Dagblaðið - 08.01.1979, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 08.01.1979, Blaðsíða 17
16 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 1979. DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. JANUAR 1979. 17 [c íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Sþróttir íþróttir HBJ ÆVINTYRI GERAST ENN — íslenzka landsliðið vann upp sex marka forustu Pólverja í gærkvöld. 37 sek. fyrir leikslok varði Óli Ben. vfti og tvö íslenzk rnörk fylgdu. Jafntefli 23-23 Ísland —Ísland — Ísland sungu 1500 áhorfendur 1 Laugardalshöll eftir að Islenzka landsliðið hafði unnið upp sex marka forustu Pólverja — sjötta bezta liðs 1 heiminum i dag. Bjarni Guðmunds- son brunaði upp á siðustu sekúndum leiksins og jafnáði, 23—23. Ævintýri gerast enn — islenzka liandsliðinu hafði tekizt hið ómögulega. Unnið upp sex marka forskot Pólverja. Leikmenn fögnuðu innilega, og áhorfendur ekki síður. Enn einu sinni hafði islenzka landsliðið sannað að það getur mætt sterkustu þjóðum heims kinnroðalaust. Við getum sigrað þá beztu, þó það verði ef til vill æ erfiðara. Við verðum að ná toppleik og jafnvel gott betur. En við höfum burði á við þá beztu. Jafnteflið við Pólverja var móralskur sigur landsliðsins eftir heldur daufa leiki und- anfarið og slæm töp. En allt virtist [dó svo vonlaust um tíma gegn Pólverjum. Íslenzka liðið byrjar siðari hálfleik afleitlega. Eftir á- gætan fyrri hálfleik, framan af þar sem Ísland hafði forustu 8—6 kom hinn „óhjákvæmilega slæmi kafli” og Pólverjar skoruðu fimm mörk í röð, komust í 11—8. Staðan í leikhléi var 12—10. Og fyrstu tíu mínútur siðari Slæm ferð Eyja-Þórs Þór i Vestmannaeyjum gerði slæma ferð til Reykjavikur i handknattleiknum um helgina. Á laugardag lék Þór við Þrótt i 2. deild karla og tapaði 29—19. t gær lék liðið við Ármann og aftur varð tiu marka tap. Ármann 27, Þór 17. Þá lék Þór tvo leiki i 2. deild kvenna. Á laugardag vann ÍR Þór 15—11 og í gær vann Þróttur Þór 12— 10. íslandí4-5 sæti á Spáni — spáir þjálfari pólska landsliðsins „Íslenzka liðið er sterkt, góðir leik- menn, og ég tel að i B-keppninni á Spáni muni liðið lenda i 4.—5. sæti. Þar eru ákaflega sterkar þjóðir, er væntanlega munu skipa sér i efstu sætin, Ungverjar, Tékkar og Svíar,” sagði Jacek Zylin- icki, þjálfari pólska landsliðsins eftir jafntefli íslands og Póllands i Laugar- dalshöll. „Jón Pétur Jónsson er mjög góður leikmaður, bezti maður íslenzka liðsins að mínu mati,” sagði Jacek ennfremur Og hann bætti við — „í nútíma hand- knattleik hefur það sýnt sig að mjög erf- itt er að halda góðu forskoti. Dómgæzl- an hefur þróazt þannig að dómarar líða engar tafir. Því geta leikir snúizt mjög snögglega og það gerðist einmitt. Að vísu vorum við ekki með okkar sterkasta pólska lið en hin raunverulega geta lið- anna kemur í ljós í Danmörku er þau mætast á hlutlausum velli — þá verður að marka úrslitin," sagði Jacek enn- fremur. hálfleiks voru martröð. Pólska liðið virt- ist stefna í stórsigur, komst sex mörkum yfir, 17— 11. Leikur íslenzka liðsins var í rúst. Það virtist enn stefna í stórt tap. En leikur íslands breyttist á dramatiskan hátt. Jón Pétur Jónsson kom þá inná, og hann átti sinn bezta landsleik til þessa. Jón Pétur skoraði á síðustu 20 mínútum leiksins 7 mörk úr átta