Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 03.01.1979, Qupperneq 24

Dagblaðið - 03.01.1979, Qupperneq 24
Könnun Heilbrigðiseftirlitsins á Síðumúlafangelsinu: KLEFARIMIDJU FANGELSIS- INS NÁNAST ÓÍBÚDARHÆFIR — lagfæríngar verður að gera á loftræstingu og hita fyrír 1. apríl. —Notkun aðeins leyfð f einn sólarhríng í senn Klefar í miðju fangelsisins við Siðu- múla eru nánast ekki íbúðarhæfir, a.m.k. ekki til langdvalar. Sú er niður- staða könnunar sem gerð var á vegum Heilbrigðisráðs Reykjavíkur. Á fundi Heilbrigðisráðs hinn 26. desember sl. var lagt fyrir bréf varðandi aðstæður í gæzluvarðhalds- fangelsinu við Síðumúla. Heilbrigðis- ráð samþykkti að hitunar- og loftræsti- kerfi hússins verði endurbætt eða endurbyggt fyrir I. april nk., þannig að fullnægjandi teljist að mati Heil- brigðiseftirlitsins. Jafnframt samþykkir Heilbrigðis- ráð að framvegis skuli hámark vist- unar í klefum i miðju húsi miðast við einn sólarhring. Mikið hefur verið kvartað undan illum aðbúnaði i Siðumúlafangelsinu. Klefar skiptast í tvo flokka i húsinu, þ.e. gluggalausa klefa i miðju hússins þar sem loftræsting er mjög léleg, og siðan i klefa með útveggjum þar sem birta er til muna betri og loftræsting, en hitastig ójafnara. Þegar hiti er þokkalegur við útveggi hitnar mjög óþægilega i miðju hússins, en ef hit inn er i lagi i miðjunni er kalt við útveggina. Síðumúlafangelsið var upphaflega byggt sem bilaverkstæði og Ijóst er að dýrt verður að endurnýja hita- og loft- ræstikerfi hússins, svo gott verði. DB hafði samband við Jón Thors deildar- stjóra i Dómsmálaráðuneytinu og yfir- mann fangelsismáladeildar. Jón sagði að sér hefði enn ekki borizt skýrsla heilbrigðiseftirlitsins. Hann sagði að fimm klefar væru í miðju fangelsisins og þeir hefðu verið tiltölulega lítið notaðir, þannig að hin nýja samþykkt breytti ekki miklu. En það yrði kannað hvaða kröfur Heilbrigðiseftirlitið gerir til breytinga á fangelsinu. Matsmenn myndu meta kostnað við breytingarnar og síðan yrði ákveðið til hvaða ráða yrði gripið. - JH Víðar snjór ená þurru landi Snjór um borg og bý. Gaddurinn hefur sjaldnast verið naprari fótgangend- um. Bílarnir eru tregir í gang. Ekki bætir vindurinn úr skák. Þaö skefur oní hjólför og á gangstéttarnar, sem fólk hafði puðað við að ryðja um ára- mótin. Þessi snjór ersveimér bara heilt helvíti. Og þó. Þegar þetta frosna vatn, hvítt að lit hangir sakleysislegt í trjánum og runnum, engum til skaða en flestum til augnayndis, þá sannast sú gamla speki að allt á sér tvær hlið- ar, meira að segja f rosið vatn. DB-mynd Bj. Bj. Iðnaðar„pakkinn” að koma „Verðjöfnunargjald” og innborgunarskylda —á „valdar vörur”. „Þetta krukk skiptir litlu,” segir Davíð EFTA og Efnahagsbandalaginu með þvi, að rikin i bandalaginu greiði svo mikið niður í framleiðslu á þessum vörum, að íslendingar séu aðeins að jafna metin. Þá verður lögð innborgunarskylda á innflutning á húsgögnum. Þvi sem kemur inn i ríkissjóð af þessum aðgerðum skal verja til stuðn- ings iðnþróun. Þá segja ráðherrar, að kannað verði, hvort mögulegt reynist að hækka jöfn- unargjald, eins og iðnrekendur hafa beðið um. Innborgunarskylda á innflutt hráefni til iðnaðar hér verður felld niður, en hún hefur verið 10—20 prósent. Um hið síðasttalda sagði Davið Schev- ing í morgun, að það væri að visu ágætt mál en þó aðeins smámál. „Það ígildi tollalækkana, sem okkur var lofað, þegar tollar af vörum innfluttum frá EFTA og EBE voru lækkaðir, hefur ekki séð dagsins Ijós,” sagði hann. „Þetta krukk skiptir