Dagblaðið - 08.01.1979, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ, MÁNUDAGUR 8. JANUAR 1979.
15
i
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Stórleikur í byrjun, síðan
hrönnuðust villurnar upp
—þegar Pólverjar sigruðu Islendinga 25-20 á laugardag
I
Páll Bjtírgvinsson gnsefir yfir Pólverjana og sendir knöttinn inn á linu til Bjarna Guðmundssonar, sem skoraði.
DB-mynd Bjarnleifur
„Það er ekki nóg að leika eins og
heimsmeistari I tiu minútur — það
verður að vera jafn stígandi allan leikinn
gegn jafn sterku liði og okkar,” sagði
fararstjóri pólska landsliðsins eftir að
Pólland hafði sigraði tsland 25-20 I fyrri
landsleik þjóðanna I Laugardalshöll á
laugardag. Leikur islenzka liðsins var
mjög sveiflukenndur. Stórleikur framan
af — síðan hrönnuðust villurnar upp.
Islenzku leikmennirnir nánast eins og
byrjendur — gripu varla knöttinn hvað
þá annað. Pólverjar gengu á lagið eftir
að tsland hafði skorað þrjú fyrstu mörk-
in. Jöfnuðu I 5-5 og náðu síðan sjö
marka forustu í fyrri hálfleik 16-9. í
síðari hálfleiknum hélt islenzka liðið vel
sínurn hlut — og betur þó. Skoraði 11
mörk gegn níu mörkum Pólverja. En
hinir tveir slæmu kaflar I fyrri hálfleik
gerðu það að verkum að öruggur sigur
Pólverja var I höfn — fimm marka sigur,
sem i sjálfu sér er ekkert til að fara í fýlu
út.af gegn þjóð, sem er I fremstu röð
handknattleiksþjóða heims. Hins vegar
er maður þó engan veginn sáttur við
hvernig ósigurinn bar að. Að visu urðu
strax áföll fyrir leikinn. Axel Axelsson
meiddur i baki og gat ekki leikið —
Ólafur H. Jónsson, félagi hans hjá
Dankersen, lasinn og lék aðeins fvrri
hálfleikinn. ísland var þvi að mestu án
sinna tveggja sterkustu leikmanna.
En byrjunarkafli íslenzka liðsins gefur
þó mikil fyrirheil. Það var vissulega
mikið afrek að koma i veg fyrir í 11
minútur og tiu sekúndur að Pólland —
eitt sókndjarfasta handknattleikslandslið
heims — skoraði mark. Vörnin hreint
frábær þennan upphafskafla og mark-
varzla Óla Ben. snjöll. Meðal annars
varði hann vítakast frá frægasta leik-
manni Pólverja, Jerzy Klempel.
Valsmennirnir Bjarni Guðmundsson
og Þorbjörn Guðmundsson skoruðu tvö
fyrstu mörk leiksins — bæði úr hraða-
upphlaupum. Þá voru aðeins þrjár mín.
af leik og hinir fjölmörgu áhorfendur
komust strax í rétta stemmningu. Næstu
mín. einkenndust af mjög sterkum
varnarleik beggja liða og Pólverjar
misstu Czaczka út af i tvær minútur.
ísland nýtti það. Ólafur Einarsson
skoraði þriðja mark íslands með hörku-
skoti. Þá voru 10 min. af leik og
skömmu siðar var Bjarna visað af velli.
Hann var ekki ánægður með það frekar
en margt annað, sem dómararnir að-
höfðust i leiknum. Þeir voru ekki heima-
dómarar — siður en svo, enda þökkuðu
Pólverjar þeim vel og innilega fyrir dóm-
gæzluna eftir leikinn.
En loks, þegar tslendingar voru einum
færri, fundu Pólverjar leiðina í íslenzka
markið. Hinn snjalli Kaluzinski skoraði.
Ólafur Einarsson svaraði strax með
góðu marki — en næstu tvö mörk voru
pólsk. Czaczka skoraði bæði úr hraða-
upphlaupum. Ólafur Jónsson, Viking,
kom tslandi í 5-3 á fjórtándu min. og
ekkert benti til þess hruns, sem framund-
an var. Pólverjar skoruðu úr viti og
misstu siðan mann út af. Samt skoruðu
þeir tvö mörk einum færri og leikur
íslenzka liðsins hrundi algjörlega. Villa á
villu ofan. Liðið skoraði ekki mark í sjö
mínútur — en Pólverjar fimm. Staðan
breyttist úr 5-3 fyrir tsland i 8-5 fyrir
Pólland. Kafli, sem gerði út um leikinn
— þó annar jafnvel verri ætti eftir að
fylgja.
