Dagblaðið - 08.01.1979, Page 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. JANUAR 1979.
19
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
I
KOLD SPENNA ÞEGAR UMFN
VANN ÍR í UÓNAGRYFJUNNI
—Yf irburðasigur Njarðvíkinga, 104 stig gegn 78
Njarðvikingar unnu eiginlega tvöfald-
an sigur yfir ÍR-ingum, syðra á laugar-
daginn, 1 úrvalsdeildinni i körfuknattleik.
Litlir kærleikar hafa verið með þessum
aðilum siðan Paul Stewart veittist að
Stefáni Bjarkasyni, á vallarmóti með
fremur leiðinlegum eftirköstum. Næsta
leik á eftir töpuðu svo Njarðvikingar
fyrir ÍR-ingum, sem léku án Stewarts.
Þeim var þvi mikið f mun að hefna þeirra
ófara um leið og þeir gætu aftur blandaö
sér fyrir alvöru i toppbaráttuna, en tap
fyrir ÍR-ingum öðru sinni mundi rýra
mjög möguleikana á langþráðum meist-
aratitli.
Áðurnefndar aðstæður orkuðu
greinilega mjög hvetjandi á leikmenn
UMFN. Þeir lögðu sig alla fram í
leiknum meira en nokkru sinni áður í
vetur og uppskáru eins og þeir sáðu, yfir-
burðasigur, 104—78. Með þeim tveimur
stigum sem þeir fengu þarna í sinn hlut
er heildartalan orðin 14, eftir 11 leiki, en
KR-ingarhafa hlotið 16 stig í 11 leikjum
Valsmenn standa líka vel að vígi, þeir
hafa náð 12 stigum eftir aðeins 9 leiki.
Hver leikur á milli nefndra liða, sem
eftir er, verður því úrslitaleikur, þar
sem áhorfendur láta sig varla vanta til
að fylgjast með hver hreppir hnossið.
Fremur köld spenna ríkti í „Ljóna-
gryfjunni” í Njarðvik, þegar leikurinn
hófst. Leikmenn urruðu kannski ekki
sins og konungur dýranna, en augna-
ráðið gaf til kynna að ekkert yrði eftir
gefið. ÍR-ingar voru mjög þrúgaðir —
ekki síður en heimamenn. Óvæntur
sigur yfir efsta liðinu, KR-ingum, sem
kom sér óneitanlega vel fyrir UMFN,
vakti vonir um að þeir gæru blandað sér
í baráttu efstu liðanna, tækist þeim að
ganga með sigur af hólmi í þessum leik
gegn UMFN. Ekki var heldur hægt að
segja að áhorfendur, sem næstum fylltu
bekkina, væru á bandi gestanna.
Framan af fyrri hálfleik skiptust liðin
á um forustuna, í rólegu spili rétt eins og
vél í hægagangi. Mest bar á Paul
Stewart, hjá iR-ingum en þótt honum
væri ekki laus höndin, fékk hann að
leika allt of lausum hala og gat þvi bæði
skorað og spilað með góðum árangri.
Ted Bee var að sama skapi maðurinn á
bak við leik UMFN — kænn að vanda
og hittinn. 16—16, 20—20, 28—28,
mátti lesa á Ijósatöflunni, en þá skutust
ÍR-ingar upp fyrir heimemenn, með
körfum lykilmanna sinna, bræðranna
Kristins og Jóns Jörundssona. Ingi
Gunnarsson liðsstjóri UMFN, greip þá
til þess ráðs og tók þar nokkra áhættu að
setja Stefán Bjarkason í leikinn en hann
hefur orðið fyrir ómaklegum ásökunum
vegna „Stewart-árásarmálsins”. Stefán
stóðst raunina. Skoraði hverja körfuna
af annarri og var vel fagnað þegar hann
jafnaði fyrir UMFN, 38—38, þótt
Stewart gætti hans.
