Dagblaðið - 13.02.1979, Page 4

Dagblaðið - 13.02.1979, Page 4
! DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979. Neytendasamtökin í Borgarnesi vara við ferðaskrifstofum: GETA FERDASKRIFSTORJR HÆKKAÐ FERDIR FYRIRVARALAUST? — Grundvöllur ferðarinnar brostinn við hækkunina, segir lögfræðingur Borgarnessamtakanna „Framkoma forstöðumanns þessar- ar ferðaskrifstofu er með þeim ein- dæmum að stjórn Borgarfjarðardeild- ar Neytendasamtakanna getur ekki mælt með viðskiptum við þessa ferða- skrifstofu, nema þá aðeins að þessi aðili sjái að.sér og sýni meiri sann- girni,” segir í Fréttabréfi Borgarfjarð- ardeildar Neytendasamtakanna sem nýlegaer komiðút. Er hér átt við Ferðamiðstöðina h.f. í Reykjavík. Þar sem það er næsta óvenjulegt að sjá á prenti aö fólki sé ráðlagt að beina viðskiptum sínum frá tilteknum fyrirtækjum, hringdum við í Jóhannes Gunnarsson, formann Borg- arfjarðardeildar Neytendasamtakanna og spurðum um forsögu málsins. „Fjölskylda ein héðan úr Borgar- nesi var búin að greiða ferð með Ferðamiðstöðinni að fullu 22. ágúst. Ferðina átti að fara 4. september. Sex dögum fyrir brottför, eða 29. ágúst, er fólkinu tilkynnt skyndilega að það eigi að greiða 20% til viðbótar. Þetta treysti fólkið sér ekki til að gera og til- kynnti að þau yrðu að hætta við ferð- ina,” sagði Jóhannes. „Að mati lögfræðings Neytenda- samtakanna var grundvöllur ferðar- innar brostinn. Liklegt er að fólk verði að spenna bogann til hins ýtrasta til þess að fara i svona ferð og því urðu þessi 20% ofan á verðið þessari fjöl- skyldu ofviða og hún treysti sér ekki til að fara í ferðina. Haft var samband við Guöjón Styrkársson, forstjóra Ferðamiðstöðvarinnar. Fóru fram ótal símtöl og gefin voru mörg loforð. Fólkið hafði að hluta til greitt ferðina með víxli, eða 105 þús. kr. af þeim 542 þúsundum sem ferðin kostaði.Meðal annars lofaði Guðjón þvi að víxillinn færi ekki í umferð. 25. október kemur síðan víxilrukkun frá Samvinnubank- anum og tilkynnt um gjalddaga. Hafði fólkið þá strax samband við Ferðamið- stöðina. Það var beðið um að senda Smáauglýsingar BIAÐSINS Þverholti11 sími 2 70 22 Opið til kl.10 í kvöld víxiltilkynninguna til Ferðamiðstöðv- arinnar og vixillinn yrði þar með úr leik. Þetta var gert. En 30. október kemur aftur bréf frá Samvinnubank- anum þar sem segir að víxillinn liggi þar í vanskilum, þrátt fyrir loforð Guðjóns. Guðjón bauð fólkinu vissulega að eiga ferð inni, eða að endurgreiða 50% af andvirði ferðarinnar, sam- kvæmt skilmálum Félags isl. ferða- skrifstofa. En það vildi fólkið ekki sætta sig við. Á þessu stigi kom þetta mál til kasta Neytendasamtakanna. Égátti töluvert af símtölum við Guðjón og einnig við ýmsa aðila sem víxillinn hafði farið til. Hann fór úr Samvinnubankanum til Olíufélagsins og þaðan til Arnarflugs. Að lokum hef ég fengið staðfest að , Guðjón hafi greitt þennan víxil hjá Arnarflugi. Þetta gefur góða hugmynd um þá hringferð sem víxlar geta lent í! Síðan skrifaði ég Guðjóni bréf í framhaldi af einu simtali okkar. Það bréf var dagsett 4. desember. Þá hafði Guðjón fallizt á að endurgreiða um- ræddu fólki 