Dagblaðið - 28.12.1978, Blaðsíða 1
4. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 28 DESEMBER 1978 - 290. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI 27022.
Enn þverrandi vatnsmagn í hitaveituholum Blönduósinga:
HITA VEITAN NOTAR
OLÍUKYNDINGU {
tilað hita uppvatn
semávantar
Nú er svo komið að Hitaveita
Biönduóss er orðinn olíukaupandi þar
sem hún verður að oliukynda nokkur
stærstu hús staðarins í kjölfar þverr-
andi vatnsmagns í annarri heitavatns-
holunni. Hefur það minnkað úr 36
sek/lítrum frá því í september 77
niður i 23 í nóvember sl., og hafði þá
minnkað um 4 síðan í ágúst. Hin
holan er mjög afkastalitil og skiptir því
ekki máli i heildarmyndinni.
Að sögn Eyþórs Elíassonar, sveitar-
stjóra, í viðtali við DB í gær, hefur tek-
izt að útvega bæjarbúum nægilegt
heitt vatn með því að tengja aftur olíu-
kerfi i nokkrum stærstu húsum bæjar-
ins og kynda þau með olíu. Neytendur
þar greiða sama verð fyrir hitann og
hefðu þeir hitaveitu.
Sveitarfélagið hefur nýlega óskað
eftir þvi við iðnaðarráðuneytið að það
láti rannsaka hvað veldur samdrættin-
um, en niðurstöður liggja ekki enn
fyrir.
Þá er einnig fyrirhugað að bora nýja
holu á svipuðum slóðum og hinar, en
mun dýpri. En óvíst er hvenær af þvi
getur orðið. Binda Blönduósingar
vonir við að geta fengið jarðborinn.
sem nú er að bora að Laugalandi i
Eyjafirði, en með öllu er óljóst hvenær
verkefni hans verður lokið þar.
- GS
„Svefnbæir” Reykjavíkur fá jólagjöfina:
TRYGGINGABÓTA-
ÚTSVARISLEPPT
— af sláttur á f asteignagjöld
Mosfellshreppur nýtir aðeins 0,375%
af fasteignamati til álagningar fasteigna-
skatts af íbúðarhúsnæði þegna sinna.
Þetta er 25% afsláttur af hinu leyfða
0,5% marki, sem víðast er nýtt til fulls.
Tillögur hreppsnefndarmanna Sjálf-
stæðisflokks voru samþykktar einróma i
hreppsnefndinni sl. miðvikudag. Þetta
þýðir um 20 milljóna króna afslátt frá
þvi, sem heimilt var að leggja á.
Þá var samþykkt að taka tillit til
námsmanna og aldraðra, meðal annars
þannig að ekki verður lagt útsvar á
bætur almannatrygginga svo sem ellilif-
eyri.
Samtals þýðir þetta í raun 85—86
milljón króna lægri gjöld en lög heimila,
eða um 100 þúsund krónur á hvern
gjaldþegn að meðaltali.
Eins og DB hefur skýrt frá hefur
bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar ákveðið
að miða útsvarsálagningu við 10% i stað
11 oge.t.v. 12% heimild i lögum. Þá var
einnig ákveðið að veita 19% afslátt af
fasteignagjöldum frá þvi sem lög heimila
miðað við hið nýja fasteignamat. Stuð-
ullinn þarer0,41 istað0,5% heimildar.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur
ákveðið að veita 10% afslátt af fast-
eignagjöldum íbúðarhúsnæðis frá þvi
sem lög heimila mest. Er þannig stuðzt
við0,45% stuðul i stað0,5%.
Ekki hefur fengizt staðfesting á því,
að Garðabær ákveði frávik til lækkunar,
eitthvað hliðstætt því sem að ofan er
greint. Vist er þó að það er íhugað i fullri
alvöru.
- BS
Eldur í bát við Grandagarð
Um kl. 1.55 i nótt kom upp eldur i
bátnum Stefáni Kristjánssyni SH við
Grandagarð. Þegar slökkviliðið kom á
staðinn stóð eldur út um glugga á
brúnni. Slökkviliðið réðst þegar gegn
eldinum með háþrýstiúða og gekk
mjög vel að slökkva en talsverðar
skemmdir urðu á brúnni. Grunur
leikur á að um íkveikju hafi verið að
ræða þar sem farið hafði verið í lyfja-
kassa um borð í bátnum.
Þá var slökkviliðið einnig kallað að
Snorrabraut 56 kl. 21.25 i gærkvöldi.
Þar hafði verið kveikt i rusli fyrir utan
húsið en slökkviliðið fékk slökkt eld-
inn áður en hann næði að valda tjóni,
og loks var slökkviliðið kallað að kjöt-
búðinni Borg að Laugavegi 78 og var
þar mikill reykur er reyndist vera frá
Reykofni. -GAJ
Dregið í Jólagetraun DB 78:
15 ára piltur
hlaut tækið
— rúmlega 4000 lausnir bárust
— þátttakan aldrei meiri
Það var æsispennandi þegar dregið
var úr meira en fjögur þúsund lausnum í
jólagetraun Dagblaðsins 1978. Þátttaka
í jólagetraun blaðsins hefur aldrei verið
meiri — alls bárust fyrir drátt 4.162
lausnir.
Hinn heppni varð 15 ára piltur úr
Breiðholti, Kristján Geir Ólafsson,
Blöndubakka 20, R. Hann fær i verð-
laun glæsilegt Philips N-1700 mynd-
segulbandstæki, sem kostar úr búð
804.400 krónur.
Þrátt fyrir itrekaðar tilraunir frá því
um helgi hefur DB ekki tekizt að ná sam-
bandi við Kristján Geir. Okkur þætti
vænt um að heyra frá honum — og
óskum honum innilega til hamingju.