Dagblaðið - 14.03.1979, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 14.03.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979. 9 GUÐBJA RTSMÁ UÐ AFTUR f GANG Rannsókn Guðbjartsmálsins svo- nefnda er um það bil að hefjast af fullum krafti hjá Rannsóknarlög- reglu ríkisins, að sögn Erlu Jónsdótt- ur deildarstjóra við RLR. Rannsóknin mun beinast að til- teknum atriðum, einkum samskipt- um Guðbjarts heitins Pálssonar við; þrjá „aðila” — öm Clausen hæsta- réttarlögmann, Samvinnubankann c/o Kristleifur Jónsson bankastjóri og útibú Útvegsbankans í Kópavogi Mörg fleiri atriði og tengsl verða rannsökuð. Þetta kemur fram í kröfugerð ríkissaksóknara til sakadóms Reykja- víkur um að málið yrði tekið til rann- sóknar fyrir dómi í framhaldi af þeirri rannsókn sem hófst með hand- töku Guðbjarts Pálssonar o.fl. í Vogum 6. desember 1976 og lauk með láti hans um ári siðar. Sakadómur synjaði um kröfuna og var úrskurður Halldórs Þorbjörns- sonar yfirsakadómara kærður til Hæstaréttar. Hæstiréttur staðfesti úrskurðinn með dómi 26. október í haust. Þar var lögð fram upphafleg rannsóknarkrafa rikissaksóknara og úrskurður yfirsakadómara sem eru opinber plögg og birt hér í heild. -ÓV.i Úrskurður sakadóms Reykjavikur 26. september 1978. Ár 1978, þriðjudaginn 26. sept- ember, er úrskurður þessi kveðinn upp á dómþingi sakadóms Reykja- víkur, sem háð er í Borgartúni 7 af Halldóri Þorbjörnssyni yftrsakadóm- ara. Hinn 24. júlí sl. sendi ríkissaksókn- ari dóminum endurrit af dómsrann- sókn, sem fram hafði farið í saka- dómi Reykjavíkur í lok árs 1976 og janúar-mars 1977 á hendur Guðbjarti Þórði Pálssyni, Bragagötu 38 A, en Guðbjartur hafði látist 21. mars 1977. í bréfi ríkissaksóknara er gerð krafa um, að dómsrannsókn fari fram. Þykir verða að taka hér upp orðrétt kröfugerð rikissaksóknara: Saksóknari krefst rannsóknar „Embættið hefur nú lokið athug- un sinni á fyrirliggjandi rannsóknar- gögnum máls þessa og komist að þeirri niðurstöðu, aö þrátt fyrir and- iát hins kærða sé ástæða til aö halda áfram rannsókn á vissum þáttum málsins, einkum að því er varðar ætl- aða hlutdeild annarra manna í ætluð- um fjársvika- og fjárdráttarbrotum kærða og e.t.v. þá sjálfstæðum refsi- lagabrotum þessara sömu manna, og verður nú gerð nánari grein fyrir þeim þáttum málsins, sem óskaö er jeftir, að framhaldsrannsóknin beinist áð, svo og þeim mönnum, sem hugs- anlega gætu tengst ætlaðri brota- starfsemi kærða, Guöbjarts Þórðar, |með refsiverðum hætti: Guðbjartur leggur inn á reikning Arnar Clausen i. Rannsökuð verði nánar fjármála- ileg samskipti Amar Clausen, hæsta- réttarlögmanns hér í borg, og Guö- bjarts Pálssonar, einkum á árinu 1973. Fyrir liggja í málinu gögn, sbr. dskj. 21 og 34, um það, að Guðbjart- ur Pálsson hafi á tímabilinu 17. apríl — 2. ágúst 1973 lagt inn á hlaupa- reikning Arnar Clausen nr. 164 við Útvegsbanka tslands, Kópavogi, samtals kr. 9.840.810.-, sem óupplýst er, hvaöan var runnið. Guðbjartur Pálsson hefur haldið þvi fram, að örn Clausen hæstaréttariögmaður. örn hafi átt þetta fé, en öm aftur hinu gagnstæða, og hefur hann jafn- framt fullyrt, að Útvegsbankinn i Kópavogi hafi á þessum tima keypt af Guðbjarti tðluvert magn af verð- bréfum og hafi andvirði bréfanna verið lagt inn á hlr. 164 samkvæmt samkomulagi þeirra Guðbjarts. örn hefur ennfremur haldið því fram, að hann hafi greitt Guðbjarti út af reikningunum allt þetta fé, sem er þó ósennilegt, þar sem aðeins finnast 17 tékkar, samtals að fjárhæð kr. 2.949.000.