litlu.” Hann kvaðst þó vona, að jöfnunargjaldið fengist hækkað bráðlega eftir að Alþingi kemur saman. -HH Það er ekki bara á þurru landi, sem menn hafa þurft að standa i snjómokstri undanfama daga. Bjarnleifur tók þessa mynd við Reykjavikurhöfn i gær. „Þetta er ekkert,” sagði Davið Schev- ing Thorsteinsson, formaður Félags is- lenzkra iðnrekenda, i morgun um fyrir- hugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar til stuðnings iðnaðinum. Á rikisstjórnar- fundi i gær var tekin ákvörðun um sér- stakar aðgerðir til stuðnings „völdum vörutegundum”. Sérstakur skattur, sem stjómarliðar vilja kalla „verðjöfnunargjald” verður settur á sælgæti, kökur og brauðvörur, sem innflutt er. Þessi skattur eða tollur verður hár, 40—50 prósent. Rikisstjórn- in hyggst rökstyðja hann gagnvart Sveinamótið í skák: Jóhanní 4.-5. sæti —4um- ferðireftir Biðskákin, sem Jóhann Hjartar- son átti við Kúbumanninn Huergo i 6. umferð Sas van Gent-mótsins varð jafntefli. 1 7. umferðinni tapaði Jóhann fyrir Rússanum Korzubov. Eftir 7 umferðir er Skotinn Mot- wani efstur með 6 vinninga. Jóhann er i 4.—5. sæti með 4 1/2 vinning. Þórir Ólafsson er aðstoðar- maður Jóhanns i þessu heims meistaramóti sveina. Að sögn Þóris var Jóhann með góða stöðu i skákinni við Korzubov, þegar hann lék veikan leik, sem Rússinn nýtti sér svo að honum dugði til vimúngs. Fjórar umferðir eru nú eftir í mótinu. BS hjálst, áháð daghlað MIÐVIKUDAGUR 3. JAN. 1979. Sjómenn óhressir með 11% „pólitíska” fiskverðshækkun: Þarf nú 4% geng- isfellingu — segirkaupandi „Það er álit okkar hér að þessi atkvæðagreiðsla sýni aðeins að sjó- menn þurfi að liða fyrir pólitiskar skoðanir síns eigin fulltrúa,” sagði Sigurpáll Einarsson sjómaður og útgerðarmaður í Grindavík í við- tali við DB í morgun er hann var beðinn álits á hinni nýju 11% fisk- verðshækkun, sem samþykkt var i gærkvöldi með atkvæðum odda- manns i yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins, fulltrúa sjómanna og fulltrúa kaupenda, gegn at- kvæðum annars kaupenda og full- trúa útgerðarmanna. Svo sem DB hefur skýrt frá telja sjómenn 14% fiskverðshækkun nú algert lágrnark og þá spáði DB þvi í gær að atkvæðagreiðsla yrði með ofangreindum hætti þar sem full- trúi Farmanna- og fiskimanna- sambandsins er stjórnarsinni. Yfirmenn á fiskiskipaflotanum eru i því sambandi og sagði Sigur- páll nú Ijóst að timi væri kominn til fyrir þá að hreinsa til í röðum forystumanna sinna í Ijósi þessa, líkt og undirmenn gerðu i sínum samtökum 1975. Verðið á að gilda til 1. maí en er uppsegjanlegt verði almenn kaup- gjaldshækkun meiri en 5% 1. marz. í greinargerð Eyjólfs Isfeld Eyjólfssonar, þess fulltrúa kaup- enda, sem greiddi atkvæði gegn þessari hækkun, kemur fram að hann telur hana sízt meiri en þróun launamála gefur tilefni til. Hins vegar liggi ekkert fyrir er sýni fram á að fiskvinnslan geti staðið undir þessar hækkun. Sagði hann í viðtali við DB i morgun að hann teldi 4% tafar- lausa gengisfellingu nú nauðsyn- lega til að brúa þetta bil: „það verður að vera hægt að borga þetta einhvern veginn.” . qs Efnahags- nefndin komin Á ríkisstjórnarfundi i gær var tekin endanleg ákvörðun um skip- an efnahagsnefndar þriggja ráð- herra, sem gera á tillögur um efna- hagsaðgerðir til lengri tíma og skila þeim fyrir I. febrúar. í nefndinni eru Steingrimur Hermannsson (F), sem verður for- maður, Ragnar Arnalds (AB) og KjartanJóhannsson(A). uu r^yKaupiff\ ,5 TÖLVUR í I* QG TÖLVl BANKASTRÆTI8

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.