Dagblaðið - 08.01.1979, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 08.01.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 1979. Ástand og horfur í helztu atvinnuvegum þjóðarinnar: „Ómögulegt að vera bjartsýnn” —talsmenn helztu atvinnuveganna virðast sammála um það Áramót eru tími uppgjörs og umhugsunar. Þá staldra menn við, og spurði þá um ástand og horfur í sinni atvinnugrein í upphafi nýs líta yfir farinn veg og skyggnast fram á viö. Dagblaðið hafði af árs. þessu tilefni sambandi við nokkra talsmenn islenzkra atvinnuvega ' GAJ Endurnýjunarsjóður iðnfyrirtækja skattlagður: „Mun bitna á þjóðinni allri” —segir Davíð Sch. Thorsteinsson „Eins og kunnugt er þá lækkuðu tollar um áramótin skv. samningum við EFTA og EBE. Þessi lækkun kom til framkvæmda þrátt fyrir að í sam- starfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna stæði að henni skyldi frestað,” sagði Davíð Scheving Thorsteinsson, for- maður Félags islenzkra iðnrekenda. „í stað þess að standa við stjórnar- sáttmálann þá ákvað ríkisstjórnin í október að fresta ekki tollalækkunum en að iðnaðurinn skyldi fá ígildi tolla- lækkananna þannig að samkeppnisað- staðan skertist ekki. Við þetta hefur ekki verið staðið. Ekkert slíkt ígildi hefur séð dagsins Ijós. Þær hugmyndir sem ríkisstjórnin hefur sett fram eru óralangt frá þvi að geta talizt slikt ígildi. Þar er um að ræða ráðstafanir handa örfáum greinum iðnaðarins, ráðstafanir sem ýmsum þeim er reka fyrirtæki innan þessara greina er mjög á móti skapi. Mér er því ómögulegt að vera bjart- sýnn um þessi áramót. Yfir okkur hafa dunið látlausar skattahækkanir undanfarið og jafnvel hefur verið gengið svo langt að skattleggja endur- nýjunarsjóð iðnfyrirtækja en sé á þennan hátt komið í veg fyrir eðlilega endurnýjun véla og tækja iðnaðarins mun það bitna fyrst á starfsmönnum iðnaðarins, 20 þúsund að tölu, og síðan á þjóðinni allri,” sagði Davíð að lokum. - GAJ Davfð Sch. Thorsteinsson, formaður Félags fslenzkra iðnrekenda. olíuverðhækkun. Ég er í stórum efa um að margir bátar komizt af stað vegna rekstrar- erfiðleika. Fiskverðið hefur ekki haldizt i nokkru samræmi við tilkostn- aðinn og þegar við bætist aflasam- dráttur þá er Ijóst að útlitið er mjög dökkt. Við gerðum könnun hér í Vest- mannaeyjum og tókum úrtak 35 báta. Aðeins fimm þeirra reyndust skila hagnaði og honum mjög óverulegum. Hinir voru með tap allt upp á annan tugmilljóna. Menn væru ekki að bjóða báta sína til sölu nema þeir væru neyddir til. Ef hingað kæmi oliufursti þá gæti hann fengið keypta a.m.k. 20 báta á svip- stundu. Hann gæti þess vegna komið með vél kl. 10 að morgninu og farið aftur kl. 3 eftir hádegi. Kaupin þyrftu ekki að taka lengri tíma.” Björn Guðmundsson, formaður (Jt- vegsbændafélagsins I Vestmannaeyj- Velkomin suður Alþýfluleikhúsið: VIÐ BORGUM EKKI eftir Darío Fo. Leikstjórí: Stefán Baldursson. Þýflendur Ingibjörg Bríem, Guðrún Ægisdóttir, Róska. Leikmynd og búningar Messíana Tómasdóttir. Alþýðuleikhúsið, sunnandeild þess sem svo nefnir sig, byrjar með mesta glæsibrag starfsemi sína i Lindarbæ. Óhugsandi finnst mér annað en sýning þeirra verði vinsæl og vel látin svo bráðfyndin sem hún er, sannarleg hressing í miðju sótsvörtu skamm- deginu. Og þá er líklegt að um leið sýni hún mörgum áhorfandanum fram á að réttmætur sé málflutningur ungra leikhúsmanna að undanförnu að nauðsyn sé að skapa „frjálsum leikhóp- um” skilyrði og svigrúm til starfa. Það ber sem sé ekki á öðru. Alþýðuleikhúsið hefur einnig í sinni nýju mynd nýjungar fram að færa. Við borgum ekki er ekki bara bráðskemmtilegur skrípaleikur. Hann ber lika af hinum dáðlitlu svefn- herbergis- og sakamálaförsum sem „stóru leikhúsin” hafa takterað okkur á í haust. 