-, sem tékkaöir hafa verið út af reikningnum til Guðbjarts. Þar sem hér er um að ræða veru- Úr hæstaréttardómi: TiHtekin viðskipti Guðbjarts við lögmann og tvo bankastjóra — sem ríkissaksóknari vill láta rannsaka legar fjárhæðir, sem engin viðhlít- andi grein hefur verið gerð fyrir af hálfu Arnar Clausen, þykir bera nauðsyn til að halda áfram rannsókn á þessum þætti málsins með eftir- greindum hætti: .. að örn Clausen hafi aflað sér fjárins með sölu á innistæðu- lausum tékkum... og notið aðstoðar Guðbjarts... 1. Aflaö verði upplýsinga frá Út- vegsbanka islands i Kópavogi um þaö, hvort bankinn hafi á fyrr- Kristleifur Jónsson, bankastjóri Samvinnubankans. Ljósm. Tíminn. greindu tímabili keypt af Guðbjarti Pálssyni veröbréf í einhverjum mæli, og hafi svo verið, verði aflað hjá bankanum ljósrita af þeim verðbréf- um og af reikningum bankans vegna kaupanna. 2. Teknar verði skýrslur af skuld- urum (seljendum) verðbréfanna og þeir inntir eftir þeim viðskiptum, er1 kunna að hafa legiö til grundvallar afhendingar eða sölu á verðbréfum til Guöbjarts eða e.t.v. Arnar. 3. Leiði rannsóknin í ljós, að öm Clausen hafi í einhverjum mæli keypt verðbréf með afföllum, skal kannað, hvort og þá hvernig þau hafi verið færð i bókhaldi eða á skattaframtali Arnar. 4. Komi það hinsvegar 1 ljós, að fjárinnlagnir Guðbjarts Pálssonar á hlr. 164 verði ekki skýrðar með verð- bréfakaupum af hálfu bankans, skal rannsóknin beinast að þeim mögu- leika, að öm Clausen hafi aflað sér fjárins með sölu á innistæðulausum tékkum, dagsettum fram i tímann, og notið til þess aðstoðar Guðbjarts Pálssonar, Hafi svo verið, verði kannað, hvernig örn hafi þá tryggt innstæöu fyrir tékkunum á skráðum útgáfudegi þeirra. í þessum sam- böndum er rétt að benda á, að víða kemur það fram í rannsókninni, að Guðbjartur hefur komið tékkum frá Emi 1 „geymslu” hjá mönnum. Kannað verði, hvort þetta þýði það, jað þessir menn kaupi tékkana með afföllum eða með öðmm hætti. 5. Nauðsyn kann að verða á því að afia gagna úr bókhaldi Arnar Clausen til upplýsinga og glöggvunar um framangreind atriði, og skal þá skorað á örn að leggja þau fram, en ella að afla þeirra eftír réttarfarsleið- um. Felur fyrirgreiðsla Samvinnubankans í sér hlutdeild banka- stjóra og banka- ii. Sá þáttur annar i máli þessu, sem óskað er frekari rannsóknar á, er við- skipti Guðbjarts Pálssonar við Samvinnubankann i Reykjavík á ár- unum 1969—1974. Skal rannsóknin miöast að því að upplýsa, hvort fyrir- greiðsla sú, sem Guðbjartur Pálsson naut hjá bankanum á fyrrgreindum ámm, einkum í formi verðbréfa- kaupa af Guðbjarti, sem aflaði sér veröbréfanna með affallakaupum, en jbankinn keypti svo á nafnverði, og |með yfirdráttarheimildum á hlaupa- reikningi Guðbjarts við bankann nr. 3131, feli í sér hlutdeild af hálfu for- ráðamanna bankans, þ.e. banka- stjóra og bankastjóma á fyrrgreindu timabili, í ætluðum auðgunarbrotum og skattalagabrotum Guðbjarts Páls- sonar eða sjálfstæðum refsilaga- þrotum þessara sömu manna, sbr. 263. gr. almennra hegningarlaga, með stórfelldum verðbréfakaupum af manni, sem samkvæmt opinberum gögnum hafði alllengi verið bæði eignalaus og tekjulítUl. Rannsókn- inni skal háttað með eftirgreindri upplýsingaöflun: Hver útfyllti tékkana? 