Dagblaðið - 08.02.1979, Qupperneq 22
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1979.
Dauðinn á Níl
AGATHA CHRISTKS
!®ca
, PfTHl USTIHOV • UHIBIRKIN • LOB CHIIB
BOTlDiVK - MUfittOW ' JONflNCH
OUVLA HUSSfY • LS KHUli
I GtOftGt KfNNftY - ÁHGfLi LANS6URY
1SIMON MocCOtfKINDllf • DAVID NIYfN
MAGGKSMITH' UCKIttRDfH
.nmtmu DfAIHONIHfNIII
ftásnl
Frábær ný ensk stórmynd, byggð á sögu
eftir Agatha Christie. Sýnd við metað-
sókn Víða um heim núna.
Leikstjóri: John Guillermin
íslenzkur texti.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 3,6 og 9.
Hækkað verð.
Spennandi og skemmtileg ný ensk
bandarísk Panavision-litmynd, með Kris
Kristofferson, Ali MacGraw — Leik-
stjóri: Sam Peckinpah.
íslenzkur texti. __
Sýndkl. 3.05,5.4Ö, 8.30 og 10.50. 1
■salur
ökuþórinn
Hörkuspennandi og fjörug ný litmynd
íslenzkur texti.
Bönnuðinnan 14 ára. ,
Sýnd kl. 3.10, 5.05,7.05,9.05 og 11.05.
" salur
Liðhlaupinn
m
D.
Spennandi og afar vel gerð ensk litmynd
með Glenda Jackson og Oliver Reed.
Leikstjóri Michel Apdet.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 3.10, 5.05,7.05,9.05 og 11.05.
A
Aukin tillitssemi
bætir umferðina
UMFERÐARRÁÐ
I
GAMIA BÍÓ
Ótemjan
wí- jfetusov
K
Wull Disney
PnMliH'tlitnn'
Skemmtileg og spennandi ný Disney-
mynd, tekin í Ástralíu.
íslenzkur texti.
Sýndkl. 5,7 og9. i
> ii iíi ' ~ —
HAFNARBÍÓ
Með hreinan skjöld
Endalokin
I
Sérlega spennandi og vel gerð ný banda-
risk litmynd, byggð á sönnum atburðum
úr ævi lögreglumanns. Beint framhald af
myndinni „Með hreinan skjöld’’ sem
sýnd var hér fyrir nokkrd.
Bo Svenson
Margaret Blye.
Íslenzkur texti. ’
Bönnuðinnan lóára.
Sýndkl. 5,7,9 og 11.15.
Kvikmyndir
AUSTURBÆJARBlÓ: Seven Beauties. Aöalhlut-
verk: Giancarlo Gianni, Fernandi Rey, leikstjóri: Lina
Wertmuller. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5,7 og 9.
BÆJARBÍÓ: Sjö menn við sólarupprás. Sýnd kl. 9.
Bönnuðbörnum.
GAMLA Bló: Sjá auglýsingu.
H AFNARBlÓ: Sjá auglýsingu.
HÁSKÓLABlÓ: Grease, aðalhlutverk Olivia New-
ton-John og John Travolta kl. 5 og 9. Islenzkur texti.
Hækkað verð.
LAUGARÁSBÍÓ: Derzu \Jta\a sýnd kl. 9,Kanonball
sýnd kl. 7. Ein meðöllu sýnd kl. 5.
NÝJÁ BÍÓ: Silent Movie kl. 5,7 og 9.
RF.GNBOGINN: Sjá auglýsingu.
.TÓNABÍÓ: Loppur, Klær og Gin (Paws, Claws and
•Jaws). Sýnd kl. 5,7 og 9.
STJÖRNUBlÓ: Street Fightcr. kL 5, 9 og 11.
Liðhlauparnir kl. 7.
HAFNARFJARÐARBÍÓ: Bleiki pardusinn leggur til
atlögu. Aðalhlutverk Peter Sellers. Sýnd kl. 9.