En nú var eins og stíflan brysti hjá lR-
ingum. Körfurnar flæddu yfir þá, ef svo
má að orði komast. Jónas Jóhannesson,
Gunnar Þorvarðsson, Geir Þorsteins-
son, og Ted Bee, náðu 16 stiga forustu
fyrir hlé, með fallegum körfum, þótt
seinasta karfa Teeds, væri tilkomumest.
— uppstökk og langt svif, án vængja,
þar sem knettinum var „troðið” í
körfuna. Uppáhaldsskorun hvers körfu-
knattleiksmanns.
En ÍR-ingar hafa áður staðið i þeim
sporum að þurfa að vinna upp 16 stiga
forskot gegn UMFN. Nokkur kurr fór
um áhorfendabekkina, þegar þeir
byrjuðu að saxa á forskotið í seinni hálf-
leik — mest fyrir tilverknað Stefáns
Kristjánssonar, bráðefnilegs leikmanns,
sem skoraði mest úr langskotum, en er
annars mjög einhliða spilari. Þvi miður
fyrir ÍR-inga dugði snilli Stefáns ekki til.
Máttarstólpar liðsins tóku að þreytast og
þá kom í Ijós hvað breiddin er litil hjá
tR-ingum. Styrkleikinn féll niður úröllu
valdi við skiptingarnar, svo að heima-
menn, sem höfðu sett „benzinið í botn”
tóku öll völd í sínar hendur svo að loka-
minúturnar voru leikur kattarins að
músinni, en endanleg stigatala, 104—
78.
Njarðvikingar sýndu það núna, að
þeir hafa yfir mikilli breidd að ráða og
þeir væru líkast til á toppi deildarinnar
ef þeim hefði lánast fyrr að færa sér það
i nyt. Allir yngri mennirnir stóðu sig vel
og skoruðu, þó Júlíus Valgeirsson, hafi
staðið sig þeirra bezt með góðri hittni og
sendingum. Um Ted Bee þarf varla að
ræða. Hann sannar afburðahæfileika
sina sem körfuknattleiksmaður, betur og
betur með hverjum leik sem hann spilar.
Þrátt fyrir bakveiki lék Geir Þorsteins-
son sennilega sinn bezta leik á ævinni,
með traustum varnaleik, góðu spili og
hittni. Stefán Bjarkason, vann þarna
„móralskan” sigur, en Gunnar Þor-
varðsson og Guðsteinn Ingimarsson létu
sitt ekki eftir liggja, þótt þeir skoruðu
ekki eins og oft áður.
ÍR-ingarnir réðu sýnilega ekki við
hraða UMFN, þegar til lengdar lét.
Byrjunin var góð, en síðan hrökk allt i
baklás. Þrátt fyrir slæma útreið er ekki
rétt að „afskrifa” iR-inga, þeir geta enn
sett strik í reikninginn hjá „risunum” i
deildinni, eins og dæmin sanna —
en laugardagurinn í Njarðvik, var ekki
þeirra.
Stig UMFN: Ted Bee 27 Geir Þor-
steinsson 23, Stefán Bjarkason 14, Júlíus
Valgeirsson 10, Gunnar Þorvarðarson
og Jónas Jóhannesson 8, Jón Viðar
Matthíasson, Árni Lárusson og
Guðsteinn Ingimarsson 4 og Guðbrand-
ur Lárusson 2.
Stig ÍR: Paul Stewart 29, Kristinn
Jörundsson 17, Stefán Kristjánsson 15,
Jón Jörundsson 6, Kolbeinn Kristinsson
7, Steinn Björnsson 4, Sigurbergur
Bjamason 2.
Dómarar voru þeir, Eriendur
Eysteinsson og Eiríkur Jóhannesson og
dæmdu mjög vel. -emm.
Geir Thorsteinsson sendir knöttinn i körfii tR-inga á laugardag.
d-mynd emm.