1. Aflað verði til framlagningar í málinu ljósrita af skattaframtölum ;Og álagningarseðlum Guðbjarts fyrir skattárin 1970—1975. , 2. Teknar verði skýrslur af skuld- urum (seljendum) verðbréfa þeirra, sem Samvinnubankinn keypti af Guðbjarti, sbr. dskj. 66, um það, með hvaða hætti Guðbjartur komst lyfir verðbréfin og á hvaða kjörum. 3. Tekin verði frekari skýrsla af Kristleifi Jónssyni, bankastjóra Sam- vinnubankans, og hann sérstaklega inntur eftir tilkomu 11 tékka, sbr. dskj. 30, sem allir eru útgefnir af Erni Clausen á hlr. 164 við Útvegs- bankann í Kópavogi á tímabilinu apríl-júh' 1973, samtals að fjárhæð kr. 1.894.000.-, en tékkar þessir eru allir tekjufærðir á hlr. 3131, án fram- sals, en áritaöir af einhverjum, að lík- indum starfsmanni bankans, um að þeir skuli leggjast inn á greindan hlaupareikning. Ennfremur er aug- ljóst, að meginmál tékkanna er ritað af öðrum en útgefanda þeirra, og skal Kristleifur inntur eftir því, hvort hann búi yfir upplýsingum um það og ástæðum þess, að svo var gert, enda verði þær upplýsingar bornar undir útgefanda tékkanna, örn Clausen, og hann þá jafnframt inntur eftír því, hvaða viðskipti hafi legið að baki af- hendingar tékkanna. „... að bankinn fengi verðbréfin að einhverju eða öllu leyti til skulda- jöfnunar á nafn- verði við skuldir Guðbjarts í bankanum" Rétt þykir, að Kristleifur Jónsson verði sérstaklega yfirheyrður um vitneskju hans sem bankastjóra um efnahag og tekjumöguleika Guð- bjarts Pálssonar á fyrrgreindu tíma- bití sem viðskiptamanns bankans og þá jafnframt hver hafi verið viðhorf hans sem bankastjóra um getu Guð- bjarts til svo umfangsmikilla verð- bréfakaupa sem raunin varð á. Loks verði Kristleifur beinlinis inntur eftír því, hvort hinar stöðugu yfirdráttar- heimildir bankans til Guðbjarts á hlr. 3131 á fyrrgreindu timaþili hafi verið veittar af hálfu bankans í því skyni að gera Guðbjarti kleift aö stunda af- fallakaup á verðbréfum með þeim skilyrðum, að bankinn fengi verð- bréfin að einhverju eða öllu leyti til skuldajöfnunar á nafnverði við skuldir Guðbjarts i bankanum. Hafi svo ekki verið, skal gengið eftir hjá Kristleifi, hvaða sjónarmið hafi þá ráðið þessum áframhaldandi yfir- dráttarheimildum. Hvað vissi Samvinnubankinn um tekjumöguleika Guðbjarts? 4. Tekin skal skýrsla af formanni (mönnum) bankaráðs Samvinnu- bankans á fyrrgreindu timabili og borinn undir hann framburður Krist- leifs Jónssonar, bankastjóra, á bls. 46 i endurriti dómsrannsóknarinnar um það, að viðskipti bankans við Guðbjart Pálsson, hvort sem þar var um að ræða veröbréfakaup af Guð- bjarti eða hina sérstæðu framkvæmd á yfirdráttarheimild á hlr. 3131, hafií. einu og öllu verið framkvæmd að vilja bankastjómarinnar í þessum efnum. Borin skal undir bankaráös- formanninn í þessum samböndum dskj. 66, þ.e. kaupnótur bankans á verðbréfum, og dskj. 67, þ.e. yfirlit yfir tékkaútgáfu Guðbjarts á hlr. 3131, eftir að tékkhefti höfðu verið tekin af honum að ákvörðun banka- stjórnarinnar, en honum þess í stað fengin í hendur tékkaeyöublöð, eitt eða fleiri í einu, samtals 55 blöð á tímabilinu, jafnframt því sem honum var heimiluð, eftir því sem næst verður komist, tékkaútgáfa á reikn- inginn, sem nam samtals á tímabil- inu kr. 10.131.879.