Bjarni skoraði sjötta mark tslands á
21. min. og á næstu mín. hélt tsland við
með tveimur mörkum Viggós Sigurðs-
sonar. 10-8 fyrir Pólland og tæpar átta
min. eftir af hálfleiknum. Þorbirni Jens-
syni var vikið af velli eftir að hafa áður
gert sig sekan um slæmar villur. Pólverj-
ar skoruðu og skoruðu. Komust i 8-14,
þegar Ólafur Jónsson skoraði niunda
mark íslands. Tvö síðustu mörk hálf-
leiksins voru svo pólsk, 16-9 í hálfleik. t
þessum hálfleik sást það bezta, sem
tsland getur sýnt — siðan jafnframt það
versta.
Þegar undan fæti hallaði gætti stjórn-
leysis — bæði innan vallar og á bekkn-
um. Vörnin galopnaðist og markvarzla
varð engin — Óli Ben. sem hafði byrjaði
svo vel, komst i algjört óstuð. Samt fékk
hann ekki aö vikja úr markinu. Hann
varði þrjú skot í byrjun. Siðan ekki
söguna meir og fékk á sig 16 mörk. Það
var þó langt i frá að við hann einan væri
að sakast. Vörnin bókstaflega gufaði
upp — og furöulegt að Óla Ben., nafna
hans H. Jónssyni veikum skyldi ekki
skipt út, og Páll Björgvinsson hvíldur i
varnarleiknum. Álag var alltof mikið á
honum i leiknum — álag, sem hlaut að
bjóða upp á villur, sem og kom á daginn.
Tvövíti
misnotuð
Pólverjar juku muninn i átta mörk í
byrjun siðari hálfleiks — en síðan fylgdu
þrjú íslenzk mörk, 17-12, og þessi munu
hélzt að mestu til loka. tslandi tókst tví-
vegis að minnka muninn niður i þrjú
mörk, 19-16 og 21-18 — og enn betur
hefði verið hægt að gera ef tvö vítaköst
hefðu ekki verið misnotuð Fyrst Ólafur
Einarsson en Bjarni skoraði reyndar í
sömu sókn — síðan Þorbjörn Guð-
mundsson. Lokatölur 25-20. Þaö voiu
oft mikil átök i hálfleiknum — sex leik-
mönnum þá visað af leikvelli. Fimm
tslendingum i öllum leiknum — sex Pól-
verjum. Pólland fékk sex vítaköst í leikn-
um. nýtti fimm. ísland þrjú vitaköst.
Nýttieitt.
Verðskuldaður sigur Póllands i leik,
sem lofaði svo miklu fyrir lsland i byrj-
un. Sú von brást en gefur fyrirheit um
að jafnvel góðir timar séu framundan,
þó ég sé persónulega ekki alveg sáttur
við 2—3 leikmenn, sem Jóhann Ingi
valdi endanlega í landsliðshóp sinn.
Leik^nenn, sem betur hefði mátt nýta,
fyrir utan.
Tveir leikmenn báru af i islen/ka
liðinu, ólafur Jónsson Vikingur og Þor-
björn Guðmundsson. Ólafur að verða
einn albezti leikmaður fslands. Skoraði
fjögur falleg mörk úr vinstra horninu og
er sterkur i vörn. Það er Þorbjörn líka og
varð markhæsti leikmaður liðsins. Þá
voru villur þeirra fáar. Bjarni náði sér
einnig vel á strik í leiknum — cn uröu á
óvenju margar villur. Þessir leikmenn
léku nær alian leikinn ásamt Páli. sem
hafði það erfiða hlutverk að halda
sóknarleik Islands gangandi. Pólvcrjar
lögðu greinilega mikla áherzlu á aögæta
hans vel á kostnað varnar sinnar — og
það tókst öðrum leikmönnum Islands
ekki að nýta nógu vel. Jens Einarsson
varði markið allan siðari hálfleikinn og
stóð sig allvel. Varði sex skot. Fékk á
sig niu mörk. Ólafur Einarsson skoraði
góð mörk en urðu á mistök eins og
öðrum. Fyrirliðanum, Árna Indriðasyni,
var tvivegis vikið af leikvelli — en var
eini leikmaður liðsins, sem ekki missti
eða glataði knettinum á annan hátt.
Mörk Islands skoruðu: Þorbjörn 5/1,
Bjarni 4, Ólafur Einarsson 4, Ólafur
Jónsson 4, Viggó 2 og Páll I. Mörk Pól-
ands skoruðu Garpiel 8, Kaluzinki 4,
Czaczka 4, Klempel 4/4, Waszkiewiez 2,
Kosma 2/1 og Kulenko 1.
- hsim.
DB-mynd Bjarnleifur.