Dagblaðið - 14.03.1979, Síða 1
5. ÁRG. - MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979 - 62. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022.
„Stjóraarflokkamir
munu bræða sig saman”
— segir Gunnar Thoroddsen
,,Ég er þeirrar skoðunar að stjómar-
flokkarnir muni bræða sig saman eins
og oft áður, þótt þeir hafi ekki orðið
sammála um að flytja frumvarpið sem
stjórnarfrumvarp,” sagði Gunnar
Thoroddsen, formaður þingflokks
sjálfstæðismanna, í viðtali við DB i
morgun.
Hann sagði að Sjálfstæðisflokkurinn
vildi fremur fara í kosningar en hefja
stjómarmyndunarviðræður við aðra
flokka, ef slík staða kæmi upp.
„Það er ýmislegt í þessu frumvarpi,
sem við getum fallizt á en einnig eru þar
ákvæði, sem við getum ekki sam-
þykkt,” sagði Gunnar Thoroddsen.
-HH
l’JUl i
n 1
i i
Skyggtá
karlinn í
tunglinu
Við urðum vitni að deildarmyrkva á
tungli í gærkvöldi, enda veður hið
fegursta og gott skyggni. Rétt eftir kl.
sex í gærkvöldi byrjaði hálfskugginn að
færast inn fyrir rönd tunglsins, en
er tunglið var komið upp fyrir
sjóndeildarhring í austri um kl. hálf
átta, byrjaði alskugginn að færast yfir
það.
Myrkvinn náði hámarki rétt um kl.
níu í gærkvöldi, en þá huldi hann
meirihluta tunglsins.
-HP/DB-mynd Hörður.
DæmtíGrjót-
jötunsmálinu og
ákært í
Landsbanka-
málinu
^--sjábta5og8
Vilja Luxemborgarar
kaupa 40% ■' Flugleiðum?
—en hefja eigið Atlantshaf sf lug ella
Þrír forstjórar Flugleiða hf. eru
nú staddir í Luxemburg til þess að
sitja stjómarfund i Cargolux.
Flugleiðir em eigendur þess að 1/3,
Salina i Svíþjóð á 1/3 og aöilar i
Luxemburg eiga 1/3 iCargoIux.
Brynjólfur Ingólfson, ráðuneytis-
stjóri i samgönguráðuneytinu er t
Luxemburg til að fylgjast með við-
ræöum, sem fram fara milli Cargloux
og Flugleiða hf.
Benedikt Gröndal, utanríkis-
ráðherra, ætlaði til Luxemburg í gær,
einnig til þess að fylgjast með þessum
sömu viðræðum. Stjómmálaástandið
hér tefur utanrikisráöherra enn.
Cargolux hefur sýnt áhuga á far-
þegaflugi og meðal annars
stundað leiguflug til Austurlanda. Nú
herma óstaðfestar fregnir, að
Cargolux vilji kaupa ekki minna en
40% í Flugleiðum og taka þannig
þátt i bæði farþega- og leiguflugi
meðal annars á Norður-Atlantshafs-
leiðinni.
Aðild erlends flugfélags að flugi
til Bandaríkjanna er ekki aðeins sam-
göngumál, heldur lika utanrikismál.
Forsætisráðherra var heldur dapur er hann kom af rikisstjórnarfundinum i gærkvöld
— um tíu minútum eftir að ráóherrar Alþýðubandalagsins höfðu gengið af fundinum.
Ólafur sagði fréttamönnum fátt, sagðist ætla að leggja frumvarpið fram sjálfur á
flmmtudag. -DB-mynd: Hörður
„Allt bendir
til kosninga"
—segir Lúðvík. „Alþýðubandalagið
hefur líf stjórnarinnar íhendi sér
segir Steingrímur—sjá baksíðu