Dagblaðið - 08.01.1979, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 08.01.1979, Blaðsíða 11
x/ DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 1979. ATVINNUVEGIR í ÓGðNGUM 11 Sagt er að iðnaðurinn sé vaxtar- broddur íslensks atvinnulifs. Iðnaður- inn á að taka við miklum hluta þess mannafla sem kemur út á vinnumark- aðinn á næstu árum. t iðnaðinum er mest gróska og hann skilar mestum arði allra atvinnuvega á fjárfesta krónu og einnig á vinnueiningu. Aðeins fiskiðnaöur, sem einnig er vissulega ein tegund iðnaðar, er hærri, þ.e. skilar meiri arði. Hvernig stöndum við íslendingar að þvi að nýta vaxtargetu iðnaðarins okkur til framdráttar og þjóðinni til hagsældar? Er rétta leiðin sú að þjarma að honum með tollalækkunum á sam- keppnisvörum sem hann, þ.e. iðnaður- inn, hefur verið svikinn um aðstoð til að laga sig að? Er rökrétt að leggja á hann nýja skatta og auknar álögur, og er það skynsamlegt að leggja sérstakan skatt á byggingarframkvæmdir þess sama iðnaðar sem ætlað er að vera vaxtar- broddur atvinnulífsins? Fjárfestingar- skattur getur einungis verið settur á í. því skyni að hindra vöxt fyrirtækj- anna. Forsvarsmenn iðnaðarins hafa raunar árum saman haldið þvi fram, bæði leynt og Ijóst, að hið opinbera umhverfi sé beinlínis fjandsamlegt iðn- aði, og það virðist nú ætla að sannast einn ganginn til. Hið nýja ár lofar ekki sérlega góðu um farsælan framgang íslenskra at- vinnuvega. Þeir sem til þykjast þekkja eru vanir að hafa við orð að á Islandi skorti það sem kailað er „iðnaðar- mentalitet”, þ.e. andrúmsloft og hugs- anagang sem er hliðhollur iðnaði, skilur þarfir iðnaðarins og reynir að greiða fyrir honum sem kostur er. „lðnaðarmentaliteti” má þannig líkja við hugarfarsástand þar sem sá skiln- ingur ríkir m.a. að velgengni og blóm- legur hagur atvinnufyrirtækis jafngildi nægri atvinnu og aukinni hagsæld starfsfólksins, einnig jafngildi nákvæm og vönduð vinnubrögð starfsfólksins háu verði og öruggum markaði fyrir framleiðsluvörur fyrirtækisins og þar með atvinnuöryggi fyrir starfsfólkið. Hugarfarsbreyting i þessa veru gerist ekki með heilli þjóð í einni svipan, ekki að heldur þótt við og við sé haldið eitt iðnkynningarskrautsýn- ingaár. Við verðum að bíta í það súra epli að viðurkenna að við séum enn á veiðimanna- og hjarðmannastiginu og að við skiljum ekki nema takmarkað þarfir nútima iðnaðar, þvi miður. Ljósasti votturinn um okkar veiði- mennsku- og hjarðmennskuþroska- stig, er sá hve vel við búum að frum- framleiðslugreinunum landbúnaði og fiskveiðum en tiltölulega illa að úr- vinnslugreinunum, iðnaði og fisk- afti.” Við veröum aft vifturkenaa aft vift erum enn a veiMmanna- og hjarftmennskustiginu. bundnum leiðum, jafnvel þótt vitað sé að hver nýr skuttogari sem keyptur er og hver viðbótarlamhsskrokkur sem framleiddur er baki þjóðinni stórtjón. Atvinnugreinarnar þar sem vaxtar- broddurinn liggur verða gróflega út- undan i samkeppninni um fjármagnið í þjóðfélaginu, þótt allar skýrslur og allir hagspekingar, sem um fjárfest- ingamál atvinnuveganna fjalla, ráð- leggi eindregið að fjármagninu sé beint inn til iðnaðar og fiskvinnslu, því þar sé ekki einungis vaxtargetan mest heldur arðsemisvonin áberandi lang- mest. Ef við höldum áfram á þessari braut, þ.e. að búa svona illa að og arð- ræna iðnað og fiskvinnslu, verður það til þess í besta falli að atvinnutækifær- um fækkar fremur en hitt og þeir sem koma nýir út á vinnumarkaðinn, um 2000 manns á ári, geta ekki leitað ann- að um atvinnu en í þjónustugrein- vinnslu. Þetta gerist þrátt fyrir það að löngu sé orðið Ijóst að vaxtarmögu- leikar í landbúnaði og fiskveiðum séu nánast engir. Haldið er áfram að dæla fjármagni i þessar greinar eftir hefð- arnar, þvi um ný atvinnutækifæri í landbúnaði og fiskveiðum er að'sjálf- sögðu ekki að ræða. í versta falli hefur aftur á móti hinn slæmi aðbúnaður i för með sér stórfellt atvinnuleysi og hörmungar. Heilar atvinnugreinar ReynirHugason geta hrunið eins og spilaborgir, svo sem húsgagna- og innréttingaiðnaður, svodæmi séu nefnd. Tuttugu og fimm