„Ég þekki til Islendinga, þeir
hafa áður orðið til vandræða"
- víða um Evrópu, sagði Kurt Wadmark, formaður aganefndar IHF en hann kærði og
dæmdi Víking úr Evrópukeppni bikarhafa
„Ég þekki til íslendinga. Þú þarft ekki
að segja mér, að þeir hafa áður orðið til
vandræða viða um Evrópu áður,” sagði
Kurt Wadmark, formaður aganefndar
IHF — Alþjóðahandknattleikssam-
bandsins í viðtali við blaðamann á laug-
ardag.
En eiga Vikingar að gjalda þess? „Svo
er ekki," sagði Wadmark „Þeir brutu
tvær rúður í Ystad og það var samdóma
álit dómstólsins — þeirra Ivan Kunst,
Carl Wang og mín, að dæma Víkinga úr
leik • í Evrópukeppni bikarhafa,” sagði
Wadmark ennfremur.
Þá kom fram i viðtali við Wadmark,
að hann hafi sjálfur kært Víkinga, ekki
Ystad. „Dómurinn er sanngjarn, við
vorum allir sammála. Harðir dómar
hafa siðustu árin fallið í knattspyrnu og
þó ekki sé fordæmi í handknattleiknum
fyrir dómi sem þessum, þá er þó svo í
knattspyrnu," sagði Wadmark.
Þar er formaður aganefndar IHF að
vitna til banns á Leeds United er 10 þús-
und áhangendur Leeds nánast gengu
IS án Dunbar gaf
KR-ingum tvö stig
KR-ingar tryggðu enn stöðu sina í úr-
valsdeildinni í körfuboltanum með þvi að
sigra stúdenta í Hagaskólanum i gær.
Lokatölurnar 88—66 1 sannast sagna
fremur lélegum leik. Helzti munurinn á
liðunum var að rangar scndingar ÍS voru
fleiri og vitahittni einnig verri.
Þess sáust líka glögg merki að
Dunbar vantaði í lið stúdentanna. Hann
var fyrir utan nýkominn úr jólaleyfi frá
Bandarikjunum. Meiðslin í hné há
honum svo ennþá að hann getur ekki
leikið.
Hjá KR-ingum bar mest á Jóni
Sigurðssyni sem nú var allur annar en i
leiknum á móti ÍR á dögunum. Jón gerði
þrjátiu stig.
Ástandið er fremur slakt hjá ÍS um
þessar mundir. Aul! fjarveru Dunbar,
hafa æfingar hjá liðinu legið nær alveg
niðri um jólin vegna fjarveru leikmanna.
Leikur liðsins dregur einnig dám af því
auk þess sem einn máttarstólpa liðsins,
Bjarni Gunnar, hefur verið meiddur.
Staðan í leikhléi var 42 stig gegn 36
KR-ingum í vil. Aðeins sex stiga munur.
í síðari hálfleik féll síðan allt niður hjá ÍS
og lokatölurnar eins og áður sagði 88
gegn 66 og KR bætti tveim stigum við í
safnið.
Jón Sigurðsson varð stigahæstur hjá
KR eins og áður sagði með 30 stig, John
Hudson með 16 og Einar Bollason var
með 12 stig.
Gísli Gíslason, sem lék sinn fyrsta leik
með ÍS var einna drýgstur þeirra og
gerði fjórtán stig, Ingi Gunnarsson var
með !2ogBjarniGunnar 11. -ÓG.
berserksgang i París eftir ósigur Leeds,
0—2 í úrslitaleik Evrópukeppni meist-
araliða gegn Bayern Múnchen vorið
1976. Tíu þúsund Englendingar létu
öllum illum látum i París og urðu
skemmdir miklar. Leeds var dæmt í
, tveggja ára bann frá Evrópukeppni. Þá
féll einnig dómur gegn Manchester
United er svipaður fjöldi áhangenda
United olli miklum óspektum í
Frakklandi er United lék við St. Etienne.
Manch. United var dæmt úr leik en
þeim dómi var síðar aflétt.
Dómur aganefndar IHF hefur vakið
mikla athygli í heimi handknattleiksins.
Aldrei áður hefur slikur dómur verið
kveðinn upp. Sven Age-Frick, sænski
landsliðsmaðurinn, sagði um helgina, að
leikmenn Ystad hörmuðu þennan dóm
— engin ákæra hefði borizt frá leik-
mönnum Ystad.