-. Bankaráðsfor- maðurinn skal, ef rétt reynist, að við- skiptin við Guðbjart hafi verið með vitund og vilja bankaráðs, inntur eftir, með sama hætti og Kristleifur Jónsson, viðhorfum bankaráðs til efnahags og tekjuöflunarmöguleika Guðbjarts á sínum tíma og hvaða sjónarmið hafi ráðið framanlýstum viðskiptaháttum við Guðbjart. 5. Komi inn I rannsóknarmyndina einhverjir þeir aðrir, sem um þessa þætti gætu borið, óskast teknar skýrslur af þeim að því marki sem til- efni kann að gefast til. Áhersla er lögð á það, að allar framangreindar yfirheyrslur fari fram í dómi, en umbeðin gagnaöflun og aðrar rannsóknaraðgerðir fari samkvæmt 4. mgr. 12. gr. laga nr. 107/1976 um breyting á 74. gr. laga nr. 74/1974 um meðferð opinberra mála fram með aðstoð rannsóknar- lögreglu rikisins eftir því sem rann- isóknardómarinn telur nauðsyn bera til.” Kröfu þessari synjaði dómurinn með bréfi tíl rikissaksóknara, dags. I. ágúst. Með bréfi, sem dagsett er 6. þ.m., en sent var sakadóminum 20. þ.m., krafðist ríkissaksóknari þess, að formlegur úrskurður yrði felldur um synjunina. Með bréfi þessu bárust gögn þau, sem fylgt höfðu bréfinu 24. júlí, en eigi hafði í neinu verið bætt úr vanköntum þeim á málatil- búnaði, sem lýst hafði verið í bréfi sakadóms 1. ágúst. Sakadómur hafnar kröfu um rannsókn Krafa ríkissaksóknara um dóms- rannsókn fullnægir ekki skilyrðum 74. gr. laga 74/1974,'sbr. 12. gr. laga 107/1976, svo sem nú skal skýrt nán- ar: 1. Sakborningur er ekki til- greindur svo ótvírætt sé, svo sem boðiðerí 1. tl. 2. mgr. 74. gr. 2. Sakarefni er ekki tilgreint nægi- lega skýrt, sbr. 2. tl. 2. mgr. 74. gr. 3. Samkvæmt upphafsákvæði 74. gr. er ekki gert ráð fyrir, að dóms- rannsóknar sé beiðst fyrr en frum- rannsókn hefur farið fram. Um sakarefni þau, sem helst verfur að ætla, að rannsókn eigi að beinast að, hefur ekki farið fram slik undirbún- ingsrannsókn. Kemur það Ijóst fram í einstökum liðum kröfugerðarinnar, en þar er m.a. krafist öflunar ýmiss konar skjala og könnunar á bókhaldi og skattframtölum (I.I., 3. og 5., II. 1.). Slík gagnaöflun til undirbún- ings dómsmeðferðar heyrir til frum- rannsókn (sbr. 32. gr. laga um með- 'ferð opinberra mála, 3. mgr. i.f.) og á að vera lokið áður en dómsrann- sóknar er krafist. 4. Gögn, sem fylgdu beiðni ríkis- saksóknara, þ.e. endurrit af dóms- rannsókn ásamt 73. fskj. 4 skjala- möppum með ýmiss konar gögnum, kassi með tölvuútskriftum, enn ifremur bréf rikissaksóknara 17. febr. J977 ásamt 1 fskj., eru öll i einriti. iSamkvæmt 3. mgr. 74. gr. skulu gögn fylgja beiðni um dómsrannsókn i nægilega mörgum eintökum, og yerður hið fæsta komist af með eitt éintak handa dóminum og afrit handa hverjum sakborninga eða lög- mönnum þeirra. Krafa ríkissaksóknara verður sam- kvæmt þvi, sem nú hefur verið rakið, eigi tekin til greina. Úrskurðarorð: Framangreind krafa rikissaksókn- ara um dómsrannsókn verður ekki tekintilgreina.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.