Dagblað
án rikisstyrks
O /CS • •
ENDURSKINS-
MÉRKIERU
NAUÐSYNLEG
FYRIR ALLA
umferðarrAð
ð
Útvarp
D
Halldór Haraldsson og Gisli Magnússon hafa leikið mikið saman á tvö píanó. Léku þeir meðal annars á listahátfðinni I
sumar og voru tónleikar þeirra hinir fyrstu i Þjóðleikhúsinu I langan tima. DB-mynd Ari
GÍSLIMAGNUSSON — útvarp íkvöld kl. 22.20:
SÓNATÍNA OG MARS TIL
HEIÐURS RAGNARI í SMÁRA
„Þessi verk Jóns eru bæði gömul.
Sónatinuna samdi hann árið 1945 þegar
hann var, að'ég held, enn við nám i
Bandaríkjunum. Marsinn er síðan sam-
inn árið 1954 til heiðurs Ragnari i
Smára sem þá var fimmtugur.
Verkið var gefið út í sérstöku afmælis-
blaði sem þá kom út,” sagði Gísli
Magnússon pianóleikari um tvö verk sem
hann leikur í útvarpi í kvöld. Verkin sem
heita Sónatina og Alla Marcia eru bæði
eftir Jón Þórarinsson. „Þessi verk eru
létt og skemmtileg,” sagði Gísli.
V______________________________________
Aðspurður um það hvað hann væri
sjálfur að gera um þessar mundir, sagði
hann:
„Ég kenni nú aðallega og þá í Tónlist-
arskóla Garöabæjar. Ég er þar með
nemendur á öllum aldri, jafnt byrjendur
sem langt komna.
Ég lék í haust einleik með Sinfóníu-
hljómsveitinni konsert eftir Jón Nordal
og i april stendur til að ég leiki á
kammertónleikum i Félagsstofnun
stúdenta. Þar leikum við Sigurður
Snorrason klarinettuleikari og Mark
Reedman fiðluleikari saman verk eftir
Bartok og að öllum likindum nýtt verk
eftir Leif Þórarinsson.”
Gísli hefur undanfarin ár leikið mikið
með öðrum, hann var spurður hvort
slíkur samleikur væri á enda.
„Við höfum leikið mjög mikið saman
við Halldór Haraldsson en nú er hann
að gera aðra hluti. Hann er að æfa
konsert sem hann leikur með
sinfóníunni í marz. Hvað eftir það
verður er óvíst,” sagði Gísli. -DS.
NEYTENDAMÁL—útvarp í dag kl. 15.45:
BEIN LÍNA í BRÉFA-
FORMI
„Þessi þáttur er hugsaður þannig að
neytendur geti haft samband við stjórn-
endur bréflega og borið upp sin vanda-
mál sem neytendur og við reynum síðan
að svara þeim. Þetta er því eins konar
bein lína í bréfaformi,” sagði Árni Berg-
ur Eiriksson stjórnarmaður í Neytenda-
samtökunum. Árni hefur í dag umsjón
með þætti um neytendam^l í útvarpi.
Þátturinn verður hálfsmánaðarlega,
klukkan 15.45 á fimmtudögum og munu
Árni og Rafn Jónsson kennari, sem
einnig er í stjórn Neytendasamtakanna,
sjá um hann til skiptis.
„Við reynum einnig að taka fyrir það
sem helzt er að gerast i neytendamálum
erlendis því miðað við allt starfið víða í
útlöndum er bókstaflega ekkert að ger-
ast hér.
Nú, í fyrsta þættinum í dag fer aðal-
lega fram kynning á þvi sem við ætlum
að gera. En einnig verður rætt við Gísla
Jónsson prófessor, sem er einnig í stjórn
Neytendasamtakanna, og Svavar Gests-
son viðskiptaráðherra, en undir hann
heyra neytendamál.
Eftir þennan fyrsta þátt vonumst við
svo eftir stafla af bréfum frá hlustendum
til að vinna úr i framtlðinni,” sagði Árni.
-DS.
n
Árni Bergur Eiriksson sér um hinn nýja
neytendaþátt útvarpsins til að byrja með.'
Til stendur einnig, að sögn Svavars
Gestssonar, að taka upp neytendaþátt I
sjónvarpi.