Dagblaðið - 03.01.1979, Side 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1979.
9
Stof na verksmiðju til
að pressa hljómplötur
— getur annað öllum innanlandsmarkaðinum
Stofnað hefur verið plötupressunar-
fyrirtæki á fslandi og er því ætlað að
hefja starfsemi sina á næstu mánuð-
um. Stofnendur eru tvær hljómplötu-
útgáfur í Reykjavik og tveir einstakl-
ingar. Verksmiðja þessi mun geta
annað allri framleiðslu á íslenzkum
hljómplötum, sem er árlega á annað
hundrað þúsund.
Verksmiðjuna setur á stofn hluta-
félagið Alfa, sem stofnað var fyrir
helgina. Stofnendur eru Björgvin Hall-
dórsson söngvari, Guðmundur
Óskarsson verkfræðingur, Fálkinn hf.
og Hljómplötuútgáfan hf.
Jón Ólafsson, forstjóri Hljómplötu-
útgáfunnar, sagði í samtali við DB að'
áætlunin umplötupressuninaværi stór
áfangi i „þessum uhga iðnaði sem
hljómplötuiðnaðurinn margpindi er”,
eins og hann orðaði það.
„Tækin fáum við líklega frá EMI
fyrirtækinu,” sagði Jón, „en ætlunin
er að við framleiðum bæði hljóm-
plötur og kassettur í verksmiðjunni.
Þetta gæti orðið verksmiðja upp á um
200 mJ til að byrja með. Fljótlega
förum við í að flytja inn pressutækin.
ofna og fleira, sem til þarf."
Þegar þessi plötupressa verður
komin i gagnið er hægt að fullvinna
hljómplötur á íslandi að undan-
skildum einum hlut, afar þýðingar-
miklum: gerð frummótsins, sem plöt-
urnar eru steyptar eftir.
ÓV
I þessu tæki fer sjálf pressunin fram.
Það er eins gott að vera ekki að pata
með fingrunum i þetta á meðan,
pressuþunginn er 110 tonn.
DB-myndir:
Ragnar Th. Sigurðsson
BYLTUR
Sveinn Ijómaði af gleði er einu konurnar i slökkviliði kvöddu hann með rcmbingskossum.
DB-mynd Sv. Þorm.
Kvaddur með kossum
eftir 40 ára starf
Einn elzti liðsmaður Slökkviliðs
Reykjavikur var kvaddur með pomp og
pragt á slökkvistöðinni á síðasta degi árs-
ins sem leið. Þetta var Sveinn Ólafsson,
sem á að baki 40 ára starf í slökkviliðinu,
en lætur nú af störfum fyrir aldurs sakir.
Vaktin hélt honum kaffisamsæti með
kökum og margar ræður voru fluttar.
Einu stúlkurnar tvær sem i slökkviliði
Reykjavikur eru kvöddu Svein með
kossum og mátti telja þá stund hápunkt
kveðjusamsætisins.
Sveinn Ólafsson byrjaði í varaliði
slökkviliðsins 1938, var ráðinn bruna-
vörður 1943 og varðstjóri varð hann
1959. Þvi starfi gegndi hann til ársins
1976 er hann hvarf til starfa i eldvarna-
eftirlitinu, þar sem hann hefur unnið síð-
ustu árin.
Sveinn átti svolítið erfitt með að slíta
sig frá Slökkvistöðinni og þar var hann
aftur kominn laust eftir miðnætti á
gamlárskvöld, en þá er siður slökkviliðs-
manna að safnast saman til kaffi-
drykkju. Og þeirrar stundar gátu liðs-
menn notið nú, þvi áramótin voru mjög
róleg hjá liðinu að þessu sinni. -ASt.
Brauð handa hungruðum heimi:
Safnazt hafa yf ir 25 milljónir
„Við erum mjög ánægðir með
undirtektirnar. Baukarnir eru stöðugt
að berast inn og núna er upphæðin
sem safnazt hefur einhvers staðar á
milli 25 og 26 milljónir,” sagði Guð-
mundur Einarsson í samtali við Dag-
blaðið.
Guðmundur sagði að það hefði sýnt
sig í fyrra að baukarnir væru mjög
lengi að berast inn, en þá höfðu í
janúarlok safnazt 33 milljónir en upp-
hæðin fór upp í 36 milljónir áður en
yfir lauk.
Eins og fram hefur komið i DB, þá
hefur utanríkisráðuneytið farið fram á
það að hluta af þessari upphæð verði
varið til kaupa á undanrennudufti
fyrir flóttamenn i Zaire, en þar á
meðal eru yfir 20 þúsund börn.
Hjálparstofnunin hefur samþykkt að
verða við þessari beiðni og i athugun
er hvort hagkvæmt geti verið að
kaupa þetta duft innanlands. Einnig er
verið að athuga með möguleika á
kaupum á annars konar afurðum hér
heima, s.s. skreið.
■ GAJ
SJÚKRABÍLL MEÐ SÆNGUR-
KONU FESTIST í SNJÓNUM
Snemma í gærmorgun var lögreglunni
á Akranesi tilkynnt um að sjúkrabill
með sængurkonu frá Borgarnesi væri
fastur í snjó undir Hafnarfjalli. Lögregl-
an fór þegar á staðinn og var hjúkrunar-
kona með í förinni, þar sem óttazt var að
konan kynni að fæða á Ieiðinni. Til þess
kom þó ekki og var konan flutt á sjúkra-
húsið á Akranesi. - G AJ