Dagblaðið - 08.01.1979, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 1979.
9
írland:
FIMMTÍU FÓRUST í
OLÍUSPRENGINGU
—sextíu þúsund tonna olíuskip sprakk í tvennt og er nú að sökkva í Bantry
aðalolíuhöf n írlands
Rúmlega sextiu þúsund tonna olíu-
skip sprakk i loft upp í olíuhöfninni við
bæinn Bantry á írlandi snemma í
morgun. Talið er að fjörutíu og þrír af
áhöfn skipsins hafi farizt og í það
minnsta fimm verkamenn við oliu-
stöðina, sem er á lítilli eyju skammt
frá Bantry.
Sjónarvottar segja að við sprenging-
una hafi logarnir teygt sig hundruð
metra upp í loftið og sprengingin hafi
verið svo öflug að rúður sprungu í hús-
um nærri. Slökkviliðið barðist við eld-
inn í allan morgun bæði frá bátum og
einnig var komið lið á land á eynni þar
sem olíubirgðastöðin er. Er þetta aðal-
birgðastöðin á Irlandi. Engin önnur
skip munu hafa verið í höfninni, þegar
sprengingin varð. Olíuskipið sem
sprakk var smíðað árið 1968 í Frakk-
landi og er í eigu franskra aðila. Nafn
þess er Betelgeuse. Liggur það nú í
höfninni í Bantry í tveim hlutum, sem
voru um það bil að sökkva þegar síðast
fréttist.
Ekki er neitt vitað um ástæður
sprengingarinnar. En svipaður at-
burður gerðist í Singapore i október
síðastliðnum. Þar varð öflug sprenging
í vélarrúmi olíuskips, sem skráð var í
Líberíu. Fórust þar fjörutíu og þrír
menn.
Hattur og
andlitsnet
Litlir hattar og net fyrir andlit eru
aftur að komast i tízku. En trúlega
verðum við að biða örlitið fram á vorið
áður en þeir komast i notkun hér-
lendis, þvf það er lítið skjól i þeim i
kuldanum.
IHLUT-
VERKI
NIXONS
Leikarinn Rip Torn mun leika Richard
Nixon fv. Bandarikjaforseta i 8 sjón-
varpsþáttum sem verða teknir upp i mai
nk. Þættirnir nefnast Blind metorða-
girni. Fjallað verður um siðustu ár
Nixons i hvita húsinu, er John Dean var
þar valdamikill og endaði á Watergate
hneykslinu. Martin Sheen leikur John
Dean.
Torn er nokkuð likur forsetanum fyrr-
verandi eins og glóggt má sjá á
myndinni.
Debra Alloway hefur ástæðu til þess að vera glöð þar sem hún heldur á tveimur
dætrum sinum Sonju og Diane. Debraflutti úr eldra húsnæði i Portland i Oregon i
annað i borginni. Tólf dögum eftir að hún flutti hrapaði DC 8 þota United Air
Lines á gamla húsið. Enginn var I húsinu. Tiu af 185 farþegum þotunnar fórust og
69 slösuðust.
MATVÆLA OG
OLÍUSKORTUR
FÓTUR GRÆDDUR Á
Hún litur bjartari augum til framtiðarinnar þessi 11 ára stúlka, EUzabeth McFadden I Bandarikjunum. Hún varð fyrir járn-
brautarlest og slasaðist mjög alvarlega á hægra fæti og aUar likur á þvi að hún missti fótinn.
Eftir sex tima skurðaðgerð tókst læknum á sjúkrahúsinu i Smithtown að græða fót stúlkunnar aftur á. Vonazt er til að
EUzabeth geti notað fótinn að nýju, þótt hann verði e.t.v. nokkru styttri en vinstri fóturinn.
Foreldrar stúlkunnar eru til hægri á myndinni og skurðlæknarnir þrir, sem græddu fótinn á eru til vinstri.
íhaldsmenn spá þvi að þetta verkfall
geti orðið banabiti stjórnar James
Callaghans forsætisráðherra alveg
eins og verkfall kolanámumanna i
Wales felldi stjórn Heaths árið 1974.
Merlyn Rees innanríkisráðherra var
þó hinn hressasti í gær. Sagði hann að
ekki væri nein ástæða til tafarlausra
aðgerða. Til þess væri ástandið ekki
nógu alvarlegt. Ég get ekki sagt að það
sé bjart framundan i innlandsmálum,
sagði ráðherrann en ekkert öngþveiti
er framundan.
Farið er að bera á skorti á mat-
vælum, olíu og ýmsu hráefni og vara-
hlutum fyrir iðnfyrirtæki vegna verk-
falls um það bil fjörutiu þúsund flutn-
ingabifreiðastjóra í Bretlandi. Ríkis-
stjórnin brezka er farin að hugleiða að
lýsa yfir einhvers konar neyðar-
ástandi.
Frú Thatcher leiðtogi íhaldsflokks-
ins og stjórnarandstöðunnar hefur
krafizt tafarlausra aðgerða og vill frú-
in að her landsins verði látinn sjá um
störf verkfallsmannanna.
Vísindamenn ósam-
mála um nýja ísöld
Visindamenn í Houston i Texas
halda því fram að meiri háttar veður-
breytingar séu i vændum í heiminum,
en þeir eru ekki sammála um það
hvort vænta megi nýrrar ísaldar.
Vísindamennirnir eru saman
komnir á ráðstefnu, þar sem ræddar
eru örlagarikar afleiðingar sem miklar
veðurbreytingar hafa í för með sér.
Hvað myndi t.d. gerast i fæðu-
snauðum heimi, ef við stefndum til is-
aldar. Ljóst er að akuryr'kja 'ýrtíi
miklum erfiðleikum háð. Hvað m/uu.
gerast ef fólk á norðurhveli jarðar
flyttist unnvörpum til suðlægari staða?
Siðasta isöld á jörðinni var fyrir 10
þúsund árum. Sumir visindamenn
telja að breytingarnar verði hraðar,
eða gerist á u.þ.b. þrjú hundruð árum.
Breytingarnar verða er sjávarhiti
lækkar og ís myndast í norðurhöfum.
VEGNA VERK-
FALLS BÍL-
STJÓRANNA
FLUTTIA
RETTUM
TÍMA