skottilraunum. Frábært. Með krafti sínum og áræðni dreif hann íslenzka liðið áfram og óðum saxaðist á forskot Pólverja. Jón Pétur skoraði 12. mark íslands, 12—17. Skömmu síðar skoraði Bjarni Guðmundsson, sá eldfljóti Valsmaður 13. mark íslands og áhorfendur voru þegar á bak við íslenzka liðið. Pólverjar juku muninn i 5 mörk, 13—18, en Jón Pétur svaraði fyrir lsland. íslendingar brugðu þá á það ráð að taka tvo af mátt- arstólpum pólska liðsins úr umferð — þá Katalinski og Klempel, er hafði skorað 11 stórglæsileg mörk. Og þetta bragð hins unga landsliðsþjálfara, Jóhanns Inga, heppnaðist fullkomlega. Er 15 mínútur voru eftir var munurinn að vísu enn 5 mörk, 19—14. Ólafur Einarsson minnkaði muninn i fjögur mörk, 19— 15, og þeir félagar Jón Pétur og Bjarni voru enn á ferðinni. Bættu við tveimur mörkum, 17—19 og 10 mínútur eftir. Pólverjar náðu að svara en leikur þeirra var fálmkenndur og lcikgleði Íslendinga kom þeim greinilega í opna skjöldu. Þrjú stórkostleg mörk Jóns Péturs, fylgdu i kjölfarið, og íslandi tókst að jafna, 20— 20, fimm mínútur eftir. Stemmningin í Höllinni með ólíkindum. Klempel náði að rífa sig lausan og koma Pólverjum aftur yfir, en Þorbjörn Guðmundsson jafnaði, 21—21. Aftur svöruðu Pólverjar og hamingjudísirnar virtust yfirgefa íslenzka liðið því Þorbjörn Guðmundsson átti hörkuskot í stöng og Pólverjar juku muninn i tvö mörk, 23— 21. Sekúndurnar tifuðu hver af annarri og er tæpar tvær mínútur voru eftir virtist öll von úti. Páll Björgvinsson skaut framhjá og Pólverjar með knöttinn. Þegar 37 sek. voru eftir fengu Pólverjar víti. Stórskyttan Klempel tók vítið. Hafði ekki brugðizt áður en Óli Ben. gerði sér lítið fyrir og varði með tilþrifum. íslendingar brunuðu upp og minnkuðu muninn enn ieitt mark, 22—23, —hverannarenjú, Jón Pétur. 26 sekúndur eftir. Pólverjar léku upp á að halda knettinum. Þegar átta sekúndur voru eftir komust þeir fríir inn á línu, en skot i stöng, knötturinn barst til Árna lndriðasonar, sem sendi umsvifalaust fram og þar, eins og oftar, var fyrir Bjarni Guðmundsson, sem kastaði sér inn og jafnaði — 23— 23, sekúndu síðar gall flautan. Jafntefli, og það kærkomið, var því staðreynd. Enn er leikur íslenzka liðsins þó of sveiflukenndur. Liðiö getur leikið stórvel, þæði í vörn og sókn, en þess á milli dettur allur botn úr leik þess. Vissu- lega vandamál, er ráða verður bót á. Með meiri festu í leik liðsins þá virðist Jóhann Ingi vera, á réttri leið, þó enn megi að sjálfsögðu deila um einstaka leikmenn, hvort þeir eigi heima í lands- liðshópnum eða ekki. En Jóhann Ingi hefur kjarna og því má heldur ekki gleyma að íslenzka liðið var án þeirra Axels Axelssonar og Ólafs H. Jóns- sonar. Með þeim skapa sterkan sterkan kjarna, fyrirliðinn Árni Indriðason, Þor- björn Guðmundsson, Ólafur Jónsson, Bjarni Guðmundsson, Ólafur Einarsson, Ólafur Benediktsson og Páll Björgvins- son. Og nái Jón Pétur að sýna jafngóða leiki í náinni framtíð hefur hann burði til að gera stóra hluti. Páll Björgvinsson var að visu alveg heillum horfinn í gær, en samt er mikill munur á öllu spili islenzka liðsins, þegar hann er inná. En það er með Pál eins og ýmsa snjalla leikmenn okkar. Það er gífurlegt álag á honum i vinnu, og því bitnar það á handknattleiknum. Þarna liggureinmitt eitt stærsta vandamál