Dagblaðið - 07.02.1979, Page 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1979.
Gullgrafararnir eru enn að i þeim ágætu þáttum sem börnum eru sýndir milii kl.
18 og 19 á miðvikudögum.
Kerlingahópar
væla
yf ir sjónvarpi
— og heimta stórabróður
G.B.skrifar:
Íslendingar. Ástæðan fyrir því að ég
hripa þessar línur er sú að sá grunur
hefur læðst að mér að verið sé að
beygja allar skoðanir þjóðarinnar
undir eina. Sífellt er verið að skrifa og
væla yfir ýmsum sjónvarpsþáttum
(t.d. Ég Kládíus) sem samræmast ekki
skoðunum kerlingahópá víða um land.
Ástæðan virðist vera sú að þeirra
dómi að ýmsir óæskilegir hlutir sjást
þar sem ekki verða taldir upp hér.
Einu rökin sem þær hafa eru þau að
ungarnir þeirra séu nær dauða en lífi
af skelfingu yfir að hafa horft á slíka
þætti. Lausnina telja þær einfalda.
sjónvarpið á bara að fá sér skæri og
klippa þessi atriði úr. Ég ætla ekki að
fjölyröa um hinn sjálfsagða höfunda-
rétt, en hvers virði væru listaverk og
önnur verk ef hver sem væri mætti
tæta þau niður að vild og miðla þeim i
nafni höfundar.
Það hljóta allir að sjá aö með þessu
áframhaldi er stóri bróðir ekki langt
undan. Setningin, skoðanirnar eru
jafn margar mönnunum segir meira
en mörg orð. Því fer vel að ljúka þessu
bréfi með þeim og ósk um að heil-
brigðir menn á þessu landi vakni og
sporni við fótum jafnvel þótt það sé ár
barnsins.
{ „Síiellt cr verið að skrifa og væla yfir ýmsum sjónvarpsþáttum (t.d. Ég Kládtus)
1 sem samræmast ekki skoðunum kerlingahópa viða um land.
Hugleiðing um sjónvarp
Mætti raða betur
niður á dagskrána
Orri skrifar:
Sjónvarpið er orðinn mjög stór
þáttur í tómstundaafþreyingu
þjóðarinnar og hjá mörgum er það
nánast hið eina sem til skemmtunar
getur talizt, kvöld eftir kvöld og ár
eftir ár.
Þess vegna er það ekki lítið atriði
fyrir andlega heilsu fjölda fólks að
sjónvarpsdagskráin sé góð og upplífg-
andi. En anzi mikið vantar á að svo sé
og segja má að stöðugt halli undan
fæti I þeim efnum.
Vonlaust er að segja fólki að ekki sé
til frambærilegt efni i okkar stuttu
dagskrá. Það vantar aðeins áhuga-
sama hæfileikamenn til að útvega
það og ekki er seinna vænna að fara að
breyta til. Þau eru orðin allt of mörg
kvöldin sem sjónvarpið er fyrir neðan
allar hellur.
Eitt er það sem sjónvarpið gæti gert
tilraun með og athuga hvort ekki
mæltist vel fyrir. Það er að raða
öðruvísi niður á dagskrá kvöldsins. Sú
meinloka virðist sitja föst i kollinum á
þeim sem þessu stjóma að sé kvik-
mynd á dagskrá verði hún óhjá-
kvæmilega að vera síðust á dagskrá.
En það er nú einu sinni svo að fjöldi
fólks þarf til vinnu mjög snemma á
morgnana og sumir alla daga
vikunnar. Má nefna bændafólk. Ef
það á að fá nægan svefn verður það að
sleppa þeim myndum sem standa til
miðnættis. En það er svo með þessar
kvikmyndir að þó þær séu anzi mis-
jafnar að gæðum þá eru þær oft það
forvitnilegasta á dagskránni. Þess
vegna væri reynandi að láta bíó-
myndir ekki standa lengur en til kl. 23.
Ef þörf er talin á lengri dagskrá mætti
hafa eitthvað af þessu uppfyllingar-
rusli sem nóg er til af, svo sem „skak-
hljómsveitir” og þvi um likt.
