Dagblaðið - 13.02.1979, Síða 22
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979.
Dauðinn á Níl
AGATHA CHRISTKS
mom
iraaMiL©
, PIIIR USHHOV' UNf BIRKIH • 1015 CHIliS
BUIt DiVK' Mli lARftOW ■ lOHHHCH
01IVU HllSStY • I.S.KHUB
k GtOftOt KtHHtÐY ■ AHGtLA UHS6URY
1S1M0H MocCORKIHIUIt • DiVID NIVEN
MAGGIt SMITH • UCK NUDtN
.iunucwsKs DUlHONTHt NILf
Frábær ný ensk stórmynd, byggð á sögu
eftir Agatha Christiv. Sýnd við metað-
sókn víða um heim núna.
Leikstjóri: John Guillcrmin
íslenzkur texti.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 3,6 og 9.
Hækkað verð.
• salur
Convoy
Spennandi og skemmtileg ný ensk-
bandarísk Panavision-litmynd, með Kris
Kristofferson, Ali MacGraw — I.cik-
stjóri: Sam Peckinpah.
íslenzkur texti.
Sýndkl. 3.05,5.40, 8.30 og 10.50.
•salur
ökuþórinn
^ mr
Hörkuspennandi og fjörug ný litmynd.
íslenzkur texti.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýndkl. 3.10, 5.05, 7.05,9.05 og 11.05.
— ■ salur
Liðhlaupinn
D-
Spennandi og afar vel gerð ensk litmynd
með Glcnda Jackson og Oliver Rccd.
Leikstjóri Michcl Apdet.
Bönnuð bömum.
Sýnd kl. 3'.10,5.05,7.05,9.05 og 11.05.
I
GAMLA BÍO
D
Ótemjan
J®ml.U476
Skemmtileg og spennandi ný Disney-
mynd, tekin í Ástralíu.
íslenzkur texti.
Sýndkl. 5,7og9.
Folinn
UMFERÐARRÁÐ
SUB
Bráðskemmtileg og djörf ný ensk lit-
mynd. Ein af fimm mest sóttu kvik-
myndum í Englandi sl. ár. — í myndinni
er úrvals diskómúsík, flutt af m.a.
SMOKIE — 10 CC — BACCARA —
ROXY MUSIC - HOT CHOCO-
LATE — THE REAK THING —
TINACHARLESo.rn.fi.
Aðalhlutverk: JOAN COLLINS —
OLIVER TOBIAS
Íslenzkur texti.
Bönnuðinnan 16ára.
Sýndkl. 5, 7,9og 11.
A181IKB I J \RBÍÓ: Seven Beauties. Aöalhlut-
verk: Giancarlo Gianni, Fernandi Rey, leikstjóri: Lina
Wertmuller. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5,7 og 9.
BÆJARBÍÓ:Sjö menn við sólarupprás kl. 9. Bönnuð
börnum.
GAMLA BÍÓ: Sjá auglýsingu.
HAFNARBÍÓ: Sjá auglýsingu.
HÁSKÓLABÍÓ: Grease, aðalhlutverk Olivia New-
ton-John og John Travolta kl. 5 og 9, íslenzkur texti.
Hækkað verð.
HAFNARFJARÐARBÍÓ: Close Encounters kl. 5 og
9.
LAUGARÁSBÍÓ: Derzu Uzala kl. 9. íslenzkur texti.
Rauði sjóræninginn kl. 5 og 7. Bönnuð börnum.
íslenzkur texti.
NÝJA BlÓ: Silent Movie kl. 5,7 og 9.
REGNBOGINN: Sjá auglýsingu.
STJÖRNUBÍÓ: Muhamed Ali sá mesti kl. 5,7, 9 og
11. íslenzkur texti.
TÓNABÍÓ: Lenny, aðalhlutverk Dustin Hoffmann
og Valerie Perrine. Sýnd kl. 5,7.20 og 9.30.
ENDURSKINS-
MERKI ERU
NAUÐSYNLEG
FYRIR ALLA
umferðarrAð
Lltvarp Sjónvarp
MÍN
SKOÐUN
Ánna Bjarnason blaðamaður
segirskoðun sfna
áútvarpiogsjónvarpi^^
Sjónvarpið aðeins í
þrjú kvöld en hafið þá
..dúndur-dagskrá”
Það er jafnan með nokkurri eftir-
væntingu sem ég les dagskrá sjón
: varpsins fyrir næstu viku I föstudags-
blaðinu. Hvað skyldi nú verða boðið
upp á? Stundum veldur dagskráin von-
brigðum, en oftar en ekki eru ýmsir
dagskrárliðir á skjánum sem falla öllu
heimilisfólkinu í geð. Það er dálítið
„breiður" sjónvarpsáhorfendahópur,
því aldurinn er allt frá 15 upp I 78 ár!
Því miður verður að viðurkennast
að við verðum oft öll fyrir von-
brigðum. Við erum orðin hundleið á
að horfa á dularfullar verur á hafs
botni. Sjávarlífsmyndirnar eru allar
hver annarri líkar. Hins vegar vakti
eyðimerkurmyndin mikla athygli
okkar. Sennilega yrðum við lika leið á
eyðimörkinni eftir samsvarandi
skammt og við höfum nú fengið af
sjávarlífsmyndunum!
Hinn almenni sjónvarpsáhorfandi
getur sennilega bent forráðamönnum
sjónvarpsdagskrárinnar á eitt og ann-
að sem betur færi á öðrum stað í dag-
skránni. Dettur mér þá fyrst í hug
„poppdagskrárnar” sem undanfarið
hafa oft verið á föstudagskvöldum.
Þættir þessir eru sennilega fyrst og
fremst ætlaðir unglingum, en ekki full-
orðnu fólki. Ætla mætti að einmitt á
föstudagskvöldum séu unglingarnir
ekki heima hjá sér. Þeir eiga frí í skól-
anum daginn eftir og eru þetta þvi ein-
mitt kvöldin sem þeir geta farið út
að skemmta sér með góðri samvizku.
Önnur kvöld vikunnar hentuðu miklu
betur fyrir svona poppþætti. Þá eru
meiri líkur til þess að áhorfendahópur-
inn sé meira við hæfi.
Það væri gaman að fá upplýst
hvaða sjónarmið það eru sem ráða vali
bíómyndanna sem vaidar eru til sýn-
inga í sjónvarpinu. Er það peninga-
sjónarmið (sparnaöarsjónarmið),
smekkur einhvers eins ákveðins.
manns eða er farið eftir auglýsingum
•og umsögn „sérfræðinga”?
Þessari spurningu og öðrum ámóta
hefur oft verið varpað fram á prenti en
forráðamenn sjónvarpsins láta ekki
svo lítið aðsvara þeim.
Gera þessir menn sér ekki grein
fyrir að sjónvarpið og dagskrá þess á
að vera fyrir áhorfendur en ekki
aðeins til þess að skapa starfsmönnun-
um starfsvettvang? Sennilega ekki.
Nýlega rakst ég á greinarkorn í
bandarísku blaði þar sem sagt var frá
könnun sem gerð var á sjónvarpsglápi
í því mikla sjónvarpslandi, Bandarikj-
unum. 1 Ijós kom að ótrúlega stór
hópur fólks horfir á sjónvarp nærri því
allan daginn. Nokkrar fjölskyldur
voru fengnar til þess að búa við sjón-
varpsleysi í nokkrar vikur.
Svo undarlega brá við að þær fjöl-
skyldurnar sem mest höfðu verið
háðar sjónvarpinu komust að raun um
að vel var hægt að vera án þess. Flest-
um kom að visu saman um að þeir
söknuðu imbakassans, en allir voru á
sama máli að gaman hefði verið að
kynnast fjölskyldunni á ný, menn lásu
bækur, sinntu börnunum sínum,
komu ýmsum hlutum i verk eða hrcin
lega fóru snemma í háttinn.
Þetta þekkjum við frá hinu sjón
varpslausa fimmtudagskvöldi okkar.
nema við höfum það fram yfir banda-
rísku fjölskyldurnar, að við getum
heimsótt vini og kunningja þetta
kvöld.
Sjónvarpsfrí er hreinasta blessun.
Þó má ekki skiija orð min sem svo að
ég vilji loka alveg fyrir sjónvarpið. Alls
ekki. Þvert á móti kysi ég að dagskráin
yrði bæði bætt og lengd.
Hins vegar ættum við að koma
okkur upp fleiri sjónvarpslausum
kvöldum í vikunni — og því fyrr því
betra. Tilvalið væri að bæta mánu-
degi, þriðjudegi og miðvikudegi við
hinn sjónvarpslausa fimmtudag, en
hafa svo dúndur-dagskrá föstudaga,
laugardaga og sunnudaga!
Vel mætti hugsa sér að „varpið"
byrjaði klukkan 5 á föstudögum með
teiknimyndum fyrir þá yngstu (og
elztu), fréttirnar geta áfram verið á
sínum tíma, skemmti- og fræðsluþætt-
ir yrðu á dagskránni eftir fréttir,
þáttur eins og Kastljós á skilyrðislaust
að vera á sínum tíma og síðan að
minnsta kosti tvær bíómyndir.
Laugardagsdagskrána má vel hugsa
sér svipaða, nema þá ætti sjónvarp að
byrja kl. 2 með fréttum, síðan skiptust
teiknimyndir og iþróttir á fram að
kvöldfréttum.
Sunnudagurinn yrði prýðilegur með
svipaðri dagskrárlengd, sem gjarna
mætti þá kannski vera örlitið „þyngri"
eða með meiri menningarbrag en hina
tvodagana!
Með þessu móti hefðu starfsmenn
sjónvarpsins betri tíma til dagskrár-
gerðar heldur en nú er. Árangurinn
yrði algjör „drauma-dagskrá” og við
gengjum á undan öðrum jarðarbúum
með góðu fordæmi með þvi að efla
heimilis- og fjölskyldulíf í landinu!
Ég hef nú aðeins fjallað um sjón-
varpið, en ekki útvarpið eins og segir í
fyrirsögn þessa pistils.
Því miður er min útvarpshlustun i
það niiklu lágmarki aðég getckkí fjall-
að um hana. Ég hlusta nú orðið á lítið
meira en leikritin á fimmtudagskvöld-
um, þvi miður. Áður og fyrr meir var
oft margt skemmtilegt í útvarpinu.
Jú, auðvitað hlustaði ég á Halldór
Laxness lesa söguna sína um daginn
og það var alveg óborganlegt. Mér
fannst sá lestur hins vegar varla nægi-
lega vel auglýstur hjá þeim sem skrifa
um dagskrá útvarps og sjónvarps i
dagblöðunum.
Það ætti að vera fastur liður í
vetrardagskrá útvarpsins að fá Halldór
Laxness til þess að lesa úr verkum sín-
um. Rétt eins og lestur úr Islendinga-
sögunum ætti að vera fastur liður i út-
varpinu. - A.Bj.
HÆTTULEG ATVINNA - sjónvarp í kvöld kl. 21.40:
Verður Helmer á
undan Sommer?
Sakamálamyndaflokkurinn norski,
Hættuleg atvinna, reynist þegar á er
horft bæði vel gerður og spennandi. 1
kvöld sjáum við síðasta þáttinn sem
nefnist Þriðja fórnarlambið.
Þegar hafa tvær ungar og fagrar
stúlkur horfið og síðar fundizt myrtar.
Þegar slðasti þáttur endaði var athygli
áhorfandans beint mjög að einni enn
ungri og fagurri og læðist að manni sá
grunur um að hún verði þriðja fórnar-
lambið.
Helmer lögga og Sommer
rannsóknarblaðamaður keppast um að
finna út hver valdur geti veriö að
þessum óhugnanlegu morðum. Það
verður að segjast eins og er að
samúðin er öll með Helmer en
Sommer gerður að hálfógeðslegri
manngerð. Sem betur fer eru íslenzkir
rannsóknarblaðamenn ‘ ekki alveg
svona slæmir.
Bruun vinnuveitandi Benediktu,
fyrri stúlkunnar sem hvarf, er eins og
Sommer, gerður hálfógeðsleg'ur. Ekki
bætir úr skák að hann hefur grætt of
fjár á dreifingu klámrita. Grunur um
morð Benediktu fellur i fyrstu á hann
en lítill strákur getur gefið honum fjar-
vistarsönnun á meðan morðið var
framið.
Ekki er enn Ijóst hvaða þáttur það
verður sem kemur í staðinn fyrir
Hættulega atvinnu á
þriðjudagskvöldum.
-DS.