okkar í dag, vinnuálag leikmanna, peningar. Þetta þurfa hinar ríkari þjóðir ekki að glíma við. Kjarninn er fyrir hendi, aðeins spurning hvernig tekst að vinna úr. ísland hefur aldrei átt betri hornamenn en einmitt í dag. Ólafur Jónsson hefur' sannað með stórgóðum landsleikjum i vetur hve snjall leikmaður hann er. Bjarni Guðmundsson hefur yftr að ráða gifurlegum hraða, og léttleika. Þarf •aðeins að ná meiri ógnun inn úr horninu. Árni Indriðason og Ólafur H. Jónsson eru kjölfesta í vörn. Axel Axels- son í sókn, ásamt þeim Ólaft Einarssyni og Þorbirni Guðmundssyni er vex með hverjum leik. Kröfur um góð úrslit eru óendanlegar hér heima en íslenzkir áhorfendur styðja lika vel við bakið á liðinu, óskabarni þjóðarinnar, eins og svo oft hefur verið sagt. Nú taka við erfiðir landsleikir í Danmörku er verulega reyna á karakter islenzka liðsins og síðan Spánn. Hinir dönsku dómarar sögðu eftir leikinn að islenzka liðið yrði að vara sig WBA keypti David Mills WBA hefur keypt David Mills frá Middlesbrough fyrir 500 þúsund sterlingspund. Jafnaði þar með Bret- landsmetið — en Man. Utd. keypti Gordon McQueen frá Leeds fyrir sömu upphæð. Hertha Berlln hefur selt Karl-Heinz Granitza til Chicago Stings, USA, og fékk 200 þúsund dollara fyrir leikmanninn. 'Jón Pétur — skoraði sjö mörk á 20 minútum. Samstilltari hópur nú en var fyrir HM — sagði Jón Pétur Jónsson, hetja íslenzka liðsins í gær „Ég vona að þessi góður leikur minn komi mér til góða f þeirri erfiðu raun er framundan er. Ef við komumst klakk- laust i gegnum hina crfiðu leiki i Dan- mörku þá tel ég að við höfum sett stefn- un á góða frammistöðu á Spáni. Lands- liðshópurinn nú er samstæðari en fyrir HM i vor, engin spurning um þjálfara. tslenzka liðið á að geta náð ágætum árangri á Spáni,” sagði Jón Pétur Jóns- son, hetja fslenzka liðsins eftir jafntefli gegn Pólverjum i Höllinni. Jón Pétur lék sinn bezta landsleik frá upphafi, skoraði 7 mörk á 20 minúi um og dreif íslenzka liðið áfram með krafti sínum. „í sannleika kom mér þetta nokkuð á óvart þar sem ég byrjaði fyrri hálfleik heldur illa, var þá ónákvæmur og hikaði. Hins vegar gengu hlutirnir upp í síðari hálfleik en mest kom mér þó á óvart hvað Pólverjamir riðluðst við að taka tvo menn úr umferð,” sagði Jón Pétur ennfremur. H.Halls. á sífelldum hrindingum — annars kæmi það liðinu i koll i Danmörku. Þeir bættu við hve erfiðir leikirnir hefðu verið að dæma. Hraðinn mikill, darraðardans. Þetta er vissulega rétt. Við missum út af allt of marga menn í leikjum. En þetta vandamál nær alveg að sjálfum rótum meinsins. Það er greinilegt hve íslenzku leikmennirnir eiga í vök að verjast i einvígi. Snerpa austantjaldsþjóðanna veitir þeim ávallt vinninginn. Mörk lslands skoruðu, Jón Pétur Jónsson 7, Ólafur Einarsson 5, Þorbjörn Guðmundsson 4, Bjarni Guðmundsson 3, Páll Björgvinsson 2, Árni Indriðason og Ólafur Jónsson 1 mark hvor. En yfir- burðamaðurinn á vellinum var Jerzy Klempel — með 12 mörk, þrumuskot hans sungu hvað eftir annað i net- möskvum islenzka liðsins, stórkostlegur leikmaður. -H. Halls. tslenzku leikmennirnir fagna jafnteflinu i leikslok. DB-mynd Bjamleifur. „Ég sætti mig aldrei við ósigur í leikjum'' —sagðí Jóhann Ingi landsliðsþjálfari eftir jafnteflið „Ég sætti mig aldrei við ósigur i leikj- um