Dagblaðið - 13.02.1979, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979.
15
Dagblaðið heimsækir stærstu bfíasýningu íheimi
Ferrari afhjúpaði nekt sína og sýndi hvorki meira né minna en tólf strokka mótor
i vélarhósinu. Þeir fengu sumir fiðring, bilaáhugamennirnir islenzku, er þeir litu
þennan mótor augum.
reiða og reyndar annarra þjóða fram-
leiðslu einnig, þá vekur það helzt at-
hygli að dísiimótorar halda áfram að
ryðja sér til rúms. Sú þróun sem Olds-
mobile hóf með notkun hljóðlátra
dísilmótora virðist ekki verða stöðvuð
úr þessu. Meira að segja Volkswagen
Golf var sýndur með dísilvél sem
markaðsvara.
Annað athyglisvert atriði.kom i Ijós,
sem ætti að gleðja íbúa snjóþungra
landa. Framhjóladrif er sifellt að verða
algengara í bandariskum bílum, sér í
lagi hinum smærri.
Það er vitað mál að með árunum
ASGEIR
TÓMASSON
LJÓSMYNDIR
RAGNAR TH.
SIGURÐSSON
Flestir fólks-
bfíar heimsins
saman komnir
undir einu þaki
Fyrir þann sem hyggst kaupa sér
nýjan bil á næstunni er bílasýning
kjörið tækifæri til að bera saman úr-
valið sem á boðstólum er Þegar sýn-
ingin er á fjórum hæðum í risastóru
sýningarhúsi með 5—600 bíla af bók-
staflega öllum stærðum og gerðum, þá
er hún hreinasta gullnáma.
Sýningin Greater New York Auto
Show, sem haldin var dagana 27.
janúar til 4. febrúar, var af þeirri gerð-
inni. Þar gaf að líta svotil allar — ef
ekki allar — gerðir bandarískra fólks-
bíla auk fjölda tegunda frá Evrópu og
Japan. Slíkt var umfang þessarar sýn-
ingar að einn dagur nægði engan veg-
inn til að líta augum allt það sem aug-
aðkynni aðgleðja.
Aðstandendur Greater New York
Auto Show fullyrða að sýning þeirra
sé hin stærsta í heimi. Á þeim niu
dögum sem hún stóð yfir var reiknað
með að um það bil milljón manns
heimsækti hana. Meðal þeirra sem litu
inn voru 34 íslendingar, sem komnir
voru í hópferð á vegum ferðaskrifstof-
Pontiac Trans Am á tíu ára afmæli á þessu ári. Hann hefur tekiö dálitlum útlits-
breytingum upp á síðkastið. Hvort það er til bóta eður ei
greinir menn hins vegar nokkuð á um.
unnar Olympo. Koma þessara eski-
móa vakti að vonum mikla athygli
innfæddra.
Tæplega eru milljón manns á Stór-
New York svæðinu í þeim hugleiðing-
um að kaupa sér bíla þessa dagana.
Vænn hópur hefur væntanlega lagt
leið sína í Colloseum sýningarhöllina
til að líta augum 1979 árgerðirnar og
bera þær saman við framleiðsluna
siðastliðið ár.
Sé athuguð þróun bandarískra bif-
1 Flaggskipið frá SAAB er með túrbómótor og á nú orðið létt með að stinga margan ameriskan átta gata kaggann af.
OLDSMOEi
m
Til að sýningargestir tækju enn frekar eftir bilunum fengu nokkur bandarfsk bflaumboð sýningarstúlkur til liðs við sig. Þær voru gestum slðan til augnayndis með
frosið bros, milli þess sem þær kynntu bílana af áhuga og þekkingu.
taka línur og lögun bifreiðanna breyt-
ingum. Sönnum bílaáhugamönnum
brá illilea í brún er þeir litu Dodge
Challanger augum. Bíllinn, senj áður
var stolt hvers töffara, leit nú orðið út
eins og meðalmennskuleg Cortina. Og
enn heldur Ford Mustangnum áfram
að hraka i útliti. Vitað mál er að bíla-
hönnuðir vilja láta framleiðslu sína
eldast með aðdáendunum. Það hefur
þó mistekizt í tveimur framannefnd-
um dæmum. — En sem betur fór var á
sýningunni fjöldi góðra gripa sem fékk
sorgmæddar sálir fljótt til að gleyma
sér.
Auk glænýrra bifreiða og fjölda
annarra, frá ýmsum timum, var einnig
kynnt bón, hreinsiefni ýmiss konar,
hjólbarðar og meira að segja Brezka
alfræðiorðabókin, svo að nokkuð sé
nefnt. Þá höfðu bandarísku samtökin
til varnar bílaþjófum sinn stað á sýn-
ingunni.
Of langt mál yrði að fara að gera
grein fyrir öllum sýningargripum
Greater New York Auto Show allt frá
Fíötum og Hondum upp í Rolls Royce
og Stutz. Þess í stað skulum við láta
myndirnar gefa okkur nokkra hug-
mynd um hvað þarna var að sjá. —
-ÁT