Eitt enn mætti taka til athugunar
og það er barna- og unglingatíminn
er hefst kl. 18. í þessum limum hefur
komið fram margt ágætt efni til
fróðleiks og skemmtunar sem fólk á
öllum aldri hefði getað haft gaman
af. En þessi þáttur er á það slæmum
tíma að efni hans fer fram hjá flestum.
Nær væri að flytja á kvölddagskránni
það efni sem hæfir unglingum og
fullorðnum en hafa aðeins smá-
barnatímakl. 18.
Skyldi ekki fleirum en mér finnast
hálfkauðalegt þegar fréttaþulur býður
gott kvöld og hefur lestur frétta
falinn ba,k við einhverja mynd? Þetta
er nú einu sinni kallað sjónvarp en
ekki hijóðvarp og því þætti mér
viðkunnanlegra að sjá framan i
viðkomandi þegar hann býður gott
kvöld.
Og meðal annars, til hvers eru
þulurnar? Texti á skjánum gerir sama
gagn og er miklu ódýrari. Að visu hafa
sumar verið augnayndi fyrir kárlmenn
þjóðarinnar en bæta mætti nokkuð úr
missinum með því að huga vel að
útliti annarra kvenna sem koma fram
í sjónvarpi. Það er nú einu sinni svo að
flestir kunna betur við að sjá á
skjánum fólk með geðuga og þægilega
framkomu. Það má segja að þetta fólk
sé sent inn í stofu til flestra landsins
barna og þar af leiöandi er útlit þess
og framkoma ekki lengur einkamál
þess. Það er ekki þægilegt að horfa á
fólk sem er svo taugaveiklað að engu
er líkara en að það sitji á tímasprengju,
eða þá svo ömurlegt útlits að bezt færi
á því að það hefði einhverja hlif fyrir
öllu andlitinu. En sem betur fer hefur
tekizt vel val þeirra sem skjáinn prýða
að staðaldri.
Þrir af ráðherrunum sem hvattir eru lögeggjan.
Hvatning til ríkis-
stjórnarinnar?
Sveinn Sveinsson skrifar:
Í Alþýðublaðinu þann 31. f.m.
sendi ég ykkur kveðju mina, cr ég
endurtek hérmeð. Ég veit að lang-
flestir islendingar eru mér sammála
um að ef þið, háu herrar, sameinist
ekki um að leysa vanda þjóðarinnar þá
þurfið þið ekki að leita til okkar kjós-
íbúi Laugavegs 51B kom við á rit-
stjórn DB.
Var hann mjög sár yfir því að sendi-
ferðabilstjórar legðu bílum sinum
þannig að ekki væri hægt fyrir sig og
aðra íbúa hússins að komast inn.
Húsin eru byggð á baklóð og er mjór
undirgangur ætlaður íbúum til inn-
göngu. En þegar verið er að koma með
vörur i verzlanir leggja bílstjórarnir
endanna framar. Á ykkur setjum við
traust okkar enn, þrátt fyrir allt. Þvi er
það min eindregin ósk og áskorun að
þið sleppið öllu innbyrðis þrasi, en
látið sitja fyrir öllu að leysa vandamál
þjóðarinnar og vinnið að því með
heilum hug.
Ef þið gerið það ekki munið þið sjá
þannig að bilarnir fylla með öllu út í
göngin. Sagðist maðurinn hafa fundið
að þessu við lögreglu en hún ekkert
viljað gera þar sem þarna væru engin
urpferðarmerki sem gæfu til kynna að
bannað væri að leggja. Spurði maður-
inn þá, hvernig væri að koma því upp,
og var svarað að það væri ekki á
verksviði lögreglu. Vildi maðurinn
því koma fyrirspurn sinni áfram til
þeirra sem hlut eiga að máli.
hvernig fer. Minnist gullkistunnar
sem ég benti ykkur á í síðustu grein
minni í Alþýðublaðinu, er fyrr getur.
Ef þið vitið ekki hvar gullkistuna er að
finna, þá leitið mig uppi. Ég skal með
mikilli ánægju benda ykkur á hana.
Heimilis-
læknir
Raddir lesenda taka við
skilaboðum til umsjónar-
manns þáttarins „Heimil-
islæknir svarar" í síma
27022, kl. 13-15 alla
virka daga.
Ófært inn í húsið
ffyrir sendibflum
> ~ >*> .VíW-íÍ ; .' .