1 þetta sinn hefur skopið merkingu og mið, en er ekki bara hringlandaháttur með meir og minna grinaktugar figúrur og kringumstæður. Og það er að sjá að sunnandeild Alþýðuleikhússins hafi staðið ansi hyggindalega að verki i haust. Leikurinn mun hafa verið sýndur nokkrum for- sýningum nokkru fyrir jól sem annars fór ekki hátt um. En þar hefur, vænti ég, gefist kostur að prófa leikinn á áhorf- endum. Og þegar til reglulegrar frumsýningar kemur er sýningin klöppuð og klár og hittir beint í mark. Enda var leiknum tekið með miklum fögnuðu í Lindarbæ í gærkvöldi. Og er nú hægt að mæla eitt sinn með góðri samvisku með ósviknum hlátursleik í bænum. Dario Fo held ég að megi kalla á- trúnaðargoð og gott ef ekki spámann svonefndra frjálsra leikhópa víða um lönd, ekki síst á Norðurlöndum á undan- förnum árum, ungs leikhúsfólks, sem oftar en ekki leggur kapp og metnað I að flytja frá vinstri gagnrýni og ádeilu á gildandi þjóðfélagshætti. Leikir hans flytja ótviræðan pólitískan boðskap. En pólitíkin í leikjum Dario Fos á líf og gildi sitt komið undir skopi og skrípalátum þeirra, boðskapur þeirra misferst nema hann sé fluttur með brosi á vör, sist af öllu þolir hann að leikendur setji upp skeifu af pólitískum alvöruþunga út af efni þeirra. En í þessum leik og sýningu er engin slík áhætta tekin: Við borgum ekki er fyrst og síðast rakinn farsi. Stefán Baldursson hefur áður sýnt sig smekkvisan leiðbeinanda ungra og lítt reyndra leikenda og virtist mér honum takast einkar farsællega að hagnýta nokkuð svo misvíga áhöfn — sýningin er einföld og stilhrein og umfram allt fjarska skopnæm með sínu látlausa móti. Og hún virtist að öllu leyti einkar haganlega á sviðið búin i Lindarbæ.lL r hefur augljóslega verið unnið af ráðdeild og fyrirhyggju og af því helgast sigur Alþýðuleikhússins. Það er sannarlega velkomið suður á land. Við borgum ekki skilst mér að sé að einhverju leyti sprottið af sönnum at- vikum, gefnu pólitísku tilefni á ítaliu. Það er að skilja að þar hafi verkafólk í rauninni gripið til samskonar baráttu og leikurinn lýsir: að ákveða sjálft „sann- gjarnt verð” fyrir vöru og þjónustu á tímum kreppu og atvinnuleysis og hnekkja með þeim hætti pólitík bæði ríkisvalds og atvinnurekenda og sinna eigin stéttarfélaga. Af þessu tilefni spinnst hin fáránlega atburðarás leiks- ins, sem hér verður engin tilraun gerð til að endursegja — réttskapaður farsa- leikur þar sem atvik og persónur læsast í óviðráðanlega skripakeðju. En allur mis- skilningur, öfgar, skrípagangur leiksins lýtur vaknandi skilningi, vitund, boðskap um heiminn utan leiksins. Hann lýsir sauðfrómum alþýðumanni, Giovanni, sem í leiknum hægt og hægt vaknar til vitundar um misrétti, arðrán, kúgun, sem hann sætir, leikurinn hafnar þjóðfélagi neyslu og gróða, lætur uppi von eða draum um mannlegri félags- og sambýlishætti. Þessa niðurstöðu eða pólitíska boðskap leiksins fannst mér Kjartani Ragnarssyni lánast að láta mjög trúverðuglega uppi í lokaatriði leiksins. hlutverk Giovannis i Við borgum ekki. Kjartan er líklega okkar leiknasti skrípa- leikari af yngri kynslóð og þar fyrir utan sjálfur eins og allir vita metnaðargjarn farsahöfundur. Mér fannst Giovanni hans fínlega útsmogin mannlýsing i svipbrigðum og hreyfingum, gæfur og hrekklaus hversdagsmaður sem aldrei ætlar að skilja hvað að honum snýr. Ásamt Kjartani kveður mest að Gísla Rúnari Jónssyni i fjórum bráðkostu- legum hlutverkum sem mikintl fögnuð vekja. Gísli Rúnar er augljóslega rakinn skopleikari. Aðrir þátttakendur eru leikskólafólk sem muna má úr sýningum Nemendaleikhússins: Lilja Guðrún Þor- valdsdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Sigfús Már Pétursson og Ólafur Örn Thoroddsen, allt efnisfólk að ég ætla, ekki sist Lilja Guðrún. Þær stöllur, Antonia og Margrét, Lilja Guðrún og Hanna María, eiga raunar marga góða stund saman í sýningunni, gervi þeirra afbragðs gott. Það sýnir sig í þessari sýningu eins og oftar að Messiana Tómasdóttir er orðin einhver okkar besti leikmynda-hönnuður. Sem sagt: gott. Og voða gaman. Eftir þessa blómlegu byrjun má vænta mikils af starfi Alþýðuleikhússins i framtíðinni í sinni nýju mynd. Kjartan Ragnarsson leikur sem gestur Sigfús Már Pétursson og Kjartan Kagnarsson i hlutverkum slnum. DB-mynd: Bj. Bj.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.