Dagblaðið - 03.01.1979, Page 1

Dagblaðið - 03.01.1979, Page 1
I t 5. ÁRG. - MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1979 — 2. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI27022. Heim úr jólaferðinni til Kanarí: DRYKKJULÆTIFARÞEGANNA TÖFÐU FLUGTAK UM 2 TÍMA Flugstjóri Boeing Flugleiðaþotu frestaði flugtaki um tvær klukku- stundir á Kanarieyjum sl. föstudag þar sem hann taldi ekkert öryggi í að hefja flug með tilliti til ástands verulegs hluta farþeganna. Voru þeir drukknir og baldnir. —einn brenndi f lugf reyju á læri með logandi sfgarettu Gekk ruddaskapur þeirra svo langt, að einn rak sigarettu upp undir pilsfald einnar flugfreyjunnar og brenndi hana á læri. Eftir tveggja stunda bið og mikið kaffi og gosþamb óróaseggjanna, vín var ekki á boðstólum, var nægilega af þeim runnið svo óhætt var að leggja upp. Þota millilenti á Gatwick og las flugstjórinn óróaseggjunum pistilinn er hann ók upp að flugstöðvarbygging- unni, sem þeir tóku til greina. Það var ekki fyrr en eftir flugtak þaðan að betri hluti farþeganna fékk þær veit- ingar, sem beðið var um. Að sögn far- jrega tók saklaust fólk þessari ákvörðun flugstjórans vel, þótt það yrði fyrir nokkrum óþægindum af bið inni. Blaðið hefur fengið þessa sögu stað- festa hjá einum flugliða í umræddri ferð. Flugstjórinn, sem tók ákvörðun um biðina heitir Skúli Magnússon. - GS Ástandið að færast f eðlilegt horf —snjókomu spáð á Norðurlandi og skaf renningi sunnanlands \ 1 • 1 i - j ■ : ' - ■■ .... ! IT - Þannig var umhorfs á Seltjarnarnesi i gær. Utlit er fyrir áframhaldandi skafrenning sunnanlands. Allt tiltækt lið var við mokstur i Reykjavik frá kl. 3 i nótt. Að sögn Atla Ágústssonar hjá Vélamiðstöð Reykja- vikurborgar skapaði skafrenningurinn í nótt nokkra erfiðleika en nú ætti að vera orðið fært um allan bæ. 1 nágrannabæj- unum var svipaða sögu að segja. Aðal- göturnar eru færar en aðrar varasamar. Hjá Vegaeftirliti ríkisins fengust þær upplýsingar I morgun, að fært væri austur yfir fjall og vegir á Suðumesjum að verða færir. Norðan Holtavörðuheiðar er fært allt til Akureyrar og ætlunin var að moka Holtavörðuheiði i dag. Á Aust- fjörðum er mokstur einnig I fullum gangi og ætlunin er að moka frá Reyðar- firði allt til Djúpavogs og þegar hefur verið mokað á milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða. Gert er ráð fyrir áframhaldandi norð- DB-mynd Ragnar Th. Sig. anátt á landinu með éljaveðri og snjó- komu á Norðurlandi en björtu veðri sunnanlands þó viða sé gert ráð fyrir skafrenningi. GAJ- Vinningshafamir úr heimilisbókhaldi Neytendasíðunnar í síðasta drœtti voru ung hjón, sem bæði eru við nám. Þau fengu rúmlega 40 þúsund krónur í sinn hlut. Góður jólaglaðningur það! Gulrótasalat með ýsunni! Sjá Neytendasíðuna, bls. 4. Snjómoksturinn kostar 4 milljónir á dag — sjábls. 5 Stendur kviknakin f rammi fyrirgestum í sjálfsmorðssenu — brezkur gestaleikf lokkur með fjórar sýningar í Norræna húsinu — sjá bls. 5 íKristjaníu — sjá erlendar f réttir bls. 6 og 7 Efóperusöng- urinn klikkar, ferégaftur íketikogplötu- smíðina — sjá bráðskemmti- legtviðtal við Kristján Jóhannsson á Akureyri, sem nú freistarsöng- frægðarútiíhinum stóra heimi — sjábls.8 Hljómplötu- framleiðslan færistheim — stofna verksmiðju til að pressa hljómplötur ^ — sjábls.9 Allir bíleigendur ættu að eiga keðjur. En hvar fást þær? Sjá Neytendasíðuna, bls. 4.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.