þó annað hafi verði gefið i skyn i sumum blöðum. Við tókum áhættu er Pólverjar voru sex mörkum yfir, tókum tvo leikmenn úr umferð og það heppn- aðist — við náðum kærkomnu jafhtefli. Á síðustu 37 sekúndum leiksins tókst okkur að vinna upp tveggja marka for- ustu Pólverja,” sagði Jóhann Ingi Gunn- arsson, landsliðsþjálfarí eftir jafntefli ts- lands og Pólverja, 23—23. „Leikurinn var ákaflega skemmti- legur fyrir áhorfendur. Mikill hraði og harka og úrslitin eru ánægjuleg, sér í lagi ef mið er tekið af þvi að við vorum án tveggja máttarstólpa landsliðsins, Axels Axelssonar og Ólafs H. Jónsson- ar. Jón Pétur sýndi snilldarleik og i sann- leika sagt kom hann mér á óvart eftir að hafa byrjað fremur illa. Okkur vantar enn meiri festu í leikinn, ég held einna helzt að um taugaveiklun sé að ræða. Þá er það afdrifarikt, að Páll Björgvinsson er fjarri sínu bezta nú. Þar kenni ég um erfiðri vinnu, sem hann er i. Þar munar miklu. En mér finnst síður en svo að gæta þurfi svartsýni — liðið er enn í mótun og þó flestir leikmenn komi frá tveimur félögum, Val og Viking, þá eiga þeir enn eftir að stilla saman strengi sína,” sagði Jóhann ennfremur. H.Halls. SORGLEGT AÐ TAPA FYRIR SVÍUM Á NM — Svíar jöf nuðu á síðasta andartaki og náðu 3ja sæti með að sigra ísland íframlengingu. Flosi Sigurðsson valinn í úrvalslið á NM unglinga í körfu „Það var sorglegt að horfa upp á tap Islenzku strákanna gegn Svlþjóð þvl sá leikur átti að vinnast,” sagði Jón Otti Jónsson i viðtali við DB i gærkvöldi. t æsispennandi leik tókst Sviunum að jafna á siðustu andartökum leiksins I Norðurlandakeppni unglinga i körfu- bolta og leikurínn var framlengdur. Þá var staðan 66 stig gegn 66. Norðurlandamótið fór fram nú um helgina í Lanti í Finnlandi við hinar beztu aðstæður, að sögn Jóns Otta. Leik- urinn við Svia virtist ætla að verða sigur. fyrir ísland því þegar fimm mínútur voru til leiksloka var forusta hinna síðar- nefndu oröin ellefu stig. Þá kom góður kafli hjá Svíum og þeir náðu eins stigs forustu, 61—62. Þegar aðeins 45 sekúndur voru til leiksloks — tæp ein mínúta — var Island með eins stigs for- ustu 66—65 og hafði knöttinn en missti hann undir körfu Svianna — þeir bruna upp, fá þrjú vítaskot en hitta ekki úr neinu þeirra! ísland var aftur með knöttinn — og sekúndurnar voru ekki orðnar nema fimm. Þeir reyna körfuskot en ekki vildi knötturinn ofan í. Svíar bruna upp og fá víti — tvö skot —. Þeir hittu úr öðru þeirra og þar með var jafnteflið orðið staðreynd. 66—66 og leikurinn fram- lengdur um einu sinni fimm mínútur. Svíarnir höfðu til þess að gera yfir- burði i framlengingunni og lokatölurnar urðu 72-77. íslenzkaliðið tapaði fyrir Finnum með 57 stigum gegn 99. Finnar höfðu algjöra yfirburði á mótinu og unnu lið hinna þjóðanna allra með yfirburðum. I úr- slitaleiknum gegn Dönum unnu þeir með 99 stigum gegn 63. Danir komu skemmtiiega á óvart að þessu sinni og náðu 2. sæti og sigruðu erkifjendurna Svia. Þeir sigruðu Island með 86 stigum gegn 56 í ieik þar sem hinir síðarnefndu áttu aldrei möguleika á vinningi. Leikur íslands við Norðmenn var jafn lengi vel þó íslendingar heföu yfirleitt forustuna. Það var ekki fyrr en fimm mínútur voru til leiksloka að hinir sið- arnefndu tóku málin í sínar hendur og lokatölurnar urðu 85—76 