80% af andvirði ferðar- innar. I bréfinu tók ég fram að ég vænti svars og uppgjörs fyrir 18. desember sl. Síðan er nú komið hátt i tvo mánuði og ekki hefur heyrzt eitt orð frá Guðjóni Styrkárssyni. Þvi er það sem við höfum gripið til þess ráðs að lýsa kröfu i þrotabú Ferðamiðstöðvarinn- ar. Þar sem búið er að lýsa Ferðamið- stöðina gjaldþrota hefur málið ekki farið til lögfræðings,” sagði Jóhannes. „I einu af þeim símtölum sem ég átti við Guðjón viðurkenndi hann fyrir mér að hann væri búinn að nota hluta þeirra peninga sem viðskiptavin- ir Ferðamiðstöðvarinnar höfðu greitt þarna sex dögum fyrir brottför. Þannig er verið að leggja aukalega á neytendur — það er einfaldlega verið að græða á þeim,” sagði Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytenda- samtakanna í Borgarnesi. Loks þykir rétt að geta þess að um- boðsmaður Ferðamiðstöðvarinnar sem seldi umrædda ferð kaus að láta af störfum og veitti góða aðstoð við mál þetta. Hins vegar sagði Jóhannes að hann hefði frétt eftir Guðjóni að Ferðamiðstöðin hefði þegar ráðið sér annan umboðsmann. Því þótti Neyt- endasamtökunum rétt að vara félags- menn sína 'við að eiga viðskipti við fyrirtækið. A.Bj. EINFALT MAL SEM VIÐ HÖFUM REYNT AÐ LEYSA segja talsmenn Ferðamiðstöðvarinnar „Frá sjónarmiði Ferðamiðstöðvarinn- ar hf„ þá er þetta mál mjög einfalt en því miður virðast forráðamenn þessarar við- komandi fjölskyldu frá Borgarnesi ekki vera á sama máli,” sagði Sveinn Gústavsson hjá ferðaskrifstofunni þegaar DB bar undir hann þetta mál, sem rætt er um hér að ofan. „Upphaf málsins var að pöntuð var ferð og hún síðan greidd. Áður en farið var, var gengi íslenzku krónunnar fellt sem oftar. Varð Ferðamiðstöðin þá að leiðrétta verð sín eins og aðrar ferða- skrifstofur. Töldu Borgnesingarnir sig þá ekki geta farið og vildu fá ferðina endur- greidda. Var þá komið það nærri fyrir- hugaðri brottför og búið að ganga frá öllum pöntunum á flugfari og gistingu að það var ekki unnt enda ávallt ákvæði um að slíkt sé ekki skylt svo skömmu fyrir brottför í skilmálum ferðaskrif- stofa.” Fólkinu var aftur á móti boðið að taka tveggja vikna ferð i stað þriggja vikna eins og það hafði ætlað sér I upp- hafi. Vildi það ekki fallast á það. Einnig var því boðið að selja farmiðana öðrum. Ekki var fallizt á það. Þá var af hálfu ferðaskrifstofunnar boðið upp á að þeir innborguðu peningar, sem það hafði greitt yrðu notaðir sem greiðsla á ferð sem það færi síðar. Stendur það tilboð áfram,” sagði Sveinn Gústavsson. „Við teljum að með þessu öllu séum við búnir að gera mun meira heldur en okkur er skylt samkvæmt skilmálum Fé- lags íslenzkra ferðaskrifstofa. Ég vil aftur ámóti ítreka það að síðasta tilboð Ferðamiðstöðvarinnar stendur áfram.” sagði Sveinn Gústavsson að lokum-ÓG.. BÍLAPARTASALAN Höfum úrval notaöra varahluía íýmsar tegundir bifreiöa, tildæmis: Cortina '70 Fíat 125 '73 BMW 1600 árg.'68 Toyota Crown'66 Franskur Chrysler '71 Einnighöfum vid úrvalafkerruefni, til dSemis undir vélsleda. Sendum um allt land. BÍLAPARTASALAN Höföatúni 10 — Sími 11397

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.