Aganefnd IHF lagði til grundvallar
dóminum fagnaðarlæti Víkinga eftir sig-
urinn í Ystad. Er leikmenn Vikings
höfðu sigrað Ystad 24—23 i Ystad var
haldin mikil veizla, af Ystad hálfu og var
Vikingum boðið. Þar var áfengi haft um
hönd og í glaumi og gleði er Víkingar
voru á leið til hótels síns, brotnuðu tvær
rúður, — „annað gerðist ekki," sagði
lögreglan i Ystad í viðtali við DB.
Ystad kærði ekki, „ég tók málið upp
sem formaður aganefndar IHF og hafði
samband simleiðis við Ivan Kunst i
Rúmeníu og Carl Wang í Noregi, þar
sem ég skýrði þeim frá málavöxtum og
byggði það á lögregluskýrslum og blaða-
fregnum,” sagði Wadmark ennfremur.
„Ystad kærði framkomu Vikinga, og
þó blaðafregnir i Svíþjóð hafi verið stór-
lega ýktar þá var það álit okkar að dænia
Víkinga í bann,” sagði Carl Wang í við-
tali við blaðamann.
Furðulegt, þarna stangast á fullyrð-
ingar þessara tveggja nefndarmanna því
Curt Wadmark sagðist sjálfur hafa kært
Víking. Það, sem ef til vill er alvarlegra
við dóm IHF, að með flautu dómara er
leik ekki lokið. Setjum dæmið upp —
segjum að íslenzkt lið tapi fyrir erlendu
liði i Evrópukeppni i Reykjavík. Þá.ef til
vill væri hægt að bjóða leikmönnum í
veizlu, og eins og oft í slikum tilvikum
væri áfengi haft um hönd. Síðan væri
ekkert einfaldara en að koma af stað
slagsmálum, og láta lögreglu handtaka
hina erlendu leikmenn. Kæra síðan —
og i framhaldi af hinum furðulega dómi
IHF gæti ekki nema eitt átt sér stað —
dæma hið erlenda félag úr leik. Rúðu-
brot Víkings — óviljandi þó — eru í
sjálfu sér óafsakanleg en að láta félag
gjalda þess er fáránlegt. Nær hefði verið
að láta viðkomandi taka út refsingu —
þáerbrutu rúðurnar.
H.Halls.
„Útilokað — hreint
ótrúlegur dómur”
—sagði þjálfari pélska landsliðsins
umVíkingsdóminn
„Þessi dómur IHF eru útilokaður,
hreint ótrúlegur. Það getur engan veginn
staðizt að hægt sé að dæma liö úr
keppni, heilt lið vegna tveggja rúða er
hafa brotnað — slíkt getur ekki
staðizt,” sagði Jacek Z\linicki, þjálfari
pólska landsliðsins er DB bar undir hann
hinn óvænta dóm IFH, Alþjóðahand-
knattleikssambandsins yfir Víking.
„Tvær rúður brotnar
annað gerðist ekki”
— segir f ulltrúi lögreglunnar f Ystad
„Það er rétt, við þurftum að hafa af-
skipti af nokkrum ungmennum úr
islenzka handboltaliðinu aðfaranótt 17.
desember sl„” sagði lögreglufulltrúi á
aðalstöð lögreglunnar i Ystad i Sviþjóð i
simtali við fréttamann blaðsins I gær.
„Þetta kom til út af þvi,” sagði lög-
regíufulltrúinn, „að þeir brutu rúður 1
tveimur verzlunum, eina rúðu í hvorri.
Einn þeirra var tekinn til geymslu af
okkur í klukkutima, en þá komu félagar
hans og sóttu hann. Annað var það
ekki.”
Lögreglufulltrúinn, K. Mahlson, sagði
að skaðabótakröfur hefðu komið fram
vegna rúðubrotanna, en enn væri ekki
Ijóst hversu miklar bætur væri farið fram
á. -ÓV.