íslandi í vil. Fjórða sætið var komið i höfn. í leiknum við Finna var Einar Ó. SteinsSon langbeztur og gerði 13 stig, Guðjón M. Þorsteinsson 10, Kristján Arason og Guðmundur Guðmundsson voru með 8 stig. Flosi Sigurðsson var stigahæstur i leiknum gegn Svíum gerði 20 stig, Sveinn Sigurbergsson 14, Guðjón og Einar 12. Flosi gerði 23 stig gegn Danmörku, Guðjón 10, og Jón H. Steingrímsson 8. Flosi var enn stiga- hæstur íslendinganna i leiknum gegn Norðmönnum, 35 stig, Guðjón 14, Jón 12 og Kristján Arason með 10. Að mótinu loknu var valið í úrvalslið keppninnar, nokkurs konar Norður- landalið. Þar lentu þrír Finnar, einn Dani og einn lslendingur, Flosi Sigurðs- son. Jón Otti Jónsson alþjóðlegur dómari dæmdi fimm leiki á mótinu. Þar á meðal úrslitaleikinn Finnland gegn Danmörku. ÓG. Skotinn vann meistarana Skozki spretthlauparínn Alan Wells sigraði 1 100 og 200 m hlaupum á alþjóðlegu frjálsiþróttamóti i Ástraliu i gær. Sigraði ólympiumeistarana Haseley Crawford, Trinidad, og Don Quarrie, Jamaika. Wells hljóp á 10.40 sek. i 100 m. Quarrie annar á 10.44 sek. og Crawford 3. á 10.60 sek. í 200 m vann Wells á 20.63 sek. Annar varð Paul Narracott, Ástraliu, á 21.27 sek. Norska stúlkan Grete Waitz sigraði með yfirburðum i 2000 m hlaupi á 5:47.17 min. — meira en hálfri mín. á undan i mark. Dennis Norris, N-Sjá- landi, sigraði i 800 m á 1:49.76 mín. Marcuc Russel, Sviss, i 1500 m ái 3:49.19 min. og David Moorcroft, Bretlandi, f 3000 m á 8:07.18 mín. Malcolm Allison er kominn á ný til Man. City. Hefur veríð ráðinn liðsstjórí. „Það verður pláss fyrir okkur báða — Tony Book, núverandi stjóra City, og mig,” sagði Allison á laugardag. Ótrúlegir yf ir- burðir Stenmark — var næstum f jórum sekúndum á undan öðrum manni fstórsvigi heimsbikarsins í gær Ingemar Stenmark, Sviþjóð, vann frábært afrek i stórsvigi heimsbikarsins f Courcheval i Frakklandi. Var næstum 4 sekúndum — fjórum sekúnduml! — á undan öðrum manni f mark. „Þetta er ótrúlegt — vissulega urðu mér á mistök, en að ég yrði þetta langt á eftir Ingimar datt mér aldrei i hug,” sagði Peter t Luscher, sem varð i öðru sæti á eftir Svianum. „Snjór- inn var harður án þess að vera isaður og krafðist tækni. Ég fann bezta rythmann strax og hröðustu linu brautarinnar,” var allt og sumt sem hinn látlausi Svii sagði eftir sigurínn. Aldrei hefur slikur yfirburðamað- ur rennt sér á skiðum fyrr — og yfirburðir hans verða stöðugt meiri. Þrátt fyrir fjóra sigra af fimm mögulegum í þeim greinum heimsbikarins, sem Stenmark hefur keppt í í vetur, er hann enn fimm stigum á eftir Liischer, sem enn hefur ekki sigrað á móti, í stigakeppni heims- bikarins. Stenmark hefur lýst því yfir að hann muni einhvem tímann í vetur keppa í bruni heimsbikarins — en hefur nú neitað að fyrsta keppni hans verði næsta laugardag í Crans-Montana í Sviss eins og gefið hafði veriðískyn. Úrslit í stórsviginu í gær urðu þessi: 1. Ingemar Stenmark, Svíþjóð, 2. Peter Liischer, Sviss, 3. Bojan Krizaj, Júgóslavíu, 4. Jean-Luc Fournier, Frakkl. 