Dagblaðið - 03.01.1979, Side 3

Dagblaðið - 03.01.1979, Side 3
i DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1979. 3 Prestskosningaraar í Reykholti: SPEGILMYND AF AF- STÖDU ÞJÓDAMNNAR? Austfjarðaþokan skrifar: Fyrir nokkru fóru fram prests- kosningar i Reykholtsprestakalli. Einn klerkur var í framboði. Rúmlega 300 hræður voru á kjörskrá. Um helmingur þeirra braut odd af sinu of- læti og kaus. Presturinn hlaut ekki mörg atkvæði en eigi að siður er at- kvæðafjöldinn merkilegur — 12 at- kvæði — heilög tala. Mig rak í rogastanz er ég heyrð þessar fréttir. Reykhyltingar hafa orðið sér til þjóðarskammar. Ekki aðeins vegna ókurteisi og siðleysis, heldur hafa þeir opinberlega dregið dár að kristinni trú og fulltrúa kristinnar kirkju sem biskupinn hefur sérstaklega vígt til slíkra starfa. Þar með hefur ibúum Reykholts- prestakalls svo rækilega tekizt að brjóta 125. grein hegningarlaganna að ekki verður um villzt, en hún hljóðar svo. „Hver sem opinberlega dregur dár að eða smánar trúarkenningar eða guðsdýrkun löglegs trúarbragðafélags. sem er hér á landi skal sæta sektum eða varðhaldi....” Ekki er það nú ætlun mín að lögsækja það annars ágæta fólk, sem i fyrrnefndu presta- kalli býr, því ber að fyrirgefa, það vissi ekki hvað það gerði. Samt sem áður er ástæða til að staldra við og huga að hvar islenzka þjóðin er stödd trúarlega. Aðeins 12 vilja prest af 300 sem telja sig kristna (eða 4%). Þetta hlutfall getur verið góð spegilmynd af afstöðu fólks til kristinnar trúar. Á þeini stöðum. þar sem frambjóðendur fá meira magn. er i flestum tilvikum harðri kosningabar- áttu að þakka, fjölskyldutengslum frambjóðenda eða lýðskrumi. Það er hneisa að ríkið skuli greiða nokkur hundruð milljóna króna í laun- presta á ári á sama tíma og fjöldinn F.itt af fegurstu kirkjuhúsum landsins, Háteigskirkja i Reykjavik. Bréfritari telur, aö útrcið sú sem umsækjandi cinn fékk i prestskosningum i Reykholti i Borgarfirði, endurspcgli afstöðu islcnzku þjóðarinnar til kirkjunnar. kærirsigekkert um það. Rikiogkirkja af hvítflibbamönnum i landinu. geta því sjálfir ráðið sér klerk og greitt eiga að vera aðskilin. Við höfum nóg Postularnir 12 í Reykholtsprestakalli allan kostnaðvegna hans sjálfir. Spurning dagsins Sástu áramótaskaup sjónvarpsins? Þórir Rúnarsson: Já. Mér fannst sum atriðin léleg en önnur góð. Bezta atriðið þótti mér þegar Ólafur Ragnar Grims- son var i baðinu. Haraldur Magnússon: Já. Ég sá skaupið og þótti mér það lélegt og lélegra en und- anfarin ár. Mér fannst ekkert atriði öðru betra. Jón T. Guðmundsson: Já. Mér þótti það heldur lélegt og eiginlega ekkert atriði öðru skárra. Flugeldar fyrir 100 milljónir — aðstoð við þróunarlöndin 50 milljónir Móðir hringdi og sagðist vilja vekja athygli á því að Íslendingar hefðu um þessi áramót keypt flugelda og blys fyrir um 100 milljónir á meðan aðstoð Íslendinga við þróunarlöndin næmi ekki nema um 50 milljónum. Þetta væri talandi dæmi um hvernig íslend- ingar tækju alltaf stundargaman fram yfir það að sýna ábyrgð gagnvart sveltandi meðbræðrum sínum víða um heim. E.t.v. væri þetta ekki bezta dæmið, af nógu væri að taka, en hún sagðist hafa heyrt Harald Ólafsson lektor nefna þessar tölur í umræðu- þætti um mannréttindi í útvarpinu. Magnús Kjartansson fyrrverandi ráð- herra hafði þá strax sagt eitthvað á þá leið að ekki væri ástæða til að amast við flugeldunum. Þetta fannst henni dæmigert fyrir það að menn hefðu uppi fögur orð um aðstoð við með- bræður sína i heiminum, en strax og eitthvað væri nefnt sem spara mætti hér heima þá væri vonlaust að ná um það samstöðu og við horfðum í þess stað aðgerðalausir á meðbræður okkar svelta. í> íslenzk æska unir sér áhyggjulaus við stjörnuljós meðan jafnaldrar hennar svelta um allan heim. Anna Hansdóttir: Já. Mér fannst það einum of vitlaust. Skást fannst mér tizkusýningin. Karl ísleifsson: 1 i. Mér lannst það ömurlega lélcgt. ■ ..ngská ta atriðið var Flosi i peysufötuiium. Kristinn Atlason: Já. Mér fannst það ósköp lélegt nema Flosi var góður. Mér finnst að hann ætti að vera áfram i peysufötunum.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.