þúsund manns hafa atvinnu sína af iðnaði í landinu og er þá fiskiðnaður meðtalinn. Að- staða iðnaðarins til að hafa áhrif á jStjómvöld og þar með eigin aðbún- aðarmál er samt mun lakari en að- , staða landbúnaðar, þar sem starfa ein- ungis 4419 bændur, eða innan við 5% laf vinnuafli landsmanna. Þrýstiaðstaða bændastéttarinnar, þótt fámenn sé, er nánast óhugnan- lega og einkennilega sterk. Ef sú staða kæmi upp í iðnaði, segjum sápuiðnaði, að framleitt væri meira en þörf væri fyrir til innanlandsneyslu af handsápu myndu stjórnvöld seint gripa til þess ráðs að greiða niður sápuna til útflutn- ings, til þess eins að halda uppi at- vinnu I iðngreininni. — 1 landbúnaði aftur á móti þykir sjálfsagt að fram- leitt sé meira en sem svarar til innan- landsneyslu. Umframframleiðslan sé síðan niðurgreidd af stjórnvöldum til útflutnings til þess að halda uppi at- vinnu i landbúnaði! I mínu ungdæmi var unnt að telja almenningi trú um að svona vinnubrögð væru forsvaran- leg, en nú gengur það ekki lengur. Almenningur í þessu landi óttast um sinn hag. Það gengur ekki lengur að fara troðnar slóðir í stuðningi við atvinnulif okkar og gagnvart atvinnu uppbyggingu i landinu. Það verður að fara inn á nýjar brautir. Kosningarnar i vor sýna að almenningur gerir sér þessar staðreyndir ljósar. Fyrir dyrum standa róttækar breytingar á atvinnu- háttum i landinu. Merkin um það blasa við hvarvetna. Þjóðin á um það að velja að fylgja kröfum timans og aðlaga sig nútimalegum atvinnuhátt- um markvisst og skipulega, en þvi gæti fylgt fjölbreyttara og tryggara og tæknivæddara atvinnulif. betri lifskjör og aukinn fritimi þegar til lengri tíma er litið, eða að streitast á móti og reyna að halda uppi háu atvinnustigi með fjármálakúnstum, halda i gamla og gróna atvinnuvegi af hreinni íhalds- semi og lappa upp á þá, jafnvel þótt grundvöllurinn fyrir þeim sé löngu hruninn, með því meðal annars að jafna fjármagni frá arðsamari atvinnu- greinum yfir á þær sem hafa minni arösemi. Þessu fylgja óhjákvæmilega lægri lífskjör, minni tækniframfarir og dulið atvinnuleysi. Almenningur hefur þegar valið en stjórnvöld hafa ekkiskilið! Reynir Hugason verkfræðingur. Óróleikinn f Alþýðuf lokknum Atburðir þeir, sem gerðust um og eftir miðjan desember i sambandi við afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins, hljóta enn að vera mönnum talsvert ihug- unarefni. Harðvitug andstaða Alþýðu- flokksins gegn afgreiðslu óbreytts fjár- lagafrumvarps og kröfur hans um, að samtímis umtalsverðri breytingu á því i átt til verðbólguhjöðnunar kæmu viðtækar og samræmdar alvöruráð- stafanir á sama sviði, er næðu til tveggja ára, vakti að sjálfsögðu mikla athygli eftir það, sem á undan var gengið pr. 1. desember og olli því, að ríkisstjórnin sveif nánast I lausu lofti um vikuskeið, þ.e. frá 14. til 22. des- ember. Þessi óvæntu viðbrögð Alþýðu- flokksins, svo hörð og eindregin sem þau voru, ollu því að verðbólgusigur- vegararnir úr 1. desember-slagnum, Alþýðubandalagið og Framsóknar- flokkurinn, vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið og stóðu nánast uppi eins og þvörur. Framsóknarflokkurinn varð þó fyrri til að taka við sér og réði jákvæðri afstöðu beggja flokkanna til þeirra úrslitakrafna, sem Alþýðuflokk- urinn setti fram. Þótt frestun á af- greiðslu lánsfjáráætlunar fjárfest- ingarlánasjóðanna fram i febrúar eða ákvörðunin um stofnsetningu ráð- herranefndar hafi út af fyrir sig ekki haft ýkja mikla efnislega þýðingu i þriðju viku desember, hafði hún tals- vert táknrænt gildi. Með afstöðu sinni í þessum tveim málum sýndu þeir já- kvæðan vilja sem Alþýðuflokknum þótti rétt að taka gildan. Til viðbótar kom svo niðurskurður fjárlaga um tæpan milljarð króna og er það strax spor í áttina, varð enda til þess, að fjár- lögin eru innan þess ramma, sem Al- þýðuflokkurinn gat sætt sig við. Þingmenn í sandkassaleik? Allt þetta viðnámsstarf þingflokks Alþýðuflokksins í hjöðnunarátt fékk sannarlega misjafnar undirtektir hinna stjórnarflokkanna og stjórnar- andstöðunnar. Geir Hallgrímsson, for- maður Sjálfstæðisflokks, lýsti óánægju sinni með það að mótspyrna Alþýðu- flokksins í verðbólgumálunum skyldu valda töfum á Alþingi. Viðskiptaráð- herrann ungi, Svavar Gestsson, virtist skyndilega svo gamlaður orðinn, eftir aðeins 3 mánaða þingsetu, að hann var fullur hneykslunar á hamagangin- um í hinu unga þingliði Alþýðuflokks- ins: „Þingmenn Alþýðuflokksins eru eins og krakkar í sandkassaleik”. Og Stefán blessaður Valgeirsson, fram- sóknarþingmaðurinn góðkunni, hristi sinn gráa koll, undrandi á óstýrilætinu og æskufjörinu i þingflokki Alþýðu- flokksins: „Óróleikinn í Alþýðuflokkn- um er innbyrðis vandamál,” sagði hann í viðtali við Timann. Sýnilega Kjallarinn Sigurður E. Guðmundsson vildi hann sverja af sér alla ábyrgð á þátttöku í viðnámsróstum ungkrat- anna. Lestina rak svo annar grákollur: Lúðvík Jósepsson taldi ekki unnt að láta unga fólkið á Alþingi komast upp með svona lagað háttalag. Yrði það ekki til friðs skyldi það fá kosningar i hausinn og eftir þær myndi unga fólkið í landinu eiga sér færri fulltrúa á Alþingi, enda yrði þingið þá væntan- lega spakara og leiðitamara við for- ingjana, jafnt innan stjórnar sem utan. Glöggskyggni Stefáns Valgeirssonar Þótt gömlu mennirnir á Alþingi, sem hér hafa verið nefndir, séu ekki par ánægðir með háttsemi hins unga þingflokks Alþýðuflokksins eru vand- ræði þeirra enn ekki að baki: Ijóst er, að hann hyggst ekki fella niður „sand- kassaleik” sinn, heldur snúa bakinu í vegginn og berjast með hnúum og hnefum, með fullu atfylgi flokks- stjórnarinnar, fyrir gerbreyttri stefnu I efnahagsmálum. Þeir fá því ekki að hvílast í friði. Eins og fyrri daginn hefur Stefán Valgeirsson rétt fyrir sér: það er óróleiki i Alþýðuflokknum, jafnt i þingflokki sem flokksstjórn. Og hann fer því meir vaxandi sem lengur dregst að sinna kröfum hans um ger- breytta stefnu i efnahagsmálunum. Hins vegar er það misskilningur hjá Stefáni að hann sé „innbyrðis vanda- mál”. Þvert á móti ríkir algjör ein- hugur innan þingflokks og flokks- stjómar. Hitt er annað mál að óróleik- inn í Alþýðuflokknum kann að leiða til þess að upp komi innbyrðis vanda- mál í öðrum flokkum. Óróleikinn í Al- þýðuflokknum verður ekki læknaður nema á einn veg, þ.e. með þvi að snú- izt verði gegn verðbólgunni af fullri al- vöru til langs tíma. Alþingi götunnar? Það fer ekkert milli rnála að Al- þýðuflokknum er mikil alvara um það að ná verulegum árangri á þessu sviði. Ekki er ætlunin að bíða sofandi eftir að 1. febrúar — úrslitadagurinn mikli — renni upp, heldur verður kappsam- lega unnið í stjórnarstofnunum flokks- ins að nánari athugun og umræðum um efnahagsmálafrumvarp flokksins, sem flokksstjórnin hefur til þessa fyrst og fremst samþykkt sem stefnu en ekki farið frekar niður í saumana á, sakir tímaskorts fyrir jól. Jafnt i ráðherra- nefndinni sem á þingi, er það kemur saman, mun flokkurinn heyja harða úrslitabaráttu fyrir framgangi and- spymustefnu sinnar gegn verðbólgu. En þangað til, a.m.k., mun flokkurinn heyja þessa baráttu utan þingsins með ýmsum nýjum ráðum. þannig, að fólkið sjálft fái i raun úrslitaáhrif á það, sem síðan mun gerast I þinginu. Magnús Kjartansson mun á sinum tima hafa kallað slika málshöfðun Al- þingi götunnar, kann þó að vera að hann hafi þá hugsað sér að hafa gjör- samlega endaskipti á hlutunum. Hvað sem því liður hafa þingmenn Alþýðu- flokksins og flokksstjórnarmenn hans ekki slíðrað vopnin og verður því litill friður fyrir flokksforingjana gömlu á næstunni til að hvílast eða makka i þröngum klíkum um framgang mála. Og ef nauðsyn krefur mun flokkurinn síðan ganga glaður og vígreifur til nýrra kosninga á komandi vori á grundvelli sigurstefnu sinnar í síðustu kosningum um gerbreyttá efnahags- stefnu. Sigurður E. Guðmundsson framkvæmdastjóri. kinn í Alþýöuflokknum veröur ekki lækn- u einn veg, M er aft snúizt verft, gegn nni af fullri alvöru til langs tima. friftur verftur fyrir nokksforingjana gftmlo • 99 11 • • • ösyn krefur mun flokkurinn ganga glaöur fur til kosninga á komandi vori...

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.