5. Heini Hemmi, Sviss, 2:54.33 2:58.06 2:58.13 2:59.88 2:59.96 1 stigakeppninni hefur Liischer nú 105 stig. Sten- mark 100 stig. Ken Read, Kanada, sem sigraði i bruni á laugardag, 65 stig. Bojan Krizaj er fjórði með 49 stig og Peter Miiller, Sviss, fimmti með 41 stig. I stórsvigi kvenna í Les Gets i Frakklandi í gær sigraði hin 17 ára vestur-þýzka stúlka Christa Kin- shofer á 2:12.77 mín. Það er annar sigur hennar í keppni heimsbikarsins. Hanni Wenzel, Lichtenstein, varð önnur á 2:14.72 mín. Regina Sackel, Austurríki, þriðja á 3:15.05 María-Theresa Nadig, Sviss, fjórða á 3:15.67 mín. Anna María Moser sleppti hliði undir lokin og var dæmd úr leik. í stigakeppninni er Maria-Theresa Nadig efst með 90 stig. Hanni Wenzel er í öðru sæti með 80 stig og Anna María Moser þriðja með 75 stig. í fjórða sæti er Christa Kinshofer með 50 stig. Þessar fjórar eru lang- efstar. Finnski skíða- stökkvarinn var í sérf lokki Finnski skfðastökkvarínn Pentti Kokkonen vann mikinn yfirburðasigur á stökkmótinu árlega f Mið- Evrópu. í fjórðu og sfðustu keppninni á laugardag varð Kokkonen enn fyrstur. Stökk 99 og 106.5 metra i brautinni í Bischofshofen í Austurríki — og siðara stökk hans var aðeins hálfum metra styttra en lengsta stökk áður af pallinum i Bischofshofen. Kokkonen hlaut 237.5 stig. Johan Sætre, Noregi, varð annar með 236.9 stig. Pólverjinn Fijas þriðji með 236 stig og Sumi, Sviss, fjórði með 235.8 stig. Sumi stökk 105.5 m. Samanlagt hlaut Kokkonen 815.6 stig úr mótunum fjórum. Sumi varð annar með 782.6 stig og Jocken Danneberg, A-Þýzkaland, þriðji með 780.8 stig. Raketta sprakk — og tveir leikmenn Lazio fluttir á spítala Tveir italskir knattspyrnumenn frá Rómar-liðinu Lazio voru fluttir á spftala f gær eftir að raketta sprakk i gangi leikmanna áður en leikur Lazio og Napoli hófst f 1. deild f Napoli. Lazio setti tvo varamenn inn á og náði jafntefli 1—1. AC Milano vann Catanzaro 4—0 og er nú efst með 21 stig eftir 13 umferðir. Perugia, sem gerði jafntefli á heimavelli við Verona, 1—1, er í öðru sæti með 19 stig. Siðan koma Inter Milano og Juventus og Torino með 16 stig. RITSTJORN: HALLUR SiMONARSON Fyrstir á íslandi með eftirtaldar nýjungar: □ OBC In Line myndlampinn frá Hitachi er nýjung sem gefur bjartari og skarpari mynd. O Sjálfvirkur stöðvaleitari, með minni fyrir 16 rásir. □ Straumtaka í lágmarki, 75 wött á 20 tommur, 95 wött á 22 og 26 tommur, sem gerir FINLUX kerfið það kaldasta á markaðnum. □ Samskonar einingarverk er í öllum stærðum, sem auðveldar alla þjónustu. □ Hægt er að fá þráðlausa (Infra Red) fjarstýringu fyrir allar gerðir (einnig eftir á). Öll FINLUX litsjónvarpstækin hafa verið reynd í 24 tíma í verksm. og eru eingöngu í viðarkassa (Palisander, Hnotu eða hvítu). 20" kr. 398.000.- 22" kr. 480.000.- 26" kr. 525.000.- SJONVARPSBUÐIN BORGARTÚN118 REYKJAVÍK SÍMI27099 . AOR1R ÚTSÖUSTAOIR: Reykjavík: Radió & Sjónvarpsverkst. Laugav.147 Grindavik: Versl, Báran Selfoss: Höln h/f. Vestmannaeyjan Kjarni s/l. Höln Hornafirði: K.A.S.K Stöövarfjörður: Kauplélag Slöðfirðinga Eskifjörður: Versl. Ellsar Guðnas. Egllstaðir: Rafeind Vopnafjörður: Versl. Húsavik: Kaupfél. Þingeyinga Akureyri: Vðruhús K.E.A. Dalvík: Ú.K.E Ólafstjörður Valberg h/f. Ólafsfjörður Kaupfélagið Siglufjörður: Ú.K.E. Sauðárkrókur Kaupfél. Skagfirt Blönduós: Kaupfél. Húnvelning Hvammsfangi: Kaupfél. V-Húnvetnir Hólmavik: Risverslunin Bolungarvik: Radióv. Jóns B. Hauk Tálknarfjörður Kaupfél. Tálknalja Ólafsvik:Tómas Guðmundsson : Stálbúðin

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.