Dagblaðið - 14.03.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979.
Lesandi hafði samband við blaðið
og vildi mótmæla mótmælum ungrar
stúlku í blaðinu 9. marz vegna nafna-
birtingar þeirra íslendinga sem við-
riðnir eru fikniefnamálið i Kaup-
mannahöfn. Taldi hann afbrot það
sem ungmennin eru sökuð um vera af
þeirri tegund að nafnabirting væri al-
veg sjálfsögð. f tilvikum sem þessum
bæri fjölmiðlum engin skylda til að
bíða eftir því að fjölskyldunni hefði
verið tilkynnt um handtökuna. Frétt-
ir af máli þessu birtust fyrst í dönsk-
um dagblöðum en með þessum
blöðum bárúst þessar fréttir hingað
heim, tveim dögum síðar. Annað mál
væri ef um dauðsfall væri að ræða,
en um slíkt er ekki að ræða hér.
Marijúanaræktun i Colombiu.
SJÁLFSAGT að birta
NÖFN ÍSLENDINGANNA
Draumur hjartasjúklingsins
Unnur M. Andressen skrifar:
Hjartabíllinn er jarðfast dæmi um
lygamötun almennings og hræsnara-
lega yfirborðsmennsku. Þetta merki-
lega farartæki, sem mótaði þáttaskil i
sjúkraflutningum á íslandi með því
„Hjartabíllinn" sem nú er uppgef-
inn og tekinn úr umferð sést hér til
hægri. Við hlið hans stendur nýjasti
og fullkomnasti bíll Reykjavíkur-
deildar Rauða krossins.
DB-mynd Sveinn Þormóðsson.
einu að vera öðruvísi í laginu en hinir
sendiferðabílarnir á Slökkvistöð
Reykjavíkur. Annað hafði þessi
merkilega þáttaskilabifreið ekki fram
yfir hinar. Nefna mætti kraftlausan
mótor sem gerði það að verkum að
hann var hægfarasta farartækið í
sjúkrabílaflotanum. Auk þess hafði
hann einu leguplássi minna en hinir.
En það sem hann ætti að hafa haft
fram yfir aðra sjúkrabila hérlendis er
tæki það sem Blaðamannafélag ís-
lands gaf í minningu Hauks heit-
ins Haukss., en tæki þetta heitir
Defibrillator og er í öllum sjúkrabif-
reiðum í Evrópu og þykir sjálfsagður
og nauðsynlegur hlutur. Tæki þetta
hefur tvennskonar eiginleika til að
bera.Annars vegar er það mjög hand-
hægt og einfalt tæki til þess að fylgj-
ast með hjartaslögum, en þau koma
fram á skermum. Hins vegar er aðal-
tækið sem gefa skal með raflost ef
um hjartastöðvun er að ræða.
Gallinn við þetta merkilega tæki er
bara sá að það hefur aldrei verið not-
að og mun heldur aldrei verða notað
á meðan rafvirkjar, húsasmiðir og
fleiri iðnaðarmenn aka sjúklingum
hér í borg. í greininni Hjartabíllinn
úr umferð eftir dygga þjónustu, sem
birtist í Dagblaðinu 2. marz sl. segir
meðal annars (á hjartahrærandi hátt
eins og gefur að skilja): ,,f honum
voru tæki sem áður höfðu ekki
þekkzt hér og gátu bjargað lífi sjúkl-
inga á leið til sjúkrahúss.” Ef þetta er
staðhæfing um að það hafi nokkum
tíma gerzt, er það ekki tæknibúnaði
bílsins að þakka, heldur góðum til-
þrifum áhafnarinnar sem hefur af til-
viljun verið af skárri endanum.
Skyldi vera 35 ára gömul járnkarfa í
nýjahjartabílnum?
Raddir
lesenda
RAGNHEIOUR
kristjánSdótti
I
m
N -M
UNGLINGA
DANSLEIKUR
FYRIR 16ÁRA OG ELDRI FRÁ 8-1130
iViíckíeQee
HEFUR NAÐ TAKMARKINU !
1200
TIMUM
k
%
EN HANN HELDUR ÁFRAM OG
ÆTLAR SÉR AÐ GERA BETUR.
GLEYMD BÖRN’79. ÞAKKA
- BLIKK OG STÁL-
VEITTA FJÁRHAGSAÐSTOÐ
video
YMSIR KUNNIR LISTAMENN
Munið söfnunina’GLEYMD BÖRn’79,
Einar Birgir Einmundsson: Ég er anzi
hræddur um að hún sé á förum og mér
finnst það heldur leiðinlegt að hún
skuli ekki endast lengur. Ég átti von á
því.
Telurðu að
ríkisstjórnin
sé að falla?
Sveinn Bjarnason: Hún mætti alveg
falla.
Spurning
dagsins
Margrét Rögnvaldsdóttir: Ég held aó
hún séekki að falla. Annars skiptir litlu
máli hver ríkisstjórnin er.
Sigmar Sigurðsson: Ég held ekki. Ég
held að hún sé aldrei harðari af sér en
núna. Annars er erfitt að gera upp á
milli ríkisstjórna. Þetta er hver silki-
húfan upp af annarri.
pi
Sigurður M4r Gestsson: Ég
ert um það. Ætli þessi ríkisstjórn sé
nokkuð verri en aðrar.
Snorri Steinþórsson: Það er vafamál en
manni finnst það nú svona frekar.
Alþýðubandalagið virðist alveg fara
eftir því sem stjóm ASf segir.