Dagblaðið - 08.01.1979, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 08.01.1979, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 1979. Skylduspamaðurinn frá 76 úborgaður 1. febr: Hvað viftu vita? 3572—9097 hringdi: Hvar og hvernig getum við fengið þann skyldusparnað sem tekinn var af okkur „hátekjumönnum”? Svan DB hafði samband við Sigurð Þor- kelsson ríkisféhirði sem tjáði okkur að: „ef þið „hátekjumenn” eruð búnir að RYM1NGAR SALA 10-50% afsláttur af byggingavörum Kaupfélag Byggingavöruverslun sími: 50292 Reykjavíkurvegi 64 fá ykkur svokallað skylduspamaðar- skirteini, sem er gefið út m.a. hjá inn- heimtudeild ríkisféhirðis, sýslumanni eða hjá fógeta viðkomandi staðar, þá getið þið fengið hann greiddan hjá hvaða embætti sem er. Byrjað var að taka skyldusparnað af „hátekjufólki” árið 1975 og var innlausnardagur fyrir það ár 1. febrúar 1978. Fyrir 1976 verður innlausnardagur 1. febrúar nk. 'Ekki vissi Sigurður hvort gefin hafa verið fleiri skirteini út en fyrir 1975 og 1976. GhP. Guðjón H. Pálsson. Fuji: Engar filmur? Nægar filmur! Geir Þormar hringdi: Nú eru auglýstar alls kyns mynda- og kvikmyndavélar frá Fuji. En hvað eiga menn með að kaupa þessar vélar þegar ekki fást filmur í þær? Ég á kvik- myndavél frá þessu fyrirtæki og hef ekki fengið filmu i hana frá þvi i sumar þrátt fyrir mikla eftirgrennslan. Svan DB hafði samband við Gísla Gests- son kvikmyndagerðarmann sem er umboðsmaður Fuji-fyrirtækisins á ís- landi. Hann sagði að Geir færi þama með rangt mál því að filmur i þessar vélar hefðu alltaf verið til i þeim verzl- unum sem verzla með Fuji-tæki. Lögð hefur verið mikil áherzla á að eiga nóg af filmum þessum vegna þess að filmur úr öðrum tegundum passa ekki i Fuji. Filmurnar fást i eftirtöldum verzlunum: Gevafoto Austurstræti, Fotohúsinu Þingholtsstræti, Amatör- verzluninni Laugavegi, Prismu Hafn- arfirði og Ljósmyndaþjónustunni við Laugaveg. DB hringdi í þessar verzl- anir og tjáðu þær okkur að filmur væru til og hefðu alltaf verið. „Leitið og þér munið finna .. stendur einhvers staðar. Við vonum að Geir ged tekið á kvikmyndavélina sína, nú eftir að hafa fengið að vita hvar filmurnar fást i hana. wímm fiQ timi 1 KRS(l Laugavegi 69 sinn 16860 Mi^bæiarmarkadi simi 19494 Palmroth, finnsk gœðavara, mikið úrval. FLYING DUTCH- MAN HORFIÐ AF MARKAÐINUM Ætli maður verði ekki að fara að rckta tóbakið i pípuna sina sjálfur, eins og maðurinn á myndinni sem bjó til pipu úr byssu. Maður deyr ekki ráðalaus. Pipureykingamaður, sem er að leiðast út f sigarettur vegna skorts á góðu piputóbaki, spyr. Hvar er hægt að fá píputóbakið Fly- ing Dutchman? Er það rétt sem ég held að það fáist hvergi nema í Fri- höfninni á Keflavíkurflugvelli og ef svoer, hvers vegna? Svan DB hafði samband við Svövu Bem- höft innkaupastjóra hjá ÁTVR. Sagði hún að það væri rétt að tiltekin tegund af tóbaki fengist ekki í verzlunum. ÁTVR flytur það ekki inn vegna þess að af fenginni reynslu hefur tóbak frá Holiandi ekki selzt vel. Frihöfnin á Keflavíkurflugvelli er alveg sérfyrir- tæki.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.