar
verið sagt upp starfi, sem kennara og systir
hennar, er leikið hefur handknattleik og verið
efnileg, verið neydd úr félaginu.
Neufeld tók sýnishorn af pillum þeim er
hún var þvinguð til að taka. Þegar hún neitaði
að taka pillurnar eftir að aukaverkanir komu
fram fékk hún ekki lengur fé fyrir æfingar,
„það var bara viðvörun. Ef ég héldi áfram þá
átti ég að enda sem skúringakona i verksmiðju
eða í bezta falli á bak við eitthvert
færibandið,” sagði Neufeld ennfremur 1
tilkynningu sinni.
BESTU KAUPIN í LITSJÓNVARPSTÆKJUM
.
1 -
sr
Fyrstir á íslandi með eftirtaldar nýjungar:
H OBC In Line myndlampinn frá Hitachi er nýjung sem
gefur bjartari og skarpari mynd.
01 Sjálfvirkur stöðvaleitari, með minni fyrir 16 rásir.
H Straumtaka í lágmarki, 75 wött á 20 tommur, 95 wött
á 22 og 26 tommur, sem gerir FINLUX kerfið það
kaldasta á markaðnum.
11 Samskonar einingarverk er í öllum stærðum, sem
auðveldar alla þjónustu.
L/ Hægt er að fá þráðlausa (Infra Red) fjarstýringu fyrir
allar gerðir (einnig eftir á).
Öll FINLUX litsjónvarpstækin hafa verið reynd í 24 tíma í verksm.
og eru eingöngu í viðarkassa (Palisander, Hnotu eða hvítu).
20" kr. 398.000.-
22" kr. 480.000.-
26" kr. 525.000.-
SJÓNVARPSBÚDIN
BORGARTÚN118 REYKJAVÍK SÍMI27099
]
, ...
rlil
ínhix
AÐRIR ÚTSÖUSTAÐIR:
Reykjavik: Radió & Sjónvarpsverkst. Laugav.147
Grindavik: Versl. Báran
Selfoss: Höfn h/f.
Vestmannaeyjan Kjarni s/f.
Höfn Hornafirði: K.A.S.K
Stöðvarfjörður: Kaupfélag Stöófiróinga
Eskifjöróur: Versl. Elisar Guónas.
Seyðisfjörðun Stálbúóin
Egilstaóin Rafeind
Vopnafjörður Versl. Ólafs Antonssonar
Húsavik: Kaupfél. Þingeýinga
Akureyrí: Vöruhús K.E.A.
Dalvik: Ú.K.E
Ólafsfjörður: Valberg h/f.
Ólafsfjörður: Kaupfélagió
Siglufjöröur: Ú.K.E.
Sauðárkrókun Kaupfél. Skagfiróinga
Blönduós: Kaupfél. Húnvetninga
Hvammstangi: Kaupfél. V Húnvetninga
Hólmavik: Risverslunin
Bolungarvik: Radióv. Jóns B. Haukssonar
Tálknarfjörður: Kaupfél. Tálknafjaröar
Ólafsvik